Dagblaðið Vísir - DV - 16.09.2003, Qupperneq 29
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 2003 DVSPORT 29
Hef mikla trú á þessu skipulagi
HANDKNATTLEIKUR: Guð-
mundurGuðmundsson, land-
liðsþjálfari í handknattleik,
sagði í samtali við DV Sport í
gaer að honum litist gífurlega
vel á þetta nýja fyrirkomulag
sem prófa ætti í vetur og að
hann væri ekki í vafa um að
deildin yrði betri fyrir vikið.
„Mér líst mjög vel á þetta fyrir-
komulag. Ég held að þetta hafi
verið besta lausnin sem var
uppi á borðinu gagnvart þeirri
stöðu að gera fyrri hluta móts-
ins spennandi. Núna skiptir
hver einasti leikur máli fyrir lið-
in og strax eftir riðlakeppnina
þá jafnast styrkleikamunurinn
á liðunum, þegar þeim er skipt
í úrvalsdeild og 1. deild. Mér
líst því vel á þetta fyrirkomulag
og sé enga ástæðu til þess að
það gangi ekki."
Guðmundur sagði að það
hefði fátt komið honum á
óvart varðandi spána í karla-
deildinni.
„Það kom mér eiginlega mest
á óvart að sjá Stjörnuna svona
neðarlega en það ber þó að
hafa í huga að Sigurður Bjarna-
son og Gústaf Bjarnason hafa
báðir verið meiddir.
„Haukar eru með gífurlega
sterkt lið en annars var ég
mjög ánægður með það sem
ég sá hjá íslensku liðunum í
Reykjavík Open var mjög já-
kvætt. Valur stóð í hinu geysi-
sterka liði Magdeburg, KA var
að spila vel og almennt er
mjög góður gangur í hand-
boltanum hér heima," sagði
Guðmundur.
SPÁ FYRIR REMAX KVENNA
1.IBV
2. Haukar
3. Valur
4. FH
5. Stjarnan
6. Grótta/KR
7. Víkingur
8. Fram
9. KA/Þór
10. Fylkir/ÍR
240
215
214
160
155
128
84
75
62
41
lr fórframígær:
tur
ígær
ÍBV hefur einnig titil að verja í
kvennaflokki. Eyjastúlkur höfðu
nokkra yfirburði í spánni en í
næstu sætum komu Haukar, Valur
og FH.
Tíu lið eru í efstu deild kvenna og
munu þau spila þrjár umferðir og
síðan munu átta efstu liðin spila í
úrslitakeppni.
Samið við REMAX
HSÍ tilkynnti einnig á fundinum
að sambandið hefði gert samning
við fasteignasöluna REMAX um að
vera styrktaraðili efstu deildar karla
og kvenna á næsta keppnistímabili
og munu deildarnar heita REMAX-
deild karla og REMAX-deild
kvenna. oskar@dv.is
Breytt fyrirkomulag
Tvö lið úr hverjum riðli fara í 16-liða útsláttakeppni
Meistaradeild Evrópu hefst í
kvöld með átta leikjum í riðlum
E-H. Alls er spilað í átta fjögurra
liða riðlum í 1. umferð deildar-
innar en síðan breytist fyrir-
komulagið miðað við það sem
áður var. Þá fóru tvö efstu liðin í
hverjum riðli í fjóra fjögurra
liða riðla og síðan tvö efstu liðin
úr hverjum riðli í 8-liða úrslit.
Nú hefur því hins vegar verið
breytt til að minnka álagið á
leikmönnum og í stað þess að
fara í milliriðla fára tvö lið úr
riðlunum átta beint í 16-liða út-
sláttakeppni.
Tvö ensk lið, Chelsea og
Manchester United, verða í eldlín-
unni. Manchester United tekur á
móti grfska liðinu Panathinaikos á
Old Trafford en Chelsea sækir
Sparta Prag heim.
Manchester United er í E-riðli
ásamt Panathinaikos, Rangers og
Stuttgart. Paul Scholes og Roy
Keane verða að öllum líkindum
ekki með Manchester United í
leiknum vegna meiðsla.
Ranger fær Stuttgart í heimsókn
á Ibrox. Stuttgart hefur gengið vel í
þýsku deildinni og heíúr mark-
vörður liðsins, Timo Hildebrand,
meðal ananrs haldið marki sínu
hreinu í 555 mínútur.
Stjörnum prýtt lið Real Madrid
tekur á móti Marseille í F-riðli. All-
ar helstu stjörnur Real Madrid eru
heilar en miðjumaðurinn Esteban
Cambiasso meiddist í stórsigrinum
gegn Valladolid um helgina og
verður sennilega ekki með.
Marseille vann auðveldan sigur á
Le Man, 5-0, í frönsku deildinni um
helgina en Alan Perrin, þjálfari
Marseille, gerði sér þó grein fyrir
því að leikurinn gegn Real Madrid
yrði miklu erfiðari
Ranieri vill meira
Claudio Ranieri, þjálfari Chelsea,
hvíldi Juan Sebastian Veron,
Wayne Bridge og Glenn Johnson
um helgina gegn Tottenham til að
hafa þá klára fyrir leikinn gegn
Sparta Prag. Ranieri hefur ekki
verið sáttur við spilamennsku
manna sinna það sem af og krefst
þess að þeir sýni meira.
Evrópumeistarar AC Milan taka
á móti Ajax í Mílanó og vonast Ron-
ald Koeman, þjálfari Ajax, eftir því
að hans menn komi á óvart.
„Ég veit að þetta verður mjög erf-
iður leikur en það er allt hægt í
knattspyrnu. Þeir eru meistararnir
og pressan er öll á þeim,“ sagði
Koeman. oskar@dv.is
MtlMAKAK tVKOKU: L«iknu>nn
AC lyHa liéi Lvrúpubikonv
um U>kk fyrlr oö
í*d v«)M i urftlUo
|«ik im»i**t£*VatlttildnunM.u » vor
GULUR, GLAÐUR OG ELDHEITUR UNITED-MAÐUR: „Ég er eldheitur Manchester United maður en heima er ég gulur og glaður" segir Sigurður Maríus Sigurðsson sem var sá heppni
í enska tippleiknum en hann vann í 3. umferð. Reyndar voru nokkrir með alla leiki réna en Sigurður var dreginn úr hópi sigurvegara. „Ég er (A-maður og hlakka til að sjá liðið spila í
undanúrslitum bikarsins. Reyndar hefði ég viljað fá KR áfram upp á rétta stemningu í úrslitaleiknum." Sigurður fékk í verðlaun glæsilegar íþróttavörur frá Jóa útherja.Tippleikurinn er
gríðarlega vinsæll og nú verða notendur leiksins óðfluga 2000 manns og verður sá 2000. að skrá sig verðlaunaðan sérstaklega, en það gæti gerst á næstu dögum.
X.
%