Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
Kínverjar
sendir heim
Fimm Kínverjar sem
framvísuðu fölsuðum vega-
bréfum í Leifsstöð nýverið
voru í gær dæmdir (30
daga skilorðsbundið fang-
elsi í Héraðsdómi Reykja-
ness. Sá sjötti, singapúrskur
karlmaður á miðjum aldri,
var dæmdur í 45 daga fang-
elsi. Fólkið verður sent aft-
ur heim til Kína á kostnað
íslenska rtkisins um leið og
bráðabirgðavegabréf hafa
verið gefin út.
Ákæruvaldið krafðist
þess að fólkið yrði dæmt til
fangelsisvistar enda væri
brýnt að þau skilaboð bær-
ust til þeirra sem stunda
ólöglega fólksflutninga að
ísland sé ekki heppilegur
kostur í þeirri starfsemi.
Fólkið mun una dómnum
en ákæruvaldið á enn eftir
að taka ákvörðun um hvort
málinu verði skotið til
Hæstaréttar. Sexmenning-
arnir voru aukinheldur
dæmdir til að greiða
málsvarnarlaun.
Gæsluvarðhald yfir Ástr-
ala sem kom hingað til
lands ásamt tveimur kín-
verskum stúlkum fyrir
tveimur vikum rennur út í
dag. Lrklegt þykir að stúlk-
unum verði vísað úr landi.
Landlæknirí
einu máli
Jón Hilmar Alfreðsson,
sérfræðingur í lcvenlækn-
ingum á Landspítalanum,
hefur verið sett-
ur landlæknir í
máli er varðar
dauðsfall unga-
barns sem lést
skömmu eftir
fæðingu á Heil-
brigðisstofnun
Suðurnesja. Sig-
urður Guðmundsson land-
læknir óskaði eftir því við
heilbrigðisráðherra að sér-
stakur landlælcnir yrði skip-
aður í málinu, þar sem
framlcvæmdastjóri land-
læknis gegnir stöðu fram-
kvæmdastjóra hjá Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja.
Jón Hilmar tekur til starfa í
næstu viku.
Ríkisstjórnin
vottar samúð
Halldór Ásgrímsson, ut-
anríkisráðherra, ritaði Jack
Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, bréf í
gær þar sem
hann lýsti yfir
hryggð vegna
hryðjuverka-
árásanna í Istan-
búl í gær. Halldór
vottaði aðstand-
endum látinna samúð fyrir
hönd ríkisstjómarinnar.
Fram kemur í bréfinu
sannfæring Halldórs að
grimmdarverkin verði til
þess að tvíefla samfélag
þjóðanna í baráttunni gegn
alþjóðlegum hryðjuverk-
um.
Stóru olíufyrirtækin hækkuðu öll bensinverð sin i gær. Það þýðir auknar álögur á
bifreiðaeigendur um 195 milljónir króna. Markmið rikisstjórnarinnar virðist vera
að bjóða þegnum sinum dýrasta bensín í veröldinni.
Atlantsolia Eini adilinn á
markaðnum sem hækkaði
ekki verð á eldsneyti.
„Fóik er að átta sig á því að
það er engin þörfá að borga
meira fyrirsömu vöru. Leigu-
bílstjórum hefur fjölgað mikið
sem versla hjá okkur og sama
gildir um útgerðir."
Stóm olíufélögin hafa hækkað verð á eldsneyti
eina ferðina enn. Viðkvæðið er hækkandi heims-
markaðsverð og er ótryggt ástand í Mið-Austur-
löndum og minnkandi birgðastaða Bandaríkja-
manna sagðar höfuðorsakir þessa.
Athygli vekur að Atlantsolía hælckar ekki verð
að sama skapi. Hugi Hreiðarsson, umsjónarmað-
ur markaðs- og kynningarsviðs Atlantsolíu, segir
að fyrirtækið sé í samkeppni og að þeirra mati
kalli hækkun heimsmarkaðsverðs í þetta sinn,
ekki á hækkun innanlands. „Auðvitað fylgjumst
við með því sem gerist á olíumörkuðum og bregð-
umst við ef þörf þykir. Það er okkar mat að ekki sé
þörf á hælckun."
Hugi segir að viðskiptavinum fyrirtækJsins
fjölgi dag frá degi. „Fólk er að átta sig á að það er
engin þörf á að borga meira fyrir sömu vöru.
Leigubílstjórum hefur fjölgað mikið sem versla
hjá okkur og sama gildir um útgerðir. Ástæðan
Jiggur í augum uppi; við erum miklu ódýrari."
