Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003
Pennasala Krabbameinsfélags
VANDAÐIR: Um helgina verða
seldir vandaðir pennar til
styrktar starfi aðildarfélaga
Krabbameinsfélags Islands en
slík sala er orðin árviss. Selt
verður við verslanir og gengið í
hús þar sem því verður við
komið. Allur ágóði rennur til
aðildarfélaga Krabbameinsfé-
lags fslands en það eru svæðis-
bundin krabbameinsfélög og
stuðningshópar sem stofnaðir
hafa verið til að sinna fræðslu
og félagslegri þjónustu við þá
sem hafa fengið krabbamein.
Undanfarin ár hefur verið unn-
ið að því að efla starf svæðis-
bundnu félaganna. Hafa nokk-
ur þeirra þegar tekist á við
veigamikil verkefni í heima-
byggð sinni, einkum á sviði
fræðslu og forvarna.
Fyrsta íslenska
KVIKMYNDIR: Óvenjuleg ís-
lensk mynd, Óreiða, verður
frumsýnd í Borgarbíói, Akur-
eyri á morgun, laugardag,
klukkan 16.00. „Þetta er fyrsta
íslenska snjóbrettamyndin í
fullri lengd. Myndin erfull af
glæsilegum atriðum, m.a. tek-
ur Eiríkur Helgason þrefalt
bakkflipp," segir Ásgeir Hösk-
uldsson, formaður Brettafélags
snjóbrettamyndin frumsýnd á morgun
íslands og einn aðstandenda
myndarinnar. Að sögn Ásgeirs
verður myndin komin í versl-
anir á mánudaginn þannig að
einungis er um þessa sýningu
að ræða fyrir þá sem vilja sjá
hana á stóra tjaldinu. „Síðan
mun fólk geta útvegað sér
myndina í Sportveri hér á Ak-
ureyri og í Brimi í Reykjavík,"
segir Ásgeir en þeim sem búa
ekki nálægt þessum verslun-
um bendir hann á að hægt sé
að verða sér úti um myndina
hjá þeim félögum með því að
senda þeim tölvupóst á net-
fangið snjobretta-
kennsla@hotmail.com.
Gæðamatsráð Lagnafélagsins rannsakar vatnsagann undir húsi í Hlíðunum:
Líklega yfirborðs-
vatn undir íbúðinni
Líklegast er talið að vatnsagi
undir húsi í Hlíðunum sé yfir-
borðsvatn en ekki skólpvatn né
komið frá vatnsveitukerfinu.
Kjallaraíbúð í húsinu hefur ver-
ið úrskurðuð óíbúðarhæf af
heilbrigðiseftirlitinu vegna gíf-
urlegs raka og ólyktar sem
stafar af flæðandi vatni undir
henni.
Eigandi kjallaraíbúðarinnar,
Thelma Pétursdóttir, hefur í þrjú
og hálft ár barist fyrir því að ná
fram rétti sínum. Rakavandamál
komu upp í íbúðinni rúmlega viku
eftir að hún keypti hana. Staðan
hefur farið æ versnandi síðan þá.
Nú er kostnaður við rannsóknir,
viðgerðir o.fl. orðinn himinhár og
Thelma komin í þrot í baráttunni,
bæði efnahagslega og sálarlega.
Vandinn er enn til staðar, meiri en
nokkru sinni fyrr.
Lagnafélag Islands er einn þeirra
aðila sem fjalla nú um þetta sér-
stæða mál. Sérstakt gæðamatsráð
innan félagsins vinnur að athugun
á því hvaðan þetta mikla vatn gæti
verið komið. I því eiga sæti fulltrú-
ar umhverflsráðuneytis, félags-
málaráðuneytis, Neytendasamtak-
anna og Langafélagsins. Egill Skúli
Ingibergsson verkfræðingur sem á
sæti í gæðamatsráði sagði við DV
að ráðið væri nú farið að nálgast
niðurstöðu í málinu. Farið væri
vandfega yfir eiginleika vatnsins
undir húsinu og ráðist niðurstaðan
síðan af því.
Þarna hefði lítið sem ekkert
fundist af kólfgerlum sem þýddi að
ekkert benti til þess að um skolp-
vatn væri að ræða. Þá benti ekkert
YFIRBORÐSVATN: Sérfræðingar hallast að því að vatnsaginn undir Hlíðaíbúðinni sé yfirborðsvatn.
tilþessaðvatnsaginnundirhúsinu virtist sem um aðkomuvatn væri ekki lægju enn fyrir öll gögn máls-
kæmi frá vatnsveitukerfinu. Því að ræða. Egill Skúli tók fram að ins. Ráðið myndi skila af sér grein-
argerð þegar endanlegar niður-
stöður lægju fyrir. -JSS
!
Erlendir gestir aldrei fleiri
Tæplega 12 prósenta fjölgun ferðamanna á árinu
lega jákvæð áhrif fyrir þjóðarbúið.
„Miðað við upplýsingar um meðal-
eyðslu erlendra gesta má gera ráð
fýrir að gestirnir hafi keypt þjón-
ustu hér á landi fyrir um 5 milljárða
í ágúst." Að sögn Magnúsar hófst
tafning Ferðamálaráðs í Leifsstöð í
mars 2002 og er því um saman-
burðarhæfar tölur að ræða fyrir
tímabilið mars-ágúst árin
2002-2003. „Ef litið er til þessara
sex mánaða ársins þá hafa komið
11,6 % fleiri erlendir gestir í ár en á
sama tíma í fyrra og er þá eingöngu
horft til þeirra sem fóm um Leifs-
Stöð." kip@dv.is
Samkvæmt talningu Ferða-
málaráðs fslands á fjölda er-
lendra ferðamanna í ágúst eru
þeir 16,2 prósentum fleiri en á
sama tíma í fyrra.
Yfir 60.000 gestir í ágúst
í ágúst fóm alls 58.763 erlendir
gestir í gegnum Keflavikurflugvöll
en í sama mánuði í fyrra vom þeir
50.537. Auk þessara gesta komu er-
lendir ferðamenn með Norrænu til
Seyðisfjarðar og með millilanda-
flugi til Egilsstaða, Akureyrar og
Reykjavíkur. Magnús Oddsson
ferðamálastjóri segir að Ferða-
málaráð hafi ekki nákvæmar upp-
lýsingar um skiptingu gesta eftir
jjjóðerni en að meirihluti þeirra sé
frá meginlandi Evrópu og Norður-
löndunum. Það liggur fyrir að um
aukningu er að ræða frá fyrra ári og
• ljóst að hér á landi hafa verið yfir
sextíu þúsund erlendir gestir í
ágúst og þeir hafa aldrei verið fleiri
í einum mánuði."
Þjónusta fyrir fimm milljarða
Magnús segir ljóst að fjölgun
ferðamanna hafi í för með sér vem-
Samkvæmt talningu Ferðamálaráðs hafa erlendir ferðamenn aldrei verið fleiri
á landinu en í ágúst síðastliðnum