Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2003, Page 6
6 FRÉTTIR MÁNUDACUR 15. SEPTEMBER 2003
Löggiltur fasteignasali í Reykjavík:
Margkærður fyrir meint
misferli með vörslufé
Löggiltur fasteignasali, sem
rekur fasteignasölu í Reykjavík,
hefurá undanförnum misserum
verið kærður til lögreglu fyrir
meint misferli með vörslufé.
Málin sem upp hafa risið eru
misjafnlega langt komin í rann-
sókn. Þá hafa einhverjar af kærum
þeim sem lagðar hafa verið fram á
manninn verið dregnar til baka
þegar hann hefur, seint og um síð-
ir, afhent viðkomandi viðskiptavin-
um vörsluféð. Samkvæmt upplýs-
ingum sem DV hefur aflað sér er
um að ræða verulegar fjárhæðir
vörslufjár sem fasteignasalinn hef-
ur ekki staðið skil á.
Umræddur fasteignasali var fé-
lagsmaður í Félagi fasteignasala.
Fyrir alllöngu var honum vísað úr
félaginu vegna rökstudds gruns um
slæmar viðskiptavenjur. Honum
hefur verið vísað úr félaginu og
dómsmálaráðuneytinu gert viðvart
um meintar slæmar viðskiptavenj-
ur hans.
Sem dæmi um mál sem upp hafa
risið má nefna lögreglukæru á fast-
eignasalann fyrir að hafa í heimild-
arleysi innleyst húsbréf upp á tæp-
ar 6 milljónir króna fyrir viðskipta-
vin og látið leggja andvirði þeirra
inn á reikning eigin fasteignasölu.
Viðskiptavininum hafi verið alls
------------------
'l'
MEINT MISFERLI: Samkvæmt upplýsingum sem DV hefur aflað sér er um að ræða verulegar fjárhæðir vörslufjár sem fasteignasalinn hefur
ekki staðið skil á.
ókunnugt um þann gjöming. Hafi
fasteignasalinn síðan neitað að
endurgreiða honum andvirðið.
Viðskiptavinurinn kærði fast-
eignasalann til lögreglu, en hinn
síðarnefndi hafði þá haldið vörslu-
fénu á reikningi fasteignasölu sinn-
ar um margra mánaða skeið. Hafði
viðskiptavinurinn fengið óljós svör
þegar hann spurði um húsbréf sín
hjá fasteignasalanum. Greip hann
því til þess ráðs að kæra. Þá lét fast-
eignasalinn vörsluféð af hendi og
var kæran dregin til baka.
Fleiri mál af svipuðu tagi eru til
meðferðar hjá lögfræðingum, sem
aðstoða fólk við að innheimta fjár-
muni sína sem fasteignasalinn hef-
ur í sinni vörslu.
Af öðrum málum sem farið hafa í
lögreglurannsókn má nefna kaup á
atvinnuhúsnæði í Reykjavík. Um-
ræddur fasteignasali og annar aðili
ákváðu í sameiningu að festa kaup
á hæð til að hýsa atvinnurekstur
sinn. Maðurinn gaf fasteignasalan-
um umboð til að ganga frá kaupun-
um og lét hann hafa fjármuni í því
skyni. Fasteignasalinn gerði svo en
keypti eignina einungis í sínu
Sem dæmi um málsem
upp hafa risið má
nefna lögreglukæru á
fasteignasalann fyrir
að hafa í heimildarleysi
innleyst húsbréfupp á
tæpar 6 milljónir króna
fyrir viðskiptavin og
látið leggja andvirði
þeirra inn á reikning
eigin fasteignasölu.
nafni. Maðurinn staðfesti í samtali
við DV að málaferli hafi risið vegna
þessa gjörnings fasteignasalans.
Það skal undirstrikað að átt er við
einn og sama fasteigasalann í öll-
um tilvikum í umfjöllun DV í dag.
