Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Blaðsíða 36
36 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ2003 DV Sport Keppni í hverju orði Netfang: dvsport@dv.is Sími: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889 Aston Villa vill ekki kaupa Jóhannes Karl Aston Villa gaf það út á heima- síðu sinni í gærkvöld að félagið hefði ekki lengur áhuga á að kaupa Jóhannes Karl Guðjóns- son frá spænska liðinu Real Betis. David O'Leary, nýráðinn stjóri Aston Villa, hefur greinilega allt aðrar hugmyndir um framtíð- arskipan liðsins en fyrrum stjóri liðsins, GrahamTaylor, hafði lagt mikla áherslu á að halda í Jóhannes Karl. Doug Ellis, stjórnarformaður Villa, lét hafa þetta eftir sér á heimasíðunni: „Ég talaði við Joey og föður hans sem semur fyrir hans hönd og skýrði stöðu mála. Við höfum fengið nýjan framkvæmdastjóra og hann hefur að sjálfsögðu sínar eigin hugmyndir um liðið. Þeir feðg- ar höfðu fullan skilning á sjón- armiði okkar og við viljum nota tækifærið og þakka Joey fyrir hans framlag og óska honum alls hins besta í framtíðinni." Jóhannes Karl stóð sig vel á lánssamningi hjá Aston Villa í vor og skoraði tvö mörk í 11 leikjum eftir að hafa aðeins spilað í 2 mínútur með Real Betis fyrir áramót. „Ætla mér aftur inn í landsliðið" segir Margrét Ólafsdóttir sem var ekki valin í kvennalandsliðið fyrir Ungverjalandsleikinn Það vakti furðu margra þegar Margrét Ólafsdóttir, leik- reyndasta landsliðskona ís- lands, sagðist vera búin að fá nóg af fótbolta og ætlaði að leggja skóna á hilluna í vetur. Sem betur fer fyrir Breiðablik og íslenska kvennaknatt- spyrnu tók Margrét upp þráð- inn á nýjan leik í vor og hefur átt stóran þátt í því að Blika- stúlkur eru komnar á gott skrið í Landsbankadeildinni eftir þrjá góða sigra í röð. Þrátt fyrir þetta var ekki pláss fyr- ir Margréti í íslenska landsliðinu sem lék gegn Ungverjalandi á dög- unum. DV-Sport hitti Margréti að máli eftir 5-2 sigurleik Blika á Stjörnunni í gær og fékk það stað- fest að Margrét gæfi kost á sér í landsliðið. „Ég gafkost á mér en var bara ekki valin „Jú, ég gaf kost á mér en var bara ekki valin. Ég heyrði hvorki í lands- liðsþjálfaranum eða öðrum tengd- um liðinu og las þetta bara í blöð- unum að ég væri ekki í liðinu. Ég var svekkt yfir því að fá ekki að vita ástæðuna fyrir því að ég var sett út úr liðinu. Hún (Helena Ólafsdóttir, landsliðsþjálfari) hringdi ekki í mig eða lét mig vita af hverju ég datt út," sagði Margrét sem segist vera til taks fyrir landsliðið í komandi verk- efnum? „Já, ég er það alveg eins og ég var tilbúin fyrir síðasta leik. Ég ákvað vissulega að byrja aftur á síðustu stundu fyrir mótið en Helena vissi samt alveg af því að ég gæfi kost á mér í landsliðið fyrir síðasta leik. Þetta var bara hennar ákvörðun og maður virðir hana," segir Margrét sem ædar sér að spila aftur fyrir ís- land. „Að sjálfsögðu ætla ég mér aft- ur inn í landsliðið og nú er það bara fyrir mig að berjast fyrir sæúnu á nýjan leik," sagði Margrét sem hafði leikið 51 landsleik af síðustu 54 þeg- ar hún missti af leiknum við Banda- ríkin í vetur. Fjarvera hennar i tveimur síðustu leikjum þýddi að Ásthildur Helgadóttir er búinn að taka af henni landsleikjametið. Margrét hefúr fundið sig betur og betur með hvejrum leik og það sést strax á betri spilamennsku Blika. „Loksins erum við ná saman," sagði Margrét strax eftir að þriðji sigur liðsins var í höfh. „Þetta var fínt og við erum loksins famar að klára færin okkar því það hefur ver- ið nokkuð basl hjá okkur að nýta færin. Það er kominn alit annar bragur á liðið, hópurinn er miklu þéttari og við náum betur saman. Við æúum okkur að halda áfram á sömu braut, við eigum bikarleik á föstudaginn og síðan kemur smá- pása og þá gefst tími til að þétta hópinn ennþá betur og taka þetta f seinni umferðinni." ooj.sport@dv.is Þriggja stiga forusta Keflavíkur eftir 2-0 útisigur á Haukum í 7. deild karlaífrestuðum leikáÁsvöllum ígærkvöld 0-1 Magnús Þorsteinsson 9. 