Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Qupperneq 24
24 TtLVeffA FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 Fólk - Helmilíð í Dægradvöi Netfang: tilvera@dv.is Simi: 550 5824 • 550 5810 1 Maggi og KK í TÓNLIST: MAGGI EIRÍKS og KK ætla að vera á ferðalagi um landið í september og október. Tilefnið er geisladiskur þeirra, 22 ferðalög, sem hefur selst í um 12.000 þúsund eintökum fram til þessa og stefnir í sölu- met ef ferðalagið heldur svona áfram. Ferðalagið hefst í Þórs- mörk í hádeginu á morgun. Með í för verður kvikmynda- Þórsmörk tökulið sem stendur að heim- ildamyndatöku um ferðina. Stefnt er að því að frumsýna af- raksturinn í haust. Á 22 ferða- lögum eru vel valin íslensk dægurlög sem eiga það sam- eiginlegt að vera í uppáhaldi í ferðalögum. Inni í umslaginu má finna texta sem og gítargrip við lögin þannig hægt er að grípa í gítarinn og taka undir. Sæmundur á Kjarvalsstöðum Á morgun kl. 14 verður opnuð á Kjarvalsstöðum sýning á verkum myndhöggvarans Sæmundar Valdi- marssonar. Verk Sæmtmdar hafa náð miklum vin- sældum meðal þjóðarinnar fyrir sérstakan stíl. Trémyndir sínar vinnur listamað- urinn úr rekaviðardrumbum og sýna þær ævintýraverur huldu- heima sem standa landsmönnum nærri í gegnum þjóðtrú og sagna- minni. I tengslum við sýninguna verður efnt til námskeiðs í tré- skurði 5. október f samstarfi við Skógrækt rikisins. Sýningin stend- ur til 12. október. Gult Ijósfar Sýning Birgis Sigurðssonar, Gult ljósfar, verður opnuð klukkan 20 í kvöld að Hafnargötu 2 í Reykjanes- bæ. Hluti af sýningunni er hljóð- verk Odds Garðarssonar. Sýningin verður opin frá 14-22 á morgun og frá 14-18 á sunnudag. Sýningin stendur aðeins þessa helgi. Sýn- ingin er sú fyrsta af fjórum ljósfara- sýningum. Hver sýning er sérstakt verk en saman mynda þær eina heild: guiur, rauður, grænn og blár. Hljóðverk verður samið fyrir hverja sýningu. Ljósfarið er farartæki gula ljóssins á ferð þess um himingeim- inn en hefur hér stuttan stans. Fæturnir titra Listamaður Gallerí Kambs að í þessu sinni er listakonan Hulda | Vilhjálmsdóttir. Hulda útskrifaðist frá Listahá- skóla íslands árið 2000. Síðan hefur ! hún haldið sjö einkasýningar. j Listakonan segir um sýninguna: i „Titillinn að sýningunni, Fæturnir | titra, gerist þegar við erum ástfang- í in, skilningarvitin verða stjómlaus, : við verðum næm fyrir náttúrunni, | og það verður þannig að fjallið i Hekla titrar og gýs, kannski af ást | og ótta. Sýningin fjallar um konu, i fjall, böm og náttúm mannsins, i blossandi og ólgandi. Þetta em til- i finningaverk og ljóðræn í senn.“ Við opnunina leikur Geir Harðar- son ljúfa hausttóna og Elísabet Jök- ulsdóttir flytur fmmort ljóð, Vængjahurðina. Sýningin stendur til 5. október. Gallerí Sævars Karls Svanborg Matthíasdóttir opnar málverkasýningu í Galieríi Sævars Karls á morgun kl. 14. Svanborg útskrifaðist frá Jan Van Eyck Akademi í Hollandi 1987. Hún hefur haldið nokkrar einka- sýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum, bæði heima og er- lendis. Áhrifa Svanborgar gætir víða þar sem hún sjálf er frábær málari og hefur kennt myndlist undanfarin ár í Myndlista-og handíðaskólanum, svo og Listahá- skólanum. Yfirlitssýning I Listasafni Reykjanesbæjar f Duushúsum, Duusgötu 2, verður opnuð í dag kl. 17 yfirlitssýning á verkum Stefáns Geirs Karlssonar. Stefán Geir lærði plötu- og ketil- smíði á sínum tíma og útskrifaðist sem sldpatæknifræðingur