Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.2003, Side 31
DV Síðast en ekki síst
FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2003 31
Laugavegur kl. 14:17
Sagan af Sigurrós
„Ætlar þú að skrifa um mig heila
bók. Ég sem hélt að Linda Pé. væri
jólabókin í ár,“ segir Sigurrós Svav-
ardóttir sem starfar í kvenfataversl-
unni í takt við Laugaveginn. Hún var
að stilla fínu fötunum út í glugga í
gærdag og sagði ekki seinna vænna.
Jólaverslunin er þegar hafln; nýtt
kortatímabil var að ganga í garð.
„Það er engin ein lína áberandi í vin-
sældum sem jólaföt. Rauði liturinn
stendur þó alltaf fyrir sínu á þessum
tíma árs. Er sígildur."
Sigurrós hefur staðið vaktina á
Laugaveginum býsna lengi. Hún er
fædd í miðborginni, það er við Laug-
aveg, og hefúr lengst af starfað þar.
Var þó um hríð í Kringlunni, en er nú
aftur komin á kunnuglegar slóðir.
„Þessi hluti borgarinnar, mið-
bærinn, hefur alltaf staðið nærri
hjarta mínu. Og því fer fjarri að mið-
borgin sé að fjara út. Þú sérð bara
hvað umferðin er mikil núna og þó
er bara eftirmiðdagur á miðviku-
degi. Þetta á eftir að aukast mikið
þegar nær dregur hátíðum."
Lífið er ekki bara vinna og að
mörgu er að hyggja þegar vinnu lýk-
ur. „Mér finnst til dæmis alftaf mjög
gaman að bregða mér á línuskauta,
enda þó það sé tæplega hægt nú á
haustin þegar skænið er farið að
leggjast yfir göturnar. En þá er í stað-
inn hægt að fara í göngu- túra, það
er til dæmis mjög stutt fyrir mig í
Fossvogsdalinn og Nauthólsvíkina.
Síðan hef ég lengi ætlað mér að
stunda sundlaugarnar aftur og hver
veit nema ég bregði mér þangað
bráðlega."
sigbogi@dv.is
Búðarkonan „Sárauðistendurfyrirslnu." DV-mynd-sbs
Þjóðfræðingurinn Ævintýri að sjá líf-
ið kvikna.
Bankastjóri og
búkollubók
„Núna erum við að leggja
lokahönd á nýja búkollubók
um Strandasýslu, þar sem sagt
verður ffá búsetu á hverjum
einasta bæ ffá Hrútafirði og
norður í Árneshrepp. Auk þess
segir líka ffá mannlífi á Hólnia-
vík og Drangsnesi; þorpunum
tveimur í sýslunni. Áform okkar
eru að ganga frá bókinni á að-
fangadag, taka okkur þá ofur-
litla pásu og síðan verði byrjað
að prenta bókina strax eftir ára-
mót,“ segir Jón Jónsson þjóð-
Landsíminn
á Kirkjubóli á Ströndum.
- Fyrir nokkrum vikum varst
þú kjörinn ferðafrömuður árs-
ins. Er mikill ferðamanna-
straumur á Ströndum á þess-
um tíma árs?
„Nei, túrisminn hér varir
eiginlega ekki nema frá 17. júní
og fram að í ágúst. Við þurfiim
að lengja ferðamannatímabilið
til dæmis fram á vorið. Fyrir
marga væri ævintýri að koma
hingað og fylgjast með varpinu
og sauðburðinum; að sjá þegar
lffið kvilcnar hér í sveiúnni."
- Einhverjar aðrar fréttir af
Ströndum...
„Ég get sagt þér frá banka-
stjóranum á Hólmavík, Jóni
Kristinssyni, sem er búinn að
standa þar vaktina í ótalmörg
ár. Hann er nú að hætta og ætl-
ar að snúa sér að sauðíjárbú-
skap, einsog sem hann hefur
raunar alltaf haft svona ffamhjá
bankastörfum. Jón er sem sagt
að hætta í bankanum en ætlar
að stússast áfram með fé.“
Unun í
samkeppni
Bæði Heiða og Dr. Gunni
eru að gefa út plötu um þessar
mundir. Plata Heiðu heitir Tíu-
fingurupptilguðs
en Doktorinn
gefur út Stóra
hvell. Þau eru því
komin í bullandi
samkeppni um
Ununarhyllina
sem eitt sinn var
við lýði. Það var
áður en Dr.
Gunni gaf út
hina mögnuðu barnaplötu
Abbababb sem sumir stjórn-
málamenn voru á móti (eins
og oft vill verða með þá fáguðu
stétt) en almenningur tók fagn-
andi. Talað er um Stóra hvell
sem Abbababb fyrir fullorðna.