Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ2003 Botnlangakast og blóðtappi í fæti Minnkandi atvinnuleysi BJÖRGUN: Skipstjóri rúss- neska rannsóknarskipsins Geolog Dmitriy Navilov hafði samband við stjórnstöð Land- helgisgæslunnar í gærmorgun og óskaði eftir aðstoð vegna veiks skipverja um borð. Þyrlu- læknir Landhelgisgæslunnar taldi sennilegt að hinn 22 ára skipverji væri með slæmt botnlangakast og var ákveðið að sækja hann með þyrlu. Af öryggisástæðum vartalið nauðsynlegt að Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar fylgdi þyrlunni til að halda uppi fjar- skiptum þar sem um langt flug var að ræða. Rétt áður en flug- vélin fór í loftið barst stjórn- stöð beiðni um aðstoð vegna farþega um borð í skipinu Albatros sem skráð er í Ba- hama.Talið var að hann væri með blóðtappa í fæti. Er sig- menn um borð í þyrlunni höfðu lokið við að hífa sjúk- linginn frá rússneska skipinu um borð var haldið í átt til Albatros. Vélarnar héldu síðan til Hafnar í Hornafirði þar sem sjúklingarnir voru fluttir um borð íflugvélina. ATVINNA: (maímánuði sl. voru skráðir 116.419 atvinnuleysis- dagar á landinu öllu sem jafn- gilda því að 5.298 manns hafi að meðaltali verið á atvinnu- leysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 3,6% af áætlun Efnahagsskrifstofu fjármála- ráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði í maí 2003. At- vinnuleysi var 3,9% í apríl sl. en 2,5% í maí í fyrra. Atvinnuleysið fer því minnkandi, þótt það sé enn mun meira en á sama tíma í fyrra. Yfirleitt batnar atvinnuá- standið frá maí til júní, m.a. vegna árstíðasveiflu. Framboð lausra starfa hefur talsvert auk- ist og því er líklegt að atvinnu- leysið minnki í júní og verði á bilinu 3,2% til 3,5% Franska fréttastofan AFP um varnarmál íslendinga: íslendingar hóta Banda- ríkjamönnum brottrekstri Franska fréttastofan AFP segir að ísiendingar beiti Banda- ríkjamenn hörku í viðræðun- um um varnarsamstarf ríkj- anna og vitnar meðal annars í ummæli Davíðs Oddssonar í viðtali við Morgunblaðið fyrir tveimur árum. í frétt AFP segir að svo virðist sem íslendingar séu reiðubúnir að láta sverfa til stáls í viðræðunum (e. „play hardball“) og setja Banda- ríkjamönnum þá afarkosti, að ef þeir svipti íslendinga loftvömum skuli þeir hafa sig á brott með allt sitt lið frá Keflavíkurflugvelli en varnarstöðin þar sé Bandaríkja- mönnum þrátt fyrir allt mikilvæg. Vilja fara í sumar I fréttinni segir að í áætlunum Bandaríkjamanna felist að F-15 or- ustuflugvélarnar, björgunar- þyrlurnar og eldsneytisflugvélar verði farnar frá íslandi eftir aðeins örfáar vikur - fyrir sumarlok - og að þar með yrði úti um loftvarnir ís- lands. Vitnað er í Val Ingimundar- son prófessor sem segir að deilan sé einhver sú alvarlegasta sem hafi komið upp í samskiptum ríkjanna tveggja frá lokum kalda stríðsins. Haft er eftir honum að George Bush Bandaríkjaforseti gæti þurft að skerast sjálfur í leikinn til að koma í veg fyrir að ástandið fari hreinlega úr böndum. í fréttinni segir að í áætlunum Bandaríkjamanna felist aðF-15 orustuflugvél- arnar, björgunar- þyrlurnar og eldsneyt- isflugvélar verði farnar frá íslandi eftir aðeins örfáar vikur. Vitnað í Davíð AFP segir að fátt bendi til þess að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi breytt afstöðu sinni frá því fyr- ir tveimur ámm þegar hann lýsti því yfir að annaðhvort yrði viðbún- aður Bandaríkjamanna hér á landi óbreyttur eða enginn. Davíð tjáði sig um varnarmálin í viðtali við Morgunblaðið 5. maí 2001 í tilefni af því að hálf öld var liðin frá því að varnarsamningur- inn var gerður. í viðtalinu sagði Davfð meðal annars: DAVlÐ VORIÐ 2001: „Ef Bandaríkjamenn