Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2003, Side 2
2 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003
ÚTGAFUFÉLAG: Útgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRrTSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRrTSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: S50 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Rltstjórn: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingan auglys-
ingar@dv.ís. - Drelfing: dreifing@dv.is
Akureyri: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setnlng og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerð og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I
stafrænu formi og í gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl
við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
Sagðist eiga feril sem
morðingi og nauðgari
- frétt bls. 4
Meint fasteignamisferli
- frétt bls. 6
Stuðmenn íTívolí
-Tilvera bls. 44
Súrsæt bikarafhending
- DV Sport bls. 24-25
Geymdi lík eiginkon-
unnar í frystiskáp
Lögreglan í bænum Prescott í
Arizona fann um helgina lfk eldri
konu sem eiginmaðurinn hafði
komið fyrir í fiystiskáp í bakgarð-
inum í von um að lífga mætti hana
við.
Eiginmaðurinn, sem er 75 ára,
viðurkenndi við yfirheyrslur að
konan hans hefði dáið fyrir tæpum
sex árum og síðan hefði hann
geymst hana í frystiskápnum.
Að sögn talsmanns lögreglunnar
var það dóttir hjónanna sem lét
lögregluna vita um að faðir hennar
væri eitthvað að bralla.
Við húsleit fann lögreglan eina
tólf dauða ketti auk þess sem gólf-
in vori löðrandi í kattaskft og öðr-
um úrgangi.
Við leit í bakgarðinum innan um
alls konar drasl fannst svo
frystiskápurinn með líkinu.
Með hass
FÍKNIEFNI: Lögreglan á Akureyri
handtóktvo menn um helgina
og lagði hald á um 180 grömm
af hassi. Við yfirheyrslu viður-
kenndi annar þeirra að vera eig-
andi efnanna og sagði þau ætl-
uð til sölu. Mennirnir, sem eru á
þrítugsaldri, hafa áður komið
við sögu lögreglu en þeim var
sleppt að loknum yfirheyrslum
og telst málið upplýst.
A gjörgæslu eftir útafakstur
UMFERÐARÓHAPP: Bíl var
ekið út af skammt norðan við
Miklagil á Holtavörðuheiði
um kvöldmatarleytið á föstu-
dag og fór hann margar velt-
ur utan vegar áður en hann
stöðvaðist. Þrennt var í bíln-
um og var ökumaður fluttur
ásamt öðrum farþeganum
með þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar til aðhlynningar á
Landspítala - háskólasjúkra-
húsi. Meiðsli ökumannsins
reyndust nokkuð alvarleg og
fór hann í aðgerð þá þegar
um nóttina. Að sögn lækna e •
líðan hans eftir atvikum en
hann liggur enn á gjörgæslu.
Meiðsli farþeganna reyndust
aftur á móti ekki vera eins al-
varleg og hafa þeir verið út-
skrifaðir.
Nýr formaður
STJÓRNMAL Hafsteinn Þór
Hauksson var um helgina kjör-
inn formaður Sambands ungra
sjálfstæðismanna á þingi þeirra
sem lauk í gær í Borgarnesi.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,,
var kjörinn varaformaður en
Ingvi Hrafn Óskarsson, fráfar-
andi formaður, gaf ekki kost á
sér í stjórn. Alls sóttu um 200
manns þingið.
Umdeilt hvort framsal á löggjafar- og
dómsvaldi sé heimilt samkvæmt núgildandi lögum:
Össur vill stjórn-
arskrárbreytingar
Össur Skarphéðinsson vill setja
ákvæði um framsal á valdheim-
ildum ríkisins í stjórnarskrá.
Lagaspekingum ber ekki saman
um hvort slíkar heimildir sé að
finna samkvæmt núgildandi
lögum en brýnt er að taka af-
stöðu til málsins sem fyrst en
ekki við eitthvað ákveðið tilefni
þegar á framsalið reynir.
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, segir í grein
sem birtist á heimasíðu Ungra jafn-
aðarmanna í gær að hann geti ekki
hugsað sér neitt betra í tilefni ald-
arafmælis heimastjórnarinnar en
að alþingismenn sameinist um að
ráðast í umbætur á stjórnarskrá
lýðveldisins. í grein þingmannsins
kemur meðai annars fram að hann
telur ástæðu til þess að endurskoða
sérstaklega samband ríkis og kirkju
og hvort ekki eigi að búa svo um
hnúta að hægt sé að framselja þætti
úr löggjafar- og dómsvaldi til al-
þjóðastofnana.
