Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Blaðsíða 32
Fréttaskot Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. 550 5090 SKAFTAHLfÐ24 10SREYKJAVÍK[STOFNAÐ19W ] SÍMI5S05000 Spilakassi 5000 króna- seðillinn passar ekki. Spilafíklar í uppnámi Spilafíklum varð ekki um sel þegar þeir upp- götvuðu að nýi fimm þús- und króna seðillinn passar ekki í spilakassa Happ- drættis Háskóla íslands. Varð víða uppnám í spila- sölum happdrættisins vegna þessa: „Nýi fimm þúsund króna seðillinn virkar ein- faldlega ekki í kassana. í honum eru margvíslegir öryggisþættir sem gera það að verkum að kass- arnir taka ekki við hon- um,“ segir Róbert Sverris- son, starfsmaður á spila- kassadeild Happdrættis Háskólans. „Fyrir bragðið verðum við að uppfæra tölvukub- ba í köss- unum og er það verk þeg- ar hafið." Ekki Engu er líkara en þjófur sem ásælist bókstafinn H gangi laus í vest- urhluta höfuðborgarinnar. Eigendur og forstöðumenn fyrirtækja ogstofn- ana sem eru með bókstafmn H í nafni sínu eru á varðbergi því þjófur- inn losar þann bókstaf úr merkingum og hefur á brott. „Stafurinn hvarf úr merki okkar og það fylgir því töluverður kostnaður að fá annan," segir Jón Birgir Gunn- arsson, verslunarstjóri Húsasmiðj- unnar við Fiskislóð, en þar er H-ið horflð úr merki verslunarinnar og eftir stendur „úsasmiðjan". „Það er að sjálfsögðu ekki hægt að búa við þetta," segir verslunarstjórinn sem gerir ráð íyrir að það kosti ekki undir 50 þúsund krónurn að láta búa til nýtt H. „Annars em þeir lfka gaman- samir næturhrafnarnir hér í Vestur- bænum því þeir eiga það til að víxla fánum fyrirtækja og mgla þar með viðskiptavini. Um daginn vom fánar verslunarinnar 10-11 komnir upp hér við Húsasmiðjuna og öfugt. Og þá var verslunin Krónan allt í einu orðin að Landsbankanum." Jón Birgir í Húsamiðjunni hyggur að hér séu pömpiltar á ferð sem noti H-stafina til að skreyta herbergi sín. Alkunna sé að á slíkum stöðum kenni ýmissa grasa. Forráðamenn annarra fyrirtækja og stofhana í hverfinu sem byrja á H hafa enn sem komið er ekki orðið fyrir barðinu á H-þjófnum: „Merkin okkar eru víða á húsum hér og borið hefúr við að verið sé að plokka ýmsa stafi af,“ segir Vilhjálm- ur Pálmason, húsvörður í Háskóla ís- lands. „En ekkert H hefur verið tekið nýlega mér vitanlega." eir@dv.is Jón Birgir á vettvangi Ekki nóg með að þjófarnirsteli bókstöfum - þeirvixla lika fánum. gat Róbert sagt til um hvenær lokið yrði við að skipta um tölvukubba í kössunum en á meðan svo er verða spilafíklar að spila fyrir lægri upphæðir og dæla fleiri og verð- minni seðlum í spilakass- ana. elvítis undurinn! Jóhann Örn Dans er mennt og losar um sálina. Ókeypis háskóladans „Ég væri til í að fara í Háskólann og læra þá guðfræði, sálfræði eða félags- fræði," segir Jóhann öm Ólafsson danskennari sem býður háskólastúdent- um upp á grundvallarnámskeið í dansmennt fyrir upplestrarfrí án endur- gjalds. „Dansinn losar um sálina," segir hann. Jóhann Örn ætlar að leggja áherslu á að kenna stúdentunum gmnnspor í nokkrum af helstu samkvæmisdönsum Vesturlanda sem allir hafa gagn af að læra og nefnir þar jive, foxtrott, sömbu, rúmbu og síðast en ekki síst quick- step sem er einhver hressilegasti dans sem til er og sérlega streitulosandi. Jóhann Örn bíður nú eftir viðbrögðum stúdenta en danstímarnir verða á miðvikudagskvöldum 26. nóvember og 3. september. NÝ SKÁLDSAGA eftir vígdisi grímsdóttur Sannkölluð spennusaga ' *S w h Í SÆTI „Lesandi er ofurseldur valdi mikillar sagnakonu... náttúrulega fremst sagnaskálda af sinni kynslóð og þó víðar væri farið í skálda- hópi á íslandi." Páll Baldvin Baldvinsson STÖÐ2 iJpO JPV ÚTGÁFA „Ungum manni skolaðí á land um nótt í nóvember. Það bar enginn kennsl á beinin svona fyrst í staö og það sváfu allir fuglar.” Með þessum upphafsorðum bókarinnar er spennandi atburðarás hrint af stað, þar sem enginn veit hver kann að leynast í dulargervi og tefla lífi förunauta sinna i tvísýnu. „Sannkölluð spennusaga." Soffla Auöur Birgisdóttir / MORGUNBLAÐIÐ Vigdís Grímsdóttir Sj-Adf'i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.