-JSS
Viðskiptavinurfasteignasalans:
Varð að rifta kaupsamningi
Einn af viðskiptavinum fast-
eignasalans, sem DV fjallar um í
dag, þurfti að rifta kaupsamn-
ingi á íbúð og kæra til lögreglu
þar sem hann fékk ekki afhenta
þá fjármuni sína sem umræddur
fasteignasali hafði í vörslu sinni.
Viðskiptavinurinn hefur nú fengið
greiddan hluta fjárhæðarinnar en
enn standa eftir 1,3 milljónir króna
með vöxtum sem fasteignasalinn
hefur ekki innt af hendi. Rannsókn
málsins er nú lokið og er það á borði
ríkissaksóknara, að því er viðskipta-
vinurinn staðfesti við DV.
Samkvæmt upplýsingum, sem DV
hefur aflað sér, var það í nóvember
2002 sem gengið var frá kaupsamn-
ingi á tiltekinni íbúð. Kaupandinn
greiddi þá í ávísunum hátt á fjórðu
milljón króna, þar sem fbúðin væri
skuldsett fyrir hærri upphæð en til-
boð hans hefði numið. Átti að nota
fjármunina til að aflétta veðskuldun-
um. Þegar kaupandinn hafði sam-
band við fasteignasalann kvaðst
hinn síðamefndi eiga í samningavið-
ræðum við banka sem hann tiltók og
það myndi trúlega ganga ef kaup-
andinn hækkaði sig um 400 þúsund
krónur. Hann kvaðst myndu gera
það en borgaði ekki.
Margra mánaða barátta
Málið stóð nú í þófl svo mánuðum
skipti, eða allt fram á vor 2003. Þegar
kaupandinn krafðist skýrra svara
kvaðst hann hafa fengið þær útskýr-
ingar hjá fasteignasalanum að nú
væri hann að glíma við annan banka.
Á endandum tjáði fasteignasalinn
honum að ekki tækist að landa mál-
inu. Þá lá einungis eitt fyrir kaupand-
anum og það var að rifta kaupsamn-
ingi, sem hann gerði.
Hann gerði tilboð í aðra íbúð og
vildi nú fá fjármuni sína til baka frá
fasteignasalanum. Hinn síðarnefndi
dró málið á langinn, að sögn kaup-
anda, og hætti síðan að svara skila-
boðum og hringingum. Nokkm síðar
tjáði fasteignasalinn þó kaupanda að
peningamir væm bundnir inni á bók
og að ekki væri hægt að ná þeim úr
fyrr en nokkmm dögum síðar. Þegar
sá tími var liðinn sagði hann að pen-
ingamir væm nú veðsettir í bankan-
um en því yrði bjargað á næstu dög-
um.
Kaupandinn sá nú sitt óvænna og
kærði til lögreglunnar. Hann hélt
áfram að mkka fasteignasalann, sem
lofaði ffá degi til dags að láta hann
hafa peningana. Með eftirgangs-
munum hefur kaupandanum nú
tekist að fá meiri hluta upphæðar-
innar greiddan. Hann kveðst eiga 1,3
milljónir króna hjá fasteignasalan-
um í dag, tæpu ári eftir að hann fól
honum fjármuni til að aflétta veð-
skuldum af húsnæði. -JSS
Félagið hefur ekki agavald
yfir fasteignasala sé hann ekki félagsmaður
Þegar upp koma mál af því tagi
sem getið er um í DV í dag eru
afskipti Félags fasteignasala
bundin við að viðkomandi fast-
eignasali sé félagi í FF. Sé hann
það ekki hefur stjórn FF ekki
agavald yfir honum.
Eins og fram hefur komið í um-
fjöllun DV um nýtt fmmvarp
dómsmálaráðuneytisins til laga
um fasteignasölur, er í því gert ráð
fyrir skylduaðild fasteignasala að
FF. Eins og málum er háttað í dag
er mönnum frjálst að velja hvort
þeir em í félaginu eða ekki.
