Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Síða 18
7 8 FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003
Fókus DV
Travis -
12
Memories
★ ★
Independiente/Skífan
Skotarnir í Travis snúa
aftur með plötuna 12
Memories eftir að hafa ver-
ið næstum hættir þegar
trommarinn lenti í alvar-
legu slysi í fyrra. Fran Healy
er forsprakkinn eins og
áður og semur öll lögin,
Plötudómar
Neil Primrose trommar,
Andy Dunlop spilar á gítar
og Dougie Payne spilar á
bassa. Platan fer ágætlega
af stað með fyrstu þremur
lögunum sem eru prýðis-
góð popplög, sérstaldega
upphafslagið Quicksand,
en svo fer að halla undan
fæti og hver flatneskjan
rekur aðra. Engan veginn
nógu gott.
Höskuldur Daði Magnússon
Muse -
Absolution
★ ★★★★
P\ ^ 'Á
Taste Media/Skífan
Muse er ein af vinsælli
rokksveitum hér á landi um
þessar mundir. Matthew
Bellamy leiðir sveitina eins
og á fyrri tveimur plötum
þeirra, syngur, spilar á gítar
og hljómborð auk þess að
semja lögin. Chris Wolsten-
holme spilar á bassa og
syngur bakraddir og Dom-
inic Howard er trommari
hljómsveitarinnar. Muse
var líkt við Radiohead á
fyrstu plötu sinni Showbiz
en á þeirri annarri, Origin
of Symmetry, fóru þeir á
full mikið „fyllerí" í útsetn-
ingunum en nú virðast þeir
hafa náð jafnvægi.
Absolution hefur verið köll-
uð „rokkópera" og það er
að einhverju leyti rétt,
dramatísk lög Bellamy,
falsettusöngur og daður
hans við klassíska tónlist
virka einstaklega vel. Án efa
ein af rokkplötum ársins.
Höskuldur Daði Magnússon
Franskt rapp hefur lengi
verið í fremstu röð, enda er
Frakkland næst stærsti hip-
hop markaðurinn í heimin-
um á eftir Bandaríkjunum.
IAM er ein af aðalrapp-
hljómsveitum Frakka,
stofnuð í Marseilles árið
1989 af þeim Akhenaton,
DJ Khépos og Jo. Seinna
bættust þeir Imhotep,
Kephren og Freeman í hóp-
inn. Revoir Un Printemps
er þeirra íjórða plata og
eins og þær fyrri er hún
stútfull af flottum töktum,
mögnuðum sándum og
fínu flæði. Method Man og
Redman koma við sögu í
laginu Noble Art og sjálf
Beyoncé syngur í Bien-
venue. Hvort tveggja snilld-
arlög. LAM hafa stundum
verið kallaðir Wu-Tang
Clan Frakklands, en Wu-
Tang þurfa að taka sig tölu-
vert á ef þeir ætla að slá
þessari plötu við!
TraustiJúliusson
Kvikmyndin Mystic River var frumsýnd í gær og hefur hún verið orðuð við
Óskarsverðlaunin. Sá sem hefur veg og vanda af gerð myndarinnar er enginn
annar en gamla kempan Clint Eastwood en leikararnir eru heldur ekki af verri
endanum: Sean Penn, Tim Robbins, Kevin Bacon og Laurence Fishburne fara allir
með stór hlutverk í ræmunni.
Grínast á tökustað Eastwood erþekktur fyrirað skapa gott andrúmsloft á tökustað og þykir afarskilvirkur og þægilegur ísamstarfi.
