Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Side 2
2 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003
CíTGAFUFÉLAG: Gtgáfufélagið DV ehf.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Örn Valdimarsson
AÐALRITSTJÓRI: Óli Björn Kárason
AÐSTOÐARRrTSTJÓRI: Jónas Haraldsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjóm: 550
5020 - AÐRAR DEILDIR: 550 5749
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsingan auglys-
ingar@dv.is. - Drelfing: dreifing@dv.is
Akureyrl: Hafnarstræti 94, sími: 462 5000,
fax: 462 5001
Setning og umbrot Útgáfufélagið DV ehf.
Plötugerö og prentun: Árvakur hf.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl
við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Efni blaðsins
Fasteignasali kærður
fyrir meint skjalafals
- frétt bls. 4
Ópera fyrir alla
- frétt bls. 8
Nútíma Lína
- Menning bls. 13
Haukum og ÍBV spáð
sigri í vetur
- DVSportbls. 28-29
Með skurðtöngina í
kviðarholinu í sex ár
Taflensk kona lét nýlega f]ar-
lægja skurðtöng úr kviðarholi sínu
sex árum eftir að skurðlæknar
höfðu gleymt henni þar í aðgerð
sem konan gekkst undir.
Konan, sem heitir Lamphan
Yinsuth og er 46 ára, hafði sífellt
kvartað undan magaverkjum alveg
frá því að legið var fjarlægt úr
henni á Prapoklao-sjúkrahúsinu í
Bangkok í nóvember árið 1997 en
læknar aldrei fundið út hvað
amaði að henni fyrr en hún var
send í röntgenmyndatöku í síð-
ustu viku.
Þá kom í ljós að 28 sentimetra
löng töng hafði gleymst inni í
kviðarholi konunnar við aðgerð-
ina.
Sjúkrahússtjórnin samþykkti
strax að greiða konunni um 750
þúsund krónur í bætur.
Hannes Hlífar í 5.-6. sæti
Hættu að reykja á Patró
SKÁK: Stórmeistarinn Hann-
es Hlífar Stefánsson er í 3.-4.
sæti með 5,5 vinninga á
Skákþingi Norðurlanda sem
fram fer í Árósum í Dan-
mörku. Hann sigraði finnska
FIDE-meistarann Heikki
Lehtinen í 9. umferð sem
tefld var í gær. Helgi Ólafsson
tapaði þá fyrir danska alþjóð-
lega meistaranum Davor
Palo. Helgi hefur 5 vinninga
og er í 5.-6. sæti. Efstir á mót-
inu , með 6,5 vinninga, eru
danski stórmeistarinn Curt
Hansen og sænski stórmeist-
arinn Evgenij Agrest. (tíundu
og næstsíðustu umferð, sem
fram fer í dag, þriðjudag,
mætir Hannes Hlífar Norð-
manninum Einar Gausel en
Helgi mætir Lehtinen.
FORVARNIR: Unglingar í Fé-
lagsmiðstöðinni Vest-End á Pat-
reksfirði standa nú fyrir átaki
sem þau kalla „Hættu að
reykjal". Mun Patreksskóli taka
dyggan þátt í verkefninu og
fræða nemendur um skaðsemi
tóbaks. Opnuðu unglingarnir
átak sitt í gær með því að
senda einn ungling, 14 ára
gamlan, til að reyna að kaupa
sértóbak í verslunum í bænum.
Fór viðkomandi á alla þá staði
sem hafa með sölu tóbaks að
gera en þrátt fyrir afsakanir og
rökræður við starfsfólk fékk
hann hvergi afgreiðslu. Á
næstu dögum verða sett verða
upp veggspjöld í bænum,
vinnustaðir merktir reyklausir
og viðurkenningar gefnar
reyklausum vinnustöðum.
Ákært fyrir að veiða
630 tonn utan kvóta
KVÓTI: Ríkislögreglustjóri krefst þess að útgerðarfélögunum verði gert að þola upptöku
ávinnings af brotum sínum.
Sex útgerðarmenn og skipstjór-
ar hafa verið ákærðir fyrir að
hafa staðið að því að láta fimm
skip þeirra fara í hátt í 140
veiðiferðir og veiða um 630
tonn af afla, mest af þorski, án
þess að hafa til þess tilskildan
kvóta.
Ríkislögreglustjóri gerir kröfu um
að mönnunum og fjórum útgerðar-
félögum þeirra verði gert að þola
upptöku ávinnings af brotum sín-
um. Það þýðir að mönnunum verði
gert að greiða andvirði alls þessa
afla til rfkissjóðs. Samkvæmt upp-
lýsingum DV gæti sú tala verið allt
að 150 milljónir króna. Hins vegar
er sérstaklega dómkvaddur mats-
maður þessa dagana að meta hver
þessi tala verður þegar réttað verð-
ur í þessu óvenju stóra kvótamáli.
Landsbanki Islands fer fram á að
einn mannanna greiði bankanum
15,7 milljónir króna í bætur þar
sem bankinn keypti eitt skipanna á
nauðungarsölu en þá var kvóta-
staða skipsins sem þeirri tölu nam í
aflaverðmæti umfram veiðiheim-
ildir. Þannig keypti Landsbankinn í
raun aflaheimildir sem búið var að
afla fyrir og rúmlega það.
Sexmenningunum er gefið að
sök að hafa brotið lög um um-
gengni við nytjastofna sjávar, lög
um stjórn fiskveiða og veiðar í fisk-
veiðilandhelgi íslands. Hér var í
raun um að ræða kvótalitlar út-
gerðir sem létu skip sín veiða um-
fram það sem aflaheimildir voru
fyrir.
