Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ2003 FRÉTTIR 9
Ókeypis í göngin á afmælisdaginn
SAMGÖNGUR: Þann ll.júlf
verða fimm ár liðin frá því Hval-
fjarðargöng voru formlega
opnuð við hátíðlega athöfn. Af
því tilefni ákvað stjórn Spalar
ehf., sem á og rekur göngin, að
bjóða vegfarendum að aka
ókeypis undir Hvalfjörð frá
klukkan sjö að morgni afmælis-
dagsins til sjö daginn eftir. Vakt
og öryggisgæslu verður samt
sinnt með venjulegum hætti í
gjaldskýli. Ætla má að verð-
mæti gjafar afmælisbarnsins, til
þeirra vegfarenda sem hennar
fá notið, verði á bilinu 7-10
milljónir króna. Allsfóru 11.800
bílar um Hvalfjarðargöng á
fyrsta sólarhringnum eftir að
þau voru tekin í notkun í júlí
1998 og þetta umferðarmet
hefur staðið óhaggað síðan þá.
Nýir skilmálar
FLUTNINGAR: Þjónustuskil-
málar Sambands íslenskra
kaupskipaútgerða (SÍK)
munu gilda frá og með 1.
ágúst 2003 um alla þjónustu
Samskipa við viðskiptavini fé-
lagins, að því marki sem slík
þjónusta fellur ekki undir
flutningsskilmáia félagsins. I
skilmálum SÍK er að finna ít-
arleg ákvæði um ábyrgð
Samskipa
skipafélaga gagnvart við-
skiptavinum sínum.Telja for-
svarsmenn Samskipa að gild-
istaka skilmála SÍK hafi í för
með sér verulegt hagræði
fyrir viðskiptavini félagsins
því þeir séu samræmdir og
þar sé með afdráttarlausum
hætti kveðið á um réttindi og
skyldur Samskipa og við-
skiptavina þeirra.
Snjór á Vatnajökli hefur ekki
mælst meiri í 10 ár og svo virð-
ist sem jökuilinn sé að stækka
þrátt fyrir að snjólétt hafi verið
á láglendi sl. vetur.
Gífurlegu magni af snjó kyngdi
niður á jökulinn og sumstaðar hef-
ur þykkt hans aukist um allt að 9
metra. Aukningin jafngildir tveggja
metra hækkun alls jökulsins. Þessi
niðurstaða kemur mjög á óvart því
veturinn var snjóléttur á láglendi.
Langmest hefur bætt í jökulinn
sunnanverðan, en mun minna að
norðanverðu, enda koma úrkomu-
beltin upp að landinu sunnanverðu
og þar fellur úrkoman fyrst. í Skeið-
arárhlaupi 1997 runnu um 3 til 3,5
rúmkílómetrar af vatni undan jökl-
inum, en það virðist lftil áhrif hafa.
Erik Sturkell, jarðfræðingur á
Veðurstofu íslands, fór í rannsókn-
arleiðangur með Jöklarannsókna-
félaginu í byrjun júnímánaðar, og
Þetta er mjög gott fyrir
jöklana sem hafa verið
að minnka ár frá ári, en
í ár verður engin breyt-
ing, þeir minnka a.m.k.
ekki í ár.
hann segir að þessi mikli snjór hafi
komið á óvart. Alla leið upp í Jökul-
heima hafi ástandið verið eðlilegt,
en þá var skýndilega allt á kafi í
snjó. Hann segir að þetta hafi
einnig verið reynslan þegar farið
var upp á Mýrdalsjökul í marsmán-
uði, þar hafi einnig verið mikill
snjór og voru mælingapunktar víða
á kafi, m.a. á Entukollu og Aust-
mannsbungu. Þegar búið var að
grafa 12 metra niður á jöklinum var
enn ekki komið niður á botn. Mæl-
ingar á Langjökli og Hofsjökli, og
kannski fleiri jöklum, benda til að
þar hafi einnig komið mun meiri
snjór en mörg undanfarin ár.
Mikill snjór ofan 1000 metra
„Það rigndi mjög mikið f haust,
t.d. á Austfjörðum, og oftar í vetur,
en fyrir ofan 1000 metra hæð varð
rigningin að snjó. Það hefur rignt
mikið á íslandi í vetur, einnig á höf-
uðborgarsvæðinu, og þetta er nið-
urstaðan af því á jöklunum því
hitastigið þarf svo lítið að breytast
tii þess að rigningin verði að snjó.
Þetta er mjög gott fyrir jöklana sem
hafa verið að minnka ár frá ári, en í
ár verður engin breyting, þeir
minnka a.m.k. ekki í ár. Það er t.d.
ekki mikill snjór í Vonarskarði milli
Vatnajökuls og Tungnafellsjökuls
inni á hálendinu.