árið 1973. Hann hefur fengist við myndlist í 25 ár og er einkum þekktur.fyrir skúlptúra sem unnir em undir áhrifum popplistar. Sýn- ingin stendur til 19. olctóber og er opinn alla daga frá 13-17. Landslag Á morgun kl. 13 opna myndlist- armennimir Anna Sigríður Hróð- marsdóttir, BirgirRafn Friðriksson, Jóhannes Dagsson, Ólafur Sveins- son og Sigurveig Sigurðardóttir sýningu í Safnahúsinu á Húsavík undir yfirskriftinni Landslag. Eins og yfirskriftin gefur til kynna er við- fangseftúð hefðbundið í myndlist en jafnframt síungt og allaf til end- urskoðunar. Ekki er um að ræða neina íyrir fram ákveðna heildar- stefriu innan hópsins heldur hefur hver um sig frjálsar hendur. Nálg- un listmannanna er því jafn ólík og þeir em margir. Sýningin stendur til 14. september. Gallerí verður málverk Á morgun kl. 17 opnar Kristinn Pálmason málverkasýningu í Gall- erí Skugga á Hverfisgötu 39. Verk Kristins er unnið sérstaldega inn í rými gallerísins á þann hátt að málað er beint á veggi og glugga. Verkið felur í sér tilraun til að um- breyta sjálfu galleríinu í málverk og hefur þetta áhrif á skynjun sýning- argesta; afstaða þeirra til verksins sem áhorfanda breytist því að segja má að þeir verði hluti af sjálfu verkinu. Sýningin stendur til 21. september. Gallerí Skuggi er opið alla daga nema mánudaga kl. 13-17. Ryk og töfratákn Á morgun kl. 15 verða opnaðar i tvær sýningar í Listasafni ASÍ. f Ás- | mundarsal og Gryiju verður opnuð : sýning Ingu Jónsdóttur, Ryk, en í j Árinstofú sýning á verkum Kristins ; Péturssonar, Töfratákn. Inga Jónsdóttir fæddist 1953 og í lauk framhaldsnámi frá Academie : der Bildenden Kúnste, í Múnchen i 1992. Á sýningunni RYK em þrí- j víddar- og myndbandsverk, ljós- myndir og teikningar. Kristinn Pét- ursson (1896-1981) er huldumað- ur í íslenskri myndlist. Kristinn var heimspekilega sinnaður, hreifst að listkenningum Kandinskys um óhlutbundna myndlist, kynnti sér sálfræði og draumakönnun. Hann fékkst við höggmyndágerð, mál- verk og svartlist. Sýningamar standa til 12. október. Endurmenntun Háskóta ísland fagnar tuttugu ára afmæti sínu nú í haust. Umfang og starfsemi stofnunarinnar hefur margfaldast á þessum árum og nemendafjöldi farið úrsextíu og fimm fyrsta árið upp í rúm tíu jpúsund. í dag er Endurmenntun HÍ fjölsóttasti skóli landsins með yfir fjögur hundruð námskeið í boði. „Ég treysti mér ekki að segja hvað veldur þessum vinsældum," segir Kolbrún Erla Matthíasdóttir, mark- aðstjóri hjá Endurmenntun Há- skóla íslands. „Ég tel þó að fólk hafi áttað sig á að stofnunin sé að bjóða upp á vönduð og góð námskeið á góðu verði. Við höfúm líka verið að bjóða upp á ókeypis ömámskeið i tengslum við afmælið og þau hafa vakið mikla athygli." Aukinn áhugi á námi Að sögn Kolbrúnar hafa vinsæld- ir námskeiða hjá Endurmenntun aukist gríðarlega frá því að þau fór fyrst á stað. „Fyrsta haustið, 1983, skráðu sig sextíu og fimm en árið 1999, þegar mest var, sóttu tólf þús- und fjögur hundmð og þrír nám- skeið hjá okkur." Kolbrún segist ekki vita hversu margir komi til með að skrá sig í haust. „Við emm rétt farin af stað.