Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003
Fréttir DV
Davíð sendi
góða kveðju
„Davíð var að senda
okkur góða kveðju. Mikil
ósköp, við erum ánægð
með útspil hans,“ segir
Gunnsteinn Gíslason, odd-
viti Árneshrepps á Strönd-
um, um yfirlýsingu Davíðs
Oddssonar forsætisráð-
herra á þingi um að hann
vilji varðveita mannabyggð
í hreppnum. 60 manns búa
í hreppnum og er helsti at-
vinnuvegurinn sauðfjárbú-
skapur. Auk þess landa
nokkrar trillur afla sínum í
hreppnum á sumrin. Að
sögn Davíðs verður skipuð
nefnd um gerð tillagna til
að vernda byggð í hreppn-
um.
Gunnsteinn segir helsta
vanda hreppsins vera sam-
göngurnar, en lélegur mal-
arvegur liggur norður að
hreppnum. Þá segir hann
fólk í sveitinni hafa gælt við
þá hugmynd að Hvalá í
Ófeigsfirði yrði virkjuð.
„Orkubú Vestíjarða veit af
þessum góða virkjunar-
kosti. Þá kæmu heldur bet-
ur peningar í kassa hrepps-
ins," segir Gunnsteinn.
íslendingar
duglegir á
netinu
Netnotkun er útbreidd-
ust á íslandi og í Danmörku
samkvæmt nýrri samantekt
á notkun
þjóða á
upplýs-
ingatækni.
Svíar eru
þar efstir á
lista en auk
netnotkunar voru bomir
saman þættir eins og
menntunarstig, verð á síma-
þjónustu og tölvueign. At-
hygli vakti að Bandaríkin
hafa fallið í ellefta sæti í
þessum samanburði en þar
trónir Svíþjóð á toppnum
en Danmörk og ísland eru í
öðru og þriðja sæti. Norður-
Evrópuríki og Asíulönd hafa
ýtt enskumælandi löndum
neðar á þennan lista yfir
tæknisinnaðar þjóðir.
Bandaríkjamenn halda meira en 600 manns fóngnum í Guantanamoflóa á Kúbu.
Flestum hafa þeir haldið í meira en tvö ár án þess að þeir njóti grundvallarmann-
réttinda. Nokkrir Pakistanar sem hafa losnað tala um vistina. Margir reyndu að
fremja sjálfsmorð, aðrir eru skemmdir fyrir lífstíð eða gjaldþrota.
Koma skemmdir
heim frá Kíí
„Álagið og áhyggjurnar hafa rekið mig út í að
reyna sjálfsmorð," segir tuttugu og fjögurra ára
gamall Pakistani Shah Muhammed við BBC. Hann
gengur nú laus eftir að hafa verið vistaður
nauðugur í fangelsi bandaríska hersins
Guantanamoflóa á Kúbu. Mannréttindasamtök
hafa gagnrýnt að engin mannréttindalög hafi lög-
sögu þar.
Shah Muhammed reyndi fjórum sinnum að
fyrirfara sér í fangelsinu.
Hann segir að sárin á sálinni hafi ekki gróið. „Ég
vakna upp á nóttunni og óttast að deyja". Honum
finnst erfitt að gleyma reynslunni.
Nágrannar Muhammeds segja að hann tali ekki
mikið eftir að hann kom heim. „Hann er breyttur
maður," sagði nágranni hans. Hann vill að Banda-
rfkjamenn bæti sér skaðann.
Annar Pakistani, sem var sá fyrsti tO að losna úr
Guantanamo, Mohammed Sagheer vill tíu millj-
ónir dollara frá Bandaríkjastjóm. Synir hans tóku
mikið fé að láni til að geta leyst hann úr haidi. Nú
em lánardrottnarnir á hælum þeirra.
Leigubílsstjórinn Abdul Mulla er svo bitur að
hann vill ekki einu sinni tala um reynsluna. Segir
það ekki skipta máli. „Þið emð allir trúleysingjar,"
sagði hann við fréttamann BBC.
Abdul Raziq segist á hinn bóginn ekkert hafa
upp á Bandaríkjamenn eða Afgana að klaga. Hann
var handtekinn fyrir að kunna ensku og hefur nú
heitið því að tala aldrei ensku aftur.
Hann var í fangelsi í tuttugu og einn mánuð í
Ég vakna
á nóttunni
og óttast
að deyja".
