Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2003, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2003, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 2003 TILVERA 17 Minogue berast líflátshótanir Ástralska söngkonan Kylie Minogue er í öngum sínum vegna hótunarbréfa sem hún hefur fengið frá einum aðdá- enda sinna. „Hún vill að þessi brjálæðingur verði tekinn," segir heimildar- maður breska æsiblaðsinsThe Sun. Kylie fór ekki að hafa neinar áhyggjur af bréfaskriftunum fyrr en þau voru orðin tvö á dag. Þá hafði hún samband við lögregluna og afhenti henni sjö hundruð bréf sem talið er að sami maðurinn hafi skrifað. Bréfin voru ýmist send á heim- ili Kylie í Chelsea eða á skrif- stofuna hennar. „Við getum staðfest að kona sem býr í Chelsea hefur kært ofsóknir," segir talsmaður lög- reglunnar við The Sun. Af Kylie er það annað að frétta að orðrómur er kominn á kreik um að hún sé kona ekki ein- sömul. Ekki þurfti meira til en óskir hennar um að draga að- eins úr vinnu. „Hún er annaðhvort ólétt eða þá að hún gerir sér vonir um að verða það á næstu mánuð- um," segja vinir söngkonunnar við enska slúðurblaðið Heims- fréttir. Um þessar mundir er Kylie með franska leikaranum og hjartaknúsaranum Olivier Martinez. Orðrómi um óléttu er vísað á bug. Kristján Harðarson stofnaði Subway í Lúxemborg: Bætirvið tveimur á næsta ári Kristján Harðarson er ungur maður sem flutti með fjölskyldu sína til Lúxmborgar fyrir fimm árum og hefur síðan verið að koma undir sig fótunum. í sumar stofnaði hann svo fyrsta Subway-staðinn í Lúx- emborg, sem var opnaður í júlí, og hyggur á fleiri landvinninga í þeim efnum „Það eru um það bil þrjú ár síðan ég fór að spá í málin í sambandi við Subway-veitingastað. Heima hafa þeir gengið vel og eru orðnir á annan tug. í þessu mikla alþjóðasamfélagi sem er í Lúxemborg var enginn Subway-staður svo mér fannst vera kominn tími til að Lúxemborgarar fengju að kynnast subway-samloku." Kristján tók sér góðan tíma og það var síðan í fyrra sem hann lét verða af því að ná sér í réttindi og hefúr nú einkarétt á Subway í Lúxemborg og Belgíu: „Ég kom þó hingað til Lúxem- borgar með allt annað starf í huga. Það var fyrir fimm árum sem mér bauðst að koma og vinna við kvikmyndafyrirtæki sem sér um dreifingu á kvikmyndum. Við þetta starfaði ég allt þar til í sumar að ég hætti um leið og ég opnaði Subway-veitingastaðinn." Fann góðan stað Kristján segist hafa hugsað vel um staðsetninguna. „Ég var með miðbæ- inn í huga tii að byrja með og vonandi á ég eftir að stofna Subway þar, en taldi það vera of erfitt í upphafi og leitaði að hentugri stað. Það sem síðan varð fyrir valinu er stærsta kvikmyndahúsið í Lúxemborg og eina kvikmyndahúsið sem sýnir kvikmyndir með tali á frum- máli. Segja má að starf mitt við kvik- myndadreifinguna hafi komið mér til góða þegar ég valdi þennan stað. Kvik- myndahúsið er í bisnesshverfi þar sem er fjöldinn allur af bönkum og í næsta húsi er stór amerískur banki. I heiidina em um 30 þúsund starfsmenn í ná- grenninu sem koma hvaðanæva úr heiminum og starfa við bankana og Evrópustofrianir sem em einnig hér í nágrenninu. Það em því margir ein- staklingar sem kannast við vömmerkið annars staðar frá. Þannig að á daginn kemur fólk sem starfar í nágrenninu til okkar og svo em það kvöldin þegar mest er aðsóknin í kvikmyndahúsin." Viðtökurnar hafa farið fram úr vonum okkar og traffík verið jöfn og góð. Ég er þegar farinn að huga að öðrum stöðum og einbeiti mér fyrst að Lúxemborg Subway í Lúxemborg er ekki ósvip- aður Subway-stöðunum á íslandi. „An þess að ég hafi sjálfhr séð Subway í Smáralind er mér sagt að staðurinn minn sé mjög líkur þeim Subway. Þetta er staðlað umhverfi sem er þó hægt að breyta út frá en þegar á heildina er litið verða Subway-staðir lfkir hver öðmm. Það er helst stærðin sem er misjöfn. Fjölskylduvænt umhverfi Þegar Kristján flutti með fjölskyldu sína til Lúxemborgar vom þau þrjú. Nú em þau orðin fjögur og líður ekki á löngu þar til þau verða fimm. „Luxem- bourg er að mörgu leyti fjölskyldu- vænn staður. Mjög vel er hugsað um bömin í skólanum og ekki er það verra að tekjuskattur lækkar við fyrsta bam, enn meira við annað bam og verður nánast enginn við þriðja bam. Það er því ekki hægt að kvarta yfir aðstæðum, enda líður okkur öllum mjög vel hér.“ Viðtökumar hafa farið fram úr von- um Kristjáns: „Það fylgir því alltaf dálít- ill kvfði þegar farið er í nýtt starf, og þegar um er að ræða eigin rekstur er áhætta tekin. Ég verð þó að segja að viðtökumar hafa farið fram úr vonum okkar og traffik verið jöfn og góð. Ég er þegar farinn að huga að öðmm stöð- um og einbeiti mér íyrst að Lúxem- borg. Ég reikna með að opna tvo staði á næsta ári. Síðan gæti Belgía komið í kjölfarið." hkarl@dv.is TJÖRNIN: Horft suður yfir tjörnina yfir blómaskrúðið í Ráðhúsinu. GAMAN: Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, Þórólfur Árnason borgarstjóri og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra. Borgarstjóri tók þátt i blómaskreytingakeppni og atti kappi við formann landbúnaðarnefndar Alþingis. BLÓM: Glæsilegar blómaskreytingar fylltu sal Ráðhúss Reykjavikur. Blómasýningin var aðstandendum til mikils sóma og Ijóst að íslenskir blómaskreytingamenn kunna ýmislegt fyrir sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.