Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Qupperneq 28
28 DVSPORT ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003
DVSport
Keppni I hverju oröi
Netfang: dvsport@dv.is
Síml: 550 5885 • 550 5887 • 550 5889
Kemur ekki á óvart
HANDKNATTLEIKUR: ÍBVer
spáð sigri í REMAX-deild
kvenna á komandi tímabili og
það virtist ekki koma Aðal-
steini Eyjólfssyni, þjálfara liðs-
ins, í opna skjöldu.
„Við erum náttúrlega (slands-
meistarar og það þarf ekkert
að koma manni á óvart að
þeim sé spáð sigri í svona spá.
Við höfum styrkt okkar lið og
það er ekkert annað sem kem-
ur til greina en að vinna þá
titla sem í boði eru."
Aðspurður sagði Aðalsteinn að
þetta setti ekki neina auka-
pressu á liðið því að það væri
mikill metnaður í liðinu til að
vinna.
Aðalsteinn sagði að honum lit-
ist vel á deildina og taldi hann
að hún hefði sjaldan eða aldrei
verið eins sterk.
„Mér finnst mörg lið hafa styrkt
sig i sumar og forráðamenn
liðanna eru farnir að leggja
mikla vinnu í að styrkja sín lið.
Það gerir bara deildina betri og
sterkari og breiddina meiri og
hlýturað hjálpa kvennahand-
boltanum þegartil lengri tíma
er litið," sagði Aðalsteinn Eyj-
ólfsson, þjálfari ÍBV.
íaiiLÍ; 'i.
BJARTSÝNN: Aðalsteinn Eyjólfs-
son, þjálfari IBV, er bjartsýnn.
Eðlileg spá
sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka
Það er engin nýlunda að
Viggó Sigurðssyni og læri-
sveinum hans í Haukum sé
spáð sigri í deildinni í hinni
árlegu spá forráðamanna,
fyrirliða og þjálfara liðanna
fimmtán sem eru í deildinni.
Yfirburðir liðsins í spánni
voru miklir þetta árið og
sagði Viggó Sigurðsson að
honum þætti þetta nokkuð
eðlileg spá.
„Ég held að þetta sé nokkuð
eðlileg spá og kemur mér ekkert
á óvart. Við erum íslandsmeist-
arar og ef eitthvað er þá fmnst
„Það er ekki eins og
við séum að fara að
sigla einhvern róleg-
an sjó í deildinni
mér við vera með öflugra iið í ár
heldur en í fyrra. Við höfum
fengið mjög öflugan Litháa og
auk þess erum við með mjög
marga unga stráka sem eru ár-
inu eldri en í fyrra og ég bind
miklar vonir við þá.“
Viggó sagðist spurður ekki
vera neitt sérstaklega hrifinn af
nýja leikjafyrirkomulaginu.
„Ég vil nú kannski ekki vera
neitt neikvæður í byrjun en ég er
algjörlega á móti þessu fyrir-
komulagi og ég tel það vera
hættulegt að við skulum vera að
byrja deildarkeppni í febrúar þar
sem eitt lið er með tólf stig í byrj-
un en hitt eitt stig. Það geta kom-
ið skil í þá deild strax og ég lít á
þá deild sem er að byrja á morg-
un [innsk. blm. í dagí sem for-
keppni að forkeppni og tel að
það hefði átt að breyta fyrir-
komuiaginu og spila bara eina
fimmtán liða deild þar sem liðin
spiluðu aðeins tvöfalda umferð
með 28 leikjum," sagði Viggó
Sigurðsson.
Á von á spennandi deild
Viggó sagðist eiga von á
spennandi og góðri deild þar
sem mörg góð lið væru í deild-
inni.
„Það er ekki eins og við séum
að fara að sigla einhvern lygnan
sjó í deildinni. Það á mikið eftir
að gerast, við eigum eftir að spila
marga leiki bæði hér heima og í
Evrópukeppninni auk þess sem
Evrópumótið hjá landsliðinu í
Slóveníu verður spilað i lok janú-
ar. Það á því ýmislegt eftir að
gerast áður en úrslitin verða ljós.
