Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2003, Qupperneq 20
20 FÓKUS MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNl2003 + MIÐVIKUDAGUR 25. JÚNl2003 FÓKUS 21 Ifókus Umsjón: Höskuldur Daði Magnússon og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir. Netföng:fokus@fokus.is, hdm@fokus.is, sigrun@fokus.is Sími: 550 5894 • 550 5897 www.fokus.is erjir ^oru hvar? Það var nóg að gera á skemmtistöðum Reykjavíkurborgar um helgina og þá sér- staklega á laugardag enda þar um að ræða lengstu nótt ársins. Elítan ákvað reyndar að leggja leið sína út fyrir borg- armörkin og fjölmennti á sveitakrána Áslák í Mosfellsbæ. Þar mátti sjá Jón Ás- geir Baugsmann með meiru, hinn nýgifta Þorstein í Coke og þá Hreggvið Jónsson og Hrein Loftsson. Á ölstof- una lögðu leið sína söng- og leikkonurnar Selma Björnsdóttir og Jóhanna Vigdfs Arnar- dóttir. Þar mátti einnig sjá Ágúst Ólaf Ágústsson, þingmann Samfylkingar- innar, f banastuði og Ómar Swares Qu- arashi-liða. Á ölstofunni var heldur engínn skortur á nýútskrifuðum leikkonum því þar voru saman komnar þær llmur Kristjánsdóttir, Marfa Heba Þorkelsdóttir og Bryndís Ásmunds- dóttir en sú siðastnefnda kemur einmitt til með að reyna fyrir sér sem sundlaugarvörður f Djúpu lauginní á föstudag. Loks mátti sjá fjölmiðtakon- urnar Sólveigu Kr. Bergmann, Dóru Takefusa úr fslandi í dag, Brynju Þor- geirsdóttur, fréttakonu á Stöð 2, og Gerði Kristnýju, ritstjóra Mannlífs. Á Gaukn- um sáu rokk ararnir í Jet Black Joe um að trylla lýðinn fram eftir morgni. Þar voru meðal annarra stödd þau Kolla og Hálfdán, fyrr- vcrandi Djúpulaugarumsjónarmenn, Frikki Weishappel, DJ Árni og Chloé Oph elia Gorbulew, Brain Police-töffararnir Jenni og Jómbi, Gummi Jóns úr Sátinni, Steinarr Logi og nýja hljómsveitin Kung Fu, Óli Amsterkóng- ur, Ingólfur sem gegnir starfi umboðs- manns íslands f sumar, Sigga Guðna söngkona, Sigfús Sigurðar handbolta- kappi, Hjalli og Silli Geirdalsbræður, Sveinn sniðugi Waage og tvíburarnir Kiddi og Gulli Júníusbræður ásamt þeim Agli, Heiðari og Þórhalli úr hljómsveit- inni Vinyl. Á Hverfisbarnum var margt um mann- inn eins og annars staðar og þar mátti sjá marga merkilcga og skemmtilega. Til dæmis sjónvarpskonuna Dóru Takefusa úr fslandi f dag, Kristján Ra athafnamann, Kidda Bigfoot, skemmtanastjóra fslands, Gumma Jóns úr Sálinni, Eið Smára Guðjohnsen fótboltakappa, Örnu fyrrum Playboy skvísu, Hörð Magnússon íþróttafrétta- mann og Finn Beck fréttamann með meiru ásamt eiginkonu sinni. Á Sólon var fullt út úr dyrum alla helg- ina og á föstudag mátti sjá þar glitta í sjálfan Jóhann Bachmann, trommuleik- ara írafárs, ásamt vinum sínum. Á Amsterdam var svo staddur Örvar Þór Kristjánsson, gítarleikari í Gleðisveit Ingólfs sem mun víst vera hljómsveit fs- lands þetta sumarið. StendurþÚ fyrir O einhverjuf fokusSfokus.is Foo Fjghters spila i Höllinni Undanfarin ár höfum við á hverju sumri tekið á móti að minnsta kosti einni stórri hljómsveit. Ekki leit vel út með þetta sumar og voru margir farnir að örvænta. Rokkunn- endur þurfa nú ekki að kvarta leng- ur því koma bandarísku rokkaranna í Foo Fighters er staðreynd. Staðfest