Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2003, Page 10
70 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER2003
Útlönd
Heimurinn i hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is
Sími: 550 5829
Uffe vill ekki toppstöðu
DANMÖRK: Uffe Ellemann-
Jensen, fyrrum utanríkisráð-
herra Danmerkur, hefur hafnað
boði um að taka við stöðu
framkvæmdastjóra hjá Evrópu-
sambandinu í Brussel á næsta
ári. Þetta kemurfram í danska
blaðinu Jyllands-Posten í
morgun.
Anders Fogh Rasmussen for-
sætisráðherra fær tækifæri til
að skipa nýjan mann i stöðu
framkvæmdastjóra til að leysa
af hólmi jafnaðarmanninn Poul
Nielson. Flokksbræður Uffes í
Venstre, flokki Foghs, gerðu sér
vonir um að fyrrum leiðtogi
þeirra fengið mikilvægt emb-
ætti hjá ESB en Uffe hefur sem
sé ekki áhuga á því. Ýmsir aðrir
hafa verið nefndir, meðal ann-
ars ráðherrann Bertil Haarder.
Saka um svik
GRÆNLAND: Forystumenn
Atassut-flokksins á Grænlandi
hafa sakað fyrirtækið Royal
Greenland um svik við Græn-
lendinga. Ástæðan er sú að fyr-
irtækið ætlir að hefja vinnslu á
kanadískum rækjum í Álaborg í
Danmörku, í stað þess að
skapa ný störf heima. Hjá Royal
Greenland skilja menn ekki
ásakanirnar.
Vandræðagangur bandarískra embættismanna:
Sakaðir um al-
varlegan leka
Bandarísk stjórnvöld neituðu
því í gær að hafa ólöglega lekið
nafni njósnara bandarísku
leyniþjónustunnar, CIA, til fjöl-
miðla í hefndarskyni vegna
þess að eiginmaður hennar
hafði leyft sér að gagnrýna
skýrsluna, sem réttlæta átti
stríðið í írak og sagt hana
byggða á rangfærslum og ýkj-
um.
Um er að ræða Valerie Plame eig-
inkonu josephs Wilsons, fyrrver-
andi sendiherra Bandaríkjanna í
Gabon, en Wilson var sá sem á síð-
asta ári var falið það verkefni að
rannsaka hvort eitthvað væri hæft í
þeim fullyrðingum Breta að írakar
hefðu reynt að kaupa úraníum í
Afríkuríkinu Níger.
Niðurstaða rannsóknar Wilsons
varð sú að ásakanirnar í garð íraka
væru rangar og byggðar á fölsuðum
skjölum, en þrátt fyrir það flaut
ásökunin inn í stefnuræðu Bush
Bandaríkjaforseti sem fullyrti að
írakar hefðu reynt að kaupa úrani-
um í Afríku og vísaði þar til leyni-
legra upplýsinga frá bresku leyni-
þjónustunni.
í kjölfarið gagnrýndi Wilson
málatilbúnað bandarískra stjórn-
valda í grein í bandaríska dagblað-
inu Times og upplýsti þar að þeim
hefði borist skýrsla hans um málið
löngu fyrir stefnuræðu forsetans í
janúar sl.
Fljótíega eftir það var nafni Val-
erie Plame lekið út til fjölmiðla og
fullyrt að hún starfaði fyrir banda-
rísku leyniþjónustuna, CIA, á laun.
Þetta var einfaldlega hefnd
Bandaríska dagblaðið Wash-
ington Post tók málið síðan upp
eftir helgina og er þar haft eftir
ónafngreindum embættismanni að
starfsmenn Hvíta hússins hefðu
lekið nafni Plame til fjölmiðla í
hefndarskyni til þess að ná sér niðri
á eiginmanninum.
Haft er eftir embættismanninum
að upplýsingunum hafi verið lekið
til útvalinna fréttamanna með það í
huga að sverta mannorð Wilsons
og gefa til kynna að hann hafi að-
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfar-
andi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Þursstaðir, Borgarbyggð, þingl. eig.
Guðrún Tryggvadóttir, gerðarbeiðandi
Búnaðarbanki íslands hf., miðviku-
daginn 1. október 2003 kl.10.00.
Hl. Brákarbrautar 18-20, Borgarnesi,
þingl. eig. GH verkstæði ehf., gerðar-
beiðendur Bílanaust hf., Byggðastofn-
un, Sparisjóður Mýrasýslu og Sýslu-
maðurinn í Borgarnesi, miðvikudag-
inn 1. október kl. 11.00.
SÝSLUMAÐURINN í BORGARNESI
eins fengið verkefnið í Níger fyrir
atbeina eiginkonunnar. „Þetta var
einfaldlega hefnd," er haft eftir
embættismanninum.
