Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Blaðsíða 15
4
FÖSTUDAGUR5.SEPTEMBER2003 FRÉTTIR 15
Sterkur pilsner
DRYKWR: Egils Pilsner er ný ís-
lensk bjórtegund hjá ÁTVR. Eg-
ils Pilsner flokkast undir Pilsen-
bjór, er 4,5% að styrkleika og
byggður á Egils Pilsner létt-
bjórnum. Egils Pilsner mun vera
ódýrasti bjórinn í ÁTVR en
hálfur lítri kostar 149 krónur.
Fyrst um sinn verður Egils
Pilsner seldur í ÁTVR í Heiðrúnu
og Kringlunni.
Harmar samningsbrot
ATVINNUMAL Stjómarfundur
Afls, starfsgreinafélags Austur-
lands, harmar þá stöðu sem
komin er upp á vinnusvæðinu
við Kárahnjúka. (ályktun segir
að það sé mikið áhyggjuefni að
aðstæður starfsmanna skuli í
engu samræmi við íslensk lög
og reglugerðir og einnig að
kjarasamningar skuli vera
brotnir, sérstaklega á erlendum
starfsmönnum. Bendi allt til að
verktakar brjóti enn á starfs-
mönnum. Enn fremur lýsir
fundurinn áhyggjum yfir að
eftirlitsaðilum á svæðinu hafi
ekki verið búin þau skilyrði
sem nauðsynleg eru til að fylgj-
ast með því að farið sé að
lögum og reglum. Er skorað á
stjórnvöld að auka fjárveitingar
til eftirlitsaðila á Austurlandi.
-
F ágúst sl. voru haldnar heræfingar þar
sem kínverski alþýðuherinn fór í fyrsta
sinn inn á áður óþekkt svæði vestan Kína.
taka saman höndum og segja hlið-
stæðum öflum stríð á hendur. Það er
engin tilviljun að fyrstu erlendu borg-
irnar sem nýr forsætísráðherra Kína,
Hu Jintao, heimsótti voru Moskva og
St. Pétursborg. Kínverjar kaupa meira
af vopnum af Rússum en nokkur
önnur þjóð og eru báðar þjóðirnar
uggandi yfir útþenslu Nató og geim-
varnaáætlun Bandaríkjanna. Kínverj-
ar þurfa einnig nauðsynlega á olíunni
frá Síberíu að halda vegna mikils hag-
vaxtar og framþróunar þar í landi. Þeir
reikna með að auka olíuinnflutning
sinn um helming fram tíl ársins 2010.
Varnarsamtök Mið-Asíuríkja, þar
sem Rússar og Kfnverjar verða öflug-
astír, eiga eftír að dafha og fastlega er
búist við að þau muni brátt eignast
höfuðstöðvar, ráðherraráð verði skip-
að og framkvæmdastjóri ráðinn.
Og í miðju bandalaginu eru Banda-
rfkjamenn að koma sér fyrir í her-
stöðvum í þeim löndum sem verja
skal.
Breyttur heimur
Sú valdabarátta sem fram fer í Mið-
Asíu er undarleg í augum þeirra sem
vanir eru að líta á átakalfnurnar sem
járntjöld og berlínarmúra milli aust-
urs og vesturs. En þær breytast og
ærið er langt síðan farið var að spá
spennu inilli norðurs og suðurs eða
jafhvel milli múslfmaheimsins og
norðurs og vesturs. En ef tíl vill eru
það olíulindirnar einar sem skipta
sköpum og bandalögin snúast um yf-
irráð þeirra.
Ekki fór mikið fyrir heræfingunum í
Mið-Asíu um daginn enda tóku ekki
nema um 1.500 manns þátt í þeim. En
þær eru áreiðanlega undanfari mun
meiri tíðinda um hvernig átakalfnur
munu skipast á nýhafinni öld.
(M.a. byggtá The Cuardian)
auglýsingar
r 5 5 O 5000