hefur verið að Foo Fighters koma til með að spila í Höll- inni þann 26. ágúst næstkomandi. Þetta kom fram á heimasíðu sveitarinnar www.foofighters.com f gær. Miðasala á tónleikana hefst 18. júlí næstkomandi. En hvaða band er Foo Fighters? Dave Grohl er aðalmaðurinn í Foo Fighters og hann hefur eytt síðustu níu árum ævi sinnar í að losna við þá nafhgiff að vera „trommarinn úr Nirvana“. Grohl hafði meðal annars trommað með rokksveitinni Scream áður en hann settist bak við settið í Nir- vana. Urðu hæfileikar hans flestum ljósir frá fyrstu tónleikunum með Nirvana. Grohl hafði metnað til að ná lengra en að sitja á bak við settið og reyndi að koma lagasmíðum sínum á framfæri innan hljómsveitarinnar, án árangurs þó því aðalmaðurinn í þeirri sveit sýndi litla hrifningu á þeim. Eftir að Kurt Cobain fyrirfór sér árið 1994 gat Dave Grohl hugsað dæmið upp á nýtt og nú fóru hlut- imir að gerast hjá honum. Spóla með lögum hans fór að ganga innan rokkkreðsunnar og fólk var orðið spennt að heyra frá drengnum. SÓLÓSKÍFA GROHLS Arið 1995 kom fyrsta plata Foo Fighters út og bar hún nafn hljómsveitarinnar. Platan var reyndar nokkurs konar sólóplata því Grohl sá að öllu leyti um að semja og spila lögin inn á plöt- una. Hann hóaði þó saman hljómsveit til að spila með sér á tón- leikum og fyrstu meðlimimir vom Pat Smear gítarleikari, sem spilaði með Nirvana undir það sfðasta, og þeir Nate Mendel bassa- leikari og William Goldsmith trommari sem báðir komu úr Sunny Day Real Estate. Eftir því sem hróður Foo Fighters hefur aukist með ámnum og plötunum fjölgað hefur þó liðsskipanin breyst. í dag spilar Chris Shifflett á gítar og Taylor Hawkins er á tromm- unum en hann trommaði áður í hljómsveit Alanis Morrisette. VlNSÆLLI MEÐ HVERJU ÁRINU Þessi fyrsta breiðskffa fékk prýðilegar viðtökur og í kjölfarið spil- uðu Foo Fighters eins og vitlausir menn hvar sem þeir gátu. Tveim ámm seinna kom svo út næsta plata þeirra sem hét The Colour And The Shape. Sú plata festi sveitina rækilega í sessi sem eina af helstu rokksveitum heims enda var á henni nóg af frambærilegum smáskífulögum auk þess sem myndböndin þóttu hvertöðm skemmtilegra. í myndböndunum er Grohl jafhan í ess- inu sfnu, persónutöframir skína af honum, og þau ásamt frábærri stemningu á tónleikum eiga ekki hvað sístan þátt f vinsældum Foo Fighters. Aðrir meðlimir tóku sífellt meiri þátt í lagasmíðun- um og árið 1999 sendu þeir frá sér plötuna There Is Nothing Left To Lose sem mörgum þótti full þunglyndisleg. Þeir bættu þó heldur betur fyrir það með þeirri nýjustu, One By One, sem kom út f fyrra. Þar ná Foo Figthers sér vel á strik og greinilegt að sjálf- skipað frí sem þeir tóku við vinnslu plötunnar (Dave Grohl trommaði meðal annars með Queens Of The Stone Age og Tenacious D) hefur skilað sér vel. Má því fullyrða að gestir í Höll- inni 26. ágúst eigi von á hörku tónleikum. íslenskir rokkunnend- ur eiga von á sprengju í ágúst þegar Foo Fighters með sjálfan Dave Grohl innanborðs spila í Höll- inni. Fjórða plata hljómsveitarinnar Á móti sól kemur út á föstudaginn. Gripurinn, sem fengið hefur nafnið Fiðrildi, er reyndar bara önnur