Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Blaðsíða 18
18 SKOÐUN MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ2003 -\ *Si8íl 111 fW ‘ liSÍiÍftíiíS«í|Sí ' i-r;'v-ViV;, : ySx Imí v Hvatning til enn betri verka Fréttir af afbrotamálum tengjast æ oftar fíkniefnum, hvort heldur eru innbrot eða önn- ur auðgunarbrot, hótanir, líkamsárásir og jafn- vel manndráp. Stærstur hópur þeirra sem sitja í fangelsum landsins eru þar vegna fíkniefna- mála, ýmist vegna innflutnings, sölu, neyslu eða annarra brota sem tengjast fíkniefnum beint eða óbeint. Þetta þarf ekki að koma á óvart því vandi ein- staklinga, íjölskyldna og samfélags vegna fíkni- efna eykst ár frá ári. í tölum frá ríkislögreglu- stjóra kemur fram að aldrei hefur meira verið gert upptækt af fíkniefnum en á liðnu ári. Þótt góður árangur lögreglunnar sé jákvæður í sjálfu sér endurspeglar hann engu að síður dapurlega þróun. Innflutningur ólöglegra og háskalegra efna eykst í sífellu. Glæpalýðurinn sem áð honum stendur leitar stöðugt nýrra leiða við myrkraverkin í von um skjóttekinn gróða. Þar er hvorki hugsað um líf né hamingju fólks. Árangur lögreglunnar í stöðugri baráttu við eiturprangara gefur vísbendingu um eftirspurn á þessum óheillamarkaði. Fíkniefnabrotum fjölgaði um rúm 9 prósent milli ára. Hald var lagt á meira af hassi en áður og sömu sögu er að segja af kókaíni. Aðeins einu sinni hefur náðst meira af amfetamíni. Tölur lögreglunnar þýða það eitt að æ fleiri ánetjast og það er stað- fest af lækni á Vogi. Hann segir starfsmenn SÁÁ hafa orðið vara við mikla aukningu á neyslu fíkniefna síðustu ár. Til samtakanna leiti sífellt Árangur lögreglunnar í stöðugri bar- áttu við eiturprangara gefur vís- bendingu um eftirspurn á þessum óheillamarkaði. Fíkniefnabrotum fjölgaði um rúm 9 prósent á milli ára. Þessi rekstur einstaklinga, klúbba og margs konar félagasamtaka er í beinni samkeppni við veitinga- og þjónustufyrirtæki sem gert er að standa skil á öllum gjöldum. baki iögreglunni með íjárveitingum til mála- flokksins. í þeim efnum þarf að gera enn betur. Tölur ríkislögreglustjóra eru hvatning til þeirra verka. Náist árangur í baráttunni við fíkniefna- dólga skila þeir peningar sér margfalt. fleira fólk sem eigi við fíkniefnavanda að etja. Þessi þróun er verulegt áhyggjuefni. Hættan bíður ómótaðra ungmenna við hvert fótmál. Sölumenn dauðans skirrast einskis og leita jafnvel inn á skólalóðir grunnskólanna. Það er því á ábyrgð samfélagsins að verjast, leita allra leiða til þess að draga úr þessum ófögnuði. í erfiðri baráttu hefur lögreglan náð athyglis- verðum árangri, meðal annars með ágætu samstarfi við lögreglu í öðrum löndum. Stærri fíkniefnaskammtar hafa náðst en á árum áður enda hefur lögreglan einbeitt sér að því undan- farin fimm ár að stöðva innflutning fíkniefna. í því mikilvæga starfi standa stjórnvöld að Landlægur ósiður Samtök ferðaþjónustunnar gagnrýna með réttu þjónustu og margs konar rekstur, t.d. veitingarekstur, í opinberu húsnæði án þess að greidd séu tilskilin gjöld af þeim rekstri, hvort heldur er eðlileg húsaleiga, skattar og önnur gjöld, svo ekki sé minnst á svarta atvinnustarf- semi. Þessi rekstur einstaklinga, klúbba og margs konar félagasamtaka er í beinni sam- keppni við veitinga- og þjónustufyrirtæki sem gert er að standa skil á öllum gjöldum. Mörg dæmi eru um það að opinberir aðilar, ekki síst sveitarfélög, horfa fram hjá þessari starfsemi eða stuðli jafnvel að henni. Þannig komast aðilar upp með leyfislausa starfsemi sem skekkir alla samkeppnisstöðu. Fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar bendir á, í frétt í DV í dag, að reglur séu brotn- ar þvers og kruss. Ástandið sé óþolandi og því verði að linna. Undir það skal tekið. Stjórnvöld sem hunsað hafa réttmætar ábendingar samtakanna hljóta að hysja upp um sig og gera bragarbót. Tími er til kominn að venja menn af landlægum ósið. Þorsteinn Sæmundsson þremur áratugum eftir „Marid land": Þurfum öflugri varnir ANDSTÆÐINGAR: Herstöðvarandstæðingar létu sig ekki vanta á fund Varins lands. Tíminn og Þjóðviljinn gerðu mikið úrfjölda þeirra en Morgunblaðið sagði að þetta hefði aðeins verið „hópur unglinga og ungmenna" sem hefði „sett leiðinlegan svip á fundinn". Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur stóð í upp- hafi árs 1974 ásamt þrettán öðrum fyrir undirskriftasöfn- uninni Varið land; áskorun til stjórnvalda um að hverfa frá áformum um að vísa Banda- ríkjaher úr landi, sem 55.522 atkvæðisbærir menn skrifuðu undir, eða meira en helmingur þess fjölda sem kaus í næstu þingkosningum á undan. Ólafur Jóhannesson forsætisráð- herra tók við undirskriftunum úr hendi Þorsteins og félaga þungur á brún í marsmánuði en forsvars- menn Varins lands uppskáru frá andstæðingum sínum uppnefni á borð við „Kanamellur", „illræmdir braskarar" og „margfaldir mútu- þegar Bandaríkjamanna". Hvernig skyldi sú staða blasa við Þorsteini næstum þremur áratug- um síðar, að dæmið hefur algerlega snúist við og Bandaríkjamenn vilja draga úr umsvifum sínum þvert á kröfur íslenskra stjórnvalda? Varnir jafnnauðsynlegar „Ég er jafnsannfærður og ég var þá um að við þurfum á vörnum að haida. Og ég heyri ekki betur en að sumir þeirra sem voru andstæðing- ar okkar á sínum tíma haldi fram svipuðum skoðunum; nú þegar út- lit er fyrir að Bandaríkjamenn fari, sjá þeir þörfina fyrir varnir," segir Þorsteinn. „Það er hins vegar ekkert undr- unarefni í sjálfu sér hvernig Banda- ríkjamenn meta stöðuna núna. Þeir fjalla um þetta frá sínum sjónarhóli og því hvað nauðsynlegt sé vegna eigin varna. Varnarsamningur landanna á sínum tíma var engin góðgerðarstarfsemi. Þjóðir og ein- staklingar gera samninga vegna þess að það er til hagsbóta fyrir báða aðila, og á þeim tíma fóru sjónarmið þjóðanna tveggja sam- an. Nú er kannski nokkur munur á. Ég leyfi mér að vísu að hafa mínar efasemdir um að Bandaríkjamenn meti þetta rétt, en það er nú önnur saga.“ „Því miður getum við ekki séð alla hluti fyrir, við getum ekki lesið hugsanir manna eins og þessara hryðju- verkamanna og vitað hvaða aðgerðir þeir kunna að telja málstað sínum til framdráttar." Of lítill viðbúnaður Þorsteinn segist ekki bara sam- mála því mati íslenskra stjórnvalda að núverandi viðbúnaður Banda- ríkjamanna sé lágmark; hann segist ekki viss um að hann sé nægilega mikill. „Við vitum ekki við hverju er að búast. Það geta alls konar hættur steðjað að, ekki bara hryðjuverkin sem mest er talað um. Sovétríkin eru ekki lengur sá höfuðóvinur sem Atlantshafsbandalagið átti að verj- ast, en Rússland er enn þá stór- veldi. Það er ekki lýðræðisríki í okk- ar skilningi og við vitum ekkert hverju við eigum von á úr þeirri átt í framtíðinni. Ég bendi á að Rúss- land er eina stórveldið á sýkla- vopnasviðinu og við vitum ekki hvort þessi vopn eru tryggilega geymd, eða hvort þau, eða tæknin til að framleiða þau, gætu komist f annarra hendur. En hver á viðbúnaðurinn að vera? Mér skilst að málið standi um það hvort hér séu fjórar orustuflug- vélar eða ekki og Bandaríkjamenn telji að hægt sé að verja landið með flugsveitum í Bretlandi. Mér er til efs að svo sé. Við skulum segja að VARIÐ LAND: Jónatan Þórmundsson lagaprófessor í pontu á fundi Varins lands á Hótel Sögu íjanúar 1974. Þorsteinn Sæmundsson er fjórði frá vinstri. o XI c (0 U) Prestlegastur Bankastjórn og æðstu stjórnend- ur Landsbankans héldu fund t nýju kirkjunni á Eskifirði um liðna helgi þar sem þeir kynntu skipu- lagsbreytingar á útibúaneti bank- ans á Austurlandi. Að lokinni kynningu og ávörpum æðstu stjórnenda bankans og söngat- riði var boðið upp á spjall og létt- ar veitingar í kirkjumiðstöðinni. Þar var meðal annars rætt um frammistöðu ræðumanna (nýju Halldór J. Kristjánsson. kirkjunni. Hafði Björgólfur Guð- mundsson, einn aðaleigenda bankans, orð á því að sér fyndist Halldór J. Kristjánsson banka- stjóri vera langprestlegastur af þeim öllum. Ingólfur til Kremlar Hinn gamalreyndi rithöfundur, ritstjóri og blaðamaður Ingólfur Margeirsson hefur bæst í hóp snarpra pistlahöfunda vefritsins Kremlar. Hann ræðst ekki á garð- inn þar sem hann er lægstur í jómfrúr-pistli sínum því að fórn- arlambið er sjálft Morgunblaöið og dómur þess um Samfylking- una í Reykjavíkurbréfi um nýliðna helgi. Segir Ingólfur það fráleitt, sem þar sé haldið fram, að áhersl- ur Alþýðubandalagsins hafi orðið ofan á (hinum nýja flokki. En ástæðan fyrir skrifum blaðsins segir hann að sé sú að eftir að Ingólfur Margeirsson. Ingibjörg Sólrún birtist (brúnni með sinn mikia styrk þá „nötri pólitísk ritstjórn blaðsins yfir afli Samfylkingarinnar og kjörþokka". Hins vegar viðurkennir Ingólfur að ummæli Guðmundar Árna Stefánssonar, sem fólu í sér að Samfylkingin ætti að bjóða fram sér í næstu borgarstjórnarkosn- ingum, hafi verið „slys". 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.