Lítill hafís
Þór Jakobsson hafísfræðingur
segir að hafís sé með minna móti
milli íslands og Grænlands og hafi
aldrei náð sér á strik í fyrrasumar
eða í vetur. Hann hefur þó sést við
miðlínu milli íslands og Græn-
lands. En norðan Jan Mayen varð
töluvert um hann og fór jafnvel að
myndast svonefndur „oddi“ sem
þarna kemur stundum, en það er
þegar mikill skagi myndast af hafís
i norður frá Jan Mayen.
gg@dv.is
Samtök ferðaþjónustunnar gagnrýna harðlega rekstur í opinberu húsnæði:
Grafalvarlegt samkeppnismál
„Sums staðar hunskast menn
til að bregðast við, eins og til
dæmis þegar reksturinn í Al-
þjóðahúsinu var loks leigður
út eftir að við höfðum gagn-
rýnt að Reykjavíkurborg væri
að reka veitingahús.
Það er mjög einkennilegt að op-
inberum aðilum skuli ekki finnast
skrýtið að þeir standi í samkeppn-
isrekstri. Auðvitað er víða eðlilegur
rekstur í opinberu húsnæði þar
sem kemur eðlileg leiga fyrir. Það er
ekkert að því en því fer fjarri að
þetta sé alls staðar gert á eðliJegum
forsendum. Við fáum margvíslegar
kvartanir víðs vegar af landinu. Hér
er um grafalvarlegt samkeppnismál
að ræða enda skekkir þessi rekstur
alla samkeppnisstöðu verulega,"
sagði Erna Hauksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, í samtali við DV.
í nýju fréttabréfi Samtaka ferða-
þjónustunnar, undir yfirskriftinni
Rekstur f opinberu húsnæði, er
greint frá stöðugum umkvörtunum
félagsmanna vegna samkeppni við
rekstur í alls kyns opinberu hús-
næði. Segir að þar séu stundum
ekki leyfi fyrir hendi „og næsta víst
að lítið fari fyrir greiðslu lögboð-
inna skatta og gjalda og laun starfs-
fólks ekki gefin upp“.
Samtökin hafa oft rætt þetta við
stjómvöld, reyndar í mörg ár, en án
árangurs. Segir í fréttabréfinu að
svona rekstur sé landlægur ósiður
„og viðkomandi yfirvald virðist ekki
gera sér neina grein fýrir sam-
keppnisstöðu fyrirtækja gagnvart
þessu".
„Hér er um grafalvar-
legt samkeppnismál að
ræða enda skekkir þessi
rekstur alla samkeppn-
isstöðu verulega"
Kvenfélög spretta upp
„MiMlvægt atriði sem við erum
pirruð út í er að þegar tilefni gefst til
hátíðahalda, t.d. þorrablóta, spretta
upp kvenfélög og alls kyns klúbbar
og fara að selja veitingar í opinber-
um húsakynnum, sal á vegum sveit-
arfélaga eða annarra. Þeir sem reka
hótel á staðnum fá hins vegar ekk-
ert af þessu. Um leið eru sveitarfé-
Erna Hauksdóttir
lög að leggja mikla áherslu á að hót-
el á staðnum sé opið allt árið en
gera fátt til að hjálpa hótelinu að lifa
- líta á umrædda sölumennsku fé-
lagasamtaka með blinda auganu og
stuðla jafnvel að því að aðilar með
engin leyfi hirði rjómann af öllum
uppákomum ársins."
Samtök ferðaþjónustunnar ætla
ekki að gefa neitt eftir í þessu máli
og hafa sent bréf til allra sveitar-
stjórna á landinu þar sem þær em
beðnar að skoða slíkan rekstur á
sínu svæði og íhuga hvaða áhrif
hann hafi á þau fyrirtæki sem eru
að reyna að hafa opið allt árið. Er ít-
rekað að til þess að hótel geti lifað
veturinn í þeirri miklu árstíða-
sveiflu sem er í ferðaþjónustunni
þurfi þau að eiga eðlilegan aðgang
að innlenda markaðinum yfir vet-
urinn. Það geri ýmis hótel ekki.
Aðspurð um áðurnefndan rekst-
ur á höfúðborgarsvæðinu benti
Erna á dansleiki í íþróttahöllum þar
sem ekki eru uppfylltar kvaðir sem
skemmtistaðir á svæðinu verða að
uppfylla.
„Reglur eru brotnar þvers og
kruss svo halda megi dansleiki í
íþróttahúsum meðan skemmti-
staðir verða að halda allar reglur til
fulls en sæta viðurlögum ella. Þetta
er náttúrlega alveg óþolandi," sagði
Erna.
Hún segir að bréfinu til sveitar-
stjórna verði fylgt eftir með samtöl-
um við einstaka sveitarstjóra og
samtölum við ráðherra. En málið
sé erfitt viðureignar þar sem það sé
ákveðin lenska að hafa það í þeim
farvegi sem samtökin gagnrýna.
hlh@dv.is
Frábærar
haustferðir til
Portúgals á
einstöku verði.
kr.
á mann
a mann
Innifaliö: Flug, gisting í eina
viku í studíói á Sol Doiro
og allir flugvallarskattar.
Komdu með
til Portúgals
og njóttu lífsins
með Plúsferðum
í Albufeira.
FERÐIR
www.plusferdir.is
Hliðasmára 15 • Simi 535 2100