plata söngvarans, Magna Ásgeirssonar, sem var ráðinn til að taka við af forvera sínum eftir að hafa verið „uppgötvaður" í söngkeppni framhaldsskólanna þar sem hann keppti alls þrisvar sinnum. í samtali við Fókus ræðir Magni um FM hnakka og ullarhúfur, nýju plötuna og þá stóru stund þegar fundum hans og Bruce Dickinson bar saman. Popparar eru rokkarar Magni Ásgeirsson söngvari hljómsveitarinnar Á móti sól. „Ef maður ætlar ekki að syngja atmennilega þá á maður bara að þegja“. „Þú afsakar, ég er mjög hás, var að syngja alla helgina," segir Magni rámri röddu þegar blaðamaður hittir hann á mánudagsmorgni. Hann bætir því við að hæsið sannfæri hann um að hann hafi staðið sig vel. „Ef maður ætlar ekki að gera þetta almennilega þá á maður bara að þegja. Þess vegna öskra ég mig hásan. En ég er fljótur að jafna mig, verð fínn á morgun. Við vorum að spila í Hvíta húsinu á Selfossi á laugardaginn. Klukkan þrjú áttaði ég mig á því að ég þyrfti ekkert að syngja aftur fyrr en eftir viku. Við gáfum þess vegna í, tókum erfiðari lög, öskruðum meira og héldum áffam að spila þangað t(fvar slökkt á okkur.“ Þrisvar í SÖNGKEPPNI FRAMHALDSSKÓLANNA Magni segir að nýjasta plata sveitarinnar/Fiðrildi, sé sú besta til þessa. „Þetta er mjög góð plata þér að segja. Vð erum mjög hreyknir af henni. Hún inniheldur ellefu lög og meira „kántrf‘ en áður. Við erum^vo hrifhir af því, strákarn- ir. Það má eiginlega segja aT þetta sé eðalpopp með kassagítarívaft.“ Magni hefur verið söngvari sveitarinnar í rúm tvö ár en hún hefur verið starfandi talsvert lengur. „Sá sem var á und- an mér heitir Björgvin, kallaður Bjöllinn. Ég þekki hann ekki meira en það. Hef hitt hann þrisvar á ævinni, fínn strákur ábyggilega. Hann ákvað að snúa sér að öðru og þá hringdu strákamir í mig. Ég þekkti þá ekki neitt en þeir höfðu séð mig í Söngkeppni framhaldsskólanna í eitthvert þessara þriggja skipta sem ég tók þátt. Það þekkti mig reyndar enginn ár frá ári. í fyrsta skiptið var ég með hár nið- ur á bak en það náði bara niður að eyrum í annað skiptið. 1 þriðja skiptið lét ég mér nægja að syngja bakrödd. En ég er sem sagt búinn að ljóstra því upp núna að þetta var allt sami maðurinn," segir Magni og hlær. Eins og að vera frægur á ættarmóti Honum líkar vel að vera poppari á íslandi. „Ég held það sé miklu skemmtilegra að vera poppari en rokkari á íslandi. Ef þú hugsar um þessa erlendu rokkímynd þar sem hljóm- sveitimar ferðast um í rútum, skemmta sér allar helgar og spila fyrir framan öskrandi fólk þá sérðu að það eru popp- hljómsveitimar sem eru t þessu hlutverki á Islandi. Ég er búinn að spila á hverjum einasta stað á Islandi nema nokkrum á Vestfjörðum. Rokksveitimar spila bara á Grand Rokk og ganga þess á milli um með lopahúfur og gera ekki neitt." Þrátt fyrir að hafa spilað úti um allt land nánast linnulaust í tvö ár vill Magni ekki kannast við að vera frægur og segist nánast aldrei verða fyrir ónæði. „Ég hef lítið lent f því að fá símtöl frá ókunnugum og þess háttar enda er ég ekkert frægur. Það er miklu þægilegra. Ef ég væri í Birgittu sporum væri ég löngu búinn að fleygja mér út um glugga. Það er enginn ffægur á