Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2003, Page 28
44 T/U £ K 4 MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2003
Tilvera
Netfang: tilvera@dv.is
Sími: 550 5824-550 58t0
Nefið á Barry Manilow fékk að halda sér
LÝTAAÐGERÐ: Gamla poppbrýnið Barry Mani-
low er sagður hafa látið flikka upp á andlitið á sér
og að engu hafi verið sleppt nema gamla, góða
nefinu sem, auk raddarinnar, hefur verið helsta
vörumerki hans. Fréttir herma að þessi 57 ára
Copa Cabana-stjarna hafi látið taka allt andlitið í
gegn frá hálsi til hársvarðar og ekki skilið eftir
eina einustu hrukku; aðeins smáskakkt nefið sé
enn þá eins og það var. Barry mun hafa ætlað að
halda þessu sem mest leyndu en var svo óhepp-
inn að einhver sagði frá því og varð það til þess
að hann var myndaður í bak og fyrir á leið út frá
lýtalækninum að aðgerð lokinni, með blondínu-
hárkollu á höfðinu. Flestir höfðu búist við því að
Barry myndi fyrst og fremst láta laga á sér nefið,
en eins og frægt er aflagaðist það smávegis i fá-
ránlegu slysi þegar hann gekk á vegg og rotað-
ist, auk þess að nefbrotna. Að sögn lýtalæknisins,
sem snyrti Barry, notar fólk oftast nefafsökunina
til þess að fara í lýtaaðgerð og lætur þá taka ann-
að í leiðinni, en svo hafi alls ekki verið með Barry.
>
't
Hársnyrtivörur í úrvali
Breiður útgáfu
grunnur hjá
Smekkleysu
„Mig langar fyrst að drepa á nokk-
ur atriði sem hafa verið í gangi hjá
okkur undanfarið," segir Ásmundur
þegar hann er spurður hvað sé helst
á dagskrá hjá Smekkleysu fram að
áramótum. „Það hafa verið ákveðnir
hápunktar í starfseminni á þessu ári
og er þar fyrst að nefna sýninguna
Humar eða frægð, þar sem saga og
starf Smekkleysu er rakin undanfar-
in sextán til tuttugu ár.“ Sýningin
hefur verið í Listasafni Reykjavíkur í
sumar og í Spits-galleríinu í
London.“ Ásmundur segir að jafn-
framt standi til að fara með sýning-
una víðar og að í gangi séu umræður
um að setja hana upp í Bergen,
Kaupmannahöfn, Riga og jafnvel
Belgíu, Hollandi og Frakklandi. „Við
viljum að sjálfsögðu fara með
sýninguna sem víðast og sjáum i
það sem upplagt /
tækifæri til að kynna
starfsemi fyrirtækis-
ins og að eiga samstarf
við listamenn í viðkom-
andi löndum.“
Spennandi tímar
fram undan
Að sögn Ásmundar gaf
Smekkleysa út í maí síð-
astliðnum þriðju plötu
hljómsveitarinnar Mín-
us sem heitir Halldór
Laxness. „Platan fékk
strax mjög góðar viðtökur,
bæði hér á landi og er-
lendis, og mjög spennandi
tímar eru fram undan fyrir
hljómsveitina. Hún var til
dæmis nefnd besta rokk-
hljómsveit í heimi af einum
gagnrýnanda fyrir plötuna
Jesus Christ Bobby og reyndar
allir dómar samhljóða um ágæti
hennar."
Ásmundur segir að um þessa
mundir sé Smekkleysa að dreifa
nýjum safnkassa með tónleikaupp-
Hljómsveitin Mínus var
kölluð besta rokk-
hljómsveit í heimi af
einum gagnrýnanda
fyrir plötuna Jesus
Christ Bobby.
tökum sem spanna allan tónleika-
feril Bjarkar í tengslum við plötuút-
gáfu hennar. „Þetta eru íjórir diskar,
einn DVD og veglegur bæklingur í
fallegum kassa. Við munum vænt-
anlega gefa út tvo DVD-diska í
haust sem tengjast Björk. Á öðrum 1
verður heimildarmynd um
Vespetine-tímabilið og á hinum
heimildarmynd um ferilinn.
