Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2003, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003
Þórður stjórnarformaður
Fiskistofa svipti 8 báta veiðileyfi
NÝR FORMAÐUR: Áfyrsta
stjórnarfundi nýkjörinnar
stjórnar Framtaks fjárfestingar-
banka hf., sem haldinn var í
morgun, skipti stjórn félagsins
með sér verkum. Ákveðið var
að Þórður Már Jóhannesson,
framkvæmdastjóri Straums,
yrði formaður stjórnar og Úlfar
Steindórsson varaformaður.
Fjárfestingarfélagið Straumur
keypti meirihluta í Framtaki
fjárfestingarbanka íjúní.Varð
þá til stærsta fjárfestingarfélag
landsins en þetta varð upphaf
mikilla sviptinga í fjármála-
heiminum hérlendis sem enn
sér ekki fyrir endann á.
AFLAHEIMILDIR: Fiskistofa hefur
svipt 8 báta veiðileyfi vegna
brota á lögum um nytjastofna
sjávar. Þetta eru Arnar RE-4001
Reykjavík og Vestri BA-63 á Pat-
reksfirði sem hafa á veiðum í at-
vinnuskyni landað afla umfram
aflaheimildir. Bæði skip hafa
fengið veiðileyfi aftur eftir að afla-
marksstaða þeirra hafði verið lag-
færð. Vegna vanskila á afladag-
bókarfrumriti hefur Fiskistofa
svipt Sindra SF-26 á Hornafirði,
Jón Magnússon ST-88 á Drangs-
nesi, Rikka Magg SH-200 frá
Ólafsvík, Sigrúnu GK-17 frá
Grindavík, Nóa ÓF-19 frá Reykja-
vík og Þuru SF-110 frá Hornafirði
veiðileyfi í tvær vikur. Sindri SF-26
og Rikki Magg SH-200 hafa feng-
ið veiðileyfið að nýju eftir að hafa
skilað afladagbókarfrumritinu.
Óká Ijósastaur
UMFERÐARÓHAPP: Ökumaður
og tveir farþegar sluppu
ómeiddir þegar bifreið sem
þeir voru í lenti á Ijósastaur á
Stafnesvegi við Sandgerði um
klukkan hálffjögur í gærdag.
Bifreiðin er talin gjörónýt eftir
áreksturinn en bílbelti eru talin
hafa bjargað fólkinu. Ökumað-
ur bifreiðarinnar er án réttinda
enda einungis 16 ára gamall.
Skarð í stórríki
Evrópusambandsins
segir Ragnar Arnalds. Þýðir verrí lífskjör, segir formaður Evrópusamtakanna.
Stuðningsmenn og andstæð-
ingar aðildar (slands að Evrópu-
sambandinu bregðast með
ólíkum hætti við niðurstöðu
Svía sem höfnuðu aðild að evr-
unni með afgerandi meirihluta í
þjóðaratkvæðagreiðslu í gær.
„Ég myndi segja að Svíar hafi ver-
ið að kjósa yfir sig verri lífskjör í
framtíðinni," segir Andrés Péturs-
son, formaður Evrópusamtakanna.
„En það er eins og Göran Persson
sagði: þjóðin vissi það - og þetta er
skýr vilji þjóðarinnar. En ég held að
hún muni vakna við vondan draum
eftir ekki mjög mörg ár og raunar
hafa Svíar verið að dragast aftur úr
og eru nú í neðsta sæti af Norður-
löndunum miðað við kaupmátt
þjóðartekna."
Andrés telur að niðurstaðan
hefði ekki haft mikil bein áhrif á ís-
landi á hvom veginn sem var, en að
aðild Svía að evmnni hefði getað
haft óbein áhrif vegna áhrifa sem
hún hefði haft í Danmörku og
Englandi, sem standa utan evm-
svæðisins og em mikilvægari við-
skiptalönd fyrir ísland. „En í mín-
um huga er þetta í rauninni spum-
ing um hve lengi menn streitist á
móti þvi óhjákvæmilega," segir
Andrés.