Mér sýnist sem Valsmenn muni
verða mjög sterkir á komandi
tímabili, sérstaklega þegar þeir
verða búnir að fá Bjarka Sigurðs-
son til baka eftir meiðsl.
Ég hef einnig trú á að ÍR-ingar
„Ég er algjörlega á
móti þessu fyrirkomu-
lagi og tel það vera
hættulegt."
og KA-menn verði sterkir ívetur,
sem og FH-ingar og Framarar,
og svo veit maður aldrei hvernig
Grótta/KR kemur út. Ef liðið nær
sér á strik getur það verið stór-
hættulegt. Síðan eru margir ung-
ir leikmenn að koma fram og
það er frábært fyrir íslenskan
handknattleik og ég á von á
spennandi deild þó að ég telji
fyrirkomulagið ekki vera spenn-
andi.
oskar@dv.is
IBYGGINN: Viggo
Sigurðsson, þjálfari
Hauka, fylgist hér
með á fundinum í
9*®1". DVmvnili.
SAMNINGUR HANDSALAÐUR: Slgurjón Pétursson,
vararformaður HSÍ, og Benedikt Geirsson, fram-
kvœmdastjóri REMAX, handsala hér samstarfssamn
inginnígær. Kt' T"
DV-mynd E. Úl. ^ \ j
1. Haukar 538
2. Valur 495
3. ÍR 459
4.KA 427
5.HK 387
1 6. Fram 352
7.FH 341
8. Grótta/KR 313
| 9.Víkingur 272
10. Stjarnan 219
ll.fBV 179
12. Þór, Ak. 176
13. Selfoss 115
14. Afturelding 97
15. Breiðablik 69
Kynningarfundur HSÍ fyrir efstu deildir karla og kvenna í handknattlé
Haukum og ll
spáð sigri í ve
i spá fyrirliða, forráðamanna og þjálfara liðanna
Karlaliði Hauka og kvennaliði
ÍBV var í gær spáð sigri í efstu deild-
um karla og kvenna í spá forráða-
manna, fyrirliða og þjálfara á kynn-
ingarfúndi HSÍ sem haldinn var á
Nordica-hótelinu.
Haukar, sem hafa titil að verja,
höfðu töluverða yfirburði í karla-
flokki en fjögur efstu liðin, Haukar,
Valur, ÍR og KA, skáru sig nokkuð
úr. Nýliðum Breiðabliks er spáð
neðsta sætinu sem kemur ekki
mikið á óvart.
Spilað verður eftir nýju leikjafyr-
irkomulagi í karladeildinni í vetur.
Fimmtán lið eru í deildinni og er
henni fyrst skipt í tvo riðla, norður
og suður. Fram að jólum leika liðin
í þessum riðlum tvöfalda umferð
og fara fjögur efstu liðin f norður-
riðli og fjögur efstu liðin í suðurriðli
áfram í í svokallaða úrvalsdeild en
hin lið fara í 1. deild. Liðin, sem fara
í úrvalsdeild, taka með sér stigin og
Þetta er í fyrsta sinn
sem þetta fyrirkomulag
er reynt og eru skoðan-
ir manna á því mjög
skiptar.
innbyrðis árangri við hin liðin sem
fylgja þeim en liðin sem fara í 1.
deild gera það ekki heldur byrja öll
á núlli.
Það er bæði leikin tvöföld um-
ferð f úrvalsdeild og 1. deild og
verða krýndir deildarmeistarar í
báðum deildum. Sex efstu sætin í
úrvalsdeild og eitt í 1. deild gefa
sæti í hinni hefðbundnu úrslita-
keppni en liðið sem hafnar í sjö-
unda sæti í úrvalsdeild mætir lið-
inu sem hafnar í öðru sæti í 1. deild
í leikjum um síðasta sætið í úrslita-
keppninni. Þetta er í fyrsta sinn
sem þetta fyrirkomulag er reynt og
eru skoðanir manna á þvf mjög
skiptar. Sumir segja að deildin
muni koma til með verða meira
spennandi og leikjum sem ekki
skipta máli muni fækka. Aðrir eru
ósammála þessu en það er þó ljóst
að tíminn einn mun leiða í ljós
hvernig skipulagið verkar.