Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
Vill samvinnu
um Gljúfra-
stein
Guðný Dóra Gestsdóttir
hefur verið ráðin fram-
kvæmdastjóri Minningar-
safns um Halldór Laxness á
heimili skáldsins að
Gljúfrasteini í
Mosfellsdal. Ætl-
unin er að koma á
fót safni um skáld-
ið í líkingu við
söfn um líf og verk
James Joyce,
Astrid Lindgren og
August Strindberg, svo
eitthvað sé nefnt.
„Margan sem farið hefur
f sunnudagsbíltúr um Mos-
fellsdalinn hefur eflaust
langað til að gægjast inn í
líf skáldsins sem hlaut
Nóbelinn," segir Guðný.
Guðný hyggst leggja
mikla áherslu á samvinnu
og frið um Gljúfrastein.
„Forsætisráðuneytið, fjöl-
skylda skáldsins, verktakar
og aðrir verða að geta unn-
ið saman til að safnið verði
öllum til sóma,“ segir hún.
Reiknað er með að safn-
ið verði opnað í ágúst, en
við Gljúfrastein eru nú þeg-
ar merktar gönguleiðir sem
skáldið fór daglega til að fá
hvíld frá skriftum og inn-
blástur.
Holdsveikum
meinaður að-
gangur
Yfir tuttugu Japanir sem
þjáðust áður af holdsveiki,
hafa neitað að taka við af-
sökunarbeiðni frá bað-
strandarhóteli sem meinaði
þeim dvöl. Þeim var mein-
aður aðgangur að hótelinu
þrátt fyrir að hafa það upp-
áskrifað frá læknum að
holdsveiki hrjáði þá ekki
lengur og að engar líkur
væru á því að þeir myndu
smita aðra gesti. Talsmaður
hópsins segist ekki taka af-
sökunarbeiðnina til greina
og að þeir muni standa
keikir og berjast fyrir
mannréttindum holds-
veikra í Japan.
»888
Margrét Frímannsdóttir
Margrét hefur aldrei gleymt
uppruna sínum, hún er alltaf
stelpa frá Stokkseyri. Hjartaö
slær alltafmeð þeim sem
knöppust hafa kjörin. Mann-
eskja með háleitar hugsjónir
um réttlátt þjóðfélag og er til-
búin að leggja mikið í sölurnar
til þess að sá draumur rætist.
Kostir & Gallar
Margrét hefur ótrúlegt bar-
áttuþrek og sumir segja henni
að hún ætli sér hreinlega ekki
af, sem hún hefur orðið að
gjalda fyrir með heilsu sinni.
Þykir að sumra mati safna of
einsleitri hjörð stuðnings-
manna að sér og hlusti
kannski um ofá ráð þeirra -
en ekki eigið hyggjuvit.
Tvenn hryðjuverkasamtök lýsa á hendur sér ábyrgð á hryðjuverkunum í Tyrklandi
í gær. Þegar síðast fréttist höfðu tæplega þrjátíu látist og um 400 voru sárir
íbúar Istanbúl voru enn felmtri slegnir í gær-
kvöldi eftir tvær sjálfsmorðsárásir hryðjuverka-
manna sem kostað höfðu tugi mannslífa. Þegar
síðast fréttist voru 27 látnir og allt að fjögur
hundruð særðir. Óttast var að tala látinna ætti
eftir að hækka. Maður sem hringdi til tyrkneskrar
fréttastofu sagði að tvenn samtök, Al-kaída og
ISBA-C, hefðu staðið sameiginlega fyrir árásun-
um. Þau síðarnefndu eru tyrknesk samtök ofsa-
trúaðra hryðjuverkamanna.
Aðeins er vika liðin síðan Istanbúl varð síðast
fyrir sjálfsmorðsárásum. Þá urðu tvær sýnagógur
Gyðinga fyrir árásum og 25 manns létu líflð. Nú
var ráðist annars vegar að bresku ræðismanns-
skrifstofunni og hins vegar að aðalstöðvum
breska bankans HSBC. Meðal fallinna var aðal-
ræðismaður Breta í Istanbúl, Roger Short að
nafni.
Lftill vafi leikur á því að ráðist var gegn bresk-
um skotmörkum vegna heimsóknar George Bush
Bandaríkjaforseta til Bretlands, sem nú stendur
yfir og hefur orðið tilefni mikilla mótmæla þar í
landi. Þeir Bush og Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, fordæmdu báðir árásina harðlega og
endurtóku heit sín í garð hryðjuverkamanna, um
að þeir yrðu eltir uppi hvar sem til þeirra næðist.
Tóku þeir fram að hryðjuverk af þessu tagi hefðu
engin áhrif á framgang mála í írak.
Forsætisráðherra Tyrklands, Tayyip Erdogan,
strengdi þess dýran eið að ná illræðismönnum og
draga þá fyrir dóm.
„Tyrkland verður sem krepptur hnefi,“
sagði hann og átti við að hnefinn myndi berja
niður tilræðismennina. En jafnframt hvatti
hann til yftrvegunar. „Besta svar okkar er að
halda ró okkar," sagði hann á blaðamanna-
fundi.
Fyrri árásin á aðalstöðvar breska bankans
var gerð laust eftir klukkan ellefu fyrir hádegi í
gær að tyrkneskum tíma. Tveimur mínútum
síðar sprakk sprengja við bresku ræðismanns-
skrifstofuna. Báðar voru mjög öflugar og ollu
miklum skemmdum á nálægum byggingum
svo alger óreiða varð í miðborg Istanbúl.
Dómur fyrir ítrekuð fíknefnabrot og peningaþvætti:
Átta ár bak við lás og slá
Hæstiréttur hefur dæmt Stefán
Ingimar Koeppen Brynjarsson, til
átta ára fangelsisdóms fyrir stór-
felldan innflutning á fíkniefnum og
peningaþvætti. Er þetta einn þyngsti
dómur sem fallið hefur í fíkniefna-
máli hérlendis. Hæstiréttur þyngdi
þar með dóm Héraðsdóms Reykja-
ness frá júlí síðastliðnum. Þá var
Stefán dæmdur til sex ára refsivistar
fyrir sömu brot.
Samverkamenn Stefáns, Haf-
steinn Ingimundarson og Angela
Koeppen Brynjarsdóttir, hlutu bæði
tveggja ára dóm í Hæstarétti en hluti
refsingar Angelu er skilorðsbund-
inn.
Stefán Ingimar er sakfelldur fyrir
að hafa í hagnaðarskyni staðið fýrir
stórfelldum innflutningi á fíkniefn-
um, annars vegar á árinu 1998 og
hins vegar árið 2001. Einnig fyrir að
hafa ætlað þau til sölu hér á landi.
Hafsteinn og Angela fengu dóm
fyrir að hafa haft milligöngu um
dreifmgu og sölu á efninu.
Hæstarétti þótti sannað að Stef-
án Ingimar hefði verið höfuðpaur-
inn í skipulagðri brotastarfsemi sem
fólst meðal annars í því að fíkniefni
voru flutt hingað til lands í niður-
suðudósum frá Þýskalandi. Þótti
sannað að ætlunin hefði verið að
selja efnin hér á landi.
Stefán bar fyrir réttinum að ekki
hefði verið ætlunin að selja neitt af
efnunum hér á landi en það er í
þversögn við framburð hans við lög-
reglu þegar Stefán var handtekinn.
Stefán Ingimar Koeppen Brynjarsson
Fékk þungan dóm fyrir stórfelldan innflutn-
inga á fikninefnum.