Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Page 12
12 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 Ljósanótt í Reykjanesbæ Ljósanótt, menningar- og fjöl- skyldudagar í Reykjanesbæ, er nú haldin í fjórða sinn. Dag- skráin hófst í gær, 4. septem- ber. Hún verður viðameiri með hverju árinu sem líður og nær nú yfirfjóra daga. Margir áhugaverðir viðburðir af ýmsu tagi munu eiga sér stað. Hátíðardagana eru bæjarbúar og fyrirtæki hvött til að draga hátíðarfána Reykjanesbæjar og íslenska fánann að húni, einnig til að setja hvít Ijós eða seríur í glugga, skreyta með blöðrum eða setja út friðarkerti. Flestar verslanir verða opnar til kl. 21.00 á Ljósanótt og boðið verður upp á tískusýningar, til- boð og skemmtanir, hádeg- istilboð, kaffihlaðborð, kvöld- verð og ýmsar uppákomur. (dag, föstudag, verða um- hverfisverðlaun Reykjanesbæj- ar 2003 afhent í Listasafni Reykjanesbæjar. Um kvöldið verða tónleikar fyrir unga fólk- ið á útisviði við Hafnargötu og um miðnættið verða einnig til- kynnt úrslit í Ljósalagakeppn- inni sem fram fer í Stapanum. Á laugardaginn verður ýmis- legt í boði fyrir yngstu kyn- slóðina, m.a. leikjaland, ókeyp- is andlitsmálun, hoppkastali, skátatorg, töfraleikhús o.fl. Einnig verður keppt í ýmsum íþróttum. Kvölddagskrá hefst við smábátabryggjuna í Gróf kl. 20.00, færist síðan að útisviðinu fýrir neðan Hafnar- götu og lýkur með flugelda- sýningu í boði Sparisjóðsins í Keflavík. Meðalaldur úti á landi hækkar Sigurður Sigurðarson, atvinnu- ráðgjafi hjá Atvinnuþróunarfé- lagi Norðurlands vestra, segir að aðeins fólk á aldrinum 0 til 44 ára flytjist í dag af lands- byggðinni á höfuðborgarsvæð- ið. Meðalaldur íbúa lands- byggðarinnar hækkar því jafnt og þétt. Þetta kemur fram í skýrslu sem At- vinnuþróunarfélag Norðurlands vestra hefur unnið og nefnist „Unga fólkið fór, aldursskipting á Norður- landi vestra 1992 og 2002“. Talað hefur verið um að dregið hafi úr fækkun fólks á landsbyggðinni og er það rétt. T.d. fluttu aðeins 634 frá landsbyggð á höfuðborgarsvæðið á síðasta ári en 1319 árið þar á undan. Sigurður telur of snemmt að fagna þeirri niðurstöðu því að flutningur fólks sé enn í fullum gangi. Alvarlegast sé að landsbyggðin sé að missa það fólk frá sér sem er bak- beinið í öllum samfélögum. „Kenningin er sú að fólk á aldrin- um 20 til 44 ára sé hin virka fjöl- skylda, það mótar samfélagið og efnahagslífið, býr til börnin, elur þau upp, fjárfestir, eyðir, og gerir þá hluti sem þeir eldri hafa lagt af að mestu leyti. Þegar því fækkar í samfélögum landsbyggðarinnar hefur það miklu meiri áhrif en ef eldra fólk flyst á brott, á rekstur fyrir- tækja, fjárhagsstöðu þeirra og sveit- arfélag og almennt á alla þjónustu sem verður óhagkvæmari og loks lakari. Á Norðurlandi vestra hafa 1140 Alvarlegast er að landsbyggðin missir það fólk frá sér sem er bakbeinið í öllum sam- félögum. manns flust á brott á síðustu 11 árum, en þar af 1470 manns á aldr- inum 0 til 44 ára. Vandamálið er ekki einskorðað við Norðurland vestra. Þetta er vandi allrar landsbyggðar- innar. Unga fólkið fer og samfélögin eldast hlutfallslega mjög hratt. Enda þótt engin fjölgun sé meðal eldri borgara, 65 ára og eldri, þá er hlutfall þeirra mun hærra en var 1992. Allur samanburður við landsmeðaltal verður óhagstæður, t.d. er fólk á vinnumarkaði víðast hvar færra,“ segir m.a. í skýrslunni. gg@dv.is UNGA FÓLKIÐ FLÝR: Ferðamennska tengd gömlum atvinnuháttum er ein fjölmargra leiða sem farin hefur verið til að efla atvinnulíf úti á landsbyggðinni. Engu að siður liggur straumur ungs fólks, bakbeinsins í öllum samfélögum, í burtu í auknum mæli. FARICE-1 kominn til Seyðisfjarðar FARICE-1: Á kortinu má sjá leið sæstrengsins til íslenskra neytenda. Hann mun mjög auka allt öryggi í samskiptum. Öruggara sambandi var