Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2003, Qupperneq 12
72 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBERl2003
Útlönd
Heimurinn í hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is
Sími: 550 5829
Straw vildi ekki í stríð
BRETLAND: Jack Straw, utan-
ríkisráðherra Bretlands, sár-
bændi Tony Blair forsætisráð-
herra um að senda ekki breska
hermenn til að berjast í (rak og
reyndi að telja honum hug-
hvarf fram á síðustu stundu.
Þetta kemur fram í nýrri bók,
Stríð Biairs, eftir blaðamanninn
John Kampfner.
Höfundurinn heldur því fram
að Straw hafi ekki litist á blik-
una að fara í stríð án umboðs
Sameinuðu þjóðanna.
Fjórum dögum fyrir innrásina
skrifaði Straw bréf til Blairs þar
sem hann hvatti forsætisráð-
herrann til að segja Bush
Bandaríkjaforseta að Bretar
myndu veita honum siðferði-
legan og pólitískan stuðning
við stríðsreksturinn.
Vinstristjórn
GRÆNLAND: Vinstriflokkurinn
Inuit Ataqatigiit, sem hefur
sjálfstæði Grænlands á stefnu-
skrá sinni, hefur myndað stjórn
með krataflokknum Siumut.
Grænlenska þingið kemur
saman í dag til að samþykkja
stjórnarmyndunina. Liðsmenn
lA eru andvígir því að Ratsjár-
stöðin ÍThule verði hluti af eld-
flaugavarnakerfi BNA.
Svíar höfn-
uðu evrunni
Svíar höfnuðu því í gær með
afgerandi hætti að taka upp
evruna sem gjaldmiðil landsins
í þjóðaratkvæðagreisðlu sem
fram fór í skugga morðsins á
Önnu Lindh, utanríksráðherra
Svíþjóðar, á miðvikudaginn.
Þátttaka í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni var nokkuð góð, eða 81,2%, en
alls greiddu 56,1% atkvæði gegn
evrunni en 41,8% voru meðmælt
en 1,9% skiluðu auðu.
Niðurstöður koma nokkuð á
óvart eftir að fylkingar með og á
móti höfðu mælst nær jafnar í
síðustu skoðanakönnunum sem
birtar voru í gær eftir að and-
stæðingar evrunnar höfðu haft
nokkra yfirburði í fyrri könnunum.
Mikið áfall fyrir Persson
Úrslitin þykja mikið áfall fyrir
Göran Persson, forsætisráðherra
Svíþjóðar, sem barðist harðri bar-
áttu fyrir upptöku evrunnar, en
hann sagði í gær þegar fyrstu tölur
lágu fyrir að þetta væri afgerandi
sigur fyrir andstæðinga evrunnar.
EVRU-LÖND
Evran er nú gjaldmiðill
eftirtalinna landa:
Austurríki, Belgía, Finnland, Frakk-
land, Þýskaland, Grikkland, Hol-
land, írland, Italía, Lúxemborg,
Portúgal og Spánn.
„Úrslitin sýna að Svíar hafa miklar
efasemdir um ágæti evrunnar. Til
lengri tíma litið munu möguleikar
okkar á að vera með í mikilvægri
ákvarðanatöku minnka," sagði
Persson sem aðspurður sagðist
ekki ætla að segja af sér embætti
vegna ósigursins.
„Ég hef alltaf sagt að þetta væri
ekki kosning um traust á ríkis-
stjórninni," sagði Persson.
Romano Prodi, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, tók undir með Persson
og sagði að vissulega myndi áhrifa-
máttur Svía minnka. „í síðustu viku
fundaði ég með fjármálaráðherrum
Þátttaka í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni
var góð, eða 81,2%, en
alls greiddu 56,1 % at-
kvæði gegn evrunni en
41,8% voru meðmælt.
Evrópusambandslandanna þar
sem framtíðarhorfurnar í efna-
hagsmálum Evrópu voru ræddar.
Svíar áttu engan fulltrúa þar og
geta því ekki haft sín áhrif," sagði
Prodi og bætti við að sigur evru-
andstæðinga hefði verið meira
afgerandi en hann átti von á.
Sigur grasrótarinnar
Andstæðingar evrunnar fögnuðu
sigrinum innilega og sagði Ulla
Hoffman, leiðtogi Vinstriflokksins,
að þetta hefði verið sigur grasrótar-
innar. „Fólkið hefur spyrnt við fæti
og sýnt að lýðræðið kemur að neð-
an en ekki að ofan," sagði Hoffman
en flokkur hennar barðist harðri
„grasrótarbaráttu" gegn upptöku
evrunnar ásamt græningjum og
öðrum stjórnarandstöðuflokkum
sem vöruðu við því að með upp-
töku evrunnar myndi vöruverð
hækka og framlög til velferðarmála
lækka.
