Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Blaðsíða 39
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNl2003 DVSPORT 39 i Þórðarson fyrír að fara með fleipur: deiídur" „Guðjón er umdeildur. Annaðhvort líkar mönnum við hann eða líkar ekki. En orðið sem fer af honum í Bretlandi sem knattspyrnuþjálfara er undantekningarlaust mjög gott. Þannig að ég sé ekki vandamál við að vinna með Guðjóni. Ég kann vel við manninn og tel hann hafa gert krafta- verk með Stoke sem enginn annar með sama lið hafði getað gert. Hann er góður þjálfari og mér kemur ekkert annað við. Ég er bara fjárfestir og ekk- ert annað. Ef hann passar inn í mínar fjárfestingar þá er það gott mál, ef hann gerir það ekki þá verður það einhver annar.“ - Nú er sagt að Peter Ridsdale, fyrr- verandi stjórnarformaður hjá Leeds, hafí einnig gert yfírtökutilboð en það farið út um þúfur í fyrradag. Er eitt- hvað til íþví? „Já, ég myndi segja það. Ég talaði við hann í gær (í íyrradag) og hann bauðst þá til að ganga yfir í okkar hóp og gera samning við okkur. Því var vinsamlega hafnað og ég sagði við hann að ég væri tilbúinn að tala við hann þegar við værum búnir að taka klúbbinn yfir. Hann er náttúrlega að leita sér að vinnu - var með góða vinnu hjá Leeds þar sem honum var kennt um flestallt sem misfórst þar,“ segir Baldur og gaf honum ekki gott orð. Hann sagði Ridsdale hafa unnið „Ég talaði við Ridsdale í gær og hann bauðst þá að ganga yfir í okkar hóp og gera samning við okkur." að samningsdrögum við aðaleigand- ann Doyle í 6-7 vikur og vildi meina að á þeim tíma hefði hann dregið Doyle á asnaeyrum. „Svo skilst mér að þessi fjárfestir sem er bak við hann, ákveðinn einn aðili, hafi ákveðið að draga sig í hlé. Ridsdale ædaði ekki að setja krónu í þetta úr eigin vasa, en ætlaði samt að taka þetta yfir og stjórna öllu saman. Fyrst það misfórst er ekkert annað fyrir Ridsdale að gera en að semja við okkur," segir Baldur. Það fer ekki á milli mála að Baldur hefði viljað að öðruvísi hefði verið staðið að málunum og segir að hefði hann fengið að ráða hefðu aldrei neinar fréttir farið út af þessu máli fyrr en búið væri að ganga frá þessu öllu. „Það er mjög leiðinlegt að öU þessi vitleysa skyldi hafa farið af stað. En úr því sem komið er vill ég gera þetta ró- lega og gera þetta rétt.“ - Ertu bjartsýnn á að þér takist að taka yfír félagið? Já, ég er tiltölulega bjartsýnn. Doyle sagði við mig á föstudaginn að ég yrði að koma og skoða félagið - ég myndi vafalaust falla íyrir því. Hann sagði satt - þetta er æðislegt þama og ég hef mikinn áhuga á að yfirtaka félagið." vignir@dv.is MESTU MÁTAR: Guðjón Þórðarson og Gerard Houllier eru ágaetis kunningjar og það fór vel á með þeim þegar Stoke mætti Liver- pool á Britannia-leikvellinum. Þá var Guðjón á sínu öðru ári með liðið og mátti þola stórt tap, 0-8, þar sem Robbie Fowler skoraði þrennu fyrir þá rauðklæddu. STÓRT FALL NIÐUR Á VIÐ: Það var aðeins fyrir sex árum sem Barnsley var í ensku úrvalsdeildinni og léká meðal þeirra bestu. Nú er liðið meðal slökustu liða 2. deildar. Peter Doyie, aðaleigandi Barnsley: Vona bara að málin leysist sem allra fyrst Stóreignamaðurinn Peter Doyle, núverandi aðaleig- andi Barnsley og sá sem er reiðubúinn að sélja allan sinn hlut til Baldurs og hans hóps, er sagður einn af auð- ugustu mönnum Bret- landseyja. Hann lét af störfum sem borgarstjóri Barnsley fyrir um tveimur mánuðum og gegnir nú heiðursstöðu innan borgar- stjórnarinnar. Hann er í miklum metum í bæjarfé- laginu og þykir með ein- dæmum snjall þegar kemur að viðskiptum. Doyle varðist allra frétta af málinu þegar DV-Sport hafði samband við hann f gær og vildi sem minnst tjá sig um stöðuna. Hann vildi ekkert segja um hvort Baldur Sigurðsson og hans hópur væru líklegri að kaupa hans hlut frekar en Peter ^ Ridsdale. „Þetta skýrist allt á allra næstu dögum. Ég vona bara að þessi mál leysist sem allra fyrst og á sem bestan hátt.“ Treysti Baldri Spurður af hverju hann væri að selja félag með þetta góða aðstöðu, heimavöll og allt sem snýr að sjálfri knattspyrnunni, sagði Doyle skýringuna vera af heilsufarslegum ástæðum. „Heilsa mín hefur ekki verið sem best á undanförnum miss- erum og það er einfaldlega kominn tími á mig í þessu starfi. Ég vil að nýtt blóð komi inn í fé- m lagið með ferskar hugmyndir,“ sagði Doyle og bætti við að hann treysti Baldri og félögum fullkomlega „Ef þeir munu á endanum ná kaupunum þá tel ég þá geta gert góða hluti með félagið." vignir@dv.is Hugsanleg gróðalind á ódýru verði - Samkvæmd fregnum frá Englandi síðustu daga hljómaði síðasta tilboð Peter Ridsdale og hans manna í Bamsley upp á 350-700 milljónir króna, ef eitthvað er að marka breska fjölmiðla. öðru- vísi horfir við hjá fjárfestingarhópn- um sem Baldur Sigurðsson leiðir; samkvæmt heimildum DV em þeir að kaupa rúman 50% hlut, og þar með ráðandi hlut, á aðeins 120 milljónir. Inni í þessari upphæð er einnig innifalin yfirtaka á öllum skuldum félagsins. Þetta verður að teljast mjög ódýrt sé horft til þeirrar staðreyndar að heimavöliur Barnsley, Oakwell, er frábær. - Hann var endurbyggður fyrir fáeinum ámm og rúmar nú 26 þúsund manns í sæti og er mjög auðvelt er að bæta við 8-10 þúsund sætum til viðbótar. Landsvæðið f kringum völlinn býr yfir miklum möguleikum og er völlurinn einn af örfáum í Bretlandi sem hefur fleiri bflastæði en þörf er á. Það þýðir að enn fleiri möguleikar á byggingar- framkvæmdum við völlinn em til staðar. Þá á félagið um 35 ekmr af landi, örstutta vegalengd frá mið- bænum. Þar em fimm stórir æf- ingavellir, knattspyrnuhús, gervi- gras og ýmislegt fleira og verður ekki af því skafið að öll æfingaaðstaða félagsins er með þeim allra bestu í neðri deildum Englands. Það virðist hins vegar ekki duga til og slapp liðið rétt með fall í 3. deild á nýafstaðinni leiktfð. vignir@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.