komið á í gær fyrir íslenska upplýs- ingasamfélagið er nýi sæ- strengurinn, FARICE-1, var dreginn á land á Seyðisfirði en að honum standa ásamt Síman- um, íslenska ríkið, færeyska símafélagið ForoyaTele, Og Vodafone og fleiri aðilar. Viðstaddir komu kapalskipsins til Seyðisfjarðar voru samgönguráð- herra, helstu aðstandendur strengs- ins ásamt bæjarstjórn Seyðisfjarðar, fulltrúa frá sambandi sveitarfélaga, fulltrúum ítalska fyrirtækisins Pirelli, sem sér um lagninguna og fleirum. Reiknað er með því að FARICE-1 verði tekinn í notkun f janúar 2004 en undirbúningur verk- efnisins hófst árið 1999 og hefúr gengið samkvæmt áætlun. Heildar- fjárfesting í hinu nýja sæstrengskerfi er um 45 milljónir evra, eða rúmir 4 milljarðar íslenskra króna. Hafist var handa við Iagningu sæ- strengsins í lok júní með frágangi á landtaki í bænum Castletown í Dunn- et Bay í Skotlandi. Síðan var strengur- inn lagður frá Skotlandi norður fyrir Færeyjar og gengið ffá greinitengingu inn til Funningsfjarðar í Færeyjum. Að því loknu var hafist handa við að leggja áfram frá greinipunkti til Seyðisfjarðar, og er því verki nú lokið, að ffágangs- vinnu undanskilinni. Til ffóðleiks má geta þess, að fyrsti sæstrengurinn sem lagður var til íslands kom einnig í land á Seyðisfirði. Þetta var ritsímastrengur sem lagður var árið 1906 og tengdi landið við umheiminn um Færeyjar til Skotlands. Hinn 12. september 2002 var hluta- félagið Farice hf. stofnað með aðkomu nær allra stærri aðila á fjarskiptamark- aði á íslandi og í Færeyjum auk fs- lenska ríkisins. Farice hf. mun selja þjónustu sína í heildsölu til símafyrir- tækja, sem síðan sjá um smásöluna. ömggt fjarskiptasamband til útlanda sldptir æ meira máli í rekstri fyrirtækja, eftir því sem mikilvægi Intemets, gagnalluminga og símaþjónustu eykst og alþjóðasamskipti færast í vöxt. Hingað til hefur Island aðeins tengst um einn sæstreng (CANTAT-3) til út- landa. Lagning nýs sæstrengs eykur öryggi í alþjóðlegum fjarskiptum til muna þar sem mögulegt verður að skipta á milli hágæða ljósleiðarasam- banda á nokkrum sekúndum, rofni annar hvor sæstrengurinn. Til þessa hefur varasamband verið í gegnum gervihnetti. CANTAT-3 er eini sæstrengurinn sem liggur ff á íslandi til annarra landa. Strengurinn markaði á sfnum tíma þáttaskil í fjarskiptum fslands við um- heiminn en um hann fer talsamband, netsamskipti og aðrir gagnaflutningar. Á sama tíma og flutningsgeta sæ- strengja og annarra ljósleiðarakerfa víða um heim, einkum yfir Atlantshaf- ið, hefur vaxið gríðarlega síðasta ára- tuginn er ljóst að nýrri ljósleiðarakerfi til alþjóðlegra fjarskipta hafa ekki náð að ströndum íslands eða Færeyja síð- an CANTAT-3 var tekinn í notkun árið 1994. Hámarks flutningsgeta nýja sæ- strengsins er 720 Gb/s, þó svo tenging- in muni verða sett upp með 20 Gb/s flumingsgetu til að byija með. Hin nýja ljósleiðaratenging endar í Reykja- vík, Þórshöfii og Edinborg. gg@dv.is Þann 11. september nk. fylgir DV Sporti veglegt aukablaö um komandi vertíð handknattleiksmanna. ítarleg kynning verður í blaðinu á öllum télögum sem leika í ESSO-deild karla og kvenna á næsta keppnistímabili. Birtar verða andlitsmyndir af öllum leikmönnum og rætt við fulltrúa frá hverju félagi um komandi átök vetrarins. Að auki verða ýmsar tölulegar upplýsingar í blaöinu til fróðleiks fyrir handknattsleiksmenn og unnendur íþróttarinnar, leikskrá vetrarins o.m.fl. Sannarlega er hér um að ræða kynningarblað sem handknattleiksmenn/konur og handknattsleiksunnendur munu geyma sér til fróðleiks allan næsta vetur. Keppni í hverju orði Auglýsingasölu í blaðið annast Ingibjörg Gísladóttir í síma 550 5734, eða inga@dv.is. Umsjón með efni og greinum hefur Óskar Hrafn Þorvaldsson í síma 550 5887, eða oskar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.