Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Qupperneq 14
14 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNl2003
Útlönd
Heimurínn i hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson og Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is / erlingur@dv.is
Sími: 550 5829/550 5828
Vanhanen forsætisráðherra Finnlands
FINNLAND: Finnska þingið
samþykkti með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða í gær að
Matti Vanhanen úr Miðflokkn-
um skyldi verða næsti forsætis-
ráðherra Finnlands.
Vanhanen, sem er fyrrum
blaðamaður og sérfræðingur í
málefnum Evrópusambands-
ins, tekur við af Anneli
Jáátteenmáki sem varð að
segja af sér eftir tveggja mán-
aða setu vegna misnotkunar
trúnaðarupplýsinga sér til
framdráttar í kosningabarátt-
unni í mars.
„Aðstæður hafa verið óvenju-
legar og dagurinn hefur verið
dramatískur," sagði hinn 47 ára
gamli Vanhanen, sem var land-
varnaráðherra ífráfarandi
stjórn, við fréttamenn eftir at-
kvæðagreiðsluna í þinginu.
Jafnaðarmenn, sem duttu nið-
ur í annað sætið á eftir Mið-
flokknum í kosningunum í
mars, sögðu að nú væri runnin
upp stund sátta og samvinnu
og að þeir væru reiðubúnir að
taka þátt í samsteypustjórn
undir forystu Vanhanens.
Vanhanen þykir í margra aug-
um rétti maðurinn í starfið.
Sex Bretar
féllu í írak
Mesta mannfall síðan stríðinu lauk
Breski herinn í írak hefur hafið
rannsókn á því hverjir stóðu að
drápunum á sex iiðsmönnum
bresku konunglegu herlög-
reglunnar í suðurhluta íraks í
gær, en lík þeirra fundust á lög-
reglustöð í þorpinu Ai Majar al
Kabir í nágrenni bæjarins Al
Amarah rétt norður af Basra
þar sem þeir unnu að þjálfun
íraskra lögreglumanna.
Þetta var önnur árásin sem liðs-
menn breska hersins urðu fyrir á
þessum slóðum í gær því í öðru til-
felli fyrr um daginn særðust sjö
breskir hermenn og þar af tveir
mjög alvarlega þegar bresk her-
þyrla varð fyrir skotárás þegar hún
reyndi að koma breskri eftirlits-
sveit til hjálpar eftir að ráðist hafði
verið á hana.
Eftirlitssveitin mun hafa verið á
hefðbundinni eftirlitsferð um
svæðið á tveimur hertrukkum
þegar hún varð fyrir árás óþekkts
hóps skæruliða með þeim afleið-
ingum að einn breskur hermaður
særðist.
Grunur leikur á að annaðhvort
stuðningsmenn Saddams úr Baat-
h-flokknum eða liðsmenn skæru-
liðahóps andstæðinga hersetunn-
ar í landinu hafi staðið að árásun-
um, en árásarliðið beitti bæði
þungum hrfðskotabyssum og
sjálfvirkum rifflum auk hand-
sprengjuvarpa.
Síta-múslfmar, helstu andstæð-
ingar fyrrum ógnarstjórnar Sadd-
ams Husseins og einnig andstæð-
ingar hersetu bandamanna í land-
inu, eru í miklum meirihluta í
suðurhluta fraks og liggja öfga-
hópar þeirra einnig undir grun.
Þetta er mesta mannfall sem
Bretar verða fyrir í Irak síðan þeir
hófu þátttöku í innrásinni í landið
í lok mars og einnig mesti mann-
skaði sem innrásarherir banda-
manna verða fyrir í átökum á ein-
um degi síðan stríðinu lauk þann
l.maísl.Aðminnstakosti tuttugu
Grunur leikur á að
annaðhvort stuðnings-
menn Saddams úr
Baath-flokknum eða
liðsmenn skæruliða-
hóps andstæðinga
hersetunnar hafi
staðið að árásunum.
bandarískir hermenn hafa fallið í
átökum í Bagdad og öðrum ná-
lægum borgum og bæjum síðan
Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yf-
ir að öllum meiri háttar átökum
væri lokið.
Árásirnar í gær voru gerðar á
mörkum yfirráðasvæðis Breta í
suðurhluta Iraks en þeir hafa farið
með gæslu á olíusvæðunumn í
kringum hafnarborgina Basra,
sem þeir hertóku í upphaft stríðs-
ins.
Eftir árásirnar í gær hafa vaknað
spurningar um það hvort breska
setuliðið sé orðið of værukært eft-
ir frekar rólegt tímabil eftir lok
stríðsins, sem sést best á því að
hermenn eru hættir að bera
hjálma eða klæðast skotheldum
vestum við gæslustörf til að auð-
velda vinsamleg samskipti við
íbúana.
