Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Blaðsíða 38
38 DVSPORT FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 .S Barthez sáttur við Ferguson Rangers í fjárhagsvanda KNATTSPYRNA: Franski landsliðsmarkvörðurinn segist ekkert hafa út á Sir Alex Fergu- son að setja. Sögusagnir hafa $ verið í bresku blöðunum und- anfarið að Barthez sé upp á kant við Ferguson þar sem hann sé úti í kuldanum hjá stjóranum en Barthez hefur misst sæti sitt í liðinu til bandaríska markvarðarins Tims Flowards og hefur ekki einu sinni komist á bekkinn í vetur. „Ég á ekki í neinum útistöðum við félagið. Ég hef ekki fengið neina útskýringu frá Ferguson og við höfum heldur ekkert rætt málin og ég sé ekki neina ástæðu til þess. Fólk segir að okkur komi ekki saman en það er helber lygi því okkur kemur mjög vel saman. Ég er 32 ára gamall og hef enn áhuga á að spila fótbolta en stundum er þetta svona. Staðan er að ég spila fyrir frábært félag og ber 200% virðingu fyrir fram- kvæmdastjóranum. Flann treystir mér og virðir mig. Flvað viljiði að ég geri? Öskri? Mér finnst ekkert verið að brjóta á mér," sagði Fabien Barthez. BESTU VINIR: Barthez og Fergie eru bestu vinir. KNATTSPYRNA: Skosku meistararnir í Glasgow Rangers skulda orðið 68 milljónir punda, eða um 8 milljarða króna, sem er versta fjárhags- staða félagsins frá upphafi. Þar af töpuðu þeir 16 milljónum punda á síðasta ári. John Mc- Clelland, stjórnarformaður fé- lagsins, sagði að engu að síður væri félagið á réttri leið. Þeir hefðu fjárfest gæfulega í sterk- um leikmannahópi og svo hefði kostað sitt að byggja upp nýja og glæsilega æfinga- aðstöðu. Þessir hlutir myndu skila sér í náinni framtíð og svo mætti ekki gleyma því að þeir hefðu verið að selja sterka leik- menn fyrir góðan pening und- anfarið. Islandsmeistarar Hauka byrja handboltavertíðina vel og taka upp þráðinn frá því í vor - að safna titlum á Ásvöllum. ( gær urðu Haukarnir meistarar meistaranna eftir öruggan sex marka sigur á bikarmeisturum HK, 29-23. Þetta er þiðja árið í röð sem Haukar verða meistar- ar meistaranna og þetta er orð- ið árlegt hjá Halldóri Ingólfs- syni að lyfta fyrsta bikarnum í september. Það var í raun ljóst frá fyrstu mín- útum að Haukarnir voru skrefi framar á flestum sviðum þó að bar- áttuglaðir HK-menn héldu sér inni í leiknum framan af. Haukarnir höfðu ávallt frumkvæðið og með því að enda fyrri hálfleikinn á 6-2 spretti og komast sex mörkum yfir var leikurinn nánast unninn enda „Við erum að mínu mati með gott lið og , við ætlum okkur stóra hluti í vetur." ógnuðu HK-menn aðeins Haukaliðinu í upphafí seinni hálfleiks en sprungu síðan um hálfleikinn miðjan. „Þetta er stórgóð byrjun og það er alltaf gaman að vinna titla og þessi er kærkominn. Þetta er þriðja árið í röð sem við tökum þennan bikar og er maður þá ekki að vinna hann til eignar,“ sagði Halldór Ing- ólfsson í léttum dúr eftir að meist- arabikarinn var kominn á loft. Hafl- dór byrjaði ekki inn á í leiknum og kom ekkert við sögu fyrr en eftir 18 mínútur og þá spilaði hann í hægra horninu. Halldóri er greinilega ætlað öðruvísi hlutverk hjá Haukaliðinu f vetur en þau sem hann hefur gegnt síðustu árin. „Ásgeir kemur mjög sterkur inn og um að gera að gefa honum tæki- færi til að sýna sig og sanna. Ég stend honum að baki og verð hon- um til stuðnings og geri síðan bara mitt þegar kemur að mér,“ sagði Halldór sem minnti á mikilvægi sitt í upphafi seinni hálfleik er HK hafði skorað þrjú fyrstu mörkin þegar hann átti glæsilega línusendingu og skoraði gott mark og kom Haukasókninni aftur í gang. „Við höfúm ekki gengið í gegnum neinar svakalega breytingar en er- um að mínu mati með gott lið og við ætlum okkur stóra hluti í vetur. Við ætlum okkur þetta og miklu meira," sagði Halldór sem fékk óblíðar móttökur hjá grimmri vöm HK í leiknum. „HK er baráttulið og þeir sýndu það og sönnuðu í fyrra að þeir eru mjög erfiðir andstæð- ingar. Ef þeir einbeita sér að því að berjast til að spila alvöru handbolta þá eiga þeir eftir að gera góða hluti," sagði Halldór að lokum. Árni Stefánsson, þjálfari