Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Side 23
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 FOKUS 23
Uppistandarinn Pablo Fransisco kom til lands-
ins í gær en hann ætlar að standa upp fyrir ís-
lendinga í Háskólabíói í dag. Pablo er orðinn
einn vinsælasti grínisti Bandaríkjanna á
skömmum tíma og vilja sumir meina að hann
eigi það Internetinu að þakka enda flakkaði
hluti úr uppistandi kappans manna og heims-
horna á milli í tölvupósti. Pablo var meira en
til í að svara nokkrum spurningum fyrir Fókus.
Finnst ég
þegor ég
Hvað geturðu sagt lesendum Fókuss um sjálfan þig?
„Ok. Eg heiti Pablo - Pablo Fransisco Gerbracht. Ger-
bracht er þýskt nafn, afi er frá Þýskalandi og foreldrar mfnir
eru frá Chile. Ég er fæddur í Arizona og þar ólst ég upp sem
barn, ég ólst sem sagt upp sem barn.
Ég hef verið að standa upp í 15 ár, ég er 34 ára en er með
þroska á við 8 ára barn. Ég er búinn að vera að þessu síðan ég
var 16-17 ára, byrjaði ferilinn á steikhúsi í hverfinu mínu þar
sem var „open mic“ kvöld. Flutti til Redondo Beach í Los
Angeles og vinn fyrir grínklúbb þar. Það er eiginlega allt og
sumt. Vildirðu vita meira?
þJei, nei, þetta er fint. En ég er með aðra ... Heldurðu að þú
hefðir orðið frægur ef ekki væri fyrir lntemeúð?
„Úff... mmm ... Ég hélt ekki að Internetið myndi gera mér
gagn en það hefúr gert það. Það fór af stað bútur úr uppistand-
inu mínu á Comedy central - eruð þið með þá stöð hér? Ekki
... Það fór allavega smábútur úr uppistandinu mínu þar á Net-
ið og gerði stormandi lukku. En ég myndi ekki segja að ég ætti
Netinu allt að þakka.“
Finnst þér þú fyndinn?
„Þetta er mjög góð spurning, erfið. Já, þegar ég er fullur
finnst mér ég mjög fyndinn. En þegar ég er að sýna fer það
eiginlega eftir áhorfendum. Ef þeir taka mér vel og hlæja
finn ég oft upp á alls konar hlutum sem virka stundum og
stundum ekki. En ætli mér finnist ég ekki fyndinn svona
40% tímans ... Nei, höfum það 50 - 50% tímans. Það hljóm-
ar betur.“
Pú varst í Coca Cola-auglýsingu. Hvað borga þeir mönnum
fyrir svoleiðis?
„Þeir borguðu mér 20 þúsund dollara. Hvurslags spuming-
ar eru þetta?! „Hvað þénaðirðu mikið og í hvað eyddirðu pen-
ingunum?"
I hvað eyddirðu peningunum?
„Ég lagði þá inn á bankareikning og borgaði kreditkorta-
skuldir. Og svo fór ég á Goldfinger. Nei, ég lýg því. Það var
nú allt og sumt, ég borgaði skuldir."
Ertu ríkur?
„Nei, ég myndi nú ekki segja það. Ég er nokkuð duglegur að
spara og legg slatta til hliðar. Ég keypti hús á Redondo Beach
sem er í um 20 mínútna fjarlægð frá L.A. Ég hefði nú getað
fengið stærra hús fyrir sama pening, fasteignaverð er mjög
hátt þama. Mitt er með þremur svefnherbergjum og kostaði
400 þúsund dollara."
ferry Seinfeld eða Eddie Murphy?
„Jerry Seinfeld ... Nei, Eddie ívlurphy. Ég erhrifinn af þeim
báðum. Eddie fyrir hláturinn „He, he“ og Seinfeld af því að
hann er „alltaf að velta því fyrir sér hvað sé eiginlega í gangi.
C' ,
Þú ert þama með gaur
sem fer til íslands þegar
er enginn ís á landinu.
Bara hraun,“ segir Pablo
og hermir nákvæmlega
effir íslandsvininum
Seinfeld.
Sagði hann þetta?
„Nei, ég sagði þetta.
Ætlaðirðu að fara að æsa
þig? Nei, ég verð að segja
Eddie Murphy. Hann er
ffn eftirherma. Getur
hermt vel eftir Michael
Jackson og Mr. T.“
Hvenær fórstu síðast í
bað?
„Ætli séu ekki um það
bil tólf tfmar síðan, þá fór
ég reyndar í sturtu. Ég
ætlaði að skella mér f bað
á hótelinu en sofnaði,
varð þreyttur. Ég kemst
ekki einu sinni í baðið heima, það er svo undarlegt í laginu.
Ég er með nuddpott en baða mig ekki þar. Það væri ógeðslegt."
