Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Side 10
10 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003
íslenskar myndir íToronto
KVIKMYNDIR: Tvær íslenskar
kvikmyndir, Nói Albínói í leik-
stjórn Dags Kára Péturssonar
og Stormviðri í leikstjórn Sol-
veigar Anspach, verða sýndar á
Kvikmyndahátíðinni íToronto
sem hófst í gær og stendur
fram til 13. september. Hátíðin
er mjög mikilvæg og hefur
opnað greiðari leið fyrir evr-
ópskar kvikmyndir inn á Amer-
íkumarkað. fslensku myndirnar
eru hluti af dagskrá sem nefnist
Contemporary World Cinema
en þar er sýnt úrval mynda
hvaðanæva úr heiminum. Bæði
Dagur Kári og Solveig munu
sækja hátíðina og kynna mynd-
ir sínar jafnframt því sem þau
taka þátt í pallborðsumræðum
um kynningu og framgang evr-
ópskra kvikmynda.
Slegist um apple.is
NET©: Samkeppnisstofnun
hefurtil meðferðar deilu sem
snýr að léninu apple.is. Banda-
ríska fyrirtækið Apple Comput-
er hefur kært notkun
AcoTæknivals á léninu og kraf-
ist þess að apple.is verði um-
skráð á núverandi dreifingarað-
ila á Apple-tölvum og hugbún-
aði, Öflun ehf. Fyrirtækið rekur
Apple-verslun í Brautarholti. í
Mbl. kemur fram að kæra fyrir-
tækisins byggist einkum á 25.
grein samkeppnislaga þar sem
segir m.a. að óheimilt sé að
nota í atvinnustarfsemi firma-
nafn, verslunarmerki eða því
líkt sem sá hefur ekki rétt til er
notareða rekuratvinnu undir
nafni sem gefur villandi upplýs-
ingar um eignarrétt eða ábyrgð
atvinnurekanda.
Margir gestir
VERSLUN: Á morgun, laugar-
dag, er búist við að þrjú
hundruð þúsundasti viðskipta-
vinur Next í Kringlunni komi í
verslunina frá því hún opnaði
10. apríl í vor. Hátíð verður af
þessu tilefni. Verður þjúhundr-
uðþúsundasti gesturinn leyst-
ur út með gjafakörfu, 30.000
kr. vöruúttekt í Next o.fl.
FJÖLNIR í KRÖPPUM DANSI: Harðneitar að hafa reynt að komast hjá að greiða 3,5 milljón-
ir króna (aðflutningsgjöld fyrir 7 bila árið 1999.
Ákæra á hendur Fjölni Þorgeirssyni vegna inn-
flutnings á 7 Grand Cherokee-jeppum:
Fjölnir harðneitar
tollsvikum
og fjárdrætti
Fjölnir Þorgeirsson segist harð-
neita því að hafa reynt að kom-
ast hjá að greiða 3,5 milljónir
króna í aðflutningsgjöld fyrir 7
bíla árið 1999. Einnig því að
hafa dregið sér 2,4 milljónir
króna frá manni sem hugðist
kaupa af honum bíl.
Hann sagði við DV að mál sem
ríkislögreglustjóri höfðar gegn
honum með ákæru fyrir dómi sé
ekki reist á því að hann hafi framið
nokkra einustu refsiverða hátt-
semi. „Þetta er alrangt," sagði
hann þegar héraðsdómarinn
spurði út í ákæruatriðin.
Jeppar þekkts fólks
Fjölnir sagði við DV að mjög
þekkt fólk í þjóðfélaginu hefði
falið honum að flytja inn sjö
Grand Cherokee-jeppa árið 1999
enda hefði umboð fyrir þá bila
ekki verið starfandi lengur á þeim
tíma. Honum hefðu verið boðnir
jepparnir á 35 þúsund Kanada-
dollara ytra. „Við ákváðum þá að
slá til en ég var einungis milli-
göngumaður um að sækja bflana,"
sagði hann við DV.
Eftir þetta kveðst Fjölnir hafa far-
ið utan og fest kaup á bflunum en
hann hafði ákveðið sjálfum sér
ákveðna upphæð sem umboðslaun
í samráði við kaupendur. Er heim
var komið hefði tollstjórinn hins
vegar áætlað aðflutningsgjöld af
mun hærra kaupverði en hann
kveðst hafa greitt fyrir jeppana - þar
hafi verið stuðst við um 46 þúsund
FLOTTIR JEPPAR: Fjölnir segir að þekkt fólk hafi falið honum að flytja inn sjö Grand Cher-
okee-jeppa árið 1999. Bíllinn á myndinni tengist ekki innfiutningi Fjölnis.
dollara kaupverð fyrir hvern bfl.
„Ég kærði áætlun tollstjórans en
það sem ég uppskar úr því var að
þeir kærðu mig á móti fyrir svindl.
Þar stendur þetta mál í dag,“ sagði
Fjölnir. Hann segist hafa keypt bfl-
ana á mun lægra verði en gang-
andi markaðsverð, ekki sfst þar
sem hér var um sýningarbfla að
ræða og án ábyrgðar.
Það sem ríkislögreglustjóri
ákærir Fjölni fyrir er að hafa feng-
ið seljanda bflanna ytra til að gefa
út tvenns konar reikninga fyrir
hvern bfl. Aðra upp á um 35 þús-
und Kanadadollara en samkvæmt
ákæru var raunverulegt kaupverð
fyrir hvern bfl um 47 þúsund
Kanadadollarar. Þannig hafi
Fjölnir reynt - án árangurs - að
komast undan greiðslu aðflutn-
ingsgjalda upp á samtals 3,5 millj-
ónir króna fyrir bflana.
En Fjölnir er einnig ákærður fyr-
ir að hafa dregið sér 2,4 milljónir
króna frá manni sem lagði þá upp-
hæð inn á reikning Fjölnis í
tvennu lagi - bifreiðina sem hon-
um bar hefði hann ekki fengið af-
henta. Fjölnir sagði við DV að um-
ræddur maður hefði fengið þessa
upphæð greidda. ottar@dv.is
- Kvennablað
Aukablað fylgir Magasíni um konur fimmtudaginn 11. september
UM KONUR - FYRIR KONUR
Nýjustu straumar í hártískunni
Snyrtivörur
Vaxmeöferö
Hrukkufyllingar
Skótíska kvenna
Óvæntar gjafir. Meö hverju vilja konur láta koma sér á óvart?
Tíska. Hvaö er á óskalistanum?
Konur og bílar
og margt margt fleira
Auglýsingasölu í blaðið annast Ingibjörg
Gísladóttir ísíma 550 5 734, eða inga@dv.is.
Umsjón með efni og greinum hefur
Sigurður Bogi Sœvarsson í síma 550 5818,
eða sigbogi@dv.is