Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Qupperneq 27
DV Fákus
• Leikarinn Johnny Depp hefur
verið kjörinn kynþokkafyllsti maður
heims um þessar mundir. Depp
sigraði í kosningu sem bandaríska
tímaritið People stóð fyrir. Johnny
Depp býr í Frakklandi ásamt konu
sinni, Vanessu Paradis, og tveimur
börnum. Hann er þekktur fyrir að
leika undarlegar persónur í mynd-
um sínum og kemur sjálfur oft
furðulega fyrir sjónir í einkalífinu.
„En hann virðist vera að uppgötva
persónutöfra sína,“ sagði í umsögn
People.
• Monica
Lewinsky,
fyrrum lær-
lingur í
Hvíta hús-
inu, er enn
að jafna sig
eftir atburð-
ina þar, þeg-
ar hún átti í
sambandi
við Bill
Clinton, fyrrverandi forseta Banda-
ríkjanna. í nýlegu viðtali segist hún
eiga erfitt með að finna ástina, því
karlntenn óttist orðspor hennar.
Lewinsky segist hafa reynt sam-
bönd með nokkrum karlmönnum
en þau hafi alltaf strandað á
Clinton-málinu. „Ef ég væri karl-
maður og hefði heyrt aflar þessar
sögur um stúiku, er ég ekki viss um
að ég myndi viija vera með henni,"
sagði Lewinsky.
• Ljósmyndari
nokkur reyndi
að kúga fé út
úr leikkon-
unni Camer-
on Diaz fyrir
myndir sem
hann tók af
henni berbrjósta
áður en hún varð
fræg. Hann
reyndi einnig að
selja myndirn-
ar, sem eru
20 talsins, tU
kynningarfyr-
irtækis, en án
árangurs.
Hann hefur
verið kærður
fyrir tilraun til
fjárkúgunar,
tilraun til
þjófnaðar, meinsæri og fölsun.
Myndirnar voru teknar árið 1992,
tveimur árum áður en Diaz sló í
gegn í kvikmyndinni The Mask.
Diaz hefur haldið því fram að ef
myndirnar kæmu fyrir sjónir al-
mennings myndi það eyðileggja
möguleika hennar á að fá hlutverk í
fjölskvldukvikmyndum á borð við
Shrek2.
• Söngv-
aranum
Robbie
Williams
þykir
greinilega
vænt um
mömmu
sína. Á dög-
unum yfir-
gaf hann
partý sem
hann hélt þegar það hafði aðeins
staðið í sex mínútur til að borða
með mömmu sinni. Partýið var
haldið til að fagna útgáfu kvik-
myndar um stórtónleika hans í
Knebworth í fyrra. „Þetta er ekki
fyrir mig, ég ætla heim. Ég er hættur
að lifa eins og piparsveinn, ég vil
frekar drekka kaffi og fara út með
hundinn," sagði kappinn.
• Flugmað-
ur flugvélar-
innar sem
söngkonan
Aaliyah fórst
með í ágúst-
mánuði á
siðasta ári var
undir áhrifum
fíkniefna og
áfengis. Vélin
hrapaði á Ba-
hamas og
fórst Aaliiyah
ásamt átta
öðrum. Læknar sem rannsökuðu lík
flugmannsins fundu bæði kókaín
og áfengi í líkama hans. Foreldrar
söngkonunnar standap' málaferlum
við flugfyrirtækið vegna vanrækslu.
• Thom Yorke, söngvari Radi-
ohead, var á meðal þeirra sem
fylktu liði og mótmæltu heimsókn
George W. Bush til Bretlands í gær.
Yorke hefur undanfarin ár verið
duglegur að tjá pólitískar skoðanir
sínar og hann lét þetta tækifæri ekki
framhjá sér
fara. „Bæði
Bush og Blair
eru lygarar og
við höfum
rétt á því að
kalla þá það.
Þeir stofna
framtíð
barn-
anna
okkar í
hættu,"
sagði
hann.
Blaðberar óskast
415-04 730-04
Völusteinsstræti Hæðargerði
brúnalandi Vallagerði
Holtabrún 800-10
415-05 Austurvegur
Vítastígur Miðstræti Kirkjuvegur
800-11
545-02 Seljavegi
Sunnuvegur Fossheiði
Bogabraut 800-12
550-10 lambhagi
Furuhlíð Brennihlíð Reyrhagi
Víðihlíð 800-16 Vallholt
620-06 Víðivellir
Ægisgata Drafnbraut 800-17 Hrísholt
620-07 Sólvellir
Goðabraut 800-18
620-08 Grenigrund
Sunnubraut Stekkholt
Ásvegur Einnig vantar
640-12 okkur fólk í
Auðbrekka hvammi Fyrirtækja- dreifingu.
Sími 550 5000
askrift@dv.is
www.visir.is
Nýtt DV sex morgna vikunnar.
Ekkert kynningartilboð.
Engin frídreifing.
Mánaðaráskrift 1.995 krónur.