Ertu héma „for business or pleasure"?
„Þegar ég var á leiðinni í flugvélinni var meiningin að þetta
yrði bara vinnuferð en það átti eftir að breytast. Þegar ég var
lentur og kominn til Reykjavfkur virtist vera margt
skemmtilegt í boði svo að við ætlum út að gera eitthvað
skemmtilegt á morgun. Við ætlum á Goldfinger."
I alvöm?
„Nei.“
Hvað ætlarðu að gera?
„Goldfinger.“
Eitthvað fyrir utan Goldfinger?
„Goldfinger. Nei, ég segi svona. Við ætlum að fara í ein-
hverja gufulaug ... einhvern heilsustað.“
Bláa lónið?
„Já, einmitt, passar. Er það leiðinlegt?"
Nei, nei, það erfint.
„Já, við ætlum þangað. Við ætlum að vera allsberir í Bláa
lóninu."
Pú kemst auðveldlega upp með það. Pað sem meira er - það
mun enginn taka eftir þvi. Vatnið er hvítt.
„Er það? í alvöru? Þú ferð þá bara aftur f skýluna áður en þú
ferð upp úr og enginn veit neitt. Það er sniðugt.“
Hvað er það undarlegasta sem þú hefur borðað á ævinni?
„Það er líklega sushi. Já, ætli það ekki. En þú?“
Krókódíll ... og reyndar sviðinn kindahaus.
„Kindahaus?! Já, það hlýtur að vera skrýtið. Kindin bara að
horfa beint í augun á þér meðan þú étur hana. Höggvið þið
bara hausinn af og berið hann svo ffam? Étið þið heilann
fyrst? Ég á mjög erfitt með að ímynda mér kvöldmatinn horf-
andi á mig.“
Eitt í bkin, ég var búin að lofa að spyrja þig. Ég var að tala við
stelpu áðan. Islensk, fjallmyndarleg. Sat meira að segja fyrir í
Playboy einhvem timann. Hún bað um símanúmerið þitti Má ég
láta hana hafa það?
„Já, ekkert mál, endilega. Var hún í Playboy? Hafa ekki
allar íslenskar konur verið í Playboy? Þær eru allar suddaflott-
ar konumar héma. Allar ljóshærðar með tagl. Jú, blessuð
vertu, láttu hana hafa númerið.“
Áttu ekki kærustu?
„Jú, en hún er svona meira bara félagi minn. Henni væri
samt örugglega ekki sama. Heldurðu að gellan hringi í mig
strax í kvöld? Konan yrði kannski ekki hrifin. Ég veit það
ekki. Heyrðu, láttu hana bara fá tölvupóstfangið mitt. Það er
örugglega betra.“
í sumar stóð Fókus fyrir leik í samvinnu við Becks
og Smart SMS þar sem veglegir vinningar voru í
boði. Aðalvinningurinn fór til Þrastar Garðarssonar.
Vann bretti af Becks
„Það er rétt rúm vika sfðan ég fékk vinning-
inn afhentan og ég er búinn að vera sæmilega
duglegur við þetta sfðan, ekkert um of þó því
maður þarf nú að stunda vinnuna og svona,“
segir Þröstur Garðarsson, 35 ára bílstjóri, sem
sigraði í leik sem Fókus stóð að í samvinnu við
Becks og Smart SMS í sumar.
Aðalvinningurinn var heilt bretti af drykkj-
arföngum frá Becks, 32 kassar af vörum frá
framleiðandanum. 10. hver þátttakandi fékk
vinning, allt frá snakki upp í ýmsar vörur ffá
Becks.
Leikurinn fór þannig ffam að þátttakendur
sendu SMS-skeyti á þjónustunúmerið 1919.
Þeir fengu svo lauflétta spumingu til að svara og
þeir sem svöruðu henni rétt fóru í pottinn.
Samkvæmt upplýsingum frá Smart SMS voru
alls um 30.000 skeyti send inn sem er metþátt-
taka. Hefúr framkvæmd leiksins vákið svo
mikla eftirtekt að Interbrew bjórffamleiðandinn
hefur valið þetta ffamtak í stóra samkeppni um
bestu auglýsingarnar fyrir vörur sínar.
En hvað segir Þröstur, var þetta ekki óvænt-
ur glaðningur?
„Jú, þetta var ffekar óvænt en afskaplega
skemmtilegt.“
Ertu búinn að nota eitthvað af veigunum? .
„Já, svona eitthvað. Ég bauð allavega í smá
gleðskap um síðustu helgi.“
Ertu mikill bjórmaður?
„Já, ég drekk bjór en mér þykir ekkert verra
að fá rauðvín líka.“
Verðurðu þá ekki að vonast eftir að það komi
svipaður leikur með rauðvín á næstunni?
„Jú, það væri ekki verra að næla sér í bretti af
rauðvíni lfka!“