Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Síða 8
8 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ2003 Kynntu skipulagsbreytingar Nýr starfshópur skipaður Bankastjórn og æðstu stjórn- endur Landsbankans héldu fund í nýju kirkjunni á Eskifirði um helgina og kynntu Aust- firðingum skipulagsbreytingar á útibúaneti bankans eystra. Austurland verður sérstakt svæði í stað sameinaðs svæðis Austur- og Norðurlands áður. Nýr svæðisstjóri verður Einar Kristján Jónsson, 29 ára lög- fræðingur. Sambýliskona Ein- ars er Áslaug Björnsdóttir og eiga þau 2 börn. Einar er sonur Jóns Kristjánsssonar heilbrigð- isráðherra og Margrétar Einars- dóttur. Hlutverk Einars verður að efla og samhæfa störf útibúa og stjórna frekari uppbyggingu Landsbankans á Austurlandi í þeim miklu breytingum sem fram undan eru ífjórðungn- um. Landsbanki Islands er sem fyrr aðalbankinn á Austurlandi, rekur 12 útibú með 52 starfs- mönnum. Að lokinni kynn- ingu og ávörpum æðstu stjórnenda bankans var boðið upp á spjall og léttar veitingar í kirkjumiðstöðinni. Einar Kristján Jónsson. RAUFARHÖFN: Nýr starfshópur hefur verið skipaður í framhaldi af vinnu starfshóps sem ráðherra byggðamála, Valgerður Sverris- dóttir, skipaði um vanda Raufar- hafnar. Hinn nýi hópur mun vinna saman að verkefnum er lúta að at- vinnuþróun í sveitarfélaginu og verður fyrsti fundur hópsins hald- inn í dag. Skoðaðir verða margvís- legir möguleikar á að koma á legg nýrri þekkingu og arðbærri at- vinnustarfsemi í sveitarfélaginu. Rekstrargrundvöllur saltfiskverk- unar og möguleikar á eflingu ferðaþjónustu á svæðinu verða sérstaklega teknir til umfjöllunar. Þá munu Byggðastofnun og Ný- sköpunarmiðstöðin á Akureyri leggja fram þekkingu sína og að- stoða hópinn ásamt Atvinnuþró- unarfélagi Þingeyinga. Deilur um viðbyggingu húss við Heiðargerði í Reykjavík: Hæstiréttur ekki virtur Harðar deilur stóðu um árabil milli eiganda húss að Heiðar- gerði 76 í Reykjavík og ná- granna hans um viðbyggingu við hús þess síðarnefnda. Málið endaði fyrir Hæstarétti sem kvað upp sinn úrskurð haustið 2001. Síðan hefur ekkert verið að- hafst í málinu og hafa byggingaryf- irvöld í Reykjavík ekki enn farið eft- ir niðurstöðu dómsins sem fól meðal annars í sér að hin umdeilda viðbygging yrði fjarlægð. Hæstiréttur dæmdi bygginguna við Heiðar- gerði 76 ólögmæta í september árið 2001. Síðan hefur ekkert ver- ið gert í málinu og undrast íbúar næstu húsa hversu langan tíma tekið hefur að koma úrskurðinum í framkvæmd. Kærur á kærur ofan Forsaga málsins er sú að eigandi hússins að Heiðargerði 76 fékk árið 2000 afgreitt byggingarleyfi til að reisa umrædda viðbyggingu við hús sitt sem var samþykkt af borg- arráði. Eigendur næstu eigna kærðu leyfisveitinguna til úrskurð- arnefndar byggingarmála á þeim forsendum að viðbyggingin spillti útsýni, vlli skuggamyndun, drægi úr só! og ) !li ósamræmi í útliti göt- unnar. í stuttu máli úrskurðaði nefndin ú þann veg að ekki hefði mátt veita byggingarleyfl gegn mótmælum nágranna eins og gert var. Leyfið var því fellt úr gildi í nóvember 2000 og það lagt til að byggingin yrði fjarlægð. Húseigandinn að Heiðargerði 76 höfðaði í framhaldi af þessu mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur sem HEIÐARGERÐI76: Lengi stóðu deilur