Þá em í fmmvarpinu reglur um
meðferð fasteignasala á vörslufé
viðskiptamanna. Slíkar reglur em
ekki til í lögum í dag. I greinargerð
með fmmvarpinu segir um það at-
riði að það sé bagalegt, því algengt
sé „að fasteignasalar hafi umtals-
verða fjármuni viðskiptamanna
sinna undir höndum, oft í nokkurn
tíma, t.d. til að tryggja afléttingu
áhvílandi veðskulda á réttum tíma
o.fl." Sé brýnt að setja reglur um
meðferð þeirra á slíku vörslufé.
f fmmvarpinu er gert ráð fyrir
mjög hertu eftirliti með störfum
fasteignasala. Núgildandi lög gera
ráð fyrir að dómsmálaráðuneytið
hafi slíkt eftirlit með höndum.
Samskiptanefnd FF
Þau úrræði sem Félag fasteigna-
sala beitir nú tíl að leysa úr ágrein-
ingi er að vísa málum tíl úrskurðar
Samskiptanefndarfélagsins. Um er
að ræða þriggja manna nefnd sem
skipuð er lögfræðingum og löggilt-
um fasteignasölum, sem mikla
reynslu hafa af fasteignasölu. Starf
nefndarinnar er fólgið í því að
skera úr ágreiningi sem upp kann
að koma í fasteignaviðskiptum
milli kaupenda og seljenda og eins
milli fasteignasala annars vegar og
viðskiptavina þeirra, þ.e. kaup-
anda eða seljanda, hins vegar.
Upplýsingar um starfssvið sam-
skiptanefndar koma fram á heima-
síðu félagsins.
Ferli mála sem nefndin fær til
úrskurðar er með þeim hætti að
óski viðskiptavinur fasteignasala
eftir úrskurði hennar vegna við-
skipta sinna skal hann skila ítar-
legri greinargerð um viðkomandi
mál til skrifstofu Félags fasteigna-
sala og þá gjaman láta fylgja grein-
argerðinni öll þau gögn sem hann
telur að styðja muni sinn málstað í
málinu.
Einungis félagar
Samskiptanefndin yfirfer grein-
argerð þessa og sendir erindið síð-
an tíl þess aðila sem málið beinist
gegn og er viðkomandi gefinn kost-
ur á að nýta andmælarétt sinn með
annarri greinargerð.
Málið er síðan tekið fyrir í nefnd-
inni sem gefur út sinn úrskurð að
fengnum framangreindum gögn-
um. Úrskurður nefndarinnar hefur
ekki dómsígildi, þó aðilar hafi í
flestum tílfellum sætt sig við úr-
skurð hennar. Eins hefur álitsgerð
nefndarinnar vegið þungt ef sama
mál fer á síðari stigum fyrir dóm-
stóla.
Kostnaður sem íylgir því að
leggja mál sitt fyrir samskipta-
nefndina er 10.000 krónur
og er hann greiddur um leið og
málið er lagt fram.
Nefndin úrskurðar eingöngu í
málum er snerta félaga í Félagi
fasteignasala, fyrirtækiÝþeirra eða
viðskiptavini. Mjög oft berast fé-
laginu erindi þar sem beðið er um
álitsgerð eða úrskurð varðandi
starfandi fasteignasala semÝekki
eru í félaginu, en fjöldi þeirra mála
er það mikill að ógerningur er að
sinna þeirn. Enda er félaginu með
öllu óviðkomandi starfsemi þeirrá
fasteignasala sem ekki eru í félag-
inu.
-JSS
rÚtlandasímtöl Helms -reisi
Alltað/Upto 2QQ Mínútur/Mlnutes mln
frá kr. ,90 á mín. kr. 1000,- aoo mmutti to »w«dtn, uk. USA
úr heimilíssima Internationai Calling Card
He»lm&Ff• fyrlrframgreidd símaþjónusta Co to the websitc www.simaKort.is for rate tab\s to other countrfos A helmastöunni www.simakort.li er aö tlnna gia'öskra tif annar ra tanoa. j J
Hringió mjög ódýrt til útlanda úr
heimilissíma í heimilissíma
Fæst hjá flestum:
Bensínstöövum
Matvöruverslunum
Söluturnum
www.simakort.is