Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ2003 DVSPORT 37 Yngsti tipparinn vann Það var Elísa Maren Ragnars- dóttir sem var sú heppna í 1X2-leiknum sem fram fer í sumar á dv.is en Elísa Maren vann 3. umferðina. Það sem gerir málið sérstakt er að Elísa er einungis eins árs gömul. Það var reyndar mamma hennar, Hanna Lísa, sem tippaði fyrir snótina ungu og var sú getspakasta. Elísa Maren býr á Seyðisfirði og fær sendan glæsilegan gjafa- pakka frá Jóa útherja sem hún og fjölskylda hennar geta not- ið. Á myndinni hértil hægri er El- ísa Maren ásamt pabba sínum og mömmu, þeim Ragnari og Hönnu Lísu. Við óskum Elísu Maren til hamingju með vinninginn. Launaþakið að Samkvæmt frétt á heimasíðu Körfuknattleikssambands (s- lands er verið er að leggja síð- ustu hönd á reglugerð um launaþak og þær skyldur sem lagðar verða á herðar félaga sem leika í Intersportdeildinni á næsta ári. Samkvæmt samþykkt síðasta ársþings KK( var stjórn sam- bandsins falið að skila til félag- verða klárt anna tillögum að reglugerð fyrir l.júlí næstkomandi. Reglugerðin verður send til fé- laganna í Intersportdeildinni þann 1. júlí og mun KKl standa fyrirfundi félaganna um reglu- gerðina þann. 9. júlí næstkom- andi þar sem reglugerðin verð- ur kynnt fyrir forsvarsmönnum félaganna tólf sem skipa deildina næsta vetur. Ferna Elínar. í 5-2 sigrí Breiðabliks á Stjörnunni í gærkvöld Breiðablik-Stjarnan 5-2 1 -0 Elín Anna Steinarsdóttir.......9. Skalli úr teig....Bryndís Bjarnadóttir 2- 0 Elín Anna Steinarsdóttir.....40. Skot úr markteig .. Erna Björk Sigurðard. 3- 0 Elín Anna Steinarsdóttir.....57. Skot úr teig............náði boltanum 3- 1 Björk Gunnarsdóttir...........62. Skotúrteig .......Harpa Þorsteinsdóttir 4- 1 Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir .. 57. Skalli úr teig .........Silja Þórðardóttir 4- 2 Björk Gunnarsdóttir...........79. Skotúrteig .......Harpa Þorsteinsdóttir 5- 2 Elín Anna Steinarsdóttir.....81. Skot úr markteig .... Margrét Ólafsdóttir @@ Elín Anna Steinarsdóttir, Margrét Ólafsdóttir (Breiðablik). @ Bryndís Bjarnadóttir, Björg Ásta Þórðardóttir, Hjördís Þorsteinsdóttir, Silja Þórðardóttir, Ólina Guðbjörg Viðarsdóttir, Linda Person (Breiðablik), Harpa Þorsteinsdóttir, María Björg Ágústsdóttir, Björk Gunnarsdóttir (Stjarnan). Skot (á mark): 21 (17)-8 (5) f ^ Horn: 6-1 Aukaspyrnur: 6-5 Rangstööur: 1 -4 Varin skot: Eisa Hlín 3 - - María Björg 11. Besta frammistaðan á veilinum: Elín Anna Steinarsd., Breiðabliki IMÉ S - L ( Elín Anna Steinarsdóttir skoraði fernu í 5-2 sigri Breiðabliks á Stjömunni í lokaleik fyrri umferð- ar í Landsbankadeild kvenna í gærkvöld. Ólafur Þór Guðbjömsson, þjálf- ari Blikastúlkna, hefúr verið að færa Elínu önnu framar á völlinn í síðustu leikjum og það er óhætt að segja að sú breyting sé að skila sér. Stjarnan átti ekki eitt einasta markskot f fyrri hálfleik en í seinni hálfleik bjó Harpa Þorsteinsdóttir til tvö mörk fyrir varamanninn Björk Gunnarsdóttur en tvö mörk em heldur rífleg laun fyrir sóknar- leik Garðabæjastúlkna sem var af skornum skammti í leiknum. Hjá Breiðabliki átti Elín Anna mjög góðan leik, Margrét Ólafs- dóttir gjörbreytir flæði leiks liðsins og Bryndís Bjarnadóttir er dæmi um leikmann sem vex með hverj- um leik. ooj.sport@dv.is FERNA HJÁ ELÍNU ÖNNU: Elín Anna Steinarsdóttir úr Breiöabliki skorar hér eitt af fjórum mörkum sínum gegn Stjörnunni í gær. DV-mynd Pjetur Víðidalsá í Húnavatnssýslu: Tannlæknirinn setti í stórfiska Það hefur aðeins bleytt í, en lax- inn lætur bíða eftir sér, en straum- urinn fer stækkandi og það gæti haft sitt að segja fyrir veiðimenn. Svo spáir hann rigningu á allra næstu dögum og það hefur líka mikið að segja. „Þetta var fallegur lax og hann tók maðkinn, 22 punda fiskur, sá stærsti í sumar,“ sagði Þórarinn Sig- þórsson tannlæknir í gær, en þá var hann við Víðidalsá í Húnavatns- sýslu með stærsta lax sumarins, en fiskurinn veiddist í streng fyrir neð- an bæinn Ásgeirsá. „Fiskurinn veiddist í streng fyrir neðan Ásgeirsá, í Ásgeirsbakka, og þetta var mjög skemmtileg viður- eign. Tveimur dögum áður hafði ég séð tvo stórlaxa í streng sem heitir Garðsendi, en þeir styggðust. Síðan fann ég laxana aftur í gær og setti þá í stærri laxinn og missti hann eftir þriggja kortera viðureign. Svo í morgun flnn ég laxa enn aftur og núna í streng fyrir neðan Ásgeirsár- bakka. Ég renndi aftur á stærri lax- inn en hann vildi alls ekki taka og hvarf fljótlega upp í strenginn. Minni laxinn veiddi ég síðan og Stærri fiskurinn slapp en ég náði þessum 22 punda. hann reyndist vera 22 pund. „Þetta var reyndar eini laxinn sem veiddist í hollinu enda lítið af fiski í ánni,“ sagði Þórarinn. Víðidalsá hefur gefið 16 laxa og stærsti laxinn er 22 pund, en næst kemur líka lax úr Víðidalsá sem veiddist við gömlu brúna og var hann 18,5 pund, sem Rögnvaldur Guðmundsson fékk. Ekki hefur ennþá veiðst lax í Laxá á Ásum, þrátt fyrir að áin hafl verið opnuð fyrir nokkrum dögum. Glerá í Dölum hefur líka verið opnuð, en þar hefur ekki ennþá sést fískur, en það stendur allt til bóta. -G.Bender tWm % ;. '■ > * K- r* • < ■Jk. )t jj . j f £§é JVsSdlm. : -p í \ f FÖNGULEGUR FISKUR: Þórarinn Sigþórsson sést hér með stærsta lax sumarins, 22 punda fisk sem veiddist í Víði- dalsá í Húnavatnssýslu í gær og tók maðkinn. DV-mynd G.Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.