Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2003, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 FRÉTTIR 11
Arnold fær flokkinn með sér
KALIFORNÍA: Hollywoodleik-
arinn Arnold Schwarzenegger
fékk óvæntan stuðning í gær
þegar forystumenn
Repúblikanaflokksins í Kali-
forníu skipuðu sér í lið með
honum fyrir ríkisstjórakosn-
ingarnar í næstu viku.
„Það hefur sýnt sig að Arnold
nær sambandi við kjósendur
og styrkir þar með stöðu
repúblikana, auk þess sem
hann höfðartil demókrata og
óháðra og vekur áhuga nýrra
kjósenda," sagði Duf Sund-
heim, leiðtogi repúblikana í
Kaliforníu.
Samkvæmt nýrri skoðana-
könnun hefur Schwarzenegg-
er verið að sækja í sig veðrið
og er nú kominn með stuðn-
ing 40 prósenta kjósenda.
Laura kysst á höndina
RIDDARAMENNSKA: Jacques
Chirac Frakklandsforseti kyssti
Lauru Bush, forsetafrú í Banda-
ríkjunum, á höndina þegar
hann bauð hana velkomna til
Parísar í gær. Hann sagði
henni síðan að lönd þeirra
ættu að gleyma gömlum vær-
ingum. Ágreiningur landanna
um Iraksmálið er enn óleystur.
Laura Bush sagði, í tilefni þess
að Bandaríkin ætla aftur að
taka þátt í starfi UNESCO,
menningarmálastofnunar
Sameinuðu þjóðanna, að
ráðamenn vestra myndu
reyna að notfæra sér það starf
í hugmyndafræðilegri baráttu
sinni gegn hryðjuverkum.
Bandaríkin drógu sig út úr
UNESCO fyrir nítján árum, á
valdatíma Ronalds Reagans.
Friðinn þarf að greiða
með sjálfstæði Palestínu
Palestínski uppreisnarleiðtog-
inn Marwan Barghouthi sagði á
lokadegi réttarhalda sinna í ísr-
ael í gær að gjaldið sem þyrfti
að greiða fyrir frið fyrir botni
Miðjarðarhafs væri sjálfstæði
palestínsku þjóðarinnar.
„Við erum þjóð eins og allar aðr-
ar þjóðir. Við viljum frelsi og eigið
ríki aiveg eins og ísraelar," sagði
Barghouthi á nærri lýtalausri
hebrresku fyrir réttinum í Tel Aviv.
Barghouthi, sem er háttsettur leið-
togi Fatah-hreyfingar Yassers
Arafats, er ákærður fyrir að hafa
skipulagt fyrirsát og sjálfsmorðstil-
ræði sem kostuðu 26 manns lífið.
HVERGI BANGINN: Palestínsku uppreisnar-
leiðtoginn Marwan Barghouthi sendi (sra-
elum tónum í réttarsal í gær.
„Israel verður að taka ákvörðun.
Annaðhvort heimilar það (palest-
ínskt) ríki við hlið sér eða það verð-
ur tveggja þjóða ríki,“ sagði hinn 43
ára gamli Barghouti, sem neitar öll-
um ákæruatriðunum. Hann neitar
einnig að viðurkenna lögsögu ísra-
elska dómstólsins.
Háttsettur bandarískur stjórnar-
erindreki, William Burns, gagn-
rýndi ísraelsk stjórnvöld í gær og
sagði að þau ógnuðu framtíð ísra-
els sem lýðræðislegs ríkis gyðinga
með því að neita að stöðva land-
tökubyggðir á Vesturbakkanum.
Burns lét þessi orð falla á ráð-
stefnu sem ætlað er að auka tengsl
Bandaríkjanna við arabaríki.
Loftslagsráðstefna í Moskvu:
Kyoto-samning-
urinn í uppnámi
Óvissa ríkir um framtíð lofts-
lagssamningsins frá Kyoto eftir
að Vladimír Pútín Rússlandsfor-
seti sagði fulltrúum á loftslags-
ráðstefnu í Moskvu í gær að
Rússar hefðu ekki enn gert það
upp við sig hvort þeir myndu
staðfesta hann.
Fulltrúar á ráðstefnunni sögðu
að þótt Rússar væru enn óákveðnir,
væri samt of snemmt að fara að
ræða um hugsanlegan dauða
Kyoto-samningsins frá 1997 þar
sem þjóðum heims eru sett mark-
mið í baráttunni við losun gróður-
húsalofttegunda.
Pútín gerði meira að segja að
gamni sínu og sagði að með hlýn-
andi loftslagi hefðu Rússar minni
þörf fyrir loðfeldi.
Mjög hefur verið þiýst á Pútín að
staðfesta Kyoto-samninginn.
Jacques Chirac Frakklandsforseti
hefur sagt að framtíð samskipta
Evrópusambandsins og Rússlands
velti á samþykki hans.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, sendi boð til
ráðstefnugesta þar sem hann hvatti
Rússa til að segja „já".
ENN í SKOÐUN: Vladimír Pútín Rússlands-
forseti sagði í gær að stjórnvöld í Moskvu
væru enn að skoða Kyoto-samninginn um
minni losun gróðurhúsalofttegunda.
Rússlandsforseti sagði hins vegar
í ræðu sinni við upphaf ráðstefn-
unnar að rússnesk stjórnvöld væru
enn að skoða málið.
Rússar ættu þó ekki að vera í
vandræðum með að ná fram þeim
markmiðum sett eru í samningn-
um um minni losun.
KLM og Air France:
í eina
Stjórnendur franska flugfélags-
ins Air France og hins hollenska
KLM staðfestu í morgun að
náðst hefði samkomulag um
samruna félaganna. Þá hefur
ítalska flugfélagið Alitalia hafið
viðræður um að fá að vera með.
Samkomulagið, sem hefur verið
rúmt ár í undirbúningi, gerir ráð
fyrir að félögin skiptist á hlutabréf-
um. Við það dregur svo mjög úr
eignarhlut franska ríkisins í Air
France að félagið verður í raun
einkavætt. Þetta er í fyrsta sinn sem
flugfélög úr sitt hvoru landinu sam-
einast í Evrópu.
Með samruna Air France og KLM
verður til þriðja stærsta flugfélag í
heimi, á eftir hinum bandarísku
Delta og American Airlines. Samn-
ingurinn mun valda miklum breyt-
ingum í þessum geira.
KLM hefur átt í fjárhagsvand-
ræðum um nokkurt skeið. Félagið
hefúr þegar gert nokkrar mis-
heppnaðar tifraunir til að samein-
ast breska flugfélaginu British
sæng
SAMRUNI: Evrópsku flugfélögin Air France
og KLM munu væntanlega sameinast og
mynda þriðja stærsta flugfélag í heimi.
(talska félagið Alitalia hefur einnig mikinn
áhuga á að vera með.
Airways og á árinu 2000 hættu for-
ráðamenn þess á síðustu stundu
við að sameinast Alitalia.
Búist hefur verið við samruna
flugfélaga um alllangan tíma þar
sem mörg þeirra stærstu hafa verið
rekin með tapi.
YOGASTOÐIN HEILSUBOT
Síðumúla 15, s. 588 5711 og 694 6103
YOGA YOGA YOGA
Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla.
Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar.
Sértímar fyrir byrjendur og barnshafandi konur.
Hví ekki að prófa?