Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Qupperneq 18
18 SKOÐUN ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 Lesendur Innsendar greinar ■ Lesendabréf Lesendur geta hringt allan sólarhringinn í s(ma: 550 5035, sent tölvupóst á netfangið: gra@dv.is eða sent bréf til: Lesendasfða DV, Skaftahlfð 24,105 Reykjavfk. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar. Viðbrögð á morðstað Halldór Gíslason skrifar: Fréttir frá Svíþjóð vekja mikinn ugg og viðbjóð. Ekki bara morð- ið á ráðherranum, líka morð á barni á leikskólavelli þar í landi. Næsta ótrúlegt að í Svíþjóð sé mesta glæpatíðni á öllum Norð- urlöndunum - um 900 morð ár- lega. Morðið á ráðherranum í verslun fullri af fólki vekur upp þá spurningu hvernig fólk bregst við á morðstað. Enginn hreyfir legg né lið gegn óbóta- manninum. Lamast fólk af ótta? Ég veit ekki, hef ekki orðið vitni að morði, en ég held (og endur- tek; held) að ég yrði svo ofsareiður að ég legði samtund- is til atlögu við mannfjandann. - Eða er „áfallahjálpin" orðin hald- reipi í huga fólks? Skattaáþján Margrét Guðmundsdóttir skrifar: Ég er engin stóreignamanneskja en hef reynt að leggja fyrir eftir minni getu gegnum öll þau ár sem ég hef lifað. Einnig keypt hlutabréfeða svokölluð verðbréf þegar ég hef átt afgang frá skylduútgjöldum. Skattlagning á þetta er nú 10%. Ég tel það ekki ósanngjarnan skatt. Hitt er ósanngjarnt að greiða allt að 40% í tekjuskatt, óhóflegan fast- eignaskatt og skylduskatt til tryggingafélags í byrjun hvers árs. Tekjuskatturinn er auðvitað ekkert annað en eignaupptaka og eignaskatturinn er ekki enn horfinn þrátt fyrir loforð þar um. Nú vil ég skora á stjórnvöld að létta skattaáþján launþega með afnámi tekjuskatts af tekjum undir t.d. 200.000 kr. á mánuði. Spítalarekstur á fjáraukalögum SK0ÐUN Geir R. Andersen blaðamaður skrifar: Tveir ráðherrar í ríkisstjórninni ætla að leggja til við Alþingi að rekstur Landspítala-Háskóla- sjúkrahúss verði framlengdur óbreyttur með fjáraukalögum. Ekki minna en 930 milljónir verði veittar til að styrkja rekst- urinn. Ég kalla þetta djarft teflt því að eftir fyrstu sjö mánuði þessa árs var LSH komið rúmar 660 milljónir fram úr fjárheimildum og spár uppi þess eðlis að halii ársins alls gæti numið 1,5 milljörðum króna. Það er fyrst og fremst stjórnar- nefnd Landspítala-Háskólasjúkra- húss sem leggur áherslu á að tryggja óbreyttan rekstur þessa stóra sjúkrahúss. Ráðherrarnir eru svo lítið annað en handbendi stjórnarnefndarinnar. Fieiri nefndir? Enginn í pólitík vill þola ákúrur fyrir vonsku við veika og því fer sem fer - allt eða ekkert - og áfram ekur sjúkravagninn þótt næstum þrjú hjól séu undan honum. Álit stjórn- arnefndarinnar er það að ekki verði gengið lengra í lækkun útgjalda án þess að það komi niður á núver- andi þjónustu spítalans. Og enn fremur að fjárframlög til spítalans að undanförnu (hvað sem orðin „að undanfömu“ þýða) hafl ekki fylgt auknum og þyngri verkefnum. Stjórnvöld ætla því að bregðast við ótt og títt og tilnefna starfs- nefnd - ekki eina heldur tvær - um málefni LSH og segjast vænta mik- ils af störfum þeirra. Það