“ Kolbrún segist halda að vinsældir námskeiðanna eigi sér margar or- sakir. „Við emm að bjóða upp fjöl- breyttasta úrvalið af þeim sem bjóða upp á svipuð námskeið. Þetta em námskeið á háskólastigi og í raun ódýr miðað við gæðin. Hug- myndir fólks um endurmenntun hafa breyst mikið sfðustu tvo ára- tugina. Áður fyrr þótti það feimnis- mál að sækja slík námskeið og talið veikleikamerki en í dag sýnir það styrk. Áhugi fólks á að bæta mennt- un sína hefur líka aukist samfara í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun verður námsstefna sem höfðar til þeirra sem hafa áhuga á listsköpun í nýjum miðlum jafnt og þeirra sem vilja skoða nýjar leiðir í námsefnis- gerð, tengdar Völuspá og menning- ararfinum almennt. Fjallað verður um gagnvirka miðlun með hliðsjón af nýju verki ensku fræði- og lista- konunnar, Maureen Thomas.' í kvikmynd sinni nálgast Maureen Völuspá, Hávamál og Snorra-Eddu á nýjan hátt og endur- vekur munnmælahefðina í gegnum nýja miðlun. Vigdís Finnbogadóttir opnar námsstefnuna. Maureen Thomas flytur fyrirlestur um rann- sóknir og vinnu sem liggur að baki auknum kröfum í samfélaginu. Margir vinnuveitendur ætlast einnig til að starfsfólk sitt sæki ákveðið mörg námskeið á ári til að bæta árangur sinn í starfi og kynn- ast nýjungum. Auk þess er mikið af fólki sem fer á námskeið vegna þess að það hefur áhuga á viðfangsefn- inu." „Ég treysti mér ekki að segja hvað veldur þess- um vinsældum," Fleiri konur en karlar „Það er alls konar fólk sem sækir námskeiðin og á öllum aldri. Stærsti hópurinn er á aldrinum þrjátíu og sex til fimmtíu og fimm ára og kynjadreifingin er svipuð og í Há- skólanum, sextíu og íjögur prósent konur og þrjátíu og sex prósent Rúnaspá Völu. Þá verður Media- Desk með kynningu á styrkjakerfi í Evrópu og Pia Vigh, aðalráðgjafi Norrænu ráðherranefndarinnar, greinir frá þróun margmiðlunar- sjóðs á Norðurlöndum. Eftir hádegi verða pallborðsum- ræður þar sem fram koma fræði- menn og listafólk sem unnið hefúr við gerð gagnvirkra verka. Annars vegar verður fjallað um konur, listir og tækni og horft á hvernig ný tækni hefur verið nýtt af konum. Hins vegar verður fjallað um jaðartungu- mál og menningu og hvemig tölvu- listtækni hefur opnað nýja mögu- leika. Þá gefst námsstefnugestum kost- karlmenn." Að sögn Kolbrúnar hef- ur kynjahlutfallið verið að breytast undanfarin ár. „Fyrstu árin vom það aðallega karlmenn sem sóttu námskeiðin en í seinni tíð hafa kon- urnar sótt f sig veðrið og em nú í meirihluta." Kolbrún segir að hátt hlutfall karla fyrstu árin skýrist lík- lega af því að þá var mikið um nám- skeið sem tengdust tækni og hent- uðu hefðbundnum karlafögum. Þegar Kolbrún er spurð hvort fólk með framhaldsskólamenntun sé duglegra en aðrir að sækja endur- menntunarnámskeið segist hún ekki telja að svo sé. „Það fer eftir námskeiðunum. Sum námskeið em hönnuð fyrir fólk með ákveðna menntum og í sumum tilfellum em forkröfúr. Flest námskeiðin em þó þannig að allur almenningur getur skráð sig og haft gagn af.“ ur á að skoða Rúnaspá Völu og reyna sjálfir hvernig sögupersónan Vala getur spáð fyrir þeim og bmgð- ið ljósi á gamla visku sem á erindi til fólks nú á tímum. Einnig gefur að líta verk 5 norrænna margmiðlun- arlistamanna og fræðifólks. Sýningin á Rúnaspá Völu stendur til 21. september nk. en opnunar- daginn verða tónleikar sem nefnast Söngvar Völu. Það er söngkonan og lagahöfundurinn Karina Gretera frá Litháen sem flytur þar frumsamda tónlist ur Rúnaspá Völu ásamt ís- lenskri hljómsveit. Þetta em einu tónleikarnir sem hljómsveitin held- ur á þessu ári og em einungis opnir námsstefriugestum. Endurmenntun Háskóla Islands: Ný tækifæri í gagnvirkri margmiðlun: Völuspá og menningararfurinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.