Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Side 2
2 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 ÚTGÁFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jónas Haraldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, slmi: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749 Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingan auglys- ingar@dv,is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Arvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur- gjalds. DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Efni blaðsins Fékk heimsreisu fyrir 2 - frétt bls. 6 Fjölnir sakaður um tollsvik og fjárdrátt - frétt bls. 10 Fjölsótt endurmenntun -Tilvera bls. 24-25 lllu öflin þrjú - Fréttaljós bls. 14-15 Sú gamla pantaði kók og snafs Dyraverðir næturklúbbs í Oberhausen í Þýskalandi stöðv- uðu um síðustu helgi áttræða konu, sem reyndi að læðast óséð inn á klúbbinnn. „Við stöðvuðum hana af því við héldum að hún væri að villast en leyfðum henni svo að fara nið- ur á barinn." Að sögn eins barþjónsins pant- aði hún sér kók og snafs. „En þegar hún bað um annan um- gang leist okkur ekki á blikuna og kölluðum í eigandann." Eigandinn hafði að vonum áhyggjur af gömlu konunni og kallaði á lögregluna, sem skudaði þeirri gömlu heim á elliheimilið. „Það amaði ekkert að henni. Hún sagðist aldrei áður hafa komið inn á diskó og aðeins viljað kfkja,“ sagðilöggan. FAGRA GAMLA DISKÖDIS! íslendingur dæmdur í Færeyjum FÍKNIEFNI: „Þú sleppur hlut- fallslega betur ef þú smyglar stærri skömmtum af hassi," sagði Útvarp Faereyjar í gær eftir að Eystri Landsréttur í Kaupmannahöfn staðfesti úr- skurð dómstóls í Færeyjum frá í sumar í máli 29 ára (s- lendings - tuttugu og eins mánaðar fangelsi - fyrir að hafa komið með 20 kíló af hassi með Norrænu frá Dan- mörku þann 7. júlí. Þarna var útvarpið að skírskota til þess að dómvenjan í Færeyjum hefur verið sú að sakborning- ar fái tveggja mánaða fang- elsi fyrir hvert kíló. Haft er eft- ir færeyskum verjanda (slend- ingsins að það sé ekki klippt og skorið að slík réttarvenja sé í gildi. Fylgst með UMFERÐ: Lögreglan fylgist grannt með umferð í ná- grenni grunnskóla borgarinn- ar þessa dagana en þúsundir skólabarna eru nú á ferð í umferðinni, mörg í fyrsta sinn. Lögreglan framkvæmir hraðamælingar og fylgist með að ökumenn og aðrir vegfarendur fari eftir umferð- arreglum. Geir H. Haarde fjármálaráðherra: Sundabraut í einka- framkvæmd Geir H. Haarde fjármálaráð- herra segir einboðið að lagning Sundabrautar verði einkafram- kvæmd. Þannig megi hugsan- lega flýta gerð þessa sam- göngumannvirkis, sem er ekki á dagskrá hjá Vegagerðinni næstu ár. „Sundabraut er ekJd á dagskrá al- veg á næstunni hvort eð er,“ sagði Geir í viðtali við DV í gær, spurður um hvort aðhald í ríkisfjármálum á næstu árum myndi þýða að þessi framkvæmd frestaðist. „Ég held hins vegar að þetta geti verið mjög gagnleg ffamkvæmd. Við sjáum það til dæmis á fréttum hér í gær að umferðin um Ártúnsbrekkuna er komin upp í 82 þúsund bíla þegar mest er. Þessi framkvæmd myndi auðvitað létta mikið á þeirri um- ferð,“ segir Geir. Einboðið „Mér finnst alveg einboðið að hugsa sér þessa framkvæmd sem einkaframkvæmd þar sem yrði inn- heimt veggjald, vegna þess að menn hefðu alltaf þann kost að keyra Ártúnsbrekkuna. Þannig held ég að það væri hægt að fjármagna þetta nokkuð hratt og kannski flýta þessu miðað við það sem ella hefði orðið, því þetta er væntanlega ekki á dagskrá fyrr en eftir þó nokkuð mörg ár. Ég er alveg viss um að þessi framkvæmd er það arðsöm að hún gæti staðið undir veggjaldi alveg eins og Hvalfjarðargöngin," segir Geir. Ekki á dagskrá Sundabraut hefur verið kölluð mesta umferðarmannvirki sem til- lögur hafa komið fram um að ráð- ast f hér á landi. Undirbúningur að lagningu hennar hefur staðið í mörg ár en framkvæmdir eru ekki enn á dagskrá. Til að mynda hefur ekki enn verið ákveðið hvar brautin mun liggja yfir Kleppsvík og hefur talsvert verið deilt um kosti mis- jafnlega kostnaðarsamra leiða. Hugmyndum um að verkið verði einkaframkvæmd hefur verið hreyft áður. Á fundi Verslunarráðs í febrúar 1998 gerði Friðrik Sophus- son, þáverandi fjármálaráðherra, að umtalsefni að hérlendis hefðu kostir einkaframkvæmdar aðallega verið nýttir á sviði samgöngumála. EINKAFRAMKVÆMD: Fjármálaráðherra segist telja að með einkaframkvæmd yrði hægt að fjármagna Sundabraut nokkuð hratt og jafnvel ráðast fyrr í hana en ella. DV-myndGVA „í þeim efnum eru miklir mögu- leikar, til dæmis við rekstur flug- valla og hafna, og breikkun eða lagningu nýrra vega eins og Reykja- nesbrautar eða Sundabrautar," sagði Friðrik. Á fundi á vegum borgarstjóra mánuði síðar sagði Erlendur Magnússon, þáverandi fram- kvæmdastjóri fyrirtækjaþjónustu FBA, að fjármögnun Sundabrautar gæti verið „spennandi kostur fyrir innlenda fjárfesta". olafur@dv.is SUNDABRAUT: Brautin á að liggja yfir Elliðaárvog um Gufunes og Geldinganes yfir í Kollafjörð. Hún hefur verið kölluð mesta umferðarmannvirki sem tillögur hafa komið fram um hér á landi. Helgarblað DV Allir að kubba Sænski síðdegisleikurinn kubb ryður sér nú hratt til rúms um hinn vestræna heim. íslands- meistaramótið fór fram á dögun- um og að sjálfsögðu var Helgar- blað DV á staðnum. Mjög blaut helgi Vaskur hópur göngumanna gekk um verslunarmannahelgina úr Lakagígum í Núpsstaðarskógá og tókst á við stórvötn eins og Hverfisfljót og Djúpá og þurfti á öllu sínu að halda. Myndir og frá- sögn í Helgarblaði DV. í takt við | tímann Ágúst Guð- mundsson leik- stjóri sest aftur við stjórnvölinn og stjórnar framhaldi á vinsælustu kvik- mynd íslands, Með allt á hreinu. Hann segir Helgar- blaði DV hvers vegna og hvernig hann og Stuðmenn ætla að vera í takt við tfmann. Refurinn er mættur Þröstur Leó Gunnarsson leikur Mikka ref í nýrri uppfærslu Þjóð- leikhússins. Hann talar við Helgar- blað DV um vel- gengnina, erfið- leikana og meiðslin sem næstum bundu enda á feril hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.