Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2003, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 2003
Fréttir DV
35 börn í
Rauðakross-
húsinu
Konur í neyslu eiga í fá hús að vernda. Gistiskýlið í Þingholtsstræti stendur þeim
til boða en þær eru smeykar við að fara þangað einar. Unnið er að því ,að koma á
fót gistiheimili fyrir konur en langt er í að það verði að veruleika.
Til eru börn og ung-
menni sem vilja ekki vera
heima hjá sér
um jólin og flýja
heimili sín yfir
hátíðarnar
vegna erfiðra
heimilisað-
stæðna. Um
hver jól leita í
Rauðakrosshús-
ið á Tjarnargötu
35 bæði börn og
unglingar sem ekki geta
verið heima hjá sér, ýmist
vegna drykkju foreldra
sinna eða ofbeldis. Sum
þeirra eiga sér ekki öruggan
næturstað. I húsinu er rúm
fyrir átta ungmenni, en
engum er úthýst og þar er
opið allan sólarhringinn.
12 þúsund án barn-
anna um jólin
Á Islandi og í nágranna-
löndum okkar er talið að
um fjórðungur barna sé án
annars eða beggja foreldra
sinna. Þetta á líka við um
hátíðarnar. Margir einstæð-
ir foreldrar eru því einmana
um jólin en á Islandi eru
rúmlega tólf þúsund með-
lagsgreiðendur. Sem merkir
að yfir 12 þúsund manns
eru án barnanna sinna um
jólin.
Skiptast á að hafa
börnin
í fyrra voru skráðir hjá
Sýslumanninum í Reykjavík
282 lögskilnaðir, og þangað
bætast við um 3000 forsjár-
og umgengnismál á ári. Fé-
lag einstæðra
foreldra bendir á
að þótt það séu
vissulega margir
einmana um jól-
in þá færist það í
vöxt að fólk sem
skilur velji að
hafa sameigin-
legt forræði yfir
börnunum og skiptist því á
um að halda með þeim jól.
Aðrir skipta dögunum yfir
hátíðarnar með sama fyrir-
komulagi um hver jól.
Allt að fjörutíu konur búa á götunni í Reykja-
vík alla jafna og um jólin má gera ráð fyrir að
helmingur þeirra verði á vergangi því gistiheim-
ilin taka mörg hver bara við karlmönnum. Að-
eins eitt gistiheimili er opið konum en það er að
mestu setið körlum og konur leita þangað ekki
nema þær séu í fylgd kærasta eða karlmanns
sem getur varið þær.
Reykjavíkurdeild Rauða krossins hefur kann-
að hve þörfin er mikil og komist að þeirri niður-
stöðu að á milli þrjátíu og fjörutíu konur eigi
þann eina kost að
leita á náðir lögregl-
unnar í Reykja-vík
eftir gistingu ef þær fá
ekki inni hjá neyslu-
félögum sínum. Eng-
in heimili fyrir konur
eru rekin á vegum yf-
irvalda en gistskýlið í
Þingholtsstræti er
ætlað báðum kynjum.
Konurnar hafa látið
að því liggja að þær
séu hræddar við að
leita þangað einar af
ótta við að sofa þar
sem margir karlar eru
fyrir.
Lára Björnsdóttir Veitaf
þörfinni og staðfestir að
Reykjavíkurdeiidin hafi leitað
eftir samastarfi um gistskýli
fyrir konur.
Gistiskýli í deiglunni
Svafa Hildur Asgeirsdóttir, framkvæmdastjóri
Reykjavíkurdeildar Rauða kross Islands, tekur
undir það að konurnar séu ófúsar að leita þang-
að einar: „Þær fara ekki þangað nema í fylgd
kærasta eða náins vinar sem þær geta treyst,"
segir Svafa.
Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykja-
víkurborgar, segir að í athugun sé að koma á
fót heimili fyrir konur í samvinnu við Reykja-
víkurdeild Rauða krossins. Félagsmálayfir-
völdum hafi verið kunnugt um að þörfin væri
fyrir hendi: „Það eru mjög margir áfangastaðir
fyrir karla sem eru að koma úr meðferð en að-
eins einn fyrir konur. Þarfir þeirra eru ekki
þær sömu og karlanna, hvernig sem á því
stendur. Þær eru einfaldlega síður reiðubúnar
að búa saman í hóp en karlar," segir hún.
Svafa segir að þarfagreiningin sem gerð
hafi verið á vegum Reykjavíkurdeildar Rauða
krossins hafi sýnt að hægt sé að benda á tuttugu
konur sem séu í brýnni þörf nú þegar en líklegt
þyki að þær séu helmingi fleiri.