„Mér er mjög létt,“ sagði græn-
inginn Carl Schlyter en andstæð-
ingar evrunnar óttuðust það mjög
að morðið á Önnu Lindh myndi
kalla fram samúðarviðbrögð og þar
með auka fylgið við evruna en segja
má að Lindh hafl verið andlit „JÁ-
baráttunnar" fyrir upptöku evr-
unnar.
Forystumenn í viðskiptalífmu
voru óhressir með úrslitin og sögðu
að þau myndu fyrst og fremst
skaða sænskan iðnað. „Við munum
krefja stjórnvöld skaðabóta," sagði
einn forystumaður þeirra.
Einnig fagnað eriendis
Úrslitunum var einnig fagnað í
öðrum Erópulöndum og þykja þau
vatn á myllu andstæðinga
evrunnar bæði í Bretlandi og
Danmörku sem auk Svfþjóðar eru
einu ESB-löndin sem ekki hafa
tekið upp evruna en nýleg
skoðanakönnun í Danmörku sýndi
að 56% Dana eru nú hlynntir
upptöku evrunnar.
Anders Fogh Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, sem nú
stendur frammi fyrir þvf að leiða
Dani inn á evrusvæðið, sagði að
úrslitin í Svíþjóð breyttu engu um
afstöðu hans til evrunnar.
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, sagðist harma úrslitin í
Svíþjóð en bætti við að dyrunum
ekki verið lokað á Svía. „Þeir geta
seinna meir ákveðið að taka upp
evruna ef þeir vilja," sagði Schröd-
er.
Andstæðingar evrunnar í Bret-
landi sögðu að úrslitin sýndu að
meirihluti Svía hefði gert sér grein
fyrir auknum efnahagsvanda á
evru-svæðinu og því ákveðið að
segja nei.
„Úrslitin í Svíþjóð styðja þá af-
stöðu okkar að upptaka evrunnar
sé Bretum ekki til hagsbóta," sagði
íhaldsmaðurinn Michael Ancram.
PERSSON JÁTAR SIG SIGRAÐAN: Úrslitin
þykja mikið áfall fyrir Göran Persson.
Rannsóknin á morðinu á Önnu Lindh utanríkisráðherra:
Lögreglan leitar að
þekktum hnífamanni
Sænska lögreglan leitaði í nótt
að þekktum hnífamanni í
tengslum við morðið á Önnu
Lindh utanríkisráðherra. Lög-
reglan telur að hann sé maður-
inn sem sést á upptökum eftir-
litsmyndavéla í vöruhúsinu ör-
fáum mínútum áður en ráðist
var á ráðherrann.
„Við erum sannfærðir um að
hann er í Stokkhólmi," segir lög-
regluþjónn, sem vinnur við rann-
sókn morðsins, við sænska blaðið
Aftonbladet í morgun. „Ég held að
við munum góma hann á næstu
tveimur sólarhringum."
Að sögn blaðsins er maðurinn
rúmlega þrftugur og hefur búið í
Stokkhólmi í mörg ár. Hann komst
fyrst í kast við lögin á ofanverðum
níunda áratug síðustu aldar. Hann
hafði þá sveiflað hnífi og haft í hót-
unum við fólk. Hann hefur verið
dæmdur fyrir nokkur smábrot en
undanfarin ár hefur lögreglan eng-
ar spurnir haft af honum.
Sydsvenska Dagbladet segir í
morgun að umræddur maður tali
sænsku og að hann hafi talað við
fjölda sjónarvotta eftir að hann
hafði framið ódæðið.
Hnífurinn sem notaður var til að
stinga Önnu Lindh f vöruhúsi í
miðborg Stokkhólms á miðviku-
dag var sendur í nótt til Bretlands
þar sem hann verður settur í rrijög
nákvæma DNA-rannsókn.
Myndir af meintum ódæðis-
manni voru sýndar almenningi í
gær en að sögn sænsku fréttastof-
unnar TT hafa lögreglunni ekki
borist neinar markverðar upplýs-
ingar í nótt.
ÞEKKTUR HNÍFAMAÐUR: Stokkhólmslögreglan telur sig vita hver maðurinn sé sem sést
á upptökum eftirlitsmyndavéla í NK-vöruhúsinu nokkrum mínútum áður en ráðist var á
Önnu Lindh utanríkisráðherra og hún stungin til bana.