Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Síða 35
FÖSTUDAÚUR 5. SEPTEMBER 2003 TILVERA 3S
THE
á
w
m
AN JOB
Fullk'omid rán
Svik
Uppgjör
mtilegasta
ynd ársins
001 GEl EVLN
Ofurskutlan Angelina Jolie
er mætt aftur, öflugri en
nokkru sinni fyrr, í
svakalegustu hasarmynd
sumarsins!
Sýnd kl. 5.45,8 og 10.15. Sýnd kl.8og 10.15.B.i.TO.ára.
PIRATES OF THE CARRIBEAN: Sýnd kl. 8.
NÓI ALBINÓI: Sýnd kl. 6. B.i. 12 ára. Enskur texti.
i'm) Breskir Bíódagar
PLOTS WITH A VIEW: Sýnd kl. 6.
BLOODY SUNDAY: Sýnd kl. 5.50. THE MAGDALENE SIS: Sýnd kl. 8.
SWEET SIXTEEN: Sýnd kl. 10.30. ALL OR NOTHING: Sýnd kl. 10.15.
FJÖLMIBLAVAKTIN ta * ^ Hilmar Karlsson hkarl@dv.is Pöru
Beðið eftir framhaldi
SAMBÍO
KRINGLAN
ALFABAKKI
irk'ki-,
m
Stórsmellur úr sin»}d ■Jenys
Bruckheimers og Disney sem
stefnir hradbyri t að verða vin-
sælasta mynd sumarsins i USA
Sýnd í Luxus VIP kl.5,7.45 og 10.15.
Sýnd kl. 3.50,5.50, 8 og 10.10. B.i. 12ára. Sýnd kl. 4,6,8 og 10.10. B.i. 10 ára
- ;Kn9 PV, STÓRMYND GRlSLA: Sýnd með íslensku tali kl.4 og 6.
| Sýnd kl.6,7,8,9 10og 11.B.L 12 ára. Sýnd kl. 5. Með íslensku tali. BASIC: Sýnd kl. 8og 10. lO.B.i. lö.ára. | ÁSTRÍKUR: Sýnd m. fsl. tali kl. 3.50.
| PIRATES OF THE CARRIBEAN: Sýnd kl. 5.30 8 og 10.30. B. i. 10 ára. SINBAD: Sýnd m. ís|. tali kl. 4 og 6 SINBAD: Sýnd m.ensku.tali kl. 8.
KRINGLAN 'Ci 588 0800
ALFABAKKI tS 587 8900
Með haustinu tínast inn vin-
sælir framhaldsþættir. Það er eðli
vinsælla sjónvarpssería sem eiga
sér lengri lífdaga að láta almenn-
ing bíða f ofvæni eftir nýrri seríu.
Þá þarf að enda á einhverjum há-
punkti. Ekki veit ég hvort ég fer
rétt með en allavega er það í
minningunni svo að þetta hafi
fyrst verið gert í Dallas. Há-
dramatískur og óvæntur atburð-
ur var í lokaþætti og svo beið al-
menningur spenntur í fjóra eða
fimm mánuði eftir framhaldinu.
Þetta rifjast upp þegar tvær
vinsælar sjónvarpsseríur hófu
göngu sína á ný í síðustu viku þar
sem um beint framhald var að
ræða af spennandi atburðarás. í
Launráðum (Alias) hafði aðalper-
sónan, Sidney Barstow, loks hitti
hina ógurlegu móður sína í há-
dramatísku spennuatriði. Þannig
endaði fyrsti hluti seríunnar og
þannig byrjaði annar hluti fjórum
mánuðum síðar. í fyrrakvöld
hófust á Stöð tvö sýningar á öðr-
um hluta The Guardians og þar
var sama upp á teningnum. í vor
endaði serían á því að lögfræð-
ingurinn Nick Fallin varð konu að
bana og að sjálfsögðu var um
beint ffamhald að ræða í upp-
hafsþætti nýrrar seríu.
Þetta er bragð sem heppnast
sjálfsagt að hluta til. Hræddur er
ég samt um að eins sé mörgum
farið og undirrituðum að vera
búinn að steingleyma endinum í
vor í báðum þessum spennuserí-
um þegar sýningar hófust aftur.
