Alþýðublaðið - 21.04.1969, Page 2
2 Alþýðublaðið 21. apríl 1969
I
Ágæt orð
Nú virðist vcra komið ágætt orð.
yfir Stop Over farþega Loftlciða.
Nú heita þeir Aoingafarþegat og
dvölin áningadvpl í fréttatilkynn-
ingum félagsins.
3
Þá er orðið Pínupils yfir stuttu
pilsin ágætt orð sem flestir ættu
að nota.
:---------------
I
Mctmæla
i
i
heræfingum
Samtök hernámsandstæðinga hafa
■mótmælt heræfingum brezku her-
deildarinnar sem er nú að æfingum
' a svæðinu við Rúrfeil. Ennfremur
mótmæla samtökin afgreiðslu kaf-
þáta á vegum NATÓ.
' <
I
Gaf
100 þús. krónur
. Einn af velunnurum Rlindravina-
félags íslands afhenti fyrir nokkru
formanni félagsins kr. 100.000,00 að
gjöf til styrktar starfsemi félagsins
og framkvæmdum þess.
I
I
Harðskeyttir
múrarar
Askorun
, Stjórn sambands breiðfirzkra
kvenna hefur sent eindregna áskor-
un til Alþingis, að veita nú þegar
fé til stækkunar fæðingardeildar
Landsspítalans og sérstakrar kven-
sjúkdómadeildar.
Stjórnin álítur að þetta nauðsynja-
> tnál, er snertir allar íslenzkar kon-
ur þoli enga bið og vísar til tillögu
‘ lieilbrigðismálanefndar Bandalags
kvenna í Reykjavík.
flárhagur
útvarpsvirkja
góðtr
Aðalfundur f Félagi íslenzkra út-
varpsvirkja var haldinn 9. apríl s.I.
í skýrslu stjórnarinnar kom fram
að féfagstíf hafði verið með miklum
blóma á liðnu starfsári og fjárhagur
félagsins góður, tala félagsmanna
e rnú orðín 74, á síðasta ári varð
félagið .40 ára og voru þrír útvarps-
virkjameistarar sæmdir merki fé-
lagsins úr gulli þeir Eggert Benónýs
son, Friðrik A. Jónsson og Olafur
/ónsson, í stjórn F.I.U. sitja nú,
form. Vilberg Sigurjúnsson, ritari
Hjörtur Hjartarson og gjaldkeri
Halldór J. Arnórsson.
Ungverskum
fréttamanni
vísað frá Kína
Peking 21.4. (Ntb-Afp).
Kiínverjar halfa vísað ungverska
fréttamanninum Kardly Patak
úr landi innan þriggja daga. Á-
staeðan er sú að Patak hefur í
igneinum sínum gagnrýnt stjórn-
fMöId í Kínfa, þar á meðal sjálf-
gn Mao Tse Tung og Lin Piao.
varaformann.
I
I
?
Við sjáum hér þrjár stolta múrara frá Köln. Þeir eiga óstað-
fest Evrópumet í lagningu múrsteina. Á 6 mánuðum lögðu þeir
950 þúsund steina í þetta 16 hæða hús, sem rúmar 75 íbúðir.
Þeir voru 6 vikum skemiuir með verkið en meðalafköst gefa til
kynna. Árangurinn er fyrst og fremst að þakka mjög góðri
skipulagningu og áhuga þremenninganna.
I Loftleiðir
I bjóða 20 ferðir
I á viku til
I
1
I
I
I
I
I
I
og frá New
York í sumar
SUMARÁÆTLUN Loftleiða gekk
í gildi hinn 1. þ. m., cn þá var
ferðafjöldinn aukinn frá því, sem
verið hafði frá 1. nóvember síðastl.
Hinn 14. maí næstk. verður enn
bætt við fctðafjöldann, og verður
hann í hámarki frá 14. maí til 9.
október, en þá verður fækkað ferð-
um, unz ný vetraráætlun hefst, hinn
1. nóvember.
I sumar verða farnar 20 ferðir í
viku til og frá New York, og verða
flugvélar Loftleiða þess vegna 40
sinnum á Keflavíkurflugvelli viku-
lega, á leið til eða frá New York.
Af þessum 20 ferðum verða 16
farnar til og frá Luxemborg, þrjár
til og frá Skandinavíu og ein til
og frá Lundúnum-Glasgow.
Ti! áætlunarferðanna verða ein-
ungis notaðar RR-400 flugvélar
Loftíeiða, fjórar 189 sæta og ein,
sem er 160 sæta.
Cloudmasterflugvélarnar fjórar
eru í leiguflugi, aðallega vegna
hjálparstarfsemi á vegum kirkjufé-
laga, vegna styrjaldarinnar í Niger-
íu.
Að undanförnu hafa flugvélar
Loftleiða komið frá Evrópu um og
eftir miðna'tti og haldið svo eftir
skamma viðdvöl til New York og
lent þar snemma morguns. í sum-
ar verður sú breyting á, að fimm
af New York-ferðunum hefjast frá
Islandi upp úr hádegi, en þá er
komið til New York um kvöldverð-
arleyti að staðartíma. Eru þessar
ferðir hagkvæmar þeim, sem frem-
ur vilja fijúga að degi til en nóttu.