er eins og skattgreiðendur hafi einhvern tíma LANDSPlTALI-HASKÓLASJÚKRAHÚS: Það á ekki eitt yfir alla að ganga á spítala frekar en á hóteli. áður heyrt að „starfsnefndir" verði skipaðar til að huga að málefnum spítalans. Það er eitt besta ráð stjórnvalda í hverju landi að skipa nefnd á nefnd ofan til að koma sér hjá því að taka á málunum. Sannleikurinn er auð- vitað sá að málefni Landspít- ala-Háskólasjúkrahúss em komin í þrot og allt má það rekja til linku og þróttleysis stjórnmálamanna sem hafa farið með heilbrigðis- og fjár- málin gegnum tíðina. Spítali - hótel Núna er sem sé ekkert annað í pípunum um málefni LSH en nýjar starfsnefndir sem munu ekki kom- ast að neinu öðru en því að sam- dráttaraðgerðir í starfsemi LSH muni leiða til uppsagna starfsfólks og skerðingar þjónustunnar. Og það sé ekki vænlegt til frambúðar! Til frambúðar má því búast við áframhaldandi rennsli fjár til heil- brigðismála upp á þetta 900 millj- ónir og eitthvað yfir milljarðinn á fjáraukalögum næstu ára. Einhver mun áreiðanlega segja sem svo: Hvað er þessi maður að skrifa um, þekkir hann eitthvað til spítalareksturs, vill hann skera nið- ur heilbrigðisþjónustu við lands- menn? Nei, auðvitað þekki ég ekki nógu vel til mála LSH. Ég líki samt spítalarekstri einfaidlega við hótel- rekstur þar sem gestum er boðið upp á mismunandi herbergi, verð- lag, aðbúnað og viðurgjörning, allt eftir því hvers eðlis dvöl þess er sem kaupir þjónustuna. Það sama á við um spítala. Þar verður allt að vera til reiðu og tilbú- ið til notkunar vegna þeirra sem þangað leita vegna alvarlegra sjúk- dóma eða slysa. Það kostar fjár- muni og af því eigum við samborg- ararnir að standa straum. Aðrir, sem minni þjónustu þarfnast, þurfa ekki á dýrum aðbúnaði að halda og eiga ekki heldur að fá að- gang að honum. Það á því ekki eitt yfir alla að ganga á spítala frekar en á hóteli. Það er engin þörf á lúxusaðbúnaði fyrir mikið veikt fólk að öðru leyti en sem tekur til fagmenntaðs fólks og tækni eins og þeirrar sem það notar. Ekki er heldur nein þörf fyrir lúxusaðbúnað eða þjónustu fyrir þá sem koma til skammtímavistun- ar. Viðmót og þægindi verða ektó flokkuð eftir opinberum fjáraustri. Forganga ráðherranna Innritunargjöld á LSH eru ekki bara hugsanleg, þau eru sjálfsögð. Einnig greiðsla sjúklinga fyrir mat og kaffi. Sjúklingar eiga ekki að fá frítt fæði við það eitt að leggjast inn á stofnun. Fríðindi í heilbrigðiskerf- inu eru orðin skrípaleikur og þar þarf einmitt að beita niðurskurði en ekki árlegum fjáraukalögum. Sannleikurinn er auðvit- að sá að málefni Land- spítala-Háskólasjúkra- húss eru komin íþrot og allt má það rekja til linku og þróttleysis stjórnmálamanna sem hafa farið með heil- brigðis- og fjármálin gegnum tíðina. Það stendur nú fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra næst að leggja af vangaveltur um að veita 930 milljónir króna til að styrkja rekstur Landspítalans og leggja fremur til að stjórnarnefnd og starfsnefndir sýni þann styrk að ráðast í stórfelldar samdráttarað- gerðir í starfsemi LSH. Þær eru óhjákvæmilegar einmitt nú. - Eða á ekki að vera heil brú í