Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2003, Síða 18
34 FRÉTTIR MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003
Að hugsa eins og stjórnmálamaður
LÍKAMI OG SÁL
Guðjón Bergmann
yoga&gbergmann.is
Eitt af því sem veldur mikilli
streitu í samtímasamfélagi er
stöðug leit okkar að samþykki
fyrir þeirri hegðun sem við sýn-
um hverju sinni.
Margir eru svo illa haldnir af
þessari hugsun að tíu hrósyrði vega
lítið gegn örlitlu mótlæti eða gagn-
rýni af hálfu eins aðila. Við öðlumst
gífurlegt frelsi með því að átta okk-
ur á því að okkur mun aldrei líka
við alla og öllum mun aldrei líka við
okkur.
Leikur að prósentum
Að þessu leyti er gott að líkjast
stjórnmálamanni í hugsun. Á kosn-
ingatímum eru stjórnmálamenn
ansi sniðugir að lesa úr prósentu-
tölum sér í hag. Ekki verður mælt
_ gegn því að stjórnmálamaður eða
flokkur sem fær rúmlega fimmtíu
prósent atkvæða hefur unnið stór-
sigur. Ef um minni flokka er að
ræða geta rúm tíu prósent atkvæða
Með því að heimfæra
þessa hugsun á okkar
eigin lífsjáum við
glögglega að við vinn-
um stórsigur þegar
» rúmum helmingi þeirra
sem við hittum yfir
daginn líkar við okkur.
þýtt slíkt hið sama.
Með því að heimfæra þessa
hugsun á okkar eigin líf sjáum við
glögglega að við vinnum stórsigur
þegar rúmum helmingi þeirra sem
við hittum yfir daginn líkar við okk-
ur. Bjartsýnisverðlaunin fá hins
vegar þeir sem líta á það sem sigur
þegar hlutfallið er einungis tíu pró-
sent.
Þegar hópurinn stækkar
Flest okkar eru í þeim sporum að
%■ einungis lítill hluti þeirra sem við
hittum veitir okkur sýnilegt mót-
læti. Gróflega áætlað mætti giska á
að meginþorri landsmanna upplifi
einungis alvarlega gagnrýni frá
flmm til tíu prósentum þeirra sem
þeir hitta dag hvern. Ef þú þekkir
tíu manns má búast við að einn
þeirra sé þér einhverra hluta vegna
mótfailinn.
Ef hópurinn stækkar má búast
við því að hlutföllin haldi sér
nokkurn veginn. Af hundrað
mönnum væru tíu sem ynnu gegn
þér. Af þúsund mönnum yrðu þeir
hundrað. Af tíu þúsund yrðu þeir
þúsund o.s.frv.
Eftir því sem fólk verður þekktara
í sínu samfélagi má búast við að
hlutföllin haldi sér á milli þeirra
sem eru því sammála og þeirra sem
gagnrýna það. Ef þú byrjar í tíu
manna hópi þar sem fjórir vinna
Lærðu að vera bjart-
sýnismanneskja í hegð-
un, hugsa eins og
stjórnmálamaður og
túlka allar niðurstöður
þéríhag.
gegn þér má búast við að hlutföllin
haldi sér þegar hópurinn stækkar
nema þú breytir um hegðun.
Ekki breyta um hegðun
Enginn getur að fullu útskýrt
hvers vegna mönnum líkar ekki
hverjum við annan. Við höfum öll
lent í því að hitta að sögn „góða"
manneskju sem okkur líkar ekki
við. Á því er engin ein skýring. Við
skulum því fara varlega í að breyta
heðgun okkar svo að öðrum líki
betur við okkur. Töluverðar lfkur
eru á að aðrir verði okkur áfram
mótfallnir þrátt fyrir breytingu á
hegðun. Eina ástæðan til að íhuga
alvarlegar hegðunarbreytingar er
sú að okkur líki ekki vel við okkur
sjálf.
Láttu því ekki fara í taugarnar á
þér þegar aðrir eru þér ósammála.
Ef þú trúir staðfastlega á það sem
þú ert að gera skaltu halda þínu
striki og hvika hvergi. Líttu frekar til
hópsins sem styður þig. Lærðu að
vera bjartsýnismanneskja í hegð-
un, hugsa eins og stjórnmálamaður
og túlka allar niðurstöður þér í hag.
Nærðu ræturnar
Maraþonhlauparinn, hugleiðslu-
kennarinn og myndlistamaðurinn
Sri Chinmoy kom með skemmti-
lega líkingu í viðtali sem ég sá við
hann ekki alls fyrir löngu. Hann
líkti manneskjunt við laufblöð og
sagði það frekar óviturlegt að eyða
miklum tíma í að reyna að næra
önnur laufblöð. „Ef við beinum at-
hyglina inn á við,“ sagði hann, „þá
nærum við ræturnar og á endanum
nærir það öll hin laufblöðin líka.“
Hættu að vera upptekinn af því
hvað öðrum flnnst um þig. Flestir
hugsa meira um sjálfan sig en þeir
hugsa nokkurn tíma um aðra. Ef þú
vissir hvað fólk hugsar lítið um þig
myndir þú væntanlega hætta að
hafa áhyggjur af því hvað það er að
hugsa.