Það var dálkahöfundurinn Ro-
bert Novak sem fyrstur dró nafn
Plame inn f umræðuna um miðjan
júlí og hefur það þá eftir tveimur
háttsettum bandarískum embætt-
ismönnum að hún hafi unnið að
ýmsum leynilegum verkefnum
varðandi útbreiðslu kjarnavopna
fyrir bandarísku leyniþjónustuna,
CIA.
Varðar við bandarísk lög
Sjálfur segir Wilson að fjórir
fréttamenn hafi haft samband við
sig á þeim tíma og upplýst sig um
að starfsmenn Hvíta hússins hefðu
lekið því til þeirra að eiginkona
hans væri starfsmaður CIA og hvatt
til þess að þeir kæmu því á fram-
færi.
Wilson sagði að ef
þetta reyndist rétt þá
væri það ekkert annað
en illgjörn tilraun til
þess að hefta skoðana-
og málfrelsi manna.
Wilson sagði að ef þetta reyndist
rétt þá væri það ekkert annað en ill-
gjörn tilraun til þess að hefta skoð-
ana- og málfrelsi manna auk þess
sem slíkur leki varðaði við banda-
rísk lög.
Haft er eftir Wilson að hann telji
lekann runninn undan rifjum Karls
Roves, eins helsta pólitíska ráðgjafa
Bush Bandaríkjaforseta, en því
neitar Scott McClellan, talsmaður
Hvíta hússins.
„Bandarískir embættismenn
vinna einfaldlega ekki þannig,“
sagði," sagði McClellan en bætti
við að ef það sannaðist á einhvern
að hafa lekið upplýsingunum þá
yrði hinn seki látinn svara til saka.
„Forsetinn gerir þá kröfu til emb-
ættismanna sinna að þeir sýni
ábyrgð í starfi og fari eftir settum
reglum," sagði McClellan og ítrek-
aði að Rove væri hafinn yfir allan
grun. „Forsetinn veit að hann að
engan hlut að máli, það er einfald-
lega ekki satt,“ sagði McClellan.
Rannsókn fyrirskipuð
Bandaríska dómsmálaráðuneyt-
ið hefur þegar fyrirskipað formlega
rannsókn á málinu og segir tals-
maður stjórnvalda að þau muni
sýna fulla samvinnu og afhenda all-
ar upptökur símtala og annarra
gagna sem farið verður fram á við
rannsóknina.
„Ég tel að starfsmenn dóms-
málaráðuneytisins séu réttu aðil-
arnir til þess að rannsaka málið á
fyrsta stigi. Þeir hafa marga færa
rannsóknarmenn innan sinna raða
sem eru vanir að fást við slík mál,“
sagði McClellan.
Þingmenn stjómarandstöðunn-
ar em á öðm máli og vom þeir
Howard Dean og Wesley Clark,
sem báðir gefa kost á sér til forseta-
framboðs, sammála um að skipa
ætti sérstakan óháðan rannsóknar-
aðila í málinu.
„Bandarísk stjórnvöld hafa allt of
lengi komist upp með leikaraskap í
öryggismálum þjóðarinnar en hafa
nú einfaldlega gengið of Iangt,“
sagði Clark.
BUSH BROSIR BREITT: Bush Banda-
ríkjaforseti brosir breitt þrátt fyrir
vandræðaganginn á stjórnarheimilinu.
Nú reynir á sann-
færingarkraftinn
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, þarf á öllum sann-
færingarkrafti sínum að halda
þegar hann reynir að lægja ólg-
una innan Verkamannaflokks-
ins og meðal þjóðarinnar úr
ræðustól í Bournemouth í dag.
Ráðgjafar Blairs segja að hann
muni I ræðu sinni á flokksþingi
Verkamannaflokksins reyna að
endurheimta traust almennings,
svo og lofa að hlusta meira á
áhyggjur óbreyttra flokksmanna.
Hann mun hins vegar hvergi hvika
I þeim ásetningi sínum að gera
umbætur á rekstri ríkisins.
Þá mun Blair ekki sýna nein
merki iðrunar fyrir þátt Breta í
stríðinu gegn Saddam Hussein,
fyrrum forseta íraks. Blair mun
þess í stað segja óánægðum liðs-
mönnum Verkamannaflokksins að
þeir eigi að vera stoltir af því að
framtíð Iraks sé bjartari nú en fyrr.
Ekki fær Blair þó gott veganesti á
fundinn í dag þar sem nærri sextíu
prósent þjóðarinnar telja að hann
hafi logið til að réttlæta stríðið í
írak. Þetta kemur fram í skoðana-
könnun sem blaðið Independent
birti í morgun.
Margir flokksmenn vilja að Gor-
don Brown íjármálaráðherra taki
við leiðtogaembætti flokksins og
þar með við ríkisstjórninni. Þeir
telja að Brown sé trúrri sósíalísk-
um rótum flokksins.
AÐ DUGA EÐA DREPAST: Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, flytur einhverja mikil-
vægustu ræðu ferils síns á þingi Verkamannaflokksins í Bournemouth (dag.