Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Side 6
6 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ2003
I viðbragðsstöðu vegna jarðskjálfta
Þúsund strákar á Shell-móti
JARÐSKJÁLFTAR: Síðan Suður-
landsskjálftarnir urðu árið 2000
hefur starfsmönnum jarðeðlis-
sviðs Veðurstofunnar þótt sér-
stök ástæða til þess að fylgjast
með því hvort virknin kunni að
færast til vesturs út í Ölfus og
út eftir Reykjanesskaganum og
leiða þar til jarðskjálfta sem
hætta geti stafað af. Sam-
kvæmt sögulegum heimildum
verða skjálftar á þessu svæði
ekki eins stórir og þeir geta
orðið austará brotabeltinu en
þó telur Veðurstofan fulla
ástæðu til að vera á varðbergi
gagnvart þeim. Undanfarna
mánuði hefur orðið viss aukn-
ing lítilla skjálfta í Ölfusi. Þótt
slík spennuupphleðsla eigi það
til að hjaðna aftur án jarð-
skjálfta var talið rétt að gera
Almannavörnum viðvart um
þetta. Aðeins er um vægar vís-
bendingar að ræða og líkleg-
ast er að þær leiði ekki til stórs
skjálfta. Hins vegar er ekki
hægt að útiloka það og hefur
Veðurstofan lagt til að hugað
verði að því hvernig yfirvöld
og almenningur geti dregið úr
hættu sem hugsanlega kann
að stafa af slíkum jarðskjálfta.
FÓTBOLTI: Mikill fjöldi ungra
drengja streymir nú til Vest-
mannaeyja þar sem þeir munu
keppa sín á milli í knattspyrnu á
hinu árlegu Shell-móti sem
hefst formlega í dag. Þátttak-
endurá mótinu eru rúmlega
eitt þúsund talsins og í fylgd
með þeim er fjöldi þjálfara, far-
arstjóra og foreldra þannig að
nær lætur að um 1200 aðkomu-
menn séu nú staddir í Eyjum.
Fyrstu leikir mótsins verða flaut-
aðir á í fyrramálið en mótinu
lýkur svo með risaveislu sem
haldin verður á sunnudags-
kvöld. Mótið er einn af hápunkt-
um sumarsins hjá ungum knatt-
spyrnuáhugamönnum og hafa
margir af bestu knattspyrnu-
mönnum þjóðarinnar hafið sinn
feril á umræddu móti.
Laun sveitarstjórnarmanna í
Skagafirði verða hækkuð um
91%; úr 25 þúsund krónum í
liðlega 48 þúsund. Forseti
sveitarstjórnar hækkar úr 140
þúsundum í 280 þúsund. Bæj-
arstjóri hefur eftir sem áður
700 þúsund á mánuði.
„Þetta voru orðin svo óskaplega
lítil laun að það var ekki fært annað
en laga þetta, og því var reglan frá
árinu 1998 sett aftur í gildi. Miðað
við sveitarfélag af svipaðri stærð
vorum við í lægri kantinum þó við
hækkuðum launin um 91%. Mér
finnst því þetta vel verjandi. Rekst-
ur sveitarfélagsins er frekar erflður
en ársreikningur fyrir árið 2002
sýnir þó að skuldir lækkuðu aðeins,
eða um 70 milljónir króna, og því er
ég bjartsýnn þó að skuldastaðan sé
erfið og höfum lítið fé til fram-
kvæmda, en það kemur ekki niður
á þjónustunni við íbúana," sagði
Gísli Gunnarsson, forseti sveitar-
stjórnar t Skagafirði.
Á fundi byggðaráðs sem fram fór
19. júní sl. var samþykkt að launa-
greiðslur vegna starfa f ráðum,
nefndum og stjórnum sveitarfé-
lagsins yrðu færðar til samræmis
við samþykktir sveitarfélagsins árið
1998.ÝGildir samþykktin frá og
með næstu útborgun launa, 1. júlí
nk. Meirihluti sveitarstjórnar er
skipaður fulltrúum Sjálfstæðis-
flokks og Vinstri-grænna.
Aðhald og sparnaður
Snorri Styrkársson, fulltrúi Sam-
fylkingar, segir að hækkunin nemi
91%, og það að vitna til samþykktar
frá 1998 sé aðeins til að gera sam-
þykktina saklausari. Þá var sam-
þykkt að laun sveitarstjórnar-
manna yrðu miðuð við þingfarar-
kaup en þegar þingfararkaup
SKAGAFJÖRÐUR: Forseti sveitarstjórnar segir rekstur sveitarfélagsins frekar erfiðan en ársreikningur fyrir árið 2002 sýni þó að skuldir hafi lækkað aðeins, eða um 70 milljónir
króna. Hann kveðst bjartsýnn á framtíðinna þrátt fyrir erfiða skuldastöðu.