Frá fangabúðunum í Guantanamo. Bandaríkjastjórn heldur
þar rúmlega 600 föngum sem náðust í stríðinu i Afganistan.
Afganistan og á Kúbu og segir að
fangelsið á Kúbu hafi verið skárra.
Bandaríkjamenn halda rúm-
lega 600 mönnum föngnum við
aðstæður sem öll helstu mann-
réttindasamtök hafa gagnrýnt
harkalega. Sænsk og bresk
stjórnvöld hafa reynt að fá lausa
fanga með litlum árangri. Þeir vilja
tryggja föngunum réttláta máls-
meðferð. Bush Bandaríkjafor
seti hefur lýst
föngunum sem
vondu fólki.
Fjömtíu af þeim
sem hafa verið
handteknir,
hefur verið
sleppt.
Sliman Shah Tuttugu og átta ára fyrrverandi hermaður Tali-
bana sýnir merkið sem hann hafði á meðan hann var fangi í
Guantanamo. Honum var sieppt úr haldi fyrr á árinu.
Hlýindi
lækka verð
Óvenjumikil hlýindi í
Bretlandi hafa leitt til lækk-
unar á gengi hlutabréfa í
fyrirtækjum á markaði í
Lundúnum sem tengjast
fataverslun. Mesta lækkun-
in var í verslunarkeðjunum
New Look, French Conn-
ection og Mothercare. ís-
lendingar hafa fjárfest
nokkuð í
breskum
fataversl-
unum t.d.
Oasis og
Karen Mil-
Ien. Sam-
kvæmt
fjármála-
fréttum
The Times
hækkaði verð í bankanum
Singer & Friedlander en
Kaupþing-Búnaðarbanki á
þar 10 prósenta hlut.
Vestfirðingar segja ekkert stefnuleysi í samgöngumálum:
Vilja jarðgöng fljótt
„Við erum að berjast fyrir því að
flýta framkvæmdum á Vestfjörð-
um," segir Birna Lárusdóttir forseti
bæjarstjórnar í fsafjarðarbæ. „Vest-
firðir eru áratugum á eftir flestum
öðrum landshlutum í vegafram-
kvæmdum."
„Engum á að dyljast í hváða
verkefni þeim fjármunum verði
varið." Hún segir að þvert á það
sem haldið hafi verið fram, ríki ekki
stefnuleysi í samgöngumálum
Vestfirðinga.
Birna leggur áherslu á fimm
verkefni sem samstaða náðist um
að hafa í forgangi árið 1997. „Það er
næstum búið að leggja veg milli
þéttbýlisstaða, flugvalla og ferju-
bryggja innan hvers samgöngu-
svæðis," segir hún.
Mikilvægt að
göngin verði gerð
næst á eftir göngum
á Austfjörðum.
Mest fé hefur á undanförnum
árum farið í tvö stórverkefni, Djúp-
veg og Vestfjarðaveg, milli Flóka-
lundar og Bjarkarlundar en næst er
áherslan á nýjan veg um Arnkötlu-
dal sem tengir Reykhólahrepp og
Strandir. „Mér þykir eðlilegt að
nýta fjármuni sem áætlaðir eru í
Strandaveg f þann veg," segir Birna.
„Hann sfyttir leiðina milli Isaíjarðar
og Reykjavíkur um 40 kílómetra."
Þessi vegur yrði liður í hringvegi
um Vestfirði senr á að tengja allar
byggðir saman. Þessu tengist næsta
stórverkefni sem eru jarðgöng milli
Dýrafjarðar og Arnarfjarðar sem
Birna leggur áherslu á að verði
byggð á eftir jarðgöngum á Austur-
landi. Undirbúningur að göngunum
er hafinn og gert er ráð fyrir þeim á
jarðgangaáætlun ríkisstjórnarinnar.
Birna segir mikilvægt að göngin
haldi sínum stað við endurskoðun
jarðgangaáætlunar. „Göngin munu
tengja norður- og suðursvæði Vest-
fjarða og þannig skapa eitt atvinnu-
og þjónustusvæði sem er forsenda
þess að á norðanverðum Vestfjörð-
um verði öflugur byggðakjarni sem
með réttu getur kallast höfuðstaður
Vestfjarða," segir hún.
Birna Lárusdóttir.