Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Blaðsíða 15
H FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 15 - Sterkur pilsner DRYKWR: Egils Pilsner er ný ís- lensk bjórtegund hjá ÁTVR. Eg- ils Pilsner flokkast undir Pilsen- bjór, er 4,5% að styrkleika og byggður á Egils Pilsner létt- bjórnum. Egils Pilsner mun vera ódýrasti bjórinn í ÁTVR en hálfur lítri kostar 149 krónur. Fyrst um sinn verður Egils Pilsner seldur í ÁTVR í Heiðrúnu og Kringlunni. Harmar samningsbrot ATVINNUMÁL Stjórnarfundur Afls, starfsgreinafélags Austur- lands, harmar þá stöðu sem komin er upp á vinnusvæðinu við Kárahnjúka. (ályktun segir að það sé mikið áhyggjuefni að aðstæður starfsmanna skuli í engu samræmi við íslensk lög og reglugerðir og einnig að kjarasamningar skuli vera brotnir, sérstaklega á erlendum starfsmönnum. Bendi allt til að verktakar brjóti enn á starfs- mönnum. Enn fremur lýsir fundurinn áhyggjum yfir að eftirlitsaðilum á svæðinu hafi ekki verið búin þau skilyrði sem nauðsynleg eru til að fylgj- ast með því að farið sé að lögum og reglum. Er skorað á stjórnvöld að auka fjárveitingar til eftirlitsaðila á Austurlandi. [ ágúst sl. voru haldnar heræfingar þar sem kínverski alþýðuherinn fór í fyrsta sinn inn á áður óþekkt svæði vestan Kína. taka saman höndum og segja hlið- stæðum öflum stríð á hendur. Það er engin tilviljun að fyrstu erlendu borg- imar sem nýr forsætisráðherra Kfna, Hu Jintao, heimsótti voru Moskva og St. Pétursborg. Kínverjar kaupa meira af vopnum af Rússum en nokkur önnur þjóð og eru báðar þjóðimar uggandi yflr útþenslu Nató og geim- vamaáædun Bandaríkjanna. Kínverj- ar þurfa einnig nauðsynlega á olíunni frá Sfberíu að halda vegna mikils hag- vaxtar og ff amþróunar þar í landi. Þeir reikna með að auka olíuinnflutning sinn um helming fram til ársins 2010. Vamarsamtök Mið-Asíuríkja, þar sem Rússar og Kínverjar verða öflug- astir, eiga eftir að dafna og fastlega er búist við að þau muni brátt eignast höfuðstöðvar, ráðherraráð verði skip- að og ffamkvæmdastjóri ráðinn. Og í miðju bandalaginu em Banda- ríkjamenn að koma sér fyrir í her- stöðvum í þeim löndum sem verja skal. Breyttur heimur Sú valdabarátta sem fram fer í Mið- Asíu er undarleg í augum þeirra sem vanir em að líta á átakalínumar sem jámtjöld og berlínarmúra milli aust- urs og vesturs. En þær breytast og ærið er langt síðan farið var að spá spennu milli norðurs og suðurs eða jafhvel milli múslímaheimsins og norðurs og vesturs. En ef til vill eru það olíulindimar einar sem skipta sköpum og bandalögin snúast um yf- irráð þeirra. Ekki fór mikið fyrir heræfingunum í Mið-Asíu um daginn enda tóku ekki nema um 1.500 manns þátt í þeim. En þær em áreiðanlega undanfari mun meiri tíðinda um hvemig átakalínur munu skipast á nýhafinni öld. (M.a. byggt á The Guardian)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.