þessum farsa? Ný sáttasemjari Guðjón Jónsson skrífar: Ég tek undir með formanni Kennarasam- bands íslands sem telur ekki mikla visku fólgna í því að ÁSMUNDUR STEF- skiPa fyrrver- ANSSON HAG- andi verkalýðs- FRÆÐINGUR: Er leiðtoga, sem hann sá sem koma síðar varð skal eða eigum við bankastjóri, í að vænta annars? starf ríkissátta- semjara. Raunar skilur maður ekki hvaðan á þau stendur veðr- ið, Samtök atvinnulífsins og ASÍ, að óska eftir því að Ásmundur Stefánsson, sem ber ávallt stimp- il vinnudeilna eftir forystu í ASÍ, verði æðsti maður í „Karphús- inu“. Ekki hafa fjölmiðlar mikið flaggað þvf hverjir sótt hafa um auk Ásmundar Stefánssonar. Lík- lega bara landlæg þjónkun við stóru samtökin á vinnumarkað- inum. En vitað er að fleiri sóttu um, þ. á m. þekktur lögmaður, Ásdís Rafnar hrl. Mér þykir það góður kostur að fá þá sómakonu í starf sáttasemjara. Get ekki séð Ásmund fyrir mér í þessu starfí. Hann hefur þegar lokast inni í fílabeinsturni valdabrölts og fjár- málaumsvifa. - Og svo sóttu fleiri um. Kannski drattast fjölmiðlar til að birta nöfnin áður en þessar línur komast á prent. Nýlega las ég frétt þess efnis að útgefendur hljómdiska í Bandaríkj- unum ætluðu að lækka verð á hljómdiskum þar í landi, þannig að algengt listaverð þar færi úr 17 doll- urum - um 1.360 krónum - niður í Verð á hljómdiskum allt of hátt Örn Jónasson skrífar: Ég verð að segja að mér finnst verð á hljómdiskum allt of hátt hér á landi. Venjulegt listaverð á nýlegum vinsælum diskum hér á landi er um 2.300 krónur og algengt tilboðsverð er í kringum 1.600 krónur. Eina ráðið til að færa sölu á hljómdiskum meira hingað til lands væri að mínu mati að lækka söluverð þeirra hér tilþess að gera það sambærilegt við það verðlag sem tíðkast erlendis. um 13 dollara stykkið svarandi til rúmlega 1.000 króna. Annað dæmi um verðlag á hljómdiskum erlendis er verð á hljómdiskum í Danmörku þangað sem margir íslendingar HLJÓMDISKAR: Verðlag sannarlega hátt hér og skaðar alla viðkomandi, jafnt söluaðila sem neytendur. ferðast. Þar í landi er algengt lista- verð 159 danskar krónur eða um 1.900 íslenskar krónur og algengt tilboðsverð þar í landi er um 99 danskar krónur á nýlegum vinsæl- um diskum eða um 1.200 íslenskar krónur. Ekki veit ég hvernig verðmyndun á hljómdiskum hér á landi er hátt- að sem gerir það að verkum að verðlag á hljómdiskum er svo hátt sem raun ber vitni. Ef til vill er um fákeppni í innflutningi og sölu að ræða sem gerir það að verkum að hægt er að halda uppi háu verði hér á landi. Þetta háa verðlag á hljómdiskum hér á landi gerir það að verkum að mikill tónlistarunnandi eins og ég kaupi þessa vöru erlendis þegar ég er á ferðalögum þar og er ég senni- lega ekki sá eini sem hefur þann háttinn á. Því miður fyrir söluaðila hér á landi. Eina ráðið til að færa sölu á hljómdiskum meira hingað til lands væri að mínu mati að lækka söluverð þeirra hér til þess að gera það sambærilegt við það verðlag sem tíðkast erlendis. - Verðlag hljómdiska er sannarlega hátt hér og skaðar alla viðkomandi, jafnt söluaðila sem kaupendur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.