Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2003, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 7 7
Besti tölvuhakkarinn
ÖRYGGISMÁL Háskólinn í Hanoi íVí-
etnam heldur sérstaka keppni þessa
dagana, nefnilega keppni þar sem
menn eiga að brjótast inn á vefsíðu
sem sérstaklega hefur verið sett upp
af þessu tilefni. Vefsíðan er vistuð á
netþjóni í skólanum og sá sem er
fyrstur að brjótast inn á síðuna verður
kjörinn besti „hakkari" landsins.Til-
gangurinn með þessari keppni er að
auka vitund fólks um tölvuöryggi og
einnig að vekja athygli tölvu- og hug-
búnaðarfyrirtæki á þeim færustu á
þessu viði í von um að þeir fái vinnu
við sitt hæfi. Þeir sem vilja reyna færni
sína í að brjótast inn í tölvukerfi geta
heimsótt vefsíðuna www. hackt-
hissite.org. Áhugasamir mega hins
vegar ekki nota tileinkaða færni sína í.
þessu fagi til ólöglegs athæfis.
kort eða stærra en 32 er meira en
nóg fyrir skólafólk."
Geymslurýmið
30GB haiöui diskui
„Það er ekkert rosalega mikill
verðmunur frá 20 GB upp í 40 GB.
Hins vegar er meiri munur frá 40
upp í 60 og enn meiri munur frá 60
upp í 80, sem em líklega stærstu
diskarnir. Ég myndi mæla með 40
GB diski.
Annað sem skiptir miklu máli er
snúningshraði disksins, þ.e. hve
hratt tölvan les gögnin af honum.
Ég myndi mæla með 5.400 snún-
inga diski en aðrir em með 4.200
snúninga. Þeir síðarnefndu em
töluvert hægvirkari en á móti kem-
ur að þeir ganga síður á rafhlöðu
tölvunnar."
Geisladrif
CD-RW/DVD combo dríf
„CD-RW þýðir að tölvan getur
brennt gögn á geisladiska. [RW
stendur fyrir Re-Writeable.j Það er
ekki óvitlaust að hafa brennara því
að það er eiginlega besta leiðin til
að koma gögnum af tölvunni, til
dæmis þegar skila þarf verkefnum.
Og það er ekki miklu dýrara en að
sleppa því.“
Módem og netkort
hmbyggt modem, 10/100 etbei-
netkoit“
„Þetta er annars vegar venjulegt
módem og hins vegar netkort sem
þarf að stinga í samband til þess að
tengjast tölvukerfi."
Þráðlaust net
hmbyggt WIFI, þiáölaust netkoit
„Þetta gerir fólki kieift að tengjast
Netinu þráðlaust ef sendir hefur
verið settur upp í nágrenninu, ann-
aðhvort heima hjá fólki eða í skól-
anum svo að dæmi séu tekin. Lang-
flestir háskólar á höfuðborgar-
svæðinu em með senda þannig að
það er mjög skynsamlegt fyrir há-
skólanema að hafa þennan búnað.
Skynsamlegt væri að kanna fyrir
fram hvort sendar hafa verið settir
upp þar sem tölvan verður mikið
notuð." [Hér má nefna að þráðlaust
netsamband stendur tii dæmis til
boða í Kringlunni. Einnig skai bent
á að þessi búnaður er ekki mjög dýr
og kostar í þessu tiitekna tilboði
5.400 krónur.]
Rafhlaðan
6 klukkustunda bleðsla
„Eins og ég nefndi áðan er orku-
nýting Pentium M örgjörvans tals-
vert betri en annarra. Hann keyrir á
lægri kfukkuhraða (GHz) og sparar
því rafmagn. Mér sýnist að tvær
klukkustundir á Pentium 4 vél séu
alveg viðunandi og um þrjár til fjór-
ar kfukkustundir á Pentium M.“
Stýrikerfið
Windows XP Professional
Gunnar Smith minnir á
að dýrustu hlutar tölv-
unnar eru skjárinn og
örgjörvinn. Samtals sé
þetta um helmingur af
verði hverrar tölvu.
„Windows XP stýrikerfln em til í
„Home“-útgáfu og „Professional".
Það verður að segjast eins og er að
„Home“-útgáfan hefur átt í basli
með að tengjást Netinu. Fólk hefur
lent í vandræðum með það. Upp á
Netið að gera er því betra að nota
„Professionaf", sérstaklega þó upp
á þráðlausar tengingar."
Niðurstaða
En hvernig er þá best að spara?
Hvar á að skera niður? Gunnar
Smith minnir á að dýmstu hlutar
tölvunnar em skjárinn og ör-
gjörvinn. Samtals sé þetta um
helmingur af verði hverrar tölvu.
