Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2003, Síða 30
46 TILVERA MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003
Bowie man ekki textana
Tónlist: David Bowie þarf að
lesa textana sína á sviðinu, þeg-
ar hann spilar á tónleikum, því
að áralöng eiturlyfjaneysla hefur
1 skilið eftir gloppur í minninu.
Eftir að hann hætti að neyta eit-
urlyfja hefur Bowie lýst minni
sínu eins og svissneskum osti.
Þegar hann var í hvað mestri
neyslu grenntist hann óhóflega
og leit viðbjóðslega út en þótt
hann hafi jafnað sig á því slapp
hann greinilega ekki alveg. „Ef
ég hefði ekki stóru bókina mína
myndi ég gleyma textunum - ef
ég gleymi að fletta blaðsíðu í
bókinni missi ég taktinn í laginu
og fer bara að hlæja að hljóm-
sveitinni." Ný plata Bowie, Rea-
lity, kemur út í dag.
Britney fékk demanta fyrir blauta kossinn
Poppprinsessan Britney Spears
þarf ekki að sjá eftir hinum um-
talaða og umdeilda blauta kossi
sem poppdrottningin Madonna
smellti á hana á MTV-verð-
launahátíðinni um daginn - sfð-
ur en svo. Fyrir sinn snúð fékk
poppstjarnan unga forkunn-
arfagra demantahálsfesti með
bókstafnum B. Sjálf á Madonna
sams konar hálsfesti, að sjálf-
sögðu með bókstafnum M.
„Þetta er aðferð Madonnu til að
þakka fyrir sig," segir kunnugur.
Madonna þurfti, sem frægt er
orðið, mjög að ganga á eftir
Britney áður en hún féllst að
lokum á blauta kossinn sem
hneykslaði margan siðprúðan
manninn enda hafði Britney
ekki neina reynslu af slíkum
kossum, ólíkt Madonnu.
SKÁLDIN FIMM: Sigurður Pálsson.ThorVilhjálmsson, Stefán Máni, Steinunn Sigurðardóttirog Mikael Niemi voru á Bessastöðum í boði
forseta fslands.
Skáldin á Bessastöðum
Allir eru sammála um að Bók-
menntahátíðin í Reykjavík 2003
hafi verið einstaklega vel heppnuð.
** Henni lauk með málþingi í Nor-
ræna húsinu á laugardag. Góð að-
sókn var á alla viðburði hátfðarinn-
ar og stundum fullt út úr dyrum,
enda voru margir og vel þekktir rit-
höfundar og skáld sem svöruðu
spurningum og lásu úr verkum sín-
um. Skáldin og aðrir gestir á bók-
menntahátíð tóku sér hlé frá störf-
um síðdegis á föstudag og þáðu
boð Ólafs Ragnars Grímssonar, for-
seta íslands, um að koma á Bessa-
staði. Ljósmyndari DV var á staðn-
um og festi nokkur andlit á filmu.
SKALD OG ÚTGEFANDI: Sigurbjörg Þrast-
ardóttir skáldkona og Jóhann Páll Valdi-
marsson bókaútgefandi ræða málin.
FEÐGIN: Andres Ehrin er Ijóðskáld frá Eist-
landi. Með honum á myndinni er dóttir
hans, Kristina, sem einnig er Ijóðskáld.
METSÖLURrTHÖFUNDUR: Arnaldur Indriðason, konungur spennusagnahöfunda á Islandi, ræðir við Christopher MacLehose hjá Harvill
Press en það forlag gefur út bækur Arnalds á Bretlandseyjum.
Diassoq hrjúfar
raddir
Útgáfa á geislaplötum hefur verið lífleg í sumar og fjöldl ólíkra titla komið út auk
þess sem sala á íslenskum geislaplötum hefur aldrei verið meiri. Þjóðsaga með
Pöpum er söluhæsta plata landsins í dag, einnig hafa plöturnar Pottþétt 32,
Grease, Uppáhaldslögin okkar, íslandslög 6, Svona er sumarið 2003 og 22
ferðalög með KK og Magnúsi Eiríkssyni selst mjög vel.
Jazz Airs Svare/ Thoroddsen
Björn Thoroddsen gítarleikari er
ótrúlega afkastamikill tónlistar-
maður og mér finnst ég alltaf vera
að rekast á nafnið. Hann lék nýlega
inn á plötu með danska klarínett-
leikaranum Jörgen Svaren og
bassaleikaranum Jóni Rafnssyni.