HK, var án tveggja sterkra Litháa sem eiga eftir að styrkja liðið mikið og fyrir bragðið átti Iið hans lítið f sterkt Haukalið í gær. „Við verðum allt annað lið þegar þeir em komnir. Þetta var mjög erfitt, við hleyptum þeim alltof langt frá okkur í fyrri hálfleik og gerðum okkur þetta erfitt. Við emm að klikka á helling af dauðafæmm og það er það sem er að fara illa með okkur. Við áttum „Leiðin hjá HK liggur upp á við, við erum með ungt og skemmtlegt lið og ætl- um að gera meira en í fyrra og það þýðir bara fleiri titla." í erfiðleikum í sókninni," sagði Ámi en strákamir hans virkuðu þungir og skorti talsvert meiri hraða f að- gerðir sínar. „Við emm búnir að vera þungir eftir stífar æfingar en fömm að rífa okkur upp úr því enda mótið að byrja," sagði Árni sem játaði styrk Haukanna. „Þeir em með hörkulið og alls ekki sfðra lið en í fyrra. Það er ljóst að þeir em það lið í deildinni sem öll hin liðin koma til með að berjast við í vetur. Við ætlum okkur meira en í fyrra og það er á hreinu að við verðum að halda áfram að byggja ofan á það sem við gerðum á síðasta tímabili. Leiðin hjá HK liggur upp á við, við emm með ungt og skemmtilegt lið og ætlum að gera meira en í fyrra og það þýðir bara fleiri titla," sagði Ámi að lokum en að vanda var hann líflegur á hliðarlínunni í Ieiknum og lá ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn. ooj.sport@dv.is RASIKLUICIUS STERKUR Flaukar tefldu fram nýjum Litháa, Dalius Rasikluicius að nafni, í meistarakeppninni f gær og stóð hann sig vel í fyrsta opinbera leik sínum fyrir félagið. Flaukar völdu hann mann leiksins og fékk hann þrjá kassa af kók að launum. Tölfræði Rasikluicius í gær: Skotnýting Mörk ískoti Nýting Langskot 2 (5) 40% Skot úr horni 1(1) 100% Skot úr hraöaupphlaupum 2(2) 100% Vftaskot 1 (1) 100% Samtals 6(9)67% Stoðsendingar (inn á Ifnu) 4(1) Fiskuð vfti 0 Tapaöir boltar 3 Stolnir boltar 1 Varin skot í vörn 0 ooj.spon@dv.is HAUKAR-HK 29-23 (16-10) Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson 6 Gæði leiks: 5/tO Áhorfendur: 330 Maður leiksins: Birkir Ivar Guðmundsson, Haukum Gangur leiksins: 1-0,4-1,4-4, 7-5, 7-6,10-6,10-8,13-8, 13-10, (16-10), 16-13,18-14,19-15, 21-16, 23-17, 25-19, 28-20, 29-21, 29-23. HAUKAR Mörk/ þar af víti .skovvm: Hraðaupphl. Dalius Rasikluicius (15) 6/1 2 ÁsgeirÖrn Hallgrlmsson (4) 5 9; 1 Þorkell Magnússon (2) 4/3 0 Halldór Ingólfsson (10) 4/1 1 Robertas Pauzoulis (13) 4 1 Jón Karl Björnsson (9) 2 0 Andri Stefan (6) 2 2 Matthías Árni Ingimarsson (22) i r o Vignir Svavarsson (20) i i Þórir Ólafsson (18) 0 0 Samtals: 29/5 (52í7) 8 Fiskuð vfti Vignir Svavarsson 3 Halldór Ingólfsson 2 Þorkell Magnússon 1 Ásgeirörn Hallgrfmsson 1 Varin skot/þar af viti (sko t á sig/vití) Birkir fvar Guðmundsson 27/2 (Am) 56% Björn Viðar Björnsson 2 50% Brottvfsanin 6 mfnútur. Mörk/ þar af víti (skot/viti) Hraðaupphl. HaukurSigurvinsson (26) 6/4 0 Ólafur Víðir Ólafsson (10) 4/1 10/2)0 Davlð Höskuldsson (15) 3 2 Samúel fvar Árnason (7) 3 Í8' 1 BrynjarValsteinsson (6) 2/1 0 Alexander Arnarson (11) 10 Már Þórarinsson (5) 1 1 Jón Heiðar Gunnarsson (11) 1:0 Elfas Már Halldórsson (9) 1 0 Vilhelm Bergsveinsson (8) 1 ;4| 0 Atli Þór Samúelsson (21) 0 1 Samtals: 23/6 (52/9) 4 Fiskuð vfti ÓlafurVíðirÓlafsson 3 Alexander Arnarson ' 2 Már Þórarinsson 1 BrynjarValsteinsson 1 Samúel fvar Árnason 1 Vilhelm Bergsveinsson 1 Varin skot/þar af vfti íikot á sig/viti! Hörður Flóki Ólafsson 19/2 40% Björgvin Páll Gústavsson 0 /1) 0% Brottvfsanin 8 mínútur. (Alexander rautt á 46. mfn fyrir 3x2 mín). ELLEFTI LEIKURINN Flaukar urðu í gær meistarar meistaranna þriðja árið í röð og alls í fjórða skiptið frá upphafi en nú var leikið um Sveinsbikarinn í ellefta sinn. Flaukar tóku ennfremur þátt í þessum leik fjórða árið í röð. Alls hafa sex félög unnið þennan titil f ellefu ára sögu hans. Haukar unnu þriðja árið í röð 2001 Haukar-KA 26-23 2002 KA-Haukar 27-37 2003 Haukar-HK 29-23 Meistarar meistaranna: Haukar 4 Valur 2 KA 2 FH 1 Afturelding 1 Fram 1 ooj.spon@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.