„Ef maður sættir sig við minni
skjá eða minni upplausn eða minni
örgjörva má spara umtalsvert. Svo
er það nánast regla að léttari tölvur
em dýrari en þyngri tölvur. Þarna
má því spara ef þyngd skiptir fólk
ekki höfuðmáfi," segir Gunnar.
Lesendum er auk þess bent á vef
tölvutímaritsins PC-Magazine,
www.pcmag.com, en þar er ágætur
leiðarvísir fyrir þá sem hyggja á far-
tölvukaup. Á forsíðu er smellt á
„Notebooks" undir fyrirsögninni
„Product Guides". Á síðunni sem
þá kemur upp er hlekkur á ítarleg-
an leiðarvísi, „How to Buy Note-
book PC’s".
Að lokum er rétt að vitna í nýlega
auglýsingu á þekktum og vinsælum
fartölvum sem sýnir að þótt sölu-
menn vilji gjarnan selja dýran bún-
að em þeir líka hæfilega jarð-
bundnir. Um ódýmstu tölvuna sem
í boði er - og kostar aðeins tæpar
100.000 krónur - segir í auglýsing-
unni: „Dugar vel í allt almennt
skólaumhverfí“. olafur@dv.is
NÁMI&. Fartölvur eru orðnar nær ómissandi fyrir nemendur en flestir virðast falla í þá
gryfju að kaupa of dýrar og of öflugarvélar.
ÞETTA GERIST ÞEGAR
VIÐ HÆTTUM AÐ REYKJA!
Nokkrir lesendur hafa haft
samband og spurt um hvaö
gerist í líkamanum þegar við
hættum aö reykja. Þá hefur
einnig veriö spurt um hvort það
breyti einhverju að hætta, hvort
skaöinn sé ekki þegar skeöur.
Þessu vil ég svara að þó svo
að tóbakið sé afar skaðlegt
heilsu okkar, þá er aldrei of seint að hætta!
Lítum aðeins á hvað gerist í líkama okkar þegar
við hættum. Ég var eitthvað búin að fjalla um
þetta í sumar, en bæti hér ýmsu inn í:
Eftir 24 klst.: Hættan á að fá kransæðastíflu hefur
minnkað.
Eftir 48 klst.: Kolsýrlingur í blóðinu er horfinn og
líffæri líkamans eru hætt að þjást vegna
súrefnisskorts.
Eftir 2 vikur: Blóðrás og lungu eru orðin virkari,
súrefnisupptaka hefur aukist og úthald sömuleiðis.
Eftir 4 vikur: Hósti og sýkingar í ennisholum eru
horfin og mæði hefur minnkað. Þreyta hefur minnkað
og orka aukist, líkur á sýkingum í lungum hafa
minnkað.
Eftir 1 ár: Hætta á að fá hjartasjúkdóma er helmingur
miðað við þá þeim sem reykja.
Eftir 5 ár: Hættan á að fá krabbamein í munni,
hálsi, vélinda og lungum hefur helmingast. Hættan
að fá blóðtappa er mun minni.
Eftir 10 ár: Nýjar og friskar frumur hafa myndast
í öndunarvegi. Hættan á að fá krabbamein er nú
u.þ.b. eins og hjá fólki sem aldrei hefur reykt.
Guöbjörg Pétursdóttir,
hjúkrunarfræðingur.
Þetta gerist þegar við hættum að reykja:
Eftir 20 mínútur: Blóðþrýstingur og púls hefur
lækkað og blóðrásin batnað.
Eftir 8 klst.: Kolsýrlingur í blóðinu hefur minnkað
um helming og blóðið er farið að flytja súrefni á
eðlilegan hátt.
Hver vinnur ferð til London
eða Kaupmannahafnar?
Farðu inn á dv.is og staðfestu þátttöku sína,
með því að smella á þar til gerðan reit og fylgja
síðan fyrirmælunum! Meðal annars þarf að rekja
í stuttu máli, hvernig til tókst í átakinu!
Nicotinell tyggigúmmí er lyf sem er notað sem hjálparefni til að hætta eða draga úr reykingum. Það inniheldur nikótín sem losnar þegar
tuggið er, frásogast í munninum og dregur úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt. Tyggja skal eitt stykki í einu, hægt og rólega
til að vinna gegn reykingaþörf. Skammtur er einstaklingsbundinn, en ekki má tyggja fleiri en 25 stk. á dag. tkki er ráðlaat að nota lyfið
lengur en 1 ár. Nikótln getur valdið aukaverkunum, s.s. svima, höfuðverk, ógleði, hiksta og ertingu í meltingarfærum. Sjúklingar með
slæma hjarta- og æðasjúkdóma eiga ekki að nota nikótínlyf nema í samráði vió lækni. Nicotinell tyggigúmmí er ekki ætlað börnum yngri
en 15 ára nema f samráði við lækni. Kynnið ykkur vel leiðbeiningar sem fylgja pakkningunni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.