Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2003, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 2003
Síðast en ekki síst DV
Ókeypis á Justin
Eins og margir vita hefur undan-
farið staðið yfir leikur hjá Kók þar
sem kaupendur svaladrykkjarins
hafa getaðð komist í pott og aðal-
vinningurinn var ferð á tónleika
i x m,i með Justin Timberlake £
' ri j Manchester. Tónleikarnir
voru á föstudagskvöldið og áttu
vinningshafarnir kost á að fljúga út
með einkaþotu og að sjálfsögðu
beið límósína á flugvellinum sem
flytja átti hersinguna á tónleikana
með Justin. Kók hefur áður staðið
fyrir svipuðum leikjum í samvinnu
með FM957 með góðum árangri.
Það kom því nokkuð á óvart að
þessu sinni að einungis einn vinn-
ingshafi gaf sig fram, en alls voru
átta sæti í boði. Því mun hafa verið
brugðið á það ráð að efna í skynd-
ingu til „Timberleiksins" á útvarps-
stöðinni. Það skilaði tveimur vinn-
ingshöfum til viðbótar en enn átti
eftir að fylla nokkur sæti. Að end-
ingu voru það því tveir útvarps-
menn á FM957, þeir Svali og Þröst-
ur 3000, sem sendir voru í ferðina.
Svo bættist Vilhelm Anton Jónsson,
sjónvarpsmaður í At og söngvari í
200.000 naglbítum, í hópinn og að
síðustu tveir starfsmenn Vífilfells.
Ekki alveg það sem lagt var upp
með en allir munu hafa skemmt sér
vel...
Svali og Villi Fengu fría ferð hjá Kók á tón-
leika með Justin Timberlake afþvi að vinn-
ingshafar skiluðu sér ekki.
Auðveldur sigur
Indverjar eru meðal þeirra þjóða
sem hafa tekið stórstígum fram-
fTwnfpi förum við skákborðið á
PJaV-.IÁ'Í undanförnum áratug.
Það er ekki lengur aðeins Vishy
Anand sem er í fylkingarbrjósti;
margir aðrir stórmeistarar hafa bæst
við. Hér sjáum við hvítan vinna
mann á miðju borði og ekkert við
því að gera!
Hvítur á leik!
Hvítt: P. Harikrishna (2570)
Svart: Praveen Thipsay (2486)
Indverska meistaramótið, Kal-
kútta (8), 08.12. 2003
27.Hd5 He5 28.g4 De6 29.Dxf4
1-0
• í pistli á vefsetrinu Kreml.is er
framganga DV í svonefndu Patreks-
fjarðarmáli lofuð - en margir hafa á
Síðast en ekki síst
hinn bóginn verið afar ósáttir við
hana. Það er Ingólfur Margeirsson
blaðamaður sem þarna leggur orð í
belg og segir eftirfarandi: „DV birti
mynd af Patreksijarðarníðingnum á
forsíðu. Það fannst
örugglega mörg-
um vafasöm
blaðamennska og
tvíeggjuð. Ekki
mér. Ég tek af
hattinn fyrir rit-
stjórum blaðsins
að sýna lands-
mönnum níðinginn og birta nafn
hans. Það kennir kannski öðrum
níðingum að taka viðbrögð samfé-
lagsins alvarlega og að þeir geti ekki
gengið óáreittir um þjóðfélagið okk-
ar og framið hvert níðingsverkið af
öðru. Og skapað karlafælni um
leið.“...
• Ákveðið hefur
verið að ísaijarð-
arhátíðin, sem
halda átti til að
heiðra minningu
Hannesar ráð-
herra Hafstein,
verði haldin 17.
janúar. Sem kunnugt er átti hún að
vera fyrr í þessum mánuði, en var
sett á ís á síðustu stundu. Sem
kunnugt er verða 1. febrúar liðin
100 ár frá þvf Hannes tók við ráð-
herradómi - og verður væntanlega
mikið um dýrðir af því tilefni. Á Isa-
ljarðarhátíðina væntanlegu hefur
verið boðið mörgu stertimenni, þar
á meðal allri ríkisstjórninni. Dag-
setningin 17. janúar lætur lítið yfir
sér í fyrstu, en hefur þó djúpa
meiningu þegar betur er að gáð.