Af öðrum verkefnum sem eru í
deiglunni má nefna að Einar Örn
Benediktsson, fyrrum söngpartner
Bjarkar í Sykurmolunum, ædar að
Þór Eldon, fyrrum gítar-
leikari Sykurmolanna,
er með verkefni í gangi
sem gengur út á að
setja tónlist við Ijóð og
upplestur Dags Sigurð-
arsonar.
senda frá sér nýja plötu í október og
þriðji Sykurmolinn, Sigtryggur Bald-
ursson slagverksleikari, er með verk-
efni sem hann nefnir Steintryggur
og er samstarfsverkefni hans og
Steingríms Guðmundssonar, en þeir
hafa verið að vinna saman að tónlist
út frá hughrifum af þjóðlegri tónlist
víða að úr heiminum." Ásmundur
segir að Þór Eldon, fyrrum gítarleik-
ari Sykurmolanna, sé með verkefni í
gangi sem felst í að setja tónlist við
ljóð og upplestur Dags Sigurðarson-
ar. „Við gáfum líka út plötu með
hljómsveitinni
Maus
w&m
$
h t - J
í/v- . . • i W
m/ - fi: m
FJÖLBREYTT QTGAFA: Ásmundur Jónsson, framkvæmdastjóri Smekk-
leysu, segir að fyrirtækið hafi reynt að þróa breiðan útgáfugrunn á und-
anförnum árum og að verkefnin séu næg. „Þetta er skemmtileg vinna og
erfarin að vekja athygli víða um heim."
fyrir skömmu og
einnig eru væntanleg-
ar plötur með íslensk-
kanadískri hljómsveit
sem heitir Kimono,
hljómsveitinni Atin-
geri, sem hefur verið
starfandi í nokkur ár en
ekki gefið neitt út hing-
að til, og Dr Gunna.“
Tónlistararfurinn
Auk þess að gefa út
popp- og rokktónlist gef-
ur Smekkleysa út ýmiss
konar aðra tónlist. „Við
f höfum verið að gefa út röð
> af upptökum af tónlist úr
kvikmyndum og leikhúsi og í
tengslum við það er væntan-
leg á markað tónlist sem Egill
Ólafsson hefur samið fýrir
leikrit í gegnum tíðina."
Smekkleysa hefur einnig á
undanförnum árum staðið
framarlega í að gefa út íslenska
samtímatónlist og tónlist úr for-
tíðinni. Ásmundur segir að þeir
’ TÓNLEIKAFERILUNN: Smekkleysa er að
dreifa nýjum safnkassa með tónleikaupp-
tökum sem spanna allan tónleikaferil Bjark-
ar í tengslum við plötuútgáfu hennar. í
kassanum eru fjórir diskar, einn DVD og
veglegur bæklingur.
ætli að halda því áfram og að vænt-
anlegar séu nokkra útgáfur á árinu.
Tvær hafa þegar komið út en það
eru Virgo Gloriosa, þar sem Bára
Grímsdóttir leitaði fanga í tónlist
fyrri tíma, og Passíusálmar og aðrir
sálmar í flutningi Magneu Tómasar-
dóttur sópransöngkonu og Guð-
mundar Sigurðssonar orgelleikara.
Smekkleysa vinnur að
því að koma verkum
Jórunnar Viðar í að-
gengilegt form, undir
heitinu Mansöngur.
Að sögn Ásmundar er Smekkleysa
með eina útgáfu í viðbót sem tengist
tónlistararfinum og hefur verið unn-
ið að í tæp þrjú ár. „Þetta er sam-
starfsverkefni við Sumartónleikana í
Skálholti, þar sem sex ung tónskáld
fá tónlist úr gömlum handritum til
að útsetja, auk þess sem sönghópur-
inn Hljómeyki flytur trúarleg verk
eftir Jón Nordal. Við erum líka með
tvær útgáfur sem tengjast einsöngs-
lögum, annars vegar lög Þórarins
Jónssonar og hins vegar lög Sigvalda
Kaldalóns." Ásmundur segir að
Jónas Ingimundarson stjórni verk-
Útgáfufélagið Smekkleysa s.m. s.f.
stendur í ströngu um þessar mundlr. í
Listasafni Reykjavíkur er vegleg yfir-
litssýning á sögu Smekkleysu og, að
sögn Ásmundar Jónssonar fram-
kvæmdastjóra, er útgáfa fyrirtækisins
í miklum bióma.
Stofnuö 1918
Rakarastofan
Klapparstfg
Sfmi SS1 3010
tlmitacatlifuSMiUS
(tnavw: Wi 2 tso-X63,
RðV »1,213112»
vinmnsstotur
lausardasinn
30. ágúst
lókertölur vikunnar
BDBBB