Landsbanki íslands fer
fram á að einn mann-
anna greiði bankanum
15,7 milljónir í bætur.
Fiskistofa hafði gjarnan afskipti
af útgerðunum en mennirnir voru
ýmist skipstjórar, framkvæmda-
stjórar eða stjórnarformenn fyrir-
tækjanna. Þau voru Blíða ehf. og
Dritvík ehf. í Reykjavík, Fengsæll
ehf. á Hellissandi og Kristján ehf. í
Ólafsvík.
Veiðiferðimar sem ákært er fyrir
vom famar á bátunum Gróttu RE 26,
Klettsvík SH 43, Bervflc SH 43, Stormi
SH 333 og Sigurvon BA 55. Flestar
ferðimar vom famar frá Ólafsvík en
einnig var róið frá Patreksfirði, Rifi og
Bfldudal. Hér var um að ræða trmabil-
ið frá mars 2001 til nóvember 2002.
Sexmenningamir hafa allir mætt
fyrir dóm. Þeir neita alfarið sök - vísa
því á bug að þeir hafi haft í frammi
refsiverða háttsemi hvað varðar brot á
lögum um umgengni við nytjastofna
sjávar.
í ákæm ríkislögreglustjóra em
tveimur mannanna gefin að sök
brot á lögum um virðisaukaskatt
með því að hafa ekki staðið skil á
11,3 milljónum króna til Sýslu-
mannsins í Stykkishólmi á árinu
2001. Einnig að hafa haldið eftir
samtals tæpum 5,5 millónum
króna á staðgreiðslu opinberra
gjalda af launum starfsmanna
sinna. ottar@dv.is
Gunnar Örn Örlygsson laus úr fangelsi og fluttur inn á Vernd:
Fer á áfangaheimili og
í vinnu „úti í bæ"
Gunnar Örn Örlygsson alþingis-
maður hóf afplánun á áfanga-
heimilinu Vernd í gær, eftir að
hafa setið í fangelsi í Kópavogi
frá því í fyrri hluta ágústmánað-
ar.
Hjá Vernd mun Gunnar Örn
ljúka þriggja mánaða afplánun
óskilorðsbundins hluta sex mán-
aða dóms sem hann fékk fyrir ýmis
brot, tengd fiskveiðum. Gunnar
Örn var tekinn af þingmannslaun-
um í upphafi afplánunar. Að sögn
Guðjóns Arnar Kristjánssonar, for-
manns Frjálslynda flokksins, nýtur
Gunnar Örn var tekinn
af þingmannslaunum
í upphafi afplánunar.
hann þeirra ekki fyrr en í fyrsta lagi
eftir að hann lýkur afplánun.
Hjá Vernd eru fangar í venjulegri
vinnu úti í samfélaginu. Að vinnu-
degi loknum koma þeir fyrir klukk-
an sex síðdegis inn á húsnæði
Verndar við Laugateig, en þeir geta
svo farið aftur út klukkan sjö en
verða að vera „komnir heim" fyrir
klukkan ellefu. Að morgni er svo
farið aftur til vinnu á ný en sérstak-
ar reglur gilda um helgar. Þetta fyr-
irkomulagt er meira hugsað fyrir
langtímafanga en á einnig við um
þá sem afplána styttri refsingar.
Þannig er þeim gefinn kostur á að
aðlagast samfélaginu í áföngum
undir lok afplánunartímans.
Gunnar Örn tók tæpan helming
óskilorðsbundna hluta dómsins út
í Hegningarhúsinu og fangelsinu í
Kópavogi en var svo gefinn kostur á
Verndarfyrirkomulaginu það sem
eftir stendur af afplánunartíman-
um - þremur mánuðum. Að hon-
um loknum mun Gunnar örn
væntanlega fara aftur á þing-
mannslaun. Á hinn bóginn á flokk-
urinn eftir að ræða við hann um
trúnaðarbrest sem upp kom þegar í
ljós kom að hann hafði ekið þrisvar
sinnum sviptur ökuréttindum árið
2000 og greindi flokksforystunni
ekki frá því að hann ætti óafgreitt
mál í dómskerfinu - raunar mál
sem oftast varðar eins mánaðar
fangelsi. Því lauk hins vegar með
því í síðustu viku að honum var
ekki gerð sérstök refsing þar sem
Gunnar Örn Örlygsson.
réttarkerfið sjálft dró óhóflega að
ljúka því.
Árni hjá Vernd í nóvember?
Samkvæmt upplýsingum DV get-
ur Árni Johnsen, sem fékk 24 mán-
aða fangelsi óskilorðsbundið, sótt
um reynslulausn þegar hann verð-
ur búinn með helming þeirrar af-
plánunar, það er í febrúar. Fái hann
það, sem allar lfkur eru á, getur
hann sótt um að taka síðustu þrjá
Árni Johnsen.
mánuði afplánunarinnar út hjá
Vernd á svipaðan hátt og Gunnar
örn. Það þýðir að Árni Johnsen get-
ur verið kominn í vinnu f nóvember
næstkomandi en greiði svo, eins og
aðrir, fæði og húsnæði hjá Vernd
við Laugateig, þar sem hann myndi
dvelja um nætur þangað til hann
fær reynslulausn eftir helming, eins
og það er gjarnan nefnt, eða í febr-
Úar. ottar@dv.is