Björn hefur um árabil verið einn
fremsti djassleikari landsins en
Svare þykir vera fremsti klarínett-
leikari Evrópu af svonefndri sving-
kynslóð.
Platan, sem nefnist Jazz Airs, er
gefin út samtímis í Danmörku og á
Islandi. Á henni er að flnna tólf lög
Punktur - Björgvin Gíslason
Björgvin Gíslason gítarleikari
sendi fyrir skömmu frá sér plötuna
Punktur þar sem hann leikur eigin
lög við texta Þorkels Símonarsonar.
Á plötunni eru tólf lög og sér Björg-
vin að mestu um hljóðfæraleik en
nýtur aðstoðar tónlistarmanna eins
og Ásgeirs Óskarssonar, Sifjar
Björnsdóttur, Jens Hanssonar og
Hjörleifs VaJssonar. Björgvin syng-
ur sjálfur á plötunni. Er rödd hans
nokkuð hrjúf og það þarf að hlusta
á hana nokkrum sinnum til að
venjast henni.
Áfram - Ásgeir Óskarsson
Ásgeir Óskarsson, trommuleikari
hjá Stuðmönnum, sendi nýlega frá
sér plötu með eigin lögum en text-
ar eru eftir Ingólf Steinsson og Ás-
geir. Þrátt fyrir að Ásgeir sé einn
þekktasti trommuleikari landsins
sýnir hann á sér nýja hlið á plöt-
unni; spilar á gítar, mandólín og
hljómborð auk slagverks og syngur.
Sér til aðstoðar hefur hann meðal
annarra Björgvin Gíslason, sem
leikur listavel á sítar í einu laganna,
Eyþór Gunnarsson, Lárus Gríms-
son, Harald Þorsteinsson og Jón
Ólafsson. Auk Ásgeirs sjá Karl Odd-
geirsson, Egill Ólafsson, Þórir Úlf-
arsson, Ragnhildur Gísladóttir og
Margrét Guðrúnardóttir um raddir.
eftir ýmsa höfunda í svingdjassstíl,
leikandi létt og þægileg.
Á plötunni eru tíu lög sem renna
ljúflega í gegn þó að á köflum eigi
ég erfitt með að meta sönginn hjá
Ásgeiri. kip@dv.is
Meg Ryan ánægð með kynlífsatriði
Það gerist víst ekki á hverjum degi að
stórstjarnan Meg Ryan fer úr hverri ein-
ustu spjör fyrir framan myndavélarnar,
> hvað þá að afraksturinn sé sýndur á
hvíta tjaldinu.
Aðdáendur Meg geta glaðst yfir því
að það er nákvæmlega það sem gerist
í nýjustu kvikmynd hennar, tryllinum
In the Cut - ekld bara einu sinni held-
ur margsinnis. Meg Ryan, sem er bet-
ur þekkt fyrir að leika í rómantískum
gamanmyndum en sjóðheitum og
sexí tryllum, var ákaflega afslöppuð
við töku ástaratriðanna. Öðru máli
gegndi hins vegar um mótleikara
hennar, hinn 35 ára gamla Mark
Ruffalo, nýliða í bransanum.
„Ég var skíthræddur," viðurkennir
Mark í viðtali við bandarísku sjón-
varpsstöðina ABC. „Meg var jú með
Russell Crowe. Það eina sem ég hugs-
aði um var hvemig ég gæti f ósköpun-
um borið mig saman við hann.“
Meg viðurkennir að hún hafi haft
efasemdir um nektaratriðin í upphafi
en að hún sé afskaplega ánægð með
hvemig til tókst.
„Mér finnst að kynlífsatriðin komi
vel út. Þau em heiðarleg. Mér þykir
ákaflega vænt um samtölin í þessum
atriðum," segir Meg.
Það er kannski ekki furða þótt leik-
konan sé ánægð með útkomuna því
að leikstjóri myndarinnar er enginn
annar en íslandsvinkonan Jane
Campion.
„Jane er trúverðug, rétta konan í
verkið," segir Meg sem finnst gaman
að leika í trylli, svona til tilbreytingar.
Nicole Kidman átti að leika aðal-
hlutverkið en þurfti að hætta við og
þá var Meg fengin í staðinn.
ÁNÆGÐ MEÐ SIG: Meg Ryan fannst bara gaman að leika í kynlífsatriðum fyrir Jane Camp-
ion sem leikstýrir nýjustu mynd hennar, tryllinum In the Cut.