Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2003, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBERÍ2003 FRÉTTIR 13
Ihaldið ræðst á Blair
BRETLAND: Breski
Ihaldsflokkurinn réðst
harkalega að Tony Blair,
forsætisráðherra Bret-
lands, í gær og sagði að
undanbrögðum og
blekkingum stjórnar-
innar myndi ekki linna
þótt Alastair Campbell
fjölmiðafulltrúi hefði
sagt af sér.
lain Duncan Smith,
leiðtogi íhaldsflokksins,
sagði að stjórn Blairs
væri svo gagntekin af
blekkingaleiknum að
honum yrði haldið
áfram þangað til Blair
léti sjálfur af embætti.
Campbell þótti afar
snjall í að varpa já-
kvæðu Ijósi á stjórnina.
Nýmæli í Hollandi frá deginum í dag:
Kannabis gegn lyf-
seðli í apótekinu
Hollenskir læknar geta frá og
með deginum í dag skrifað út
lyfseðla fyrir kannabis handa
sjúklingum sínum. Stjórnvöld
hafa undanfarin tvö ár staðið
fyrir rannsóknum á lækninga-
mætti plöntunnar.
Kannabisið sem læknar ávísa er
ætlað til að lina verki krabbameins-
og alnæmissjúklinga, auk þess sem
þeir sem þjást af MS geta einnig
haft gagn af því. Sjúklingarnir geta
nálgast efnið í næsta apóteki.
„Þetta er sögulegt skref," sagðí
Willem Scholten, yfirmaður þeirrar
deildar hollenska heilbrigðisráðu-
neytisins sem fer með málefni
kannabislyfsins. Ræktun efnisins
verður undir eftirliti yfirvalda.
LINAR ÞJANINGAR: Krabbameins- og al-
naemissjúklingar í Hollandi eru meðal
þeirra sem geta fengið kannabis gegn lyf-
seðli frá og með deginum í dag til að lina
þjáningar sínar.
BRÉF FRÁ LESANDA
Lesandi sem er
barnshafandi vill
gjarnan vita hvaöa
áhrif þaö hefur á
fóstriö aö reykja eina
Guðbjörg Pétursdóttir, cínarettU
hjúkrunarfræðingur. a
Eftirfarandi er aðeins brot af þeim
skaða sem fóstrið getur orðið fyrir.
Þegar þú reykir eina
sígarettu minnkar
blóðflæðið í gegnum
fylgjuna í um 15
mínutur. Þetta veldur
auknum hjartslætti hjáfóstrinu.
Kolsýrlingur sem er í sígarettureyk
dregur úr súrefnisflutningi hjá fóstri
um 40%.
Þetta dregur úr vaxtahraða fósturins
því það fær ekki nógu mikið súrefni
hjá þér og ekki heldur nægilegt magn
af nauðsynlegum næringarefnum.
Það er rétt hjá þér að maki þinn ber
líka ábyrgð. Þú segir líka að ef hann
hætti ekki að reykja, þá fái hann ekki
að vera viðstaddur fæðinguna! Hér
er skynsamlegast að komast að
einhverri málamiðlun. Þið hafið ekki
langan undirbúningstíma. Lesið ykkur
til um skaðsemi
tóbaksins, takið
reykingaprófið, brjótið
upp vanann sem
tengist reykingum og
veitið hvort öðru jákvæðan stuðning.
Farið inn á dv.is þar sem þið getið
fundið fullt af gagnlegu efni og
upplýsingum. Það ætti að gera ykkur
auðveldara að hætta núna.
Gangi ykkurvel, Guðbjörg.
Þú segir líka að ef hann
hætti ekki aö reykja, þá
fái hann ekki aö vera
viðstaddur fæöinguna!
Nicotinell
Nicotinell tyggigúmmí er lyf sem er notað sem hiálparefni til aö hætta eða draga úr reykingum. Þaö inniheldur nikótín sem losnar þegar
tuggið er, frasogast í munninum og dregur úr fránvarfseinkf ' " ‘ " ...................................
til að vinna c
lengur en *"
slæma hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota nikótínlyf nema (samráði vi<5T lækni. Nicotínell tyggigúmmí er ekki ætlað ’börnum yngri
en 15 ára nema í samráði við lækni. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.