Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 13 Þingvöllum margmiðlað MARGMIÐLUN: Út er kominn hjá Gagarín margmiðlunardisk- ur með lifandi efni um sögu og náttúru Þingvalla. Um er að ræða efni sem unnið var fyrir Þingvallanefnd og er hluti sýn- ingar í fræðslumiðstöð á Hak- inu á Þingvöllum. Á diskinum, sem er fyrir PC tölvur, er nýj- ustu margmiðlunartækni beitt til að skyggnast aftur í aldir og undiryfirborð Þingvallavatns. Talsett efni er á fjórum tungu- málum: íslensku, ensku, þýsku og dönsku. Hægt er að kynna sér sögu og náttúru svæðisins með nýstárlegum hætti og hentar diskurinn bæði til fræðslu og fróðleiks fyrir ferða- menn sem og skólafólk og al- menning. Nánari upplýsingar er að hafa á www.gagarin.is. Prestum fjölgar á Akureyri KIRKJA: Tveir nýir prestar munu koma til starfa við Akur- eyrarkirkju og Glerárkirkju inn- an tíðar. Sr. Jóna Lísa Þor- steinsdóttir, sóknarprestur við Akureyrarkirkju, er á leið í 6 mánaða leyfi og mun sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprest- ur á Raufarhöfn, leysa Jónu Lísu af frá 1. nóvember. Lengi hefur staðið til að fjölga prestum við Glerársókn þar sem prestakallið stækkar ört og voru þar 1. desember sl. 7.103 sóknarbörn. Sr. Arnaldur Bárðarson, sóknarprestur að Hálsi í Fnjóskadal, hefur verið ráðinn til starfsins og tekur hann til starfa 1. október. Guðrún Gísladóttir KE. Forskrúf- aðar lest- arlúgur tefja björgun Björgun fjölveiðiskipsins Guð- rúnar Gísladóttur KE við Leknes í Noregi gengur hægt en örugg- lega að því er virðist. „Það er stöðugt verið að paufast við þetta en það var reyndar mjög rólegt um helgina. Það er búið að sökkva nokkrum tönkum að skip- inu sem síðan verður hleypt lofti f. Okkar vantar ýmislegt sem við erum nú að viða að okkur. Okkur veitir ekki af septembermánuði í verkið. Það kom í ljós að við þurft- um t.d. að skipta um bolta á lestar- lúgu sem eru forskrúfaðir áður en farið verður að blása lofti í það og tankana sem festir eru utan á skip- ið. Þetta voru hlutir sem menn héldu að væru í lagi á nýju skipi. Það var mjög mikilvægur áfangi þegar okkur tókst að koma skipinu á réttan kjöl en það lá á hliðinni. Það er því tilbúið að koma upp,“ segir Haukur Guðmundsson, eig- andi Ishúss Njarðvíkur, sem sér um björgun skipsins. Haukur segir nokkra aðila hafa forvitnast um sölu á skipinu, þegar búið verði að ná því upp, en ekki hafi verið léð máls á slíku. Tii séu myndir af því neðansjávar sem menn geta skoðað. Skipið sé mjög heillegt og ekki að sjá neinar skemmdir á þeirri hlið sem sneri niður áður en skipinu var komið á réttan kjöl. Engin olíumengun sé frá skipinu og því sfður grútar- mengun, eins og norskir íjölmiðlar hafa haldið fram, það sé argasta vit- leysa. gg@dv.is Smáauglýsingar DV Þjónustu- auglýsingar ►I550 5000 HUS OGHIBVU 40 SIOUR AF BUSIANOI FLOTTUM DtKURQADHtRBíRGJUM SIÐUR AF BUSLANDI FLOTTUM DEKURBADHERBERG3UM SVÖLUSTU FLÍSARNAR • INNANHÚSSARKITEKT VELUR FLOTTUSTU BAÐVASKANA OG BLÖNDUNARTÆKIN • FRÍKAÐA F3ÖLSKYLDUBAÐIÐ MEÐ BLÖNDUNARTÆKIN Á SÚLU • GAGNGERAR ENDURBÆTUR Á SEVENTIES-BAÐI FOKHELT AÐ FULLBÚNU FYRIR 2 MILUÓNIR -heima hjá Röggu kynlffsfrœöara ENDURNÝ3AÐI BÓNDABÆ FRÁ GRUNNI -sígaunakona í Svarfaöardal HUS OG HIBYLI -ALLTAF OMISSANDl HUS O G HIBYLI - HEIMA E R BEZT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.