íslandi. Birgitta er náttúrlega bara „phen- omenon", eiginlega eins og Bó var. Hér þekkja allir alla og allir em skyldir öllum. Þetta er eiginlega eins og að segjast vera frægur á ættarmóti." Ef Fókus væri maður... Plötur íslenskra poppsveita fá oft nokkuð slæma útreið í fjölmiðlum. Á móti sól hefur ekki farið varhluta af því þótt síðasta plata þeirra ÁMS hafi víðast hvar fengið góða dóma. Skömmu eftir að hún kom út birtist þó dómur í Fókus und- ir yfirskriftinni „Merkilegt metnaðarleysi“. Magni segist ekki eiga erfitt með að kyngja slæmri gagnrýni. „Það hafa allir rétt á að hafa sína skoðun. Ég trúi bara ekki á það „konsep“ að fólk þurfi annaðhvort að vera FM hnakkar eða ganga með ullarhúfú. Maður á að hlusta á sem flest en ef þér finnst einhver tónlist leiðinleg áttu bara að hlusta á eitthvað annað og halda kjafti. Fókus hefur aldrei verið vinur poppsveitanna og ef Fókus væri maður væri hann búinn að láta berja sig svona 50 sinnum af hverri einustu popp- hljómsveit á Islandi.“ Trommusett í hraðlest 1 vikunni ætlar Á móti sól að taka upp myndband við lag sitt, Allt, sem hefur töluvert verið spilað undanfárnar vikur. „Myndbandið verður mjög skrýtið enda er leikstjórinn stórfurðulegur maður. Það er best að segja sem minnst en þetta verður einhvers konar Palli var einn í heiminum konsept, götusópari og appelsínugulur vinnugalli. Restin verður bara að koma í ljós.“ Umrætt myndband er það fjórða sem Guðjón Jónsson er fenginn til að leikstýra fyrir ÁMS. „Guðjón fékk þá hug- mynd að fara til London og taka upp myndband við lagið Drottningar eftir að hafa gefist upp á að bíða eftir góðu veðri á íslandi,11 segir Magni og hlær. „Hann hringdi bara í okk- ur einn daginn og sagði: „Jæja, nú förum við til London!" Svo við drifum okkur til London og spiluðum alls staðar þar sem má ekki spila, til að mynda í hraðlestinni sem gekk frá flugvellinum. Lestarvörðurinn lét sér bara fátt um finnast þegar við byrjuðum að stilla upp trommusetti í lestinni hans. Bretar eru mjög „líbó“ þjóð.“ Excuse me, Mr. Dickinson Það var einmitt á leiðinni til Lundúna sem Magni hitti átrúnaðargoð sitt til margra ára, Bruce Dickinson, söngvara Iron Maiden. Sá er flugmaður hjá Iceland Express eins og frægt er orðið. „Við sátum í flugvélinni og vorum að fá okk- ur bjór þegar rótarinn pikkaði í mig og hvíslaði: „Þama er Bruce Dickinson!11 Þá stóð hann bara og var að reyna við flugfreyjumar, hafði flogið til íslands en var á frívakt í baka- leiðinni. Hann var að vísu í gallanum, öllu flugmannsdress- inu. Ég var mjög lengi að mana mig upp í að spjalla við hann. Var eiginlega eins og lítil stelpa á Britney Spears tónleikum: „Excuse me Mr. Dickinson." Ég efaðist ekki um að þetta væri hann f eina mínútu enda er hann eitt af goð- unum. Ég spurði hvort við mættum taka viðtal við hann fyr- ir SkjáEinn en það mátti ekki af því hann var í flugmanna- búningi. Hann má ekki vera bæði söngvari og flugmaður, það stendur í samningnum hans. En ég fékk eiginhandará- ritun á ælupokann minn sem er núna á heiðursstað inni í glerskáp heima." Golf er á góðri leið með að verða ein vin- sælasta íþrótt landans. Mörg- um þykir sportið heldur dýrt og Fókus ákvað að gera nákvæma könnun á því hversu dýrt sum- arið þarf að vera fyrir byrjendur í golfi. Þá er bara spurningin, ertu maður eða mús? 1. DerhÚFA: Dýrasta derhúfan hjá Nevada Bob kostar 2900 krónur. 