„Það bráðvantar gistiskýli fyrir konur með 7-8
rúmum en þangað gætu þær komið og sofið,
þvegið af sér og fengið að borða.
Þetta er dýrt verkefni sem
mannað verður með sjálf-
boðaliðum að hluta. En
heimilið verður ekki
komið á fót fyrir jól.
Það verður óbreytt
ástand um jólin.
Þær geta ekkert leit- i
að nema til lögregl- I
unnar og fengið '
gistingu í fanga-
geysmlunni en ég
veit að lögreglan hefur
verið mjög góð við
þær,“ segir Svafa.
Konur duglegri að
bjarga sér
Árni Vigfússon í forvarn
ardeild lögreglunnar í
Reykjavík segir að
konur séu í
mikl-
um minnihluta þeirra sem æski gistingar í fanga-
geymslum lögreglunnar. „Við vísum engum frá
sem óskar eftir næturgistingu hjá okkur nema
þegar fólk er farið að stunda það að koma og líta á
famgeymslurnar sem eitthvert hótel. Þetta eru
bæði konur og karlar sem ekkert vilja gera í sínum
málum,“ segir hann. Árni viðurkennir að
erfitt sé að koma fólki í meðferð þar sem
löng bið sé á meðferðarstofnunum.
Á Gistiheimilinu Þingholtstræti
fengust þær upplýsingar að konum
væri ekki vísað frá þegar þær leit-
uðu eftir gistingu. Hins vegar væri
heimilið algjört karlaveldi og það
væri sjaldgæft að konur kæmu
þangað. Umsjónarmaður á heim-
ilinu sagðist reikna með að konur
væru innan við 10% þeirra sem
þangað leituðu en svo virtíst sem
þær væru duglegri við að finna sér
samastað annars staðar heldur en
karlar.
bergljot@dv.is
Svafa Ásgeirsdóttir Konurnarþora ekki að
leita gistingar i Þingholtsstræti nema með
kærasta eða karlmanni sem gætirþeirra.
Engin heimili eru rekin á vegum yfir-
valda fyrir konur en gistskýlið i
Þingholtsstræti er ætlað
báðum kynjum.
Besta fyrirkomulagið
Ekki eru allir sammála
um hvert besta fyrirkomu-
lagið sé. Hjá Félagi ábyrgra
feðra fengust þær upplýs-
ingar að þegar ekki væri um
hjónaband eða sambúð að
ræða væru börnin yfirleitt
hjá mæðrum sínum yfir há-
tíðarnar. í sumum tilvikum
hittu þau föður sinn ekkert
um jólin. Félagið gagnrýnir
að í greinargerð með
barnalögum sé gert ráð fyr-
ir að börn séu hjá forsjár-
foreldri sínu á aðfangadag.
Mikilvægt sé að börnin
upplifi sig í fjölskyldu-
tengslum við báða foreldra.
Rúmeni stöðvaður í Leifsstöð
Grunaður um að
safna ólöglegum
vegabréfsáritunum
Rúmenskur karlmaður hefur ver-
ið úrskurðaður í gæsluvarðhald fram
á miðvikudag en hann er grunaður
um misferli með vegabréfsáritanir.
Maðurinn, sem var handtekinn þeg-
ar hann var á leið úr landi á laugar-
dag, var með talsvert af vegabréfum í
fórum sínum. Hann var einnig með
fölsuð flugáhafnarskírteini á sér.
Grunur er um að maðurinn hafi
verið að reyna að afla vegabréfsárit-
ana með ólögmætum hætti. Sam-
kvæmt heimildum DV er málið litið
mjög alvarlegum augum og stendur
rannsókn yfir þar sem verið er að
kanna meðal annars hverja hann
hafði samskipti við á meðan hann
staldraði við hér á landi. Hugsanlegt
er talið að maðurinn sé það sem
kallað er „visa shopper" sem felst í
því að safna vegabréfsáritunum
ólöglega fyrir fólk sem ekki ætti ann-
ars rétt á að komast inn á Schengen-
svæðið. Málið var tekið fyrir hjá Hér-
aðsdómi Reykjaness á laugardaginn
og féllst dómarinn á að maðurinn
skyldi sitja í gæsluvarðhaldi fram á
miðvikudag.
Landamæralögreglan Handtók Rúmena fyrir að safna vegabréfsáritunum á fölsuð flug-
áhafnarskírteini.