Þetta er einmitt afmælisdagur eftir-
launamannsins Davíðs Oddssonar,
sem verður 56 ára þennan dag ...
„Ég er bara staddur í miðri veisl-
unni. Hér er allt á fullu,“ sagði Ás-
geir Davíðsson, Geiri á Goldfinger,
þegar DV sló á þráðinn til hans í
gær. Geiri var þá staddur á Fjöru-
kránni þar sem hann hélt jólaball
fyrir starfsfólkið sitt og börn þess.
„Mér finnst svo þjóðlegt að vera
hérna á Fjörukránni. Það passar líka
vel enda eru margar stúlkurnar hjá
mér farnar að koma hingað með
börnin sín og jafnvel mæður sínar.
Þær eru farnar að fá sér sjálfar íbúð-
ir á leigu og eru hérna stóran hluta
af árinu. Þá finnst mér við hæfi að
gera eitthvað fyrir þær á stórhátíð-
um eins og jólin eru og því reynum
við að sýna þeim hérna þjóðarsiði
íslendinga eins og hægt er," segir
Geiri.
Svo fæiðirðu þeim gjafir, ekki
satt?
„Ég gef nú alltaf öllu starfsfólkinu
mfnu gjafir. Þegar þið komuð og
mynduðuð var ég bara að pakka inn
fyrir börnin. Það er svo mikil stemn-
ing hér, hann Jói hérna á Fjöru-
kránni er með jólasvein sem réttir
börnunum gjafirnar þannig að
þetta er alveg frábært," segir Geiri
sem taldi að um 50 manns væru í
veislunni. Boðið var upp á hangi-
Geiri á Goldfinger Var i óða önn að pakka inn jólagjöfum fyrir börn starfsfóiks sins igær. Hélt svo 50 manna jólaball á Fjörukránni.
kjöt, laufabrauð, síld, hákarl og skyr,
svo eitthvað sé nefnt.
Fei svo ekki fólkið í vinrtuna á
eftir?
Krossgátan
Lárétt: 1 listi, 4 tungu, 7
andúð, 8 sögn, 10
hnuplaði, 12 kvendýr, 13
aðeins, 14 gerlegt, 15
góð, 16 ganga, 18 ferskt,
22 lýkur, 22 sælgæti, 23
þjöl.
Lóðrétt: 1 sjón, 2 rölt, 3
ófulikomið, 4 náðar, 5
stefna, 6 ánægð, 9 reykti,
11 gagn, 16 kaðall, 17
skref, 19 væta, 20 fjör.
Lausn á krossgátu
•dei 07 TjX 6 L 'JSJ L t
'6oj 9 l 'iouje l i 'igeso 6 jæs g 'ue s 'jeuun>|S!Lu þ 'jueAeioqe £ joj z 'uás i :»ajgo-|
’dsej íz 'Ho6 ££'jepua LZ'lláu 8L
'ejp g l 'useA g i 'juun y l 'ejeq £ i '>|ji z l jeis ol '0|Ou 8'l|sqo L 'S|eiu þ 'bj>|S l :«?Jei
„Jú jú, það fara flestir í vinnuna á
eftir," sagði Geiri og kallaði á Jóa fé-
laga sinn á Fjörukfánni. Útskýrði
Geiri svo fyrir blaðamanni að hann
væri að gefa Jóa mynd af Bjarna
riddara á siglingu inn í Hafnarfjarð-
arhöfn 13. 9. 1947. „það gaf einhver
mér þessa mynd þegar ég var á
Hafnarkránni, hún passar einhvern
veginn ekki alveg á strippstað
þannig að það er betra að gefa Jóa
hana," sagði Geiri og skellti upp úr.
Ertu kominn íjólaskap sjálfur?
„Jájá, ég er kominn í jólaskap,
eða jólastuð öllu heldur."
Þú hefur ekki keypt gjöf handa
sjálfum þéi?
„Nei, ég er ekki búinn að því enn.
Ætli við reynum ekki að splæsa í ut-
anlandsferð saman, við hjónin."
Veðrið
<3
+5
h
ÍQ
+4 Nc>kkur
vindur
Strekkii
4 éNokkur
vindur
mgur
^rT^okkur
+5' * vindur
Nokkur. -
* j * t vlndur
__ w3/
.ot ,+7,,“
* »* iStrokkingur