2900 krónur. 2. HANSKI: Þú getur fengið flottasta golfhanskann á 2450 krónur. 2450 krónur. 3. Buxur: Khakibuxur kosta 6900 krónur en þú vilt Ifka eiga almennilegar regn- buxur. Þær dýrustu kosta 19900. 26800 krónur. 4. SkÓR: Golfskór kosta á bilinu 590-21900 krónur hjá Nevada Bob. Er þetta ein- hver spurning? 21900 krónur. 5. PEYSA: Dýrasta peysan hjá Nevada Bob kostar 8900 krónur. Þú kaupir hana. 89oo krónur. 6. KYIFUR: Þú ert byrjandi og veist ekkert um golf. Samt veistu að það er nauð- synlegt að eiga dýrasta golfsettið. 139000 krónur. 7. KÚLUR: Kúlur kosta frá 40 kr/stk (notaðar) upp t'550 krónur hjá Ncvada Bob. Þú kaupir bara kúlur sem kosta 550 krónur og nóg af þeim. 19800 krónur. 8. KENNSLA: Kennsla fæst ekki f mismunandi verðflokkum, a.m.k. ckki hjá GR. Þú kaupir 6 kennslustundir í pakka á 12500 krónur. 9. VÖLLUR: Þú lætur ekki sjá þig á æfingasvæðinu. Á aðalvelli GR kostar skiptið 4000 krónur og fyrir karla á aldrinum 21-66 ára er árgjaldið 50 þúsund krónur en 40 þúsund fyrir konur. Eini gallinn er sá að þú þarft að sækja um aðild að klúbbn- um og þú gætir þurft að bíða íallt að tvö ár eftir inngöngu. Ca. 45000 krónur. 10. GOLFBÍLL: Hjá Nevada Bob geturðu keypt fjórhjól fyrir einn á 315 þúsund. Þú vilt geta boðið einhverjum með þér og hefur samband við Hilti sem selurtveggja manna, notaða, ameríska bensínbfla á 500 þúsund. Það er að vfsu hægt að kaupa raf magnsbfla fyrir 400 þúsund en þú kaupir dýrari týpuna. 500 þúsund. Samtals = 779.250 krónur 1. DerhÚFA: Það eigaallirderhúfu. Einlitt væri best en ef ekki vill beturtil grafðu þá upp húfuna frá Mjólkursamsölunni sem á stendur Mjólk er góð eða gömlu Chicago Bulls húfuna. 0 krónur. 2. HANSKI: Áttu ekki gamlar grifflur? Hentu annarri. Ef ekki verðurðu bara að vera hanskalaus. Þeir teljast ekki til nauðsynja. o krónur. 3. Buxur: Gallabuxur eru bannvara á golfvöllum. Flest annað dugir. Leitaðu f fataskápnum. o krónur. 4. Skór: Kylfingar ganga um 8 km á golfvellinum. Vandaðu valið en notaðu eitt- hvað sem þú átt. o krónur. 5. PEYSA: Allt leyfilegt en reyndu að velja citthvað snyrtilegt úr safninu. Helst prjónað. o krónur. 6. KYLFUR: Þú kemst ekki af með minna en þrjár kylfur; sjöu, níu og pútter. Ódýrasta gerð af kylfum kostar 2700 krónur hjá Nevada Bob og pútter kostar 1950 krónur. 7350 krónur, 7. Kúlur: Hjá Golfklúbbi Reykjavíkur (GR) kostar fatan af boltum 200 kall. íeinni fötu eru 36 boltar. Þú getur að vfsu Ifka fengið 30 fötur á 5000 kr en ákveður samt að kaupa bara eina fötu og passa vel upp á hana allt sumarið. 200 krónur. 8. KENNSLA: Hjá GR færðu hálftfmaleiðsögn fyrir 2500 krónur. 6 kennslustundir f pakka kosta 12500 kr. Þú lætur hálftfma nægja. 2500 krónur. 9. VÖLLUR: Þú heldur þig á æfingasvæðinu hjá GR. Þar kostar skiptið 1200 krón- ur en gjaldið fyrir sumarið er 12000 krónur. 12000 krónur. Samtals = 22.050 krónur +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.