um viðbyggingu hússins og endaði málið fyrir Hæstarétti sem úrskurðaði að byggingin væri ólögleg og því ætti að fjarlægja hana. Síðan eru liðin tæp tvö ár án þess að nokkuð hafi verið að gert. úrskurðaði að ógilding á útgefnu byggingarleyfi hefði verið ólögmæt og því skyldi byggingin fá að standa. Þessum dómi áfrýjuðu ná- grannarnir til Hæstaréttar sem kvað upp sinn úrskurð f september árið 2001 nágrönnunum í hag. Síð- an hefur hins vegar ekkert verið að- hafst og viðbyggingin stendur enn þrátt fyrir dómsúrskurð sem segir hana vera ólögmæta. Aðgerðaleysi borgaryfir- valda Nágrannarnir sem höfðuðu mál- ið gegn eiganda Heiðargerðis 76 eru að vonum undrandi á hversu langan tíma það hefur tekið að koma dómnum í framkvæmd. Borgaryfirvöld sögðu á sínum tíma að ekkert yrði gert í málinu á með- an verið væri að gera nýtt deiliskipulag fyrir svæðið. Það var hins vegar lagt fyrir borgarráð um miðjan febrúar síðastliðinn og þar kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir að umrædd viðbygging verði heim- iluð. Samt hefur ekkert verið gert enn í málinu. Borgaryfirvöld hafa því í raun hunsað dóm Hæstaréttar með að- gerðaleysi sínu en dómurinn er aft- ur á móti einnig áfellisdómur yfir vinnubrögðum borgarráðs og byggingarfulltrúa sem heimiluðu bygginguna á sínum tíma án þess að deiliskipulag lægi fyrir. Dómur- inn hlýtur því einnig að fela í sér að eigandi hússins að Heiðargerði 76 eigi kröfurétt á borgaryfirvöld þar eð hún heimilaði framkvæmd sem Hæstiréttur taldi síðar að stæðist ekki lög. Borgin er því í ansi sér- kennilegri stöðu hvað þetta mál varðar. agust@dv.is Norskskýrsla um stöðu íslands og Noregs gagnvartESB: Vilja sameiginlegt fisk- veiðistjórnunarsvæði Norskir höfundar skýrslu um stöðu íslands og Noregs gagn- vart ESB telja að nauðsynlegt sé fyrir þjóðirnar að koma sér saman um sameiginlegt fisk- veiðistjórnunarsvæði. Svæðið sem um ræðir í skýrslunni er fyrir norðan 62° og segja höfundar hennar að þjóðirnar verði að hafa náð samkomulagi áður en viðræður þeirra um aðild að Evrópusam- bandinu hefjast, en þær telja höf- undarnir óumflýjanlegar þegar fram líður. Með slíkum aðgerðum gætu þjóðirnar styrkt stöðu sfna í aðildarviðræðunum til muna. Fjallað var um málið í norska miðlinum Fiskaren fyrir skömmu og þar kemur fram að hin nýja sjáv- arútvegsstefna ESB bjóði upp á þann möguleika að stofna til sér- stakra fiskveiðistjórnunarsvæða. í umræddri skýrslu er rætt um að stofna slíkt svæði fyrir Norðursjó- inn með þátttöku þeirra ríkja sem þar eiga hagsmuna að gæta. ísland og Noregur gætu því vel komið slíku fiskveiðistjórnunarsvæði á fót ef samkomulag gæti tekist ufn mál- ið á milli þjóðanna. Á sameiginlegu fiskveiðistjórnunarsvæði gætu þjóðirnar stýrt aðgangi að auðlind- um hafsins í sameiningu og þannig ráðið því hverjir stunda þar veiðar. Þá gæti einnig verið hægt að koma á fót 25 mílna lögsögu fyrir heimaskip en Möltubúar fengu ný- lega slíkt ákvæði samþykkt í við- ræðum sínum við ESB. SAMEIGINLEGT FISKVEIÐISTJÓRNUNARSVÆÐI: Norskir höfundar skýrslu um stöðu (slands og Noregs gagnvart ESB telja þjóðirnar betur settar fyrir aðildarviðraeður ef þær koma sér saman um sameiginlegt fiskveiðistjórnunarkerfi í Norðursjó.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.