„Úrslitin em stórtfðindi og áhrif
þeirra verða mikil um Ianga fram-
tíð," segir Ragnar Arnalds, formaður
Heimssýnar. „Nú blasir við enn eitt
skarðið í norðvesturmúr hins nýja
stórríkis ESB þar sem Norðmenn,
íslendingar, Færeyingar og Græn-
lendingar halda sig utan ESB en
Danir, Bretar og Svíar standa utan
við evmsvæðið. Úrslitin gera það
enn vonlausara en áður fyrir evm-
sinna eins og Blair í Bretlandi að
fórna pundinu fyrir evm, enda hef-
ur hann bæði mikinn meirihluta
kjósenda á móti sér svo og íhalds-
flokkinn. Óbein áhrif á ESB-umræð-
una á Islandi verða því vemleg. Úr-
slitin minna okkur á að kjósendur í
norðvestanverðri álfunni líta tor-
tryggnum augum á þróun ESB f átt
til stórríkis en upptaka evmnnar er
einmitt ein mikilvægasta varðan á
þeirri leið.“ olafur@dv.is
Íslensk-kanadískt
verslunarráð
(slensk-kanadískt verslunar-
ráð var stofnað í Toronto
föstudaginn 12. september.
Að stofnun þess hefur verið
unnið um nokkurt skeið og hefur
sendiherra íslands í Ottawa,
Hjálmar W. Hannesson, haft
fmmkvæði að þeirri vinnu. Gor-
don Reykdal, forstjóri og aðalræð-
ismaður íslands í Edmonton, var
kjörinn fyrsti formaður verslunar-
ráðsins og Jóhann Valberg Ólafs-
son, svæðisstjóri Eimskips í
Kanada, varaformaður.
Fundurinn fór fram á stærsta
hóteli f Kanada, Delta-Chelsea
hótelinu f Toronto. Þar hefur frá 3.
september átt sér stað kynning á
íslandi sem er hluti af markaðs-
starfi „Iceland Naturally" verkefn-
isins. Það er samstarfsverkefni ís-
lenskra stjórnvalda og fyrirtækja í
Norður-Amerfku.
Valgerður Sverrisdóttir, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, ávarpaði
stofnfundinn og Hugh Porteous,
yfirmaður rannsókna og fyrir-
tækjasamskipta hjá Alcan, hélt er-
indi og lofaði hann mjög íslenskt
viðskiptaumhverfi og samskipti
Alcan við íslensk fýrirtæki og
Stjómvöld.
KOSNINGAR AÐ BAKI: Stuðningsmenn og andstæðingar Evrópusambandsins bregðast
með ólíkum hætti við niðurstöðu Svía sem höfnuðu aðild að evrunni með afgerandi meiri-
hluta í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær.
Fjórir sóttu um stöðu ríkissáttasemjara:
Beðið ákvörðunar
félagsmálaráðherra
Félagsmálaráðuneytið hefur birt
lista yfir umsækjendur í starf rík-
issáttasemjara. Verður nú farið
yfir þessar umsóknir og reynt að
hraða málinu. Ráðuneytið hefur
þó frest til loka október til að
ganga frá ráðningu.
Umsóknarfrestur um embættið
rann út 10. september sl. og bámst
fjórar umsóknir, en umsækjendur
em:
Ásdís J. Rafnar hrl., búsett í
Reykjavík, Ásmundur Stefánsson
framkvæmdastjóri, búsettur f
Garðabæ, Jömndur Ákason kenn-
ari, búsettur í Reykjavík, og Kristján
Pálsson, fyrrverandi alþingismað-
ur, búsettur í Reykjanesbæ. Sess-
elja Árnadóttir, skrifstofustjóri í fé-
lagsmálaráðuneytinu, segir að ráð-
herra hafi frest til að ráða í stöðuna
til loka október. Hún sagðist þó
telja að ekki yrði beðið svo lengi
með ráðninguna. Nú yrði farið yfir
umsóknirnar og reynt að klára mál-
ið sem allra fyrst. Árni Magnússon
félagsmálaráðherra mun skipa í
stöðuna en nýr ríkissáttasemjari
mun taka við embættinu 1. nóvem-
ber nk. af Þóri Einarssyni. Hefur
nafn Ásmundar Stefánssonar, fyrr-
verandi forseta ASÍ, þráfaldlega
borið á góma í því sambandi. Ekki
em þó allir sáttir við þá hugmynd
og héfur Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands íslands, m.a.
talið á því ýmsa annmarka. Hins
vegar hafa bæði forystumenn ASÍ
og Samtaka atvinnulífsins ekki talið
útilokað að Ásmundur myndi sóma
sér vel í þessari stöðu.
hkr@dv.is