Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2003, Qupperneq 37
FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2003 DVSPORT 37
Er einstök
■*
fyrirmynd
segir Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ
Kominn með viðurnefnið „súperpabbi"
Stefán Eggertsson, faðirJóns Arnórs og Ólafs Stefánssonar, getur verið stoltur afafrekum sona sinna
Stefán Eggertsson er kominn
með viðurnefhið „súperpabbi" og
það ekki að ástæðulausu. Sonur
hans Ólafur er núverandi íþrótta-
maður ársins og hefur náð eins
langt og hægt verður í alþjóðleg-
um handbolta og í vikunni horfði
hann á eftir öðrum syni sínum
komast eins langt og hægt er í al-
þjóðlegum körfubolta. DV Sport
kom að máli við Stefán í gær og
spurði hver væri galdurinn á bak
við afrek sona hans. „Þetta er nú
bara þeirra vinna. Þeir höfðu allir
gæfu til að lenda í góðu umhverfi
hjá góðum þjálfurum og ég hef
lengi sagt að allir mínir krakkar
hafa komist að hjá góðum þjálfur-
um sem hafa séð vel um þá, vilja
kenna þeim og kunna vel til verka.
Þau hafa notið þess,“ sagði Stefán
sem kom á óvart að Jón Arnór
skyldi ná svo langt. „Ég hafði litla
tilfinningu fyrir því hvað þeir geta
þarna í Bandarflcjunum en hann
var þarna í menntaskóla í tvö ár og
þá vorum við talsvert úti og sáum
mikið af leikjum. Þar hafði hann í
fullu tré við sína skólafélaga og ég
vissi það að ef hann fengi sama
umhverfí, sömu þjálfum og sömu
tækifæri eins og menn fá úti þá
gæti hann orðið jafn góður og ein-
hverjir aðrir," sagði Stefán, en er
sammála því að hugarfarið skili
þeim langt.
„Ég held að það sé nú þeirra
styrkur að þeir hafa báðir þessa
hæfilegu blöndu, eru hæfilega eig-
ingjarnir en skilja það samt að þeir
fá jafnmikið út úr því að skapa færi
fyrir aðra,“ sagði Stefán sem gæti
haft fulla vinnu af því að fylgja eft-
ir leikjum Ólafs og Jóns Amórs.
„Við foreldrarnir lifum bara okkar
lífi eins og við höfum gert fram að
þessu. Við treystum þeim alveg til
að sjá um sín mál en auðvitað er-
um við alltaf til staðar til að sfyðja
þau og hjálpa þeim.“ ooj.spon@dv.is
Philo á þátt i að Jón Arnór komst í NBA
KÖRFUBOLTI: Peter Philo,
sem lék með Njarðvík árið
2002, á þátt í því að Jón Arnór
komst inn í myndina hjá for-
ráðamönnum Dallas.
„Donnie Nelson og Pete Philo
eru mjög góðir vinir og lítill
fugl hvíslaði að Donnie þegar
ég var að spila hérna heima að
það væri einhver 18 ára gutti
sem gæti eitthvað í körfu,"
sagði Jón Arnór um þátt Pete
Philo. „Ég á þeim báðum mikið
að þakka að ég komst inn,"
bætti Jón Arnór við en það er
eitt að vekja eftirtekt en ann-
að að standast prófraun-
ina þegará reynirog
það gerði Jón Arnór
einn og óstuddur.
Pete Philo hefur
reynst íslensku
körfunni vel en hann varð Is-
landsmeistari með Njarðvík
2002.
spila með landsliðinu
spila með liðinu. Þetta mál
kemur bara til með að standa
og falla með ákvörðun þeirra
hjá Dallas Mavericks og ég hef
enga trú á öðru en að þeir
hleypi mér í verkefni landsliðs-
ins og vonandi gera þeir það,"
sagði Jón Arnór, en hans var
sárt saknað á Smáþjóðaleikun-
um á Möltu í júní þegar ís-
lenska liðið hlaut silfurverð-
laun. Jón Arnór hefur þrátt fyr-
ir ungan aldur verið landsliðs-
maður í þrjú ár og er kominn
með 26 landsleiki á bakið.