Ekki er hægt að sleppa rnn-
ræðu um spennuþætti í sjón-
varpinu án þess að gleðjast yfir
endurkomu Taggarts. Nokkrir
nýir þættir eru á þriðjudags-
kvöldum og nú er nýr stjóri kom-
inn sem er ekki ósvipuð persóna
og hinn eini sanni Taggart var.
piltar
Það er áberandi hvað breskum
leikstjórum tekst vel upp þegar þeir
fjalla um lífið hjá verkafólki. Allt ffá
því Karel Reisz og Tony Richardson
voru að gera slíkar myndir í upphafi
sjöunda áratugarins hafa raunsæis-
myndir þar sem þeir lægst settu eru
aðalpersónur verið aðal breskrar
kvikmyndagerðar. í dag eru það Ken
Loach og Mike Leigh sem eru helstu
boðberar slíkra kvikmynda. Raun-
sæið hefur einnig fengið á sig
kómískt yfirbragð eins og í The Full
Monty, sem leitt hefur af sér nýja
bylgju gamanmynda. Þar er lífsbar-
áttan í bakgrunninum og kemur
aldrei í staðinn fyrir húmorinn.
Purely Belter reynir að fara milli-
veginn í þessum efnum, sýnir fram á
þann óhugnað sem fjölskylduof-
beldi getur verið um leið og við sjá-
um kómíska tilburði tveggja ung-
lingspilta til að verða sér úti um
ársmiða á leiki Newcasde United.
Þama er reynt of mikið að sinna
báðum þessum þáttum. Við fyllumst
reiði yfir því hvernig fjöiskylufaðir-
inn hegðar sér en reiðin er fljót að
hverfa þegar strákamar stela bíl Al-
ans Sheares, aðalstjömu Newcasde-
liðsins.
Því verður þó ekki neitað að
Purely Belter er gefandi og áhuga-
verð kvikmynd um iíf þeirra lægst
settu í Newcastle. Aðalpersónurnar,
Gerry og Sewell, eiga enga peninga.
Þeir em samt ákveðnir í að eignast
ársmiða á leiki Newcastíe United en
tveir slíkir miðar kosta 1000 pund.
Um langú'maverkefhi er að ræða og
gerist myndin á einu ári og er skipt í
fjóra kafla, sumar, haust, vetur og
vor. Þeir félagar reyna aliar leiðir,
í DRULLUNNI: Gerry (Chris Beattie) og Sewell (Greg McLane) reyma ýmislegt til að verða
sér úti um aura.
Breskir bíódagar í Háskólabíói
Purely Belter
★★
stela, plata og betía, svo eitthvað sé
nefnt. Gerry er sérstaklega ráðagóð-
ur þegar kemur að því að finna leið-
ir til fjáröflunar. Ekki tekst þó betur
til en svo þegar kominn er digur
sjóðir þá stelur faðir Gerrys honum
og þegar sonurinn mótmælir gefur
faðir hans honum vænt kjaftshögg.
Inn í atburðarásina fléttast sfðan
fjölskyldumál Gerrys sem em ekki
fögur. Þar er ýjað að mörgu sem
kemur ekki upp á yfirborðið og hefði
sjálfsagt verið hægt að gera sterka
kvikmynd um það sem þar geijast.
Má þar nefna stutt atriði þegar hann
hittir eina systur sína sem hafði
horfið að heiman og er orðin úti-
gangsmanneskja.
Eins og gefur að skilja tengjast
áhrifamestu atriði myndarinnar fjöl-
skyldu Gerrys og þau fyndnustu
tengjast vinunum tveimur og skóla-
göngu Gerrys sem er ekki upp á
marga fiska. Leikstjórinn Mark
Herman (Little Voice, Brassed Off) á
Iof skilið fyrir leikstjórnina. Hvert at-
riðið af öðm er vel útfært hjá honum
og aðalleikararnir, Chris Beattie og
Greg McLane, en hvorugur hefur
ekki leikið áður, em góðir og af-
slappaðir undir hans stjóm. Það er
nú samt við leikstjórann að sakast
að einstök atriði verða eftirminni-
legri heldur en myndin í heild.
hkarl@dv.is
Leikstjóm: Mark Herman. Handrit: Mark
Herman eftir skáldsögu JonathansTullocks,
The Season Ticket. Kvikmyndataka: Andy
Collins. Tónlist lan Broudie og Michael
Gibbs. Aðalleikarar Chris Beattie, Greg
McLane, Tlm Healy, Charlie Hardwick og
Kevin Whately.
er í sjónvarpinu í kvölo
STJÖRNUGJÖF DV
A 'W. 'fc'it'
Bloody Sunday
Sweet Sixteen ★ ★★■i
Nói albínói ★★★'i
28DaysLater ★★★
Pirates of the Caribbean ★ ★★
Terminator 3 ★ ★★
Croupier ★★★
HULK ★★★
Sindbað sæfari ★ ★"i
Basic ★ ★
LucyBreak kkk
Bruce Almighty ★★
Hollywood Homicide ★★
Charlie's Angels: Full Throttle ★★
Legally Blonde 2 kk
Lara Croft.... ★
StBft 2 kl. 22.10:
Kostulegir félagar
Stöð 2 sýnir í kvöld norsku úrvals-
myndina Elling. Elling er maður á
fimmtugsaldri sem er næstum því
eðlilegur. Hann er læs og skrifandi,
fylgist með í þjóðfélaginu, heldur sér
og umhverfi sínu hreinu og snyrti-
legu o.s.frv. Hann er hins vegar hald-
inn fælni af ýmsu tagi sem vamar
honum að fara út, tala í síma og eiga
eðlileg samskipti við fólk. Elling
dvelur um skeið á geðsjúkrahúsi
uppi í sveit eftir að móðir hans deyr
en nú finnst forstöðukonunni að
hann sé tilbúinn að búa í félagslegri
íbúð í Ósló ásamt félaga sínum af
hælinu. Félaginn, Kjell-Bjarne, er
ekki fælinn, hann er þvert á móti al-
veg hömlulaus - sem er meira pín-
legt en hættulegt þar til það brýst út
í ofbeldi, aðallega gegn honum sjálf-
um.
Þessir tveir öðlingsmenn flytja
saman til Óslóar og eiga þar að sjá
um sig sjálfir með smáhjálp frá
Frank félagsráðgjafa. Myndin íjallar
um fyrstu mánuðina þeirra saman,
ELUNG: Per Christian Ellefsen leikur titil-
persónuna.
hvernig þeir takast á við mörg ótrú-
lega flókin og erfið verkefni eins og
að svara í síma, kaupa í matinn,
baða sig reglulega og skipta um nær-
föt og sokka. Smám saman takast
þessi verkefni betur og við fylgjumst
með þeim vaxa f hlutverkunum sem
„venjulegir" menn.
Lífíð .eftir
vinnu
KRINGLUKRÁIN: Hinn eini sanni Geir-
mundur Valtýsson og hljómsveit hans
halda uppi sveiflunni í kvöld.
NASA: Strákarnir í hljómsveitinni I
svörtum fötum spila á Nasa við Aust-
urvöll í kvöld.
KAPrTAL Nýr klúbbur verður opnaður
í kvöld í húsakynnum hins fornfræga
Thomsens. Klúbburinn heitir Kapital
og skartar þegar öllum helstu plötu-
snúðum Klakans auk þess sem erlend-
ir gestir munu vera væntanlegir. í
kvöld eru það þeir Margeir og Tommi
White sem keyra mannskapinn áfram.
GLAUMBAR: Þór Bæring skemmtir í
kvöld.
HVERFISBARINN: Það er DJ Benni sem
sér um að halda uppi stuðinu í kvöld.
FELIX: DJ Johnny Logan þeytir skífur á
sportbarnum Felix í kvöld. Boltinn í
beinni alla helgina.
FJÖRUKRÁIN: (kvöld mun Hilmar
Sverrisson leika frá kl. 23 til 3.
GAUKUR Á STÖNG: Strákarnir í Buffi
skemmta gestum með söng og al-
mennri gleði í kvöld.
VEGAMÓT: Uppáhaldsplötustýran
okkar allra, DJ Sóley, skemmtir í kvöld.
KJALLARINN: Johnny Dee býður gest-
um upp á góða og gamaldags dans-
stemningu í kvöld.
PLAYERS: Hljómsveitin Milljónamær-
ingarnir, með þá Pál Óskar og Bjarna
Ara í fararbroddi, spilar á Players í
Kópavogi í kvöld.
AMSTERDAM: Plötusnúðarnir Steini og
Olli sjá til þess að fólk skemmti sér í
kvöld.
CATALÍNA: Hinn stórskemmtilegi og
margfrægi trúbador Halli Reynis snýr
úr útlegðinni og spilar fyrir gesti í
kvöld.
KRÁIN: Trúbadorinn Ingi Valur spilar á
Kránni, Laugavegi 73, í kvöld.
CAFÉ ROMANCE: Hin ástsæla gleði-
sveit Gilitrutt skemmtir gestum og
gangandi á Café Romance við Lækjar-
götu í kvöld.
BÚÁLFURINN: Hermann Ingi jr. mun
skemmta gestum á Búálfinum í Hóla-
garði í kvöld.
GRÆNI HATTURINN: Hljómsveitin Ljós-
brá rifjar upp stemningu sjöunda og
áttunda áratugarins á Græna hattin-
um á Akureyri í kvöld.
ODDVTTINN: Það er karókíkvöld á
Oddvitanum á Akureyri í kvöld. Allir
helstu slagarar síðustu áratuga og þú
færð að syngja.