Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2003, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 15.SEPTEMBER2003 FRÉTTIR 13
Höfum efni á írak
BANDARÍKIN: DickCheney,
varaforseti Bandaríkjanna, vís-
aði í gær á bug vangaveltum
manna um að Bandaríkin
hefðu ekki efni á vaxandi
kostnaði við stríðið í írak og
eftirmála þess. Hann viður-
kenndi þó að enn væri ekki
Ijóst hver endanlegur kostnað-
ur yrði. „Hugmyndirn um að
við getum ekki varið Bandarík-
in er heimskuleg," sagði Chen-
ey. Stjórnvöld hafa sætt harðri
gagnrýni að undanförnu
vegna gríðarlegs kostnaðar
við hernám íraks.
Colin Powell utanríkisráðherra
sagði að ef Bandaríkin létu
undan alþjóðlegum þrýstingi
um að koma völdum of fljótt í
hendur fraka yrði það dæmt til
að mistakast.
Systir skotin til bana
BANDARÍKIN: Lögreglan í Los
Angeles hefuryfirheyrt nokkra
menn í tengslum við morðið á
elstu systur tennisstjarnanna
Serenu og Venus Williams.
Yetunde Price var skotin til
bana í róstusömu fátækra-
hverfi Los Angeles aðfaranótt
sunnudags, hverfinu þar sem
systurnar ólust upp. Fjölskyld-
an sendi frá sér yfirlýsingu þar
sem hún sagðist vera miður
sín vegna atburða þessara.
Sjónvarvottar segja að
Yetunde hafi verið skotin fyrir.
utan yfirgefið hús. Áður hafði
komið til hvassra orðaskipta
milli Price og íbúa f hverfinu.
Síðustu fréttir herma að búið
sé að handtaka einn mann.
Eistar í ESB
EISTLAND: Eistar samþykktu
með yfirgnæfandi meirihluta
að ganga í Evrópusambandið í
þjóðaratkvæðagreiðslu í gær.
Þegar búið var að telja öll at-
kvæðin höfðu fylgjendur ESB
fengið 66,9 prósent en and-
stæðingar 33,1 prósent. „Vorið
er aftur komið til Eistlands, við
erum aftur hluti Evrópu," sagði
forsætisráðherrann.
Ráðherrafundur WTO fór út um þúfur:
Hnattvæðingarfjendur
hrósuðu sigri í Cancun
FAGNAÐ í CANCUN: Andstæðingar hnattvæðingar gátu ekki leynt gleði sinni þegar til-
kynning barst um að ráðherrafundur Heimsviðskiptastofnunarinnar (WTO) í mexíkóska
baðstrandarbænum Cancun hefði farið út um þúfur. Ágreiningur ríkra þjóða og fátækra
um allt milli himins og jarðar, þó aðallega landbúnaðarmál, varð til þess að fulltrúarnir
fóru tómhentir heim.
Andstæðingar hnattvæðingar
fögnuðu mjög þegar ráðherra-
fundur Heimsviðskiptastofnun-
arinnar (WTO) fór út um þúfur í
baðstrandarbænum Cancun í
Mexíkó í gær. Þeim tókst þó
ekki að skapa jafnmikla ringul-
reið nú og í Seattle 1999. Talið
er að nokkurn tíma taki að
koma aftur á viðræðum.
Hnattvæðingarfjendurnir fóru
inn í ráðstefnumiðstöðina þar sem
ráðherrar WTO sátu á fimm daga
fundi og héldu á lofti borðum sem
á var ritað: „Við sigruðum."
Samningaviðræður ráðherranna
um aukið frelsi í heimsviðskiptum
runnu út í sandinn vegna ágrein-
ings ríkra þjóða og þróunarland-
anna um allt frá ríkisstyrkjum til
landbúnaðar til nýrra reglna um
viðskipti.
Litlar líkur eru nú taldar á að tak-
ist að koma saman nýju samkomu-
lagi um heimsviðskipti fyrir lok
næsta árs, eins og stefnt hefur verið
að, hnattvæðingarandstæðingum
til óblandinnar gleði.
Hvað sögðum við?
Fátækar þjóðir sögðust hafa
unnið pólitískan sigur á fundinum í
Cancun. Þær hefðu sannað að hin-
ir ríku gætu ekki lengur þvingað
þær til að fallast á slæman samn-
ing. „Við höfum alltaf varað við því
að þetta myndi gerast ef menn
hlustuðu ekki á þróunarlöndin,"
sagði Rafidah Aziz, viðskiptaráð-
herra Malasíu, eftir fundinn. Ro-
bert Zoellick, viðskiptafulltrúi
Bandaríkjastjórnar, sagði að fund-
urinn í Cancun hefði farið út um
þúfur af því að fulltrúar margra fá-
tækra landa hefðu haft óraunhæfar
hugmyndir hversu mikið væri hægt
að kreista út úr ríku löndunum án
þess að gefa nokkuð á móti.
„Nú verða þeir að horfa framan í
blákaldan veruleika þeirrar stefnu
sinnar og koma tómhentir heim,"
sagði Robert Zoellick.
Ummælum Ehuds
Olmerts métmælt
Ummæli Ehuds Olmerts, að-
stoðarforsætisráðherra ísraels,
um að ísraelsk stjórnvöld útlok-
uðu ekki þann möguleika að
láta drepa Yasser Arafat, hafa
valdið mikilli reiði víða um
heim.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, er einn þeirra sem
hefúr gagnrýnt ummæli Olmerts og
sagði að ef Arafat yrði annaðhvort
drepinn eða hrakinn í útlegð myndi
það aðeins kalla fram aukna ólgu í
arabaheiminum og öðrum mús-
límskum ríkjurn heims.
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, varaði einnig við því að
hreyft yrði við Arafat og benti á að
með þvf væri einnig verið að ráðast
STUÐNINGSMENN ARAFATAS: Stuðnings-
menn Arafats þustu þúsundum saman út
á götur Vesturbakkans og Gaza í gær.
gegn andlegum leiðtoga. Þúsundir
stuðningsmanna Arafats flykktust
út á götur á Vesturbakkanum og
Gaza-svæðinu í gær til þess að sýna
honum stuðning sinn.
Vörubílar og vinnuvélar
Umsjón efnis: Geir Guðsteinsson,
netfang: gg@dv.is
Umsjón auglýsinga: Ingibjörg
Gísladóttir í síma 550 5734,
netfang: inga@dv.is.
Aukablað fylgir Magasín um
Heimili, Lífsstíl og fasteignir
fimmtudaginn 18. september
um vörubíla og vinnuvélar.
Vinnuvélablaðið verður eins og jafnan
stútfullt af áhugaverðu og skemmtilegu
efni um hvaðeina sem lýtur að
vinnnuvélum og þeim sem vinna við þær.
Blaðamenn fara um víðan völl og taka
þjóðsagnapersónur úr bransanum tali.
Auk viðtala verður fjallað um spennandi
nýjungar og nýjustu tækjum og tólum
verða gerð skil.
Magasín er dreift í 82 þúsund eintökum