Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Page 10
7 0 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNÍ2003 Saman á heimssýningu SÝNING: Norðurlöndin munu standa sameiginlega að kynn- ingu á heimssýningunni árið 2005. Svíar, sem fara með for-. mennsku í Norðurlandaráði, höfðu frumkvæði að samning- um við Dani, Finna, Norðmenn og íslendinga um að þjóðirnar kynni sig í sameiginlegum skála í Aichi í Japan þar sem heimssýningin verður haldin. „Þetta er áhugaverður nýr áfangi í norrænu samstarfi," segir Leif Pagrotsky, atvinnu- málaráðherra Svía. Norður- löndin eiga mörg grunngildi sameiginleg, ekki síst í tengsl- um við yfirskrift heimssýning- arinnar sem að þessu sinni er „Viska náttúrunnar". Ætisskortur ógnar kríunni DÝRALlF: Kríu hefur fækkað umtalsvert á Breiðafirði und- anfarin fimm ár. Þrátt fyrir gott árferði verpir hún mjög seint við Breiðafjörð. Talsverð fækk- un hefur orðið á kríu á Breiða- firði á sl. fimm árum, sérstak- lega í Flatey. RÚV skýrir frá því að Ævar Petersen fuglafræð- ingur hafi rannsakað sjófugla í Flatey í 30 ár. Kríuskoðarar á Seltjarnarnesi telja að minna sé um kríuvarp í ár en undan- farin ár, en meira um geldfugl. Ævar telur að það að varpi seinkar svo mjög tengist því að krían hafi minna æti. Barnaníðingar sækja gjarnan í störfþarsei Reglur um rádnin með börnum mjö Eins og víða hefur komið fram í fjölmiðlum síðustu daga varð karlmaður, sem játað hefur að eiga stærsta safn barnakláms á íslandi, uppvís að ósæmi- legri kynferðislegri hegð- un gagnvart ungum drengjum í starfi sínu í einni af deildum KFUM í Reykjavík veturinn 1988-89. u^ífð,.,trekað að Þá hefur verið bent á að fólk sem hafi afbrigðilegar kynferðislegar hvatir gagnvart börnum sæki einmitt í störf með börn- um. I kjölfarið hefur farið af stað umræða um hvernig staðið er að ráðningum fólks sem starfar með börnum og hvort félagssamtök sem sinna börnum notist við einhverjar sér- stakar reglur í þessu sambandi. Málið til umræðu hjá skátun- um Þorsteinn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta, segir samtökin ekki hafa neinar fastmótaðar reglur þegar kemur að ráðningu starfsmanna inn í skátastarfið. í ljósi umræðu síðustu daga var hins vegar ákveð- ið að funda um málið innan skáta- hreyfingarinnar og fór sá fundur fram í gær. Þar var m.a. rætt um hvort setja þyrfti sérstakar reglur um ráðningar starfsmanna. „Við höfum engar reglur um þetta eins og er en málið er til um- ræðu. Starf okkar er þess eðlis að fólkið sem gegnir leiðtogahlutverk- um er allt fólk sem við þekkjum vel til og flestir hafa verið í skátastarf- inu í fjölda ára áður en þeir verða leiðtogar," segir Þorsteinn sem segist ekki vita um nein tilfelli þar sem mál svipað því sem gerðist hjá MÁLIN í SKOÐUN: Þorsteinn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Bandalags fslenskra skáta, segir að skátahreyfingin hafi í kjölfar þeirrar umræðu sem skapaðist eftir að mál starfsmanns KFUM kom upp á yfirborðið ákveðið að skoða hvort nauðsynlegt sé að setja sérstakar reglur um ráðningar starfsmanna. MAÐURINN í BARNAKLÁMSMÁLINU: Maðurinn sem hefur gengist við því að eiga stærsta safn barnakláms sem fundist hefur á Is- landi varð uppvís að ósæmilegri hegðun í garð nokkurra ungra drengja þegar hann var starfsmaður KFUM í Reykjavík. í kjölfarið hefur umræða um hvernig staðið skuli að ráðningum starfsfólks sem vinnur með börnum farið af stað í samfélaginu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.