Lítri af díselolíu hjá Atlantsolíu er tíu krónum
ódýrari en hjá samkeppnisaðilum.
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri félags
íslenskra bifreiðareigenda, segir að í framhaldi
þessarar hækkunar sé vert að hafa í huga að til
stendur að hækka álögur á
eldsneyti enn frekar. „Efna-
hags og viðskiptanefnd ræðir
nú þær tillögur ríkisstjórnar-
innar að hækka skatt á bif-
reiðaeigendur. Það þýðir
hækkun um 3,90 krónur á
Runólfur Ólafsson Telurlikurá
að álögur á bifreiðaeigendur hækki
enn frekar innan tiðar.
hvern lítra. Það er alveg með eindæmum að ríkis-
stjórn sem boðar skattalækkanir í kosningabar-
áttunni skuli hafa það markmið að bjóða upp á
hæsta bensínverð í heimi."
albert@dv.is
ELDSNEYTI HÆKKAR;
95 okt. díselolía flotaolía
Skeljungur 97,60 45,80 31,40
Olíufélagið 97,60 45,80 31,40
AtlantsoKa - 35,00 26,00
Noregur* 95,90 90,46
Svlþjóð* 99,70 99,70 -
Þýskaland* 98,00 78,40 -
Bandaríkin** 32,10 30,60 -
* Meðaltal bensínverðs í september.
** Oktantala er lægri
Myrkrahöfðinginn
Mikið er vald Myrkrahöfðingjans.
Það hefur löngum verið kunnugt á
Islandi þar sem menn hafa allt frá
dögum Sæmundar fróða glímt við
pokurinn og með misjöfnum ár-
angri. Sæmundur stóð sig að vísu
vel, enda hafði hann lært í Svarta-
skóla, en síðan hefur verið allur
gangur á því hvernig farið hefur.
Svarthöfði minnir til dæmis á örlög
Galdra-Lofts sem reyndi sig við
skrattann en beið háðulegan ósigur
og kom að lokum grá krumla upp úr
sjó og sótti hann niður í djúpið.
Þannig eru að minnsta kosti örlög
Galdra-Lofts samkvæmt þjóðsög-
unni, þótt Jóhann Sigurjónsson hafi
kosið að enda leikrit sitt um Loft
greyið öðruvísi - þar hverfur Loftur
ofan í kirkjugólfið ef Svarthöfði man
rétt.
En sá myrkrahöfðingi sem nú er
-Tw Svarthöfði
að hrella oss íslendinga - og Svart-
höfða þar á meðal - er að vísu ekki sá
svarti sjálfur, eins og stundum er
sagt, þótt Svarthöfði kunni að vísu
illa við það orðalag, og þarf áreiðan-
lega ekki að skýra það út fyrir nein-
um.
Það er Myrkrahöfðingi Hrafns
Gunnlaugssonar sém nú virðist á
góðri leið með að ríða Kvikmynda-
samsteypu Friðriks Þórs Friðriks-
sonar að fullu. Friðrik Þór er að vísu
sannur herramaður í DV í gær og
tekur alla sökina á erfiðleikum fyrir-
tækis síns á sjálfan sig, sem er vissu-
lega sjaldgæft meðal íslenskra at-
hafnamanna sem lenda í vandræð-
um. Oftast eru gjaldþrot og erfiðleik-
ar engum að kenna nema bissnis-
smönnunum sjálfum en þeir vilja
kenna öllum öðrum um en sjálfum
sér. Því er hressilegt af Friðriki Þór
að lýsa sökinni á hendur sér.
En Svarthöfði er ekki sannfærð-
ur. Svarthöfði fór að sjá Myrkrahöfð-
ingjann á sínum tíma, af því hann
fékk boðsmiða á frumsýningu, og
leist strax misjafnlega á blikuna. En
þegar svo Kjartan Gunnarsson birt-
ist í hlutverki Brynjólfs biskups var
Svarthöfða öllum lokið og hann
þóttist viss um að þessi mynd færi
illa. Kjartan er góður á sínum stað en
leikari er hann enginn. Mynd þar
sem honum var hampað í aUstóru
hlutverki gat ekld endað nema með
ósköpum, þótt Hilmir Snær Guðna-
son gerði eins vel og hann gat.
Og nú hefur tapið vegna Myrkra-
höfðingjans knúið Friðrik Þór í
greiðslustöðvun. En Hrafn er að fara
að frumsýna nýja mynd á næstunni.