0-2 Þórarinn Kristjánsson 68. Keflvíkingar eru einir á toppi 1. deildar karla í knattspyrnu að af- loknum sex umferðum eftir 0-2 sigur á Haukum á Ásvöllum í gær- kvöld. Sigurinn var sanngjarn þegar á heildina er litið en þó var leikurinn nokkuð kaflaskiptur. Gestirnir voru miklu betri í fyrri hálfleik og voru klaufar að halda ekkimeð meirafor- skot til leikhlés. Gestirnir voru miklu betri í fyrri hálfleik og vom klaufar að halda ekki með meira forskot til leikhlés - til marks um það þá varði Jör- undur Kristinsson, markvörður Haukanna, víti frá Stefáni Gísla- syni og auk þess tvisvar glæsilega úr galopnum fæmm - þá er ótalið stangarskot Keflvikinga. Haukar fengu ekkert markvert færi í hálfleiknum og varnarleikur liðsins var afar óöruggur. Þor- steinn Halldórsson, þjálfari Hauka, hefur líklega lesið hressi- legan pistil yfir sínum mönnum í leikhléi því það var eins og allt annað og miklu ákveðnara lið væri mætt á svæðið. f upphafi seinni hálfleiks vom heimamenn óheppnir í tvígang að skora ekki og á fyrstu tuttugu mín- útum lá jöfnunarmark þeirra í loftinu enda áttu þeir margar prýðisgóðar sóknarlotur. Keflvík- ingar skelltu hins vegar renn- blautri og grútskítugri tusku beint í smetti þeirra Haukamanna með marki úr óvæntri og snöggri sókn á 68. mínútu og þá má segja að all- ur vindur hafi verið úr þeim. Ekki beint sanngjamt miðað við gang leiksins f seinni hálfleik en að því er einfaldlega ekki spurt. Keflvíkingar vom síðan nálægt því að bæta við á lokakaflanum og pirringur sestur að í Haukaliðinu og hann endurspeglaðist í heimskulegri hrindingu Ómars Karls Bjömssonar sem fékk rétti- lega að líta rauða spjaldið. Það býr mikið f þessu Haukaliði og nú reynir á karakter þess í þeim mótvind sem nú blæs. Keflvíking- ar em, eins og allir vissu fyrir mót, geysisterkir og koma ekki til með að tapa mörgum stigum það sem eftir lifir sumars. Maður leiksins: Þórarinn Kríst- jánsson, Keflavík. -SMS Staðan: Keflavik 6 5 0 1 14-6 15 ͧ Víkingur 6 3 3 0 8-3 12 ÞórAk. 6321 13-10 it B HK 6 2 2 2 7-5 8 Njarðvik 6 2 2 2 10-9 8 M Aftureíd. 6 2 2 2 6-9 8 Breiðablik 6 2 1 3 6-8 jffiHi Haukar 6 1 2 3 5-10 5 Leift7Dalv. 6 114 5-9 4 Stjarnan 6 0 3 3 6-11 3 Markahæstu menn: Jóhann Þórhallsson, Þór Ak. 7 Maqnús Þorsteinsson, Keflavík 4 Brynjar Syerrisson, Stjörnunnl 3 Hólmar Örn Rúnarsson, Keflavík 3 Högni Þórðarson.Njarðvík 3 Olgeir Sigurgeirsson, Breiðabliki 3 /. |_,, , ... „ ANNAR MARKAHÆSTUR: Magnús Þorsteinsson fagnar hér til hægri fjórða marki sinu í sumar sem kom Keflavík í 1 -0 gegn Haukum. DV-mynd Pjetur KOMÍN Á FUU.T A NÝ: Watyét Otarí • dótpr. teik.maðc- Sreiðab <s, sést herá fulírí ferð gegrt StjörMjnr,: f gær. -'DV-mynd pjetu? K C S w! S LANDSBANKADEiLD Staðan: KR 7 6 1 0 32-3 19 Valur 7 5 1 1 21-9 16 IBV 7 5 0 2 31-10 15 Breiðablik 7 5 0 2 23-15 15 Stjarnan 7 2 0 5 11-18 6 FH 7 2 0 5 3-21 6 Þór/KA/KS 7 1 0 6 5-23 3|1 Þrótt/Hauk 7 1 0 6 6-33 3 Markahæstu konur: Hrefna Jóhannesdóttir, KR Ásthildur Helgadóttir, KR Olga Faerseth, (BV Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV Ólina G. Viðarsdóttir, Breiðabliki Elin Anna Steinarsdóttir, Breiðab. Laufey Ólafsdóttir, Val Mhairi Gilmour, ÍBV Dóra Stefánsdóttir.Val Erna Björk Sigurðardóttir, Breiðab Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni Næstu leikir: Stjarnan-(BV 9. júlí kl. 20.00 KR-Þróttur/Haukar 9. júlí kl. 20.00 FH-Valur 9. júlí kl. 20.00 Þór/KA/KS-Breiðablik 9. júlí kl. 20.00 13 9 9 8 7 6 6 6 4 4 4 Átta liða úrslit bikarsins fara fram á föstudagskvöldið. LANDSBANKADEILD Staðan: Fylkir 6 4 0 2 11-5 12 f§ FH 6 3 2 1 10-6 11 |kr 6 3 1 2 7-8 10 ÍA 6 2 3 1 8-5 9 g IBV 6 3 0 3 12-10 9 8 Þróttur 6 3 0 3 9-9 9 KA 5 2 2 1 8-6 8 Vaiur 6 2 0 4 8-12 6 Grindavik 6 2 0 4 7-11 6 Fram 5 0 2 3 4-12 2 Markahæstu menn: Gunnar Heiðar Þorvaldsson, (BV 7 Haukur Ingi Guðnason, Fylki 4 Jóhann Hreiðarsson.Val 4 Sinisa Kekic.Grindavík 4 Næstu leikir: FH-Fram (A-Fylkir KR-Grindavik KA-Valur Þróttur-(BV (kvöld kl. 19.15 I kvöld kl. 19.15 (kvöld kl. 19.15 Ikvöld kl. 19.15 26.júnf kl. 19.15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.