Einar Páll Tamimi, lektor og for-
stöðumaður Evrópuréttarstofnunar
Háskólans í Reykjavík, bendir á að
sumir telja slíka heimild þegar finn-
ast í núgildandi lögum á meðan aðr-
ir telja svo ekki vera og vísar til
greinaskrifa lagaprófessoranna
Davíðs Þórs Björgvinssonar og Jóns
Steinars Gunnlaugssonar um þetta
málefni íyrr á árinu. Þar hélt Davíð
Þór því fram að framsal valdheimilda
ríkisins til alþjóðlegra stofnana væri
upp að vissu marki heimilt sam-
kvæmt núgildandi lögum en Jón
Steinar er ekki á sama máli og telur
að slíkar heimildir verði að setja í lög.
Það er því umdeilaniegt hvort heim-
ildir til framsals á löggjafar- eða
dómsvaldi séu til staðar samkvæmt
núgildandi lögum eða ekki.
Hvort ekki eigi að búa
svo um hnúta að hægt
sé að framselja þætti úr
löggjafar- og dómsvaldi
til alþjóðastofnana.
Einar Páll segir hins vegar að ekki
verði hjá stjórnarskrárbreytingum
komist ef ísland hyggst ganga inn í
Evrópusambandið. Því telur hann
æskilegt að afstaða til framsals á
valdheimildum rfkisins og hugsan-
legum stjórnarskrárbreytingum
verði tekin sem fyrst en ekki við
eitthvað ákveðið tilefni þegar á
framsalið mun reyna. -áb
VILL BREYTA STJÓRNARSKRÁ: Össur Skarphéðinsson vill að stjórnarskrá lýðveldisins verði tek-
in til endurskoðunar á næsta ári. Meðal annars vill hann kanna hvort ekki sé mögulegt að setja
ákvæði í stjórnarskrána um framsal á valdheimildum ríkisins til alþjóðlegra stofnana.
Frjálslyndir funda um málefni Gunnars Örlygssonar:
Afsagnar varla
Þingflokkur Frjálslynda flokks-
ins fundaði fyrir helgi um mál
Gunnars Örlygssonar, þing-
manns flokksins í Suðvestur-
kjördæmi, sem nú afplánar
dóm fyrir kvótasvindl og fleira í
fangelsi.
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður flokksins, segir að mál
Gunnars Örlygssonar hafi verið eitt
af þeim málum sem rædd voru á
þingflokksfundinum.
Niðurstaðan varð sú að beðið
yrði þar til Gunnar kæmi úr fangelsi
í byrjun næstu viku, þá yrði haldinn
annar þingflokksfúndur og þessi
mál rædd ofan í kjölinn og Gunnari
gefinn kostur á að svara fyrir sig.
Hann mun hins vegar ekki setjast á
þing þegar það verður sett 1. októ-
ber nk. þar sem hann á eftir að af-
plána hluta refsingar sinnar. Hann
á eftir að sinna samfélagsþjónustu
og fyrr tekur Gunnar ekki sæti á Al-
þingi.
„Við viljum ræða þess mál beint
við hann áður en við gefum ein-
hverja sérstaka yfirlýsingu frá okk-
ur um þetta mál. Þetta mál er okkur
alls ekki léttbært, en á að refsa
mönnum eftir að þeir hafa tekið út
sína refsingu?" segir Guðjón Arnar
Kristjánsson.
Niðurstaðan varð sú að
beðið yrði þar til Gunn-
ar kæmi úr fangelsi í
byrjun næstu viku
- Teljið þið að Gunnar hafi leynt
forystu flokksins og aðra þingmenn
stöðu sinni gagnvart dómskerfmu
og að fleiri mál biðu þess að verða
tekin fyrir?
„Hann hefur ekki sagt okkur allt,
alls ekki fyrir kosningar og ekki
heldur eftir þær.“
- Hafa þær raddir heyrst að hon-
um beri að segja af sér þing-
mennsku?
„Það hefur ekki verið mikið um
það og ég tel varla að það komi til
greina að krefjast þess.“
Það var síðan haft eftir Gunnari í
viðtali í Fréttablaðinu um helgina
að hann sæi enga ástæðu til þess að
segja af sér þingmennsku vegna
málsins. Enn fremur gagnrýndi
hann umfjöllun fjölmiðla af málinu
og sagði hana hlutdræga auk þess
sem hann lýsti yfir óánægju á fram-
göngu samflokksmanna sinna
vegna málsins, sérstaklega Magn-
úsar Þórs Hafsteinssonar.
gg@dv.is/-áb