Geoff Hoon, varnarmálaráð-
herra Bretlands, tilkynnti f gær að
breska varnarmálaráðuneytið
hefði þegar fyrirskipað rannsókn á
starfsháttum breska hersins í írak
með öryggismál hermannanna í
huga, auk þess sem umfangsmikil
rannsókn væri hafin á því hverjir
stóðu að árásunum í gær.
Hann sagði í fyrirspurnatíma í
breska þinginu í gær að svo virtist
sem bresku herlögreglumennirnir
hefðu orðið fyrir óvæntri árás á
lögreglustöðina og fallið í skotbar-
daga. Óljóst væri þó hvort tengsl
væru á milli árásanna en sú fyrri,
sem gerð var á eftirlitssveitina, var
gerð nokkurm klukkustundum
fyrr og hefði árásarliðið verið fjöl-
mennt.
Kallað hefði verið eftir hjálp og
hefði þyrlusveit þegar verið send á
vettvang auk skiðdreka- og sér-
sveitar, sem einnig hefðu orðið
fyrir skotárásum.
Síðustu fréttir frá írak herma að
reiðir íbúar Majaral-Kabir haft
gert árás á lögreglustöðina og er
haft eftir einum íbúanna að
ástæðan sé óánægja þeirra með
vopnaleit bresku herlögreglunnar
í þorpum á svæðinu.
Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að sýr-
lensk stjórnvöld hefðu krafist þess
að Bandaríkjamenn létu lausa
fimm landamæraverði sem særð-
ust í árás bandarískra sérsveita á
bflalest við írösku landamærin í
síðustu viku. Það rennir stoðum
undir þann grun að árásin hafi
í OtatítayiðíblbO W
McDonaldTs
Fanndís ómarsdóttir, 160794
Eygló Hrund Guðmundsdóttir, 150295
Jóhann Gunnar, 020392
Viktor Sigurðsson, 190999
Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, 020596
Helena Svava Hjaltadóttir, 141289
Þórdís RÚn Kóradóttir, 220496
Rsdís Ósk GuSmundsdóttir, 090693
Tanja Mjöll Magnúsdóttir, 260295
Gunnar D. JÓnsson, 220497
Krakkaklúbbur DV og McDonald’s óska
vinningshöfum til hamingju.
Vinningshafar vinsamlegast nólgist vinningana í
þjónustuveri DV, Skaftahlís 24, fyrir 2S. júlí, ó milli kl.
9 og 17. Vinningar til vinningshafa úti ó landi verSa sendir.
Kveðja. TÍgri og Kittý
1Ce*kieidiMa
Vladimír Pútín í opnum vagni með Bretadrottningu:
Konunglegar móttökur
Vladimír Pútín Rússlandsfor-
seta var tekið með kostum og
kynjum þegar hann kom í op-
inbera heimsókn til Bretlands í
gær, fyrstur rússneskra þjóð-
höfðingja síðan Alexander 2.
Rússakeisari sigldi til Englands
árið 1874. Elísabet Englands-
drottning tók á móti Pútín og
tók hann í ökuferð í opnum
vagni til Buckinghamhallar.
Rússlandsforseti kom á óvart í
kvöldverðarveislu í höllu drottningar
þegar hann ávarpaði gestgjafa sína
og aðra viðstadda á ensku og vottaði
Bretum samúð sína vegna dauða
bresku hermannanna sex sem vom
felldir í Irak fyrr um daginn.
DROTTNINGU HJÁLPAÐ: Vladimír Pútín
Rússlandsforseti aðstoðar Elísabetu
Bretadrottningu við að stíga úr hest-
vagninum sem ók þeim um London.
Pútín hefur gefið í skyn að hann
vilji jafna ágreininginn sem kom
upp milli Rússa og Breta vegna
stríðsins í frak sem Rússar voru
mjög andvígir.
„Öllum má það ljóst vera að þrátt
fyrir ágreininginn sem var úl staðar
áður verðum við að vinna saman
núna,“ sagði Pútín í matarboðinu
hjá Elísabetu drottningu.
Pútín mun aðeins hitta Tony
Blair, forsætisráðherra Breúands,
einslega í hálftíma í fjögurra daga
heimsókn sinni. Þeir munu þó fá
tækifæri til að spjalla saman við ým-
isleg tækifæri þessa daga.
Rússneski forsetinn og eiginkona
hans, Ljúdmfla, héldu úl Edinborgar
í morgun, í fylgd hertogans af Jórvík
og munu skoða sig þar um.