Gildir þetta einnig um fimm viku-
legar ferðir frá New York.
Hétt er að vekja athygli á sér-
fargjöldum milli Islands og Norð-
ur-Evrópu, sem eru í gildi vor og
Framhald á bls. 12.
KIRKJUFÉLÖG
OG LOFTLEIÐ-
IRSTOFNA
FÉLAGIÐ
FLUGHJÁLP
FOSTUDAGINN 18. apríl 1969
var hlutafélagið FLUGHJÁLP stofn-
að 1 Reykjavík. Stofnendur félags-
ins eru Hin evangelísk-lútherska
kirkja á Islandi, hjálparstarfsemi
þriggja skandinavískra kirkjufélaga
og hlutafélagið Loftleiðir.
Hlutafé félagsins er 100 þús. kr.
„Tilgangur félagsins skal vera al-
þjóðleg hjálpar- og mannúðarstarf-
semi. I því augnamiði hafi félagið
með höndum eignarhald eða leigu-
töku og rekstur flugvéla og ann-
arra flutningatækja vegna flótta-
mannahjálpar eða í þágu nauð-
staddra þjóða, hópa eða einstaklinga
um heim allan, eftir því sem ástæða
gefst til. Félagið skal ekki rekið
hagnaðarskyni og hefur engin skipt
af trúmálum, kynflokkadeilum ne
stjórnmálum, alþjóðlega eða í ein
stökum löndum, enda skal það aðal
lega starfa á vegum hins íslenzka
þjóðkirkjufélags, kirkjusamtaka
Norðurlanda (Nordchurchaid) og
annarra hjálpar- og mannúðarstofn*
ana, eftir því sem nánar greinir f
samþykktum félagsins."
Stjórn féjagsins skipa: Herra bisk-
up, Sigurbjörn Einarsson, og cr
hann formaður, Kristján Guðlaugs-
son, hæstaréttarlögmaður, formaður
stjórnar Loftleiða, og Jóhanne*
Einarsson, verkfræðingur, deildar-
stjóri hjá Loftleiðum.
I
MIKIL FLUGVÉLAKAUP.
I
Drög hafa nú verið lögð að kaup-
um félagsins á tveimur Cloudmaster
flugvélum Loftleiða, sem Nord-
churchaid hefur að undanförnti
haft á Ieigu til flutninga milli Sao
Tome og flugvallar í Biafra. Einn-
ig er í ráði að Flughjálp kaupi 2
DC-6B flugvélar, sem hollenzka
flugfélagið Transavia hefur að und-
anförnu notað til Biafraflutning-
anna, óg hefur^enn í förum milll
Sao Tome og Biafra.
HÖFUÐSTÓLL
LÍFEYRIS-
SJÓÐANNA ER
2.400 millj.
„ENGIR PENINGAR TIL“ er
viðkvæðið alls staðar. Einhvers stað-
ar eru þó til peningar og það kom
fram' á nýafstöðnum aðalfundi
Landssambands lífeyrissjóða að ið-
gjaldatekjur allra lífeyrissjóða lands-
ins hefðu numið um 300 milljónum
króna árið 1968 og í lok þess árs
hefði samanlagður höfuðstóll num-
ið um 2.400 milljónum króna.
I fréttatilkynningu frá landssam-
bandinu segir, að formaður hafi
gert grein fyrir tilraunum lands-
sambandsins til að fá bættan hlut
félaga lífeyrissjóða í sambandi við
lánareglur Húsnæðismálastjórnar,
og hefur það leitað til Alþingis og
þingflokkanna í því skyni að koma
fram breytingu á lögunum um Hús-
næðismálastofnun ríkisins. Enn
fremur vék hann að þeim vanda,
sem að lífeyrissjóðunum steðjar
vegna áframhaldandi óheillaþróun-
ar í verðlags- og kaupgjaldsmálum,
en hún gerir sjóðunum erfitt fyrir
að standa við skuldhindingar sfn-
ar í framtíðini og veldur þó jafn-
framt því, að sjúðfélagár telja Iff-
eyrisgreiðslur algerlega ófullnægj-
andi, séu þær ekki vérðtryggðar.
Rætt var um væntanlega 'frafrt-
vindu mála í sambándi við stpfnun
almenns lífeyrissjóðs fyrir þorra
landsmanna eða launþega almennt,
og var stjórn landssamb. falið að
kveðja fulltrúa saman til fundar um
þessi mál, er hún teldi það tfma-
bært.
Úr stjórn Landssambands lífeyr-
issjóða gengu þeir Guðjón Hansen,
Gfsli Olafsson og Guðmundur
Árnason, en kjörnir voru til næstu
tveggja ára:
I
Hermann Þorsteinsson, fulltrúl.
Ingólfur Finnbogason, húsasmíða-
meistari.
Gunnlaugur J. Briem, deildar-
stjóri.
Bjarni Þórðarson, tryggingafræU-
ingur.
Birgir Isl. Gunnarsson, liæsta-
réttarlögmaður. 1