komast að þeirri niðurstöðu að þeir vilji ekki halda uppi stöð sem þjóni hagsmunum beggja verður hún einfaldlega lögð niður." „Hér á ekki að vera varnarstöð ef hún þjónar eingöngu eftirlits- og forvarnahlutverki íyrir Bandaríkja- menn vegna hugsanlegrar hættu á svæðinu og þjónar ekki því sem við skilgreinum sem varnir íslands. Ef Bandaríkjamenn komast að þeirri niðurstöðu að þeir vilji ekki halda uppi stöð sem þjóni hagsmunum beggja verður hún einfaldlega lögð niður. Flóknara er þetta ekki og í þessu felst engin hótun. [...] Við munum á næstu ámm þurfa að hafa svipaðan viðbúnað og hér er nú, ákveðinn lágmarksfjölda flug- véla. Stöðin getur ekki verið minni en hún er.“ Fyrir fram virðist óhætt að gera ráð fyrir að út úr þessum orðum forsætisráðherra megi lesa stefnu íslenskra stjórnvalda í viðræðum við Bandaríkjamenn nú en ekki náðist í Davíð Oddsson í gær til þess að staðfesta það. Þorsteinn Sæmundsson stjarn- fræðingur, sem var einn forsvars- manna átaksins Varið land fyrir tæpum þremur áratugum, segist í viðtali við DV í dag telja að núver- andi viðbúnaður Bandaríkjamanna á íslandi sé of lítill ef eitthvað er. Hins vegar efist hann um að rétt sé að segja upp varnarsamningnum við Bandarflcjamenn þótt þeir haldi því til streitu að draga enn frekar úr viðbúnaðinum. olafur@dv.is Kettir hverfa sporlaust á Sauðárkróki: Tveir kettir drápust vegna barsmíða Gamall og góður heimiliskött- ur hvarf af heimili sínu á Sauð- árkróki í síðustu viku og var hans mikið leitað af íbúum staðarins. Ólin hans fannst skömmu síðar í götunni þar sem hann átti heima og héldu eigendur hans að hann hefði orðið fyrir bfl. Nokkrir krakk- ar fundu síðan mjög illa leikinn kött á vinsælu útivistarsvæði á Krókn- um en hann lá þar, brotinn á tveimur löppum og mikið lemstr- aður. Við hlið hans fannst köttur- inn sem leitað hafði verið að og var hann dauður. Slasaði kötturinn var samstundist fluttur til dýralæknis sem gat ekkert annað gert en að af- lífa hann. Sagði læknirinn ljóst að áverkar kattanna tveggja væm af manna- völdum og svo virtist sem þeir hefðu verið barðir til óbóta. Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki er ekki vitað hverjir vom þarna að verki og em allar ábendingar vel þegnar. Áverkar kattanna voru afmannavöldum og svo virðistsem þeir hafi verið barðir til óbóta. Óvenjumikið hefur verið um það á síðustu vikum á Sauðárkróki að kettir hafl horfið sporlaust af heim- ilum sínum og hefur fólk verið að hengja upp auglýsingar um kettina sína víðs vegar um bæinn. Lögregl- unni þykir gmnsamlegt að kettirnir hafa flestir horfíð af sama svæðinu en nú síðast hurfu fjórir nýfæddir kettlingar af sama heimilinu. Kettir hurfu í Vestmannaeyjum Nokkur dularfull kattahvörf vom einnig í Vestmannaeyjum fyrr á þessu ári en lögreglunni þar barst fjöldinn allur af tilkynningum um horfna ketti og töluvert bar á smá- auglýsingum í Eyjafréttum þar sem auglýst var eftir köttum. Hinir horfnu kettir virtust allir vera frá sama svæðinu í bænum og bjuggu þrír þeirra í sama húsi. Ó1 eins katt- arins fannst sundurskorin og þótti það renna stoðum undir þann gmn manna að einhver óprúttinn peyi stæði að baki hvarfs kattanna. Ekki hefur enn komið í ljós hvort katta- hvarfið var af mannavöldum en einn heimildarmaður DV taldi að þar sem loðnuvertíðin hefði staðið sem hæst á þessum tíma væri hugsanlegt að kettirnir hefðu lagst út tímabundið og myndu skila sér síðar. -eká KATTAHVÖRF: Dularfull kattahvörf hafa átt sér stað á Sauðárkróki og í Vestmanna- eyjum undanfarið en lögreglan er engu nær. Myndin var tekin á dýraspítala og tengist ekki efni fréttarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.