„Það er eðlilegt að launin hækki um 30% eins og
launaskrið í landinu, en ekki að nær tvöfalda þau
í sveitarfélagi sem býr við verulegar fjárhagslegar
þrengingar, “ segir fulltrúi Samfylkingar."
hækkaði verulega eftir þingkosn-
ingar 1999 var samþykkt að taka
tenginguna úr sambandi. Síðan
hafa launin verið óbreytt að mestu.
„Laun sveitarstjórnarmanna
voru um 25.000 krónur á mánuði
en verða nú liðlega 48.000 krónur.
Það er eðlilegt að launin hækki um
30% eins og launaskrið í landinu,
en ekki að nær tvöfalda þau f sveit-
arfélagi sem býr við verulegar fjár-
hagslegar þrengingar og hefur ver-
ið að hvetja til sparnaðar og farið í
ýmiss konar aðhaldsaðgerðir, m.a. í
starfsmannamálum. Það er jákvæð
niðurstaða af árinu 2002 en hún er
ekki í samræmi við fjárhagsáætlun
ársins, er mun lakari,“ segir Snorri
Styrkársson.
Átelja vinnubrögð
Við þessar breytingar fær forseti
sveitarstjórnar og formaður
byggðaráðs, Gísli Gunnarsson,
Sjálfstæðisflokki, um 280 þúsund
krónur í laun, hækkar úr um 140
þúsund krónum. Laun bæjarstjóra,
Ársæls Guðmundssonar, fulltrúa
VG, breytast ekki, eru um 700 þús-
und krónur.
Á sama byggðaráðsfundi létu
fulltrúar Framsóknarflokks bóka
eftirfarandi: „Við fulltrúar Fram-
sóknarflokksins í Sveitarstjórn
Skagafjarðar, áteljum þau vinnu-
brögð meirihlutans að leggja fram
ársreikning sveitarfélagsins fyrir
árið 2002 svo seint til fyrri umræðu,
en sveitarstjómarfulltrúar hafa ekki
haft ráðrúm til að kynna sér hann
þar sem þeir fengu hann í hendur
nú síðdegis." Boðun fundarins
mun hafa verið ófullnægjandi, auk
þess sem sveitarstjórn bar að leggja
fram reikningana fyrir 1. júní sl.
samkvæmt lögum. gg@dv.is
Laun sveitarstjórnarmanna
í Skagafirði hækka um 91%
Valgerður Dan krefur
LR um skaðabætur
Valgerður Dan Jónsdóttir leik-
kona hefur stefnt Leikfélagi
Reykjavíkur vegna slyss sem
hún lenti í þegar hún iék í
Ronju Ræningjadóttur árið
1993. Sýningin var á stóra
sviði Borgarleikhússins. Val-
gerðurféll fjóra metra niður úr
leikmynd á sviðinu og
lemstraðist við það á hálsi og
víðar.
Valgerður krefst 3,6 milljóna í
skaðabætur frá félaginu vegna
slyssins. Ágreiningur er á milli aðila
um hver beri ábyrgð á slysinu. Lög-
maður Valgerðar sagði í samtali við
HSTEFNIR LR:
Valgerður Dan
Jónsdóttir leikkona
hefur stefnt Leikfé-
lagi Reykjavíkur
vegna vinnuslyss
árið 1993.
Lögmaður telur að
nægilegra öryggisat-
riða hafi ekki verið
gætt auk þess sem slys-
ið hafi ekki verið til-
kynnt til Vinnueftirlits.
DV að aðstæður á sviðinu hafi ekki
verið forsvaranlegar. Erfitt hafi ver-
ið fyrir leikkonuna að feta sig í
þröngum stiganum sem var á svið-
inu. Hann telur að nægilegra ör-
yggisatriða hafi ekki verið gætt auk
þess sem slysið hafi ekki verið til-
kynnt til Vinnueftirlitsins á sínum
tíma. Valgerður hefúr ekki starfað
hjá Leikfélaginu undanfarin miss-
eri.
Lögmaður Leikfélags Reykjavík-
ur taldi ekki rétt að tjá sig um efnis-
atriði málsins að svo stöddu þar
sem málsmeðferð fyrir dómstólum
væri nýhafin og gagnaöflun ekki
lokið. Málinu hefur verið frestað
þar til álit örorkunefndar liggur fyr-
ir og mun væntanlega ekki verða
tekið fyrir fyrr en í vetur. -EKA
RONJA RÆNiNGJAOÓTTIR: Frumsýningu verksins fagnað haustið 1993.Valgerður
Dan fór með hlutverk í sýningunni.