Frægðarsól Clints Eastwood hef-
ur oft risið ansi hátt og er talið með
ólíkindum hvað kappinn hefur end-
urnýjað feril sinn oft, en það hefur
honum tekist að minnsta kosti einu
sinni á hverjum áratug. Á sjöunda
áratugnum sló hann í gegn sem
nafnlausi kúrekinn í spagettívestr-
um Sergio Leones, á þeim áttunda
gerðist hann leikstjóri og fór að leika
harðsvíraða lögregluþjóna, á níunda
áratugnum hlaut hann lof fyrir kvik-
myndina Bird sem hann leikstýrði
og þótti takast ótrúlega vel og á þeim
tíunda átti hann hápunkt ferilsins
með kvikmyndinni „Unforgiven,"
mórölskum vestra sem hann leik-
Myndin fjallar um þrjá
æskufélaga sem hafa
ekki hist í langan tíma
en neyðast óvænt til
þess þegar dóttir eins
þeirra er myrt.
stýrði sjálfur. Hans nýjasta mynd,
Mystic River, hefur mælst vel fyrir og
er það mál manna að hér sé á ferð-
inni hin klassíska endurnýjun
Eastwoods á ferli sínum á fyrsta ára-
tugi þessarar aldar.
Drungaleg morðgáta
Myndin fjallar um þrjá æskufé-
laga sem hafa ekki hist í langan tíma
en neyðast óvænt til þess þegar
dóttir eins þeirra er myrt. Faðir
hennar Jimmy (Sean Penn), er viti
sínu íjær af bræði og þarf vinur hans
Sean (Kevin Bacon,) sem fer með
rannsókn málsins ásamt félaga sín-
um Whitey (Laurence Fishburne) að
hafa sig allan við til að upplýsa mál-
ið áður en Jimmy tekur upp á ein-
hverju miður skynsamlegu. Á með-
an öllu þessu stendur á þriðji vinur-
inn Dave (Tim Robbins) eftir að gera
upp ýmislegt úr æsku sinni.
Er trúr bókinni
Myndin er byggð á skáldsögu eft-
ir rithöfundinn Dennis Lehane og
lagði Eastwood áherslu á að vera
eins trúr bókinni og hægt var. Sagan
gerist í Boston og heimtaði leikstjór-
inn að taka myndina upp þar.
Eastwood er reyndar þekktur fyrir að
nota mikið af ekta tökustöðum og
einnig fyrir að vera mjög snöggur að
taka upp kvikmyndir sínar. Hann á
það til að segja leikurum sínum að
æfa atriði einu sinni fyrir tökur og
kvikmynda svo æfinguna án þess að
segja þeim frá því. Hann tekur
sjaldnast fleiri en tvær tökur af sama
atriðinu og hafa þessi vinnubrögð
gert hann afar vinsælan meðal fram-
leiðanda en myndir hans kosta yfir-
leitt mun minna en í upphafi var
áætlað. Leikarinn Tim Robbins er
sjálfur leikstjóri og var hann mjög
hrifinn af vinnubrögðum Clints á
tökustað: „Þetta var mjög fagmann-
legt vinnuumhverfi. Engin
bræðisköst eða tímasóun og sú stað-
reynd að hann er með frægari
mönnum kvilcmyndasögunnar virð-
ist skipta hann sjálfan afar litlu máli."
ari@dv.is
„Remember our deal Louis, I
sit through this
and I get anal,“
sagði ijölskyldu-
faðirinn Peter Griffin eitt sinn í
teiknimyndaþáttunum um
Family Guy sem sýndir eru á Skjá
Einum um þessar mundir. Peter
er skemmtilegur gaur sem lætur
sér fátt fyrir brjósti brenna. Hann
er ekki hræddur við að láta hlut-
ina flakka og það er í raun nokkuð
lýsandi fyrir þættina sem eru oft á
tíðttm mjög grófir. Peter á þó sfn-
ar mjúku hliðar og allt virðist
blessast á endanum. Sólon Sig-
urðsson bankastjóri kemur sum-
um fyrir sjónir á
svipaðan liátt
hann er harði
peningamaðurinn sem lætur við-
skiptavini bankans borga háa
vexti af yfirdrættinum og vinnur
að því markmiði að bankinn
græði sem mest. Kunnugir segja
þó að Sólon sé besti náungi, sem á
sér sínar mjúku og skemmtilegu
hliðar, rétt eins og Peter. Hvort
hann myndi nokkurn tímann láta
út úr sér sumar þær setningar sem
Peter gerir er aftur á móti allt önn-
ur saga.
Tvifarar