Verkefni landsliðsins eru ekki
mörg á komandi mánuðum en
næsta haust tekur liðið þó þátt
í undankeppni Evrópumóts
landsliða og þar gæti liðið
þurft mikið á Jóni Arnóri að
halda.
Jón Arnór vill
KÖRFUBOLTI: Það er Ijóst að
mikið álag og langt tímabil
leikmanna í NBA gæti haft
áhrif á það hvort Jón Arnór
getur tekið þátt í verkefnum ís-
lenska landsliðsins á komandi
árum. Jón Arnór er þó harður á
því sjálfur að spila landsleiki (s-
lands. „Ég vil spila fyrir (slands
hönd og reyni að gera allt
sem ég get til þess að fá að
þeim Norðurlandabúum sem hafa
náð inn í bestu körfuboltadeild f
heimi.
„Við erum líka mjög
ánægðir með það að «
það sé Jón Arnór af
öllum sem nær inn í
NBA því hann er svo
einstök fyrirmynd."
„Við þurfum ekki bara að bera
okkur saman við Norðurlöndin.
Eftir því sem ég kemst næst þá eru
aðeins tveir aðrir Norðurlandabúar
fyrir utan Pétur og Jón Arnór sem
hafa komist inn í NBA. Það eri*L
Norðmaðurinn Torgeir Bryn sem
spilaði þrjá leiki og Finninn Hanna
Möttola. En það er ekki bara sam-
anburðurinn við Norðurlöndin
sem er góður því ef þú skoðar alla
Evrópu þá eru teljandi á fingrum
annarrar handar þeir leikmenn
sem hafa verið í NBA hjá þessum
stórþjóðum flestum nema kannski
í einstökum ríkjum fyrrum
Júgóslavíu," sagði Ólafur og bætti
við.
„Það eru 450 milljónir iðkenda í
körfuknattleik í heiminum þó að
fáir geri sér kannski grein fyrir því.
Við erum því að tala um að það eru
„Eftirþví sem ég kemst<
næst þá eru aðeins
tveir aðrir Norður-
landabúar fyrir utan
Pétur og Jón Arnór sem
hafa komist inn í NBA."
um 500 leikmenn í NBA-deildinni
sem þýðir það að það er einn af
hverjum milljón iðkendum sem
kemst áfram. Það er ekki nóg með
að Jón Arnór sé að komast svo langt
heldur er hann að komast að hjá
einu af þremur bestu körfuboltalið-
um í heimi og árangurinn sem slík-
ur er hreint og beint frábær. Það<_
sem er efst í huga okkar er að
standa með honum í því sem hann
er að gera,“ sagði Ólaftir að lokum.
ooj.sport@dv.is
Það má með sanni segja að
körfuboltahreyfingin á íslandi hafi
farið á annan endann við fréttirnar
af afreki Jóns Arnórs Stefánssonar.
Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ, var
líkt og aðrir körfuboltaáhugamenn
í skýjunum þegar DV Sport kom að
máli við hann á blaðamannafundi
Jóns Arnórs í gær.
„Við erum mjög ánægðir
með það að það sé Jón Arnór
af öllum mönnum sem
nær inn í NBA-deildina
því hann er svo einstök
. fyrirmynd. Hann er
það geðþekkur og
heilbrigður íþrótta-
maður sem er mjög
æskilegt að tefla
fram sem góð fyrir-
mynd,“ sagði Ólafur
en honum kom það
ekki á óvart að Jón
Arnór skyldi ná svo
langt og það svo
J snemma.
„Ég er einn af
þeim sem er búinn
að vera sannfærður
allan tímann. Ég er
Iflca einn af þeim sem
er sannfærður um að
hann muni ekki
sætta sig við það að
vera kominn í hóp-
inn eða á samning
heldur vill hann
vera með og ætli
að setja mark
sitt á leikina.
Hann er ekki
saddur," sagði
Ólafur sem
vakti máls á
því á fundin-
um að afrek
Jóns Arnórs
er ekki bara
sögulegt
fyrir ís-
Ienskan
körfu-
bolta
heldur
